Morgunblaðið - 14.07.1999, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Peninga-
þvætti um-
fangsmikið
I Noregi
NEÐANJARÐARHAGKERFIÐ í
Noregi veltir um 217 milljörðum
norskra króna árlega, samkvæmt út-
reikningum Nordisk Posttidskrift,
sem jafngildir um 2040 milljörðum
íslenskra króna. Upphæðin samsvar-
ar fímmtungi af þjóðarframleiðslu
Norðmanna en fram kemur að féð sé
í flestum tilfellum hvítþvegið af lög-
legum fjármálafyrirtækjum, svo sem
bönkum. Rannsókn á vegum Jo-
hannes Keppler-háskólans í Austur-
ríki hefur leitt í ljós að Noregur er
eitt þeirra Evrópulanda þar sem um-
fang svartamarkaðsstarfsemi er
hvað mest, ásamt löndum eins og
Ítalíu, Belgíu og Svíþjóð.
Arnfinn Skjervold, sérfræðingur
hjá Postbanken í Noregi, segir að um
75% af peningaþvætti í Noregi fari
fí-am í löglega reknum fjármálastofn-
unum og sé síðan fjárfest í löglegum
atvinnurekstri. Að sögn hans til-
kynna afgreiðslustaðir Postbanken í
Noregi um mörg tilvik á hverju ári til
efnahagsbrotadeildar lögreglunnar,
0KOKRIM, þar sem vafi leikur á
uppruna fjármuna sem bankinn hef-
ur í umferð. Mörg þeirra tilvika sem
tilkynnt hafa verið eru enn órannsök-
uð en nú hefur 0KOKRIM fengið
aukið afl til að fást við peningaþvætti
og væntir Skjervold þess að meiri ár-
angur muni nást í kjölfarið, að því er
fram kemur í Nordisk Posttidskrift.
----------------
Níu netfyrir-
tæki mynda
bandalag
Washington. Reuters.
NIU netfyrirtæki í forystuhópi net>
fyrirtækja á heimsvísu hafa nú mynd-
að bandalag um að móta framtíðar-
stefnu veraldarvefjarins. NetCoa-
Iition.com mun gæta hagsmuna net-
fyrirtækja í opinberri stefnumótun.
Fyrirtækin sem um ræðir eru
America Online, Yahoo!,
Amazon.com, DoubleClick, eBay,
Excite+Home, Inktomi, Lycos og
theglobe.com. í tilkynningu frá sam-
tökunum segir að 90% af netnotend-
um heimsins heimsæki síður ein-
hverra af fyrirtækjunum níu í hverj-
um mánuði.
VIÐSKIPTI
Formlega gengið frá sameiningu tveggja sjóða
Sparisjóðir Strandamanna
og Arneshrepps sameinaðir
Starfsmenn Sparisjóðs Strandamanna: Helga Sigurðardóttir, Jóm'na
Pálsdóttir og Benedikt Grímsson sparisjóðsstjóri.
Á AÐALFUNDUM Sparisjóðs
Strandamanna á Hólmavík og
Sparisjóðs Árneshrepps í Norður-
firði var samþykkt að sameina
sjóðina miðað við stöðu þeirra um
síðustu áramót.
Á sameiginlegum framhaldsað-
alfundi hjá sjóðunum, sem haldinn
var nýverið, var formlega gengið
frá sameiningunni og nýjum sam-
þykktum fyrir sjóðinn, lagður
fram stofnefnahagsreikningur og
kosin ný stjórn. Með samruna
sjóðanna er að því stefnt að til
verði fjárhagslega sterkari spari-
sjóður sem þjóni einstaklingum og
lögaðilum.
Nafn hins sameinaða sjóðs er
Sparisjóður Strandamanna. Af-
greiðslustaðir sjóðsins verða
áfram þeir sömu, þ. e. í Norður-
firði og á Hólmavík, afgreiðslutími
og bankanúmer verða óbreytt
fyrst um sinn.
Hátt eiginfjárhlutfall
Á árinu 1998 var hagnaður
Sparisjóðs Strandamanna 9,3
millj. en lítilsháttar tap varð hjá
Sparisjóði Árneshrepps. Sam-
kvæmt stofnefnahagsreikningi eru
heildareignir sparisjóðsins 327,2
millj. kr. í ársbyrjun 1999. Stofnfé
sjóðsins er 1,2 millj. kr. en samtals
nemur eigið fé hans 108,8 millj. kr.
Eiginfjárhlutfall sjóðsins, sem
reiknað er samkvæmt lögum um
viðskiptabanka og sparisjóði, er
39,5% og er með því hæsta sem
þekkist hjá lánastofnunum en
samkvæmt lögunum má hlutfallið
ekki vera lægra en 8%.
í stjóm sparisjóðsins voru kosn-
ir af stofnfjáraðilum: Jón G. Jóns-
son, Hrólfur Guðjónsson og Sig-
urður Jónsson. Sveitarstjórnir Ár-
neshrepps, Broddaneshrepps og
Kirkjubólshrepps eiga eftir að
kjósa tvo menn í stjóm. Spari-
sjóðsstjóri er Benedikt G. Gríms-
son en aðrir starfsmenn sjóðsins
em Jónína Pálsdóttir, Helga Sig-
urðardóttir, Þórólfur Guðfinnsson
og Ágústa Sveinbjömsdóttir.
Sparisjóður Árneshrepps var
stofnaður 1932 af bændum þar í
hreppi. Sparisjóðurinn hefur verið
sl. 18 ár til húsa í Norðurfirði.
Sparisjóðsstjóri síðustu átján árin
hefur verið Þórólfur Guðfinnsson.
Sparisjóður Kirkjubóls- og
Fellshreppa var stofnaður 1891 af
bændum í samnefndum hreppum
og hét því nafni þar til 1995 er
Fellshreppur sameinaðist öðru
sveitarfélagi. Þá var nafni sjóðsins
breytt í Sparisjóð Strandamanna.
Síðastliðin 52 ár hefur heimili
sparisjóðsins verið að Kirkjubóli í
Kirkjubólshreppi, á heimili
tveggja fyrrverandi sparisjóðs-
stjóra.
Verulegar breytingar hafa verið
í rekstri Sparisjóðs Strandamanna
síðastliðið ár. I fyrrasumar keypti
sparisjóðurinn helming húsnæðis
íslandspósts á Hólmavík og eftir
breytingar flutti sparisjóðurinn
aðsetur sitt þangað í lok nóvem-
ber síðastliðins.
Hlutabréf í GM
ná sér á strik
VERÐ hlutabréfa í General
Motors bílaframleiðandanum (GM)
í Bandaríkjunum virðist ekki hafa
tekið mikla dýfu í kjölfar úrskurð-
ar kviðdóms í Los Angeles á síðast-
liðnum föstudegi. Úrskurðurinn
kvað á um að fyrirtækið skyldi
greiða sex þolendum bílslyss árið
1993 bætur upp á 4,9 milljarða
dollara.
Úrskurður kviðdómsins kom í
þann mund er Kauphöllinni í New
York var lokað á föstudeginum, en
lokaverð hlutabréfa í GM var þá
68,375 dollarar hver hlutur. Á
mánudaginn lækkaði verðið og fór
lægst í 66,125 dollara hver hlutur,
en um miðjan dag í gær, þriðjudag,
hafði verð bréfanna stigið í 67,438
dollara. Verð hlutabréfa í General
Motors hefur farið jafnt og þétt
hækkandi seinustu þrjú árin, en
árið 1994 fór það nálægt 30,30 doll-
urum hvert bréf.
Úrskurður kviðdómsins um 4,9
milljarða dollara bætur til sex ein-
staklinga eru þær langhæstu sem
kviðdómur hefur dæmt fyrirtæki
til að greiða vegna meints galla í
bílum. Upphæðin er um tveimur
þriðju hlutum hærri en hagnaður
General Motors-fyrirtækisins var í
fyrra, en hann nam um 3 milljörð-
um dollara.
Kviðdómurinn byggði úrskurð
sinn um að General Motors hefði
vitað af því að eldur gæti kviknað í
bensíntanki Chevrolet Malibu-bif-
reiða við harða aftanákeyrslu á
skýrslu sem verkfræðingur hjá
GM, Edward C. Iwey, hafði gert
árið 1973. í skýrslunni var komist
að þeirri niðurstöðu að bætur
vegna dauða í bruna myndu lík-
lega kosta GM fyrirtækið 2,40
dollara á hvern bíl framleiddan af
GM, en að einföld viðgerð á bens-
íntanki bílanna kostaði 4 til 12
dollara. „Þó er í raun ekki hægt að
leggja fjárhagslegt mat á manns-
líf,“ segir með varnaðartón í
skýrslunni.
Hinar háu bætur kunna að leiða
til þess að fleiri sem lent hafa í
Tveir ákærenda í
Malibu-málinu
bílslysum sem e.t.v. má rekja til
galla í bifreiðinni muni kæra
General Motors og krefjast bóta.
Forráðamenn General Motors eru
vissir um að upphæðin muni fást
lækkuð við áfrýjun málsins og vísa
til reynslunnar í svipuðum málum.
BusinessWeek's Global 1000 listi yfír verðmætustu fyrirtæki heims á hlutabréfamarkaði
Risunum Microsoft og GM
gert mishátt undir höfði
MICROSOFT-hugbúnaðarrisinn
er verðmætasta fyrirtæki heims og
er metið á 30.672 milljarða ís-
lenskra króna á hlutabréfamörkuð-
um, samkvæmt nýútkomnum lista
tímaritsins BusinessWeek yfir
1.000 verðmestu fyrirtæki heims,
BusinessWeek’s Global 1000. Fyr-
irtækið var í 2. sæti í fyrra og færir
sig því upp í toppsætið í ár. Árið
1997 var Microsoft í fimmta sæti
yfir verðmætustu fyrirtæki heims,
en árið 1996 komst það ekki inn á
topp tíu listann.
Til samanburðar var Microsoft í
284. sæti á Global 500 lista tíma-
ritsins Fortune yfir stærstu fyrir-
tæki heims en röðun á þann lista er
byggð á ársveltu fyrirtækja. List-
inn var birtur á heimasíðu Fortu-
ne, www.fortune.com, á mánudag-
inn var en hann er væntanlegur í
ágústhefti Fortune. Ársvelta
Microsoft í fyrra nam um 1.076
milljörðum króna.
Það er því ljóst að Bill Gates og
félagar eru í miklum metum á
hlutabréfamarkaði hvað sem líður
raunum í réttarsal þar sem banda-
ríska dómsmálaráðuneytið sækir
Microsoft til saka fyrir einokunar-
tilburði.
Annað verðmætasta fyrirtæki
heims er General Electric, metið á
25.751 milljarða króna, en það fyr-
irtæki var verðmesta fyrirtæki
heimsins samkvæmt samantekt
BusinessWeek árin 1996, 1997 og
1998.
Röð annarra fyrirtækja á listan-
um er þannig að IBM er í þriðja
sæti, Exxon í fjórða sæti, Royal
Dutch/Shell í því fimmta en þar á
eftir koma Wal-Mart, AT&T, Intel,
Cisco og BP Amoco. Meðal tíu
verðmætustu fyrirtækja heims eru
því fjögur í starfsemi sem tengjast
tölvum og hugbúnaði, þrjú olíufyr-
irtæki, eitt fyrirtæki í blandaðri
starfsemi með áherslu á rafeinda-
búnað og raftæki, eitt verslunarfyr-
irtæki og eitt fjarskiptafyrirtæki.
Öfugt gengi stærsta
bílaframleiðandans
General Motors bílaframleiðand-
inn í Bandaríkjunum (GM) lendir í
93. sæti á Global 1000 lista
BusinessWeek yfir verðmætustu
fyrirtækin, og fellur úr 69. sæti frá
árinu á undan. Er markaðsvirði
fyrirtækisins metið á 3.421 milljarð
íslenskra króna.
General Motors er hins vegar
stærsta fyrirtæki heims sé miðað
við veltu og er því í fyrsta sæti á
Global 500 lista Fortune, en velta
fyrirtækisins var 11.989 milljarður
króna árið 1998.
Verðmat fyrirtækja byggist á
væntingum um hagnað sem fjár-
festar telja að fyrirtækin muni
skila í framtíðinni, og er ljóst að
mikil velta er ekki nægileg til að
fyrirtæki sé talið mikils virði.
Hin ólíka staða Microsoft og GM
endurspeglar þá miklu trú sem
fjárfestar hafa á fyrirtækjum eins
og Microsoft, sem hafa sterka stöðu
í upplýsingatækni og á Netinu.
Fjárfestar hafa hins vegar síður trú
á risavöxnum framleiðslufyrirtækj-
um eins og General Motors, en bíla-
iðnaðurinn stendur nú frammi fyrir
mikilli umfram framleiðslugetu.
Þess má geta að Microsoft hefur
V/H hlutfall 58 og General Motors
V/H hlutfallið 15, en V/H hlutfallið
stendur fyrir verð á móti hagnaði.
Samkvæmt því myndi sá sem fjár-
festir í hlutabréfum í General
Motors fá fjárfestingu sína til baka
á 15 árum að óbreyttum hagnaði,
en óbreyttur hagnaður Microsoft
myndi greiða upp fjárfestinguna á
58 árum. Þessi munur endurspegl-
ar að fjárfestar búast við að hagn-
aður Microsoft eigi enn eftir að
aukast í framtíðinni, en síður hjá
hinu þunglamalega framleiðslufyr-
irtæki General Motors.