Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 29
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SAMKEPPNI YIÐ
LANDSSÍMANN
SAMNINGUR Íslandssíma og Línu, dótturfyrirtækis Orku-
veitu Reykjavíkur, hefur tvíþætta þýðingu. í fyrsta lagi
tryggir hann nýja og aukna samkeppni við Landssímann. Verði
áform Íslandssíma að veruleika býr Landssíminn við samkeppni
í öllum helztu greinum símaþjónustu í stað þess, að nú er aðeins
um að ræða samkeppni á sviði GSM-þjónustu. Smátt og smátt
er því að skapast grundvöllur fyrir eðlilegum viðskiptaháttum á
þessum markaði, sem kemur viðskiptavinum símafyrirtækjanna,
bæði fyrirtækjum og einstaklingum, til góða.
Það er hins vegar ekki tímabært fyrir Þórarin Viðar Þórar-
insson, hinn nýja forstjóra Landssímans, að kvarta undan að-
stöðumun! Hann segir í viðtali við Morgunblaðið í gær: „Þessi
uppbyggingaráform Orkuveitu Reykjavíkur draga hins vegar
fram aðstöðumun þessa fyrirtækis Reykjavíkurborgar og
Landssímans, þar sem orkufyrirtækin eru undanþegin skatt-
greiðslum en Landssíminn ekki.“ Það er ekki nógu langt um lið-
ið frá því að Landssíminn eða öllu heldur forveri hans Póstur og
sími bjó við slíka einokun á símamarkaðnum, að viðskiptavinir
urðu að sitja og standa eins og fyrirtækinu þóknaðist, til þess að
forstjóri Landssímans verði tekinn alvarlega, þegar hann talar á
þennan veg.
I öðru lagi er ljóst, að ljósleiðaravæðing höfuðborgarsvæðis-
ins alls, sem lagt verður út í á grundvelli þessa samnings, mun
gjörbreyta aðstöðu fólks til fjarskipta. Auk þess að tryggja sam-
keppni á símamarkaði leiðir ljósleiðaravæðingin til þess að
nettengingar verða þægilegri og fljótari en nú er. Miðað við þá
öru þróun, sem er í netvæðingu alls staðar um heim, má búast
við, að margvísleg viðskipti færist yfir á Netið. Ljósleiðaravæð-
ingin mun flýta þessari þróun. Landssíminn hefur verið mikil-
virkur í lagningu ljósleiðara. Þrátt fyrir það er langt frá því, að
höfuðborgarsvæðið allt sé tengt við ljósleiðara, og notkun á ljós-
leiðarakerfi Landssímans hefur verið takmörkuð. Sumir halda
því fram, að það sé vegna óbilgirni Landssímans í samningum
um verð fyrir notkun ljósleiðara.
Að baki Islandssíma standa öflug fyrirtæki og þess vegna er
full ástæða til að ætla, að áform fyrirtækisins verði að veruleika.
Notendur fjarskiptaþjónustu geta því vænzt betri þjónustu og
lægra verðs í kjölfar þeirrar stórauknu samkeppni á þessum
markaði, sem nú hillir undir.
FLJÓTSDALSVIRKJUN
OG UMHVERFISMAT
EITT helzta deiluefnið varðandi fyrirhugaða Fljótsdalsvirkj-
un er að virkjunin þarf ekki að fara í svonefnt lögformlegt
umhverfismat, vegna þess að virkjanaleyfi var veitt áður en lög
þar um tóku gildi. Talsmenn þess, að virkjunin fari eftir sem áð-
ur í umhverfismat, benda á, að viðhorf almennings hefur gjör-
breytzt frá því að virkjanaleyfið var veitt og við núverandi að-
stæður sé því eðlilegt að virkjunin fari í slíkt mat. Andstæðingar
þess, að hún fari í slíkt mat, hafa haldið því fram, að slík ákvörð-
un jafngilti því, að virkjunin yrði ekki byggð, matið mundi taka
svo langan tíma, að samningar um byggingu álvers á Reyðar-
firði yrðu þar með úr sögunni.
í samtali við Morgunblaðið sl. laugardag kom hins vegar fram
hjá Ólafi Erni Haraldssyni, alþingismanni Framsóknarflokks og
formanni umhverfisnefndar Alþingis, að samkvæmt upplýsing-
um, sem hann hefði aflað sér í umhverfisráðuneytinu, mundi
slíkt mat taka rúmlega eitt ár. I frekari umfjöllun Morgunblaðs-
ins um þetta mál sl. laugardag kemur fram, að þetta ferli geti
tekið í mesta lagi 14-16 mánuði, en það getur líka tekið mun
styttri tíma.
í ljósi þess, að viðræður við Norsk Hydro verða ekki til lykta
leiddar fyrr en eftir u.þ.b. eitt ár samkvæmt þeim upplýsingum,
sem komu fram í lok júní, og að nýjar tillögur eru til skoðunar
hjá iðnaðarráðuneytinu um þessa framkvæmd frá öðrum aðila,
Columbia Ventures, sem byggði álverið á Grundartanga, er
ljóst, að lögformlegt umhverfismat mundi ekki tefja þessar
framkvæmdir svo neinu næmi. Ef ákvörðun hefði verið tekin um
að setja virkjunina í slíkt mat strax sl. haust, þegar þessar um-
ræður hófust, hefði því verið lokið fljótlega eftir næstu áramót.
Ef virkjunaráformin standast hið lögformlega umhverfismat
geta andstæðingar virkjunarinnar ekki annað en unað við þá
niðurstöðu. Ef slíkt umhverfismat leiddi til þeirrar niðurstöðu,
að ekki væri talið fært að byggja virkjunina, yrðu talsmenn
hennar að una við þau málalok.
Miðað við þær upplýsingar, sem nú liggja fyrir, er ljóst að
verði ákvörðun tekin þegar í stað um lögformlegt umnhverfís-
mat mun það ekki seinka framkvæmdum. Þar með eru rök
þeirra, sem hafa verið andvígir slíku mati, fallin. Þess vegna
eiga stjórnvöld að taka nú þegar ákvörðun um þá málamiðlun að
setja Fljótsdalsvirkjun í lögformlegt umhverfismat. Það mundi
lægja strax þær öldur, sem eru að rísa vegna þessa máls.
Skýrsla Samtaka iðnaðarins og Iðn- og atvinnurekendasamtaka Evrópu um starfsskilyrði frumkvöðla á íslandi
Starfsumhverfí
frumkvöðla
ófullnægjandi
Frumkvöðlar á íslandi búa við ófullnægjandi starfsumhverfi og
er það að miklu leyti skýring þess að hver vinnustund hér á landi
gefur minna af sér en í flestum þróuðum ríkjum. Þetta kemur fram
-------------------y
í nýútkominni skýrslu um starfsskilyrði frumkvöðla á Islandi sem
gefín er út á vegum Samtaka iðnaðarins og Iðn- og atvinnurekenda-
samtaka Evrópu (UNICE). Óli Jón Jónsson kynnti sér skýrsluna.
SKÝRSLAN um starfsskil-
yrði frumkvöðla á íslandi er
annað ritið sem Samtök iðn-
aðarins standa að í sam-
vinnu við UNICE og fjallar um
starfsskilyrði atvinnulífsins hér á
landi. I fyrra kom út rit sem bar
heitið .jMælikvarðar á samkeppnis-
hæfni Islands og annarra Evrópu-
ríkja“ og var það gefið út í samvinnu
við Vinnuveitendasamband íslands.
Að þessu sinni standa Samtök iðnað-
arins ein að útgáfunni hérlendis en
ritið er framhald skýrslunnar sem
út kom á síðasta ári.
Þegar rætt er um lífskjör hér á
landi er gjaman bent á að ísland
hefur lengi verið í hópi þeirra ríkja
þar sem verðmætasköpun miðað við
fólksfjölda er hvað mest. Þannig var
Island í sjötta sæti meðal ríkja
OECD á árinu 1997 hvað varðar
landsframleiðslu á mann. í skýrslu
Samtaka iðnaðarins og UNICE er
hins vegar bent á að þessi árangur
leggi þungar byrðar á þjóðina. „Til
þess fómar hún frítíma sínum og
þeim verðmætum sem í honum fel-
ast.“ Þegar meta á efnahagslega vel-
ferð þjóðarinnar verður því að at-
huga hversu mikil vinna búi að baki
lífskjörum fólks og í því sambandi
ber að athuga tvo lykilmælikvarða;
verðmætasköpun og vinnustunda-
fjölda.
Sé miðað við þau verðmæti sem
ein vinnustund skapar, hafnar ís-
land í 18. sæti af 29 meðal ríkja
OECD. Ein vinnustund hér á landi
gefur að meðaltali af sér aðeins 64%
þess sem hver vinnustund gefur af
sér í Lúxemborg og 76% af því sem
hún gefur í Frakklandi, svo dæmi
séu tekin. „Munurinn merkir að við
höfum lægri heildartekjur, minni
frítíma eða hvort tveggja en þær
þjóðir sem við viljum helst bera okk-
ur saman við,“ segir í skýrslunni og
er ein meginástæðan sögð vera sú
að frumkvöðlum hafa ekki verið búin
viðunandi starfsskilyrði hér á landi.
í formála skýrslunnar, sem Har-
aldur Sumarliðason, formaður Sam-
taka iðnaðarins, ritar, segir að meg-
inmarkmiðin með ritinu séu „að
auka vitund um mikilvægi frum-
kvöðla og starfs þeirra fyrir lífskjör
þjóðarinnar" og „að benda á leiðir
sem stjórnvöld ættu að fara til að
bæta starfsskilyrði frumkvöðla hér á
landi og efla þar með starf þeirra".
Skýrslan fjallar þannig um þau skil-
yrði sem þurfa að vera fyrir hendi til
að frumkvöðlar fái notið sín og þær
hindranir standi í vegi fyrir starf-
semi frumkvöðla hér á landi. Einnig
er bent á það sem gera þarf til að
skapa betri aðstæður fyrir viðgang
frumkvöðla hér á landi. „Verði ís-
lenskum fyrirtækjum búin lífvænleg
skilyrði eiga þau góða möguleika á
því að vera ekki bara þátttakendur í
þessari þróun heldur líka brautryðj-
endur - hvert á sínu sviði,“ segir í
skýrslunni.
Meginhluti skýrslunnar byggist á
samanburði milli Islands og annarra
Laun á framleidda einingu Anm98i-1999
20 Viðskiptalönd /
io Vv //
10 v\l . // 5 Vt
° i—I—W-HriH—'—'—
1 n 'Sland vJ
-10 w
-1b 1 '81 l'82 i'83 f84 185 I '861 '87l '881 '89 '90 i'91 l'92 I '931 '941 '95 I '96 I '971 '981 '991
landa hvað snertir fjölmörg atriði í
efnahags- og atvinnulífi, opinberum
rekstri, menntamálum og tækni.
Fjallað er um þátt frumkvöðla í að
móta lífskjör og síðan haldið áfram
að rekja þau skilyrði sem frum-
kvöðlar þurfa til að geta dafnað í
fimm aðgreindum köflum. Þau atriði
sem fjallað er um í þessum köflum
eru verðlag og vextir, opinber um-
svif og skattbyrði, fjármálaþjónusta,
markaðir fyrir vöru og
þjónustu og vinnumark-
aður.
Frumkvæði fær ekki
notið sín
ísland kemur ekki vel
út í alþjóðlegum samanburði hvað
varðar umsvif frumkvöðla í atvinnu-
lífi, að því er fram kemur í skýrsl-
unni. Reynt er að meta umsvifin út
frá nokkrum mælikvörðum: tækni-
stigi, nýliðun fyrirtækja, fjárfest-
ingu og útgjöldum þeirra til rann-
sókna og þróunarstarfsemi.
Frumkvöðlar eru megindrifkraft-
ur vaxtar í mörgum hátæknigrein-
um. Einn mælikvarði á starfsemi
frumkvöðla er því hlutdeild há-
tæknigreina í framleiðslu hvers
lands. Undir hátækniframleiðslu
flokkast, samkvæmt þeirri skilgrein-
ingu sem notuð er í skýrslunni, lyf,
flugvélar, skrifstofuvélar, tölvur, út-
varps- og sjónvarpstæki, ásamt öðr-
um tækjum sem tengjast upplýs-
ingatækni. Hátækniframleiðsla hér
á landi er langtum minni en í öðrum
þróuðum ríkjum og aðeins um 1,3%
allrar framleiðslustarfsemi í land-
inu. Upplýsingatækniiðnaðurinn hér
er til dæmis aðeins þriðjungur af því
sem hann er í Bandaríkjunum, sé
tekið mið af landsframleiðslu. Að
auki er stærstur hluti hans hérlend-
is bundinn við þjónustustarfsemi,
einungis 2,5% þeirra verðmæta sem
greinin skapar verða til í
framleiðslu.
Fram kom á blaða-
mannafundi sem Samtök
iðnáðarins efndu til í gær
að hugbúnaður reiknast
ekki sem framleiðsla í
þessum tölum. Aðeins er tekið tillit
til framleiðslu áþreifanlegra vara af
einhverju tagi og gefa því upplýsing-
arnar e.t.v. ekki rétta mynd af um-
svifum hátækniiðnaðar hér á landi.
Hugbúnaðargerð hlýtur á hinn bóg-
inn klárlega að flokkast undir frum-
kvöðlaiðju.
Annar mælikvai'ði á umsvif frum-
kvöðla er fjárfesting fyrirtækja hér-
lendis en hún er með því minnsta
sem gerist í heiminum, eða aðeins
8,2% af landsframleiðslu á tímabil-
inu 1992-1997. Þegar gengið er út
frá því að fjárfestingar skapa tæki-
færi fyrir frumkvöðla með því að
auka umsvif í hagkerfinu, má ljóst
vera að skilyrði hér eru lakari en
víðast hvar annars staðar. Sama
„Ekki til einn
mælikvarði
á umsvif
frumkvöðla“
Verðmætasköpun
fyrirtækja í
hátækniframleiðslu
Hlutfall af verðmætasköpun allra
fyrirtækja í framleiðslu 1997
Irland 46,5%
Bandaríkin
Japan
Bretland
Holland
Frakkland
Svíþjóð
Kanada
Finnland
Þýskaland
Danmörk
Spánn
Ástralía
Italía
Noregur
Nýja-Sjáland
ísland
30 40 50%
11
0
,3%
10
20
Útgjöld fyrirtækja
til R & Þ
Hlutfall af landsframleiðslu 1997
Kanada
Irland
Norequr
I 0,6%
M 1£
Tékkland
Ítalía
fsland
2,0
3,0%
Umsóknir íbúa um einkaleyfi Fjöldi á hverja 10 þúsund íbúa 1996
lipniFiFtn hhi
Hl
UfTTTrTTni— ■■
*H99 HD
EBaimaai— iTTiTmi'H'M tsEnnHisM
inm ■■ ■ ■ Frakkland Lúxemborg
mm wm Holland
■ ■ ■ ftalía
■i Ungverjaland
H o,6% 0 1 2 Tékkland fsland 3 4 5 6 7
Fjöldi í hlutastörfum
Hlutfall við heildarfjölda starfandi
fólks 1998
Holland
ua'iuir.wi
Norequr
Danmörk
23,2%
Svíþjóð CZ
Bandarikin :
Lúxembor
Pólland
Austurríki
Portúqal
Finnland
0
10
20
30%
Samneysla
Hlutfall af landsframleiðslu 1998
21,0%
italia
I I IIII I M
FjirmsMii
EHaSSHSBI
Holland
Lúxembor
10
20
30%
Framfærslubyrði
Hlutfall milli þeirra sem standa
innan og utan einkarekstrar 1997
KWSBBTíll
[ZSgjHJ
BffifEan
BB330SEI
idMiiUiini
Irland
Austurrík
ISfBBEIITBWBM
I»1?TITTTT:n?H^^B
mrrTrrai
nuiuj.M
nmnmrii
0,8%
1,0
0,0
2,0
fsland
Bandaríkin
3,0%
SVEINN Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins, Haraldur Sumarliðason, formaður, og Ingólfur
Bender, hagfræðingur samtakanna á blaðamannafundi sem haldinn var í tilefni af útkomu skýrslunnar í gær.
máli gegnir um útgjöld fyrirtækja til
rannsóknar- og þróunarstarfsemi.
íslensk fyrirtæki vörðu aðeins jafn-
virði 0,6% af landsframleiðslu til
slíkrar starfsemi á árinu 1997, en til
samanburðar má geta þess að
bandarísk, japönsk og finnsk fyrir-
tæki vörðu 2% af landsframleiðslu
til slíks og sænsk fyrirtæki 2,7%. í
skýrslunni kemur fram að Island
kæmi enn verr út ef fjárfestingum
fyrirtækja í rannsóknar- og þróun-
arstarfsemi væri deilt niður á vinnu-
stundir.
Aftur á móti eru íslendingar mjög
framarlega í heiminum að því er
varðar stofnun fyrirtækja því hér á
landi er hlutfall nýstofnaðara fyrir-
tækja af öðrum fyrirtækjum 12,3%
og er hlutfallið einungis hærra í
Bretlandi, 13,2%, af þeim löndum
sem samanburðurinn nær til.
í skýrslunni er bent á að ekki sé
til einn mælikvarði á umsvif frum-
kvöðla í atvinnulífinu og því kann að
vera óvarlegt að draga of víðtækar
ályktanir af slakri útkomu íslands
hvað varðar atriðin hér að ofan.
„Allt bendir hins vegar til að nægi-
legt frumkvæði búi með þjóðinni en
nokkuð hefur skort á að það hafi
fengið notið sín og borið ávöxt sem
skyldi.“
11% hækkun opinberrar
þjónustu mifli ára
Eitt af því sem ft’umkvöðlar þurfa
+
á að halda er stöðugleiki í verðlags-,
gengis- og vaxtamálum. Á þessum
áratug hefur íslenskt efnahagslíf
notið meiri stöðugleika í verðlags-
málum en um margra áratuga skeið
en þó er á það bent að vextir hér á
landi eru mun hærri en í helstu við-
skiptalöndunum. „Ófullnægjandi ár-
angur hins opinbera í að halda aftur
af innlendri þenslu, bæði nú og í for-
tíð, kemur fram í þessum mun inn-
lendra og erlendra vaxta. Fyrir-
tækjum hér á landi eru þannig búin
lakari samkeppnisskilyrði en erlend-
um keppinautum," segir í skýrsl-
unni.
Einnig er lýst áhyggjum af því að
verðbólga hefur aukist hér að und-
anförnu og mun, samkvæmt spám
OECD og fleiri aðila, aukast á næst-
unni. Verðhækkanir opinberrar
þjónustu á síðustu misserum eru
nefndar sem ein meginorsök þessa
og bent á að á milli áranna 1997 og
1998 hafi hækkanirnar numið tæp-
lega 11%. „Þetta er augljóslega
langt umfram það sem gengur og
gerist í löndunum í kringum okkur
og sýnir umfram annað aðhaldsleysi
hins opinbera í launamálum sem er
til þess fallið að kæfa frumkvæði
einstaklingsins.“
Umfang hins opinbera
hefur aukist
Á undangengnum árum og ára-
tugum hafa rekstrarútgjöld hins op-
inbera vaxið hratt hér á landi. Fyrir
þrjátíu árum var samneysla, sem
hlutfall af landsframleiðslu, aðeins
helmingur þess sem hún er nú. Nú
er hlutfallið 22% og hefur aldrei ver-
ið hærra.
Hið sama má segja um umsvif
hins opinbera á vinnumarkaði. Sam-
kvæmt skýrslunni eru yfir 20% af
vinnuaflinu starfandi í opinberum
rekstri og er hlutfallið sagt fara
hækkandi. „Stjórnvöld
þurfa að huga sérstaklega
að rekstrarútgjöldum sín-
um. Mikilvægt er að þau
greini hlutverk sitt sem
greiðanda en ekki sem
veitanda opinberrar þjón-
ustu. Nýta þarf kosti einkarekstrar
til að auka hagkvæmni með einka-
væðingu og útboðum. Til að mynda
má bjóða út rekstur eða einstaka
rekstrarþætti hjá heilbrigðis- og
menntastofnunum. Reynslan sýnir
að með þessu má ná fram verulegri
og varanlegri hagræðingu,“ segir í
skýrslunni.
Þó svo að skuldh- hins opinbera,
sem hlutfall af landsframleiðslu, séu
talsvert minni hér en víðast annars
staðar í hinum vestræna heimi, er
ástæða til að hafa áhyggjur af þró-
uninni síðustu áratugi. Bent er á að
skuldir opinberra aðila hafi tvöfald-
ast sem hlutfall af landsframleiðslu
á tæpum tuttugu árum.
Þegar fjallað er um skattbyrði í
„Óhagræðið
í íslensku
bankakerfi
er mikið“
íslensku samfélagi er af mörgu að
taka en í skýrslunni er meðal annars
reiknaður út sá skattur sem greiða
þarf þegar fyrirtæki er selt. I ljós
kemur að ísland sker sig verulega úr
að þessu leyti því hér á landi nema
skattar við sölu fyi-irtækis 33,6% og
er þetta hlutfall eingöngu hærra í
Danmörku þar sem það er 34%. Að
auki er nefnt að tekjuskattshlutfall
íslenskra fyrirtækja er ívið hærra en
í löndunum í kring og að einungis
fimm önnur lönd innan OECD leggja
eignarskatt á fyrirtæki.
Einn mælikvarði á umsvif ríkis-
valdsins og skattbyrði er hlutfallið
milli þeirra einstaklinga sem standa
innan og utan einkarekstrar. Fram
kemur að hér á landi eru 0,8 full-
orðnir starfsmenn hjá hinu opinbera
á móti hverjum starfsmanni í einka-
geiranum og er það mun lægra hlut-
fall en víða annars staðar á Vestur-
löndum. ísland stendur að þessu
leyti jafnfætis Bandaríkjamönnum.
„Minni framfærslubyrði hér en víð-
ast annai’s staðar stafar af því að
fjöldi starfa, sem bjóðast, hentar
aldurssamsetningu þjóðarinnar vel.
Víða í Evrópu er meðalaldur hærri
en hér og störf í einkageiranum
hlutfallslega færri.“
Rekstrarkostnaður
bankanna mikilf
Aðgangur að góðri og fjöl-
breyttri fjármálaþjónustu skiptir
miklu máli fyrir viðgang frum-
kvöðla. Fjármagnsmarkaður hér á
landi hefur gjörbreyst á undan-
förnum árum og er nú opinn fyrir
erlendum áhrifum og samkeppni.
Sérstaklega kemur ísland vel út í
samanburði við önnur Evrópulönd,
að því er varðar frelsi til markaðs-
aðgerða, fjármagnsflutninga
o.s.frv. Hins vegar er hlutabréfa-
markaður enn sem komið er lítill
og vanþroskaður í samanburði við
erlenda markaði. Talað er um að
fjölga verði skráðum félögum á
markaðnum til að fjölga valkostum,
gera verðmyndun virkari og laða
að erlenda fjárfesta. „Með stærri
og virkari hlutabréfamarkaði skap-
ast fleiri möguleikar fyrir innlenda
og erlenda fjárfesta, fjármögnun-
armöguleikar fyrir vaxandi fyrir-
tæki og aukinn skilningur almenn-
ings á atvinnulífinu,“ segir í skýrsl-
unni.
Hins vegar er meginvandamál ís-
lensks fjármálamarkaðar það hve
óhagræðið í íslensku bankakerfi er
mikið. „Eigi íslenska bankakerfið að
geta veitt þjónustu á samkeppnis-
hæfum kjörum er ekki nóg að hag-
ræða heldur þarf að hagræða í ríkari
mæli en keppinautamir gera. Að
öðrum kosti verður forskot erlendra
banka seint unnið upp.“ Samkvæmt
skýrslunni er ástæðu óhagræðisins
einkum að finna í opinberu eignar-
haldi. „Leiðin í átt tíf aukinnar hag-
kvæmni og samkeppnishæfni felst
því öðru fremur í einkavæðingu.“
Einnig kemur fram að hér á landi
fer stærri hluti af tekjum bankanna
í rekstur en í löndunum í kringum
okkur, eða um 70%, en hlutfallið er
65% í Danmörku og 55% í Svíþjóð,
svo dæmi séu tekin. „Það er því ljóst
_________ að rekstrarkostnaður ís-
lenskra banka verður að
lækka eigi þeir að geta
veitt samkeppnishæfa
fjánnálaþjónustu sam-
hliða viðunandi afkomu í
““framtíðinni. Sömu sögu
má segja um sparisjóðina tuttugu og
sjö,“ segir í skýrslunni.
Fáar umsóknir
um einkaleyfi
„Umbreyting nýrrar tækniþekk-
ingar í vöru og þjónustu, sem neyt-
endur vilja kaupa, er lykilþáttur í
starfsemi frumkvöðla. íslenska hag-
kerfið er vanþróaðra að þessu leyti
en mörg önnur hagkerfi,“ segir í
skýrslunni. í fyrsta lagi er það svo
að þrátt fyrir að útgjöld æðri
menntastofnana hér til rannsókna-
og þróunarstarfa séu yfir meðaltali
ESB-ríkjanna, eru umsóknir um
einkaleyfi hér á landi ekki nema
brot af því sem þær eru víðast hvar
um hinn vestræna heim. Umsóknir
hér eru til dæmis ekki nema 15% af
því sem þær eru í Bandaríkjunum.
Samkvæmt skýrslunni má túlka
þetta á þann veg að útgjöld til rann:
sókna skili sér ekki hér á landi T
sama mæli og víða erlendis. „Hver
svo sem ástæðan er má telja að hér
sé um alvarlegt vandamál að ræða,
sóun, ef svo má að orði komast sem
vert er að takast á við,“ segir í
skýrslunni.
Hins vegar standa íslendingar
mjög framarlega hvað varðar fjölda
einkatölva, nettenginga og farsíma
miðað við fjölda íbúa, en þessi tækni
skapar frumkvöðlum ný mark-
aðstækifæri. ísland kemur einnig
vel út í alþjóðlegum samanburði
þegar kemur að því að meta hversu
kostnaðarsamt og tímafrekt það er
að stofna fyrirtæki. I því efni stönd-
um við framar flestum Evrópuþjóð-
um en stöndum okkur þó ekki eins
vel og Bandaríkjamenn, Hollending-
ar, Bretar og Irar, svo dæmi séu
tekin.
Miklar sveiflur í
launakostnaði fyrirtækja
íslenskur vinnumarkaður er að
mörgu leyti mótdrægur frumkvöðl-
um, sé hann borinn saman við vinnu-
markað í Bandaríkjunum og mörg-
um Evrópulöndum, að því er fram
kemur í skýrslunni. í fyrsta lagi er
launakostnaður hér á landi mun
sveiflukenndari en gengur og gerist
í helstu viðskiptalöndunum. Ef litið
er á graf yfir tímabilið frá 1981 til
1999 sjást þessar sveiflur greinilega.
Þannig sést að á þremur árum, frá
1985 til 1987, hækkuðu laun á al-
mennum markaði hér um 108%,
þegar laun í viðskiptalöndunum
stóðu nánast í stað. Á sama tímabili
jókst framleiðni hér á landi aðeins
um tæp 7%. Afleiðing þessa var 44%
gengisfelling því efnahagslífið stóð
engan veginn undir þessum hækk-
unum, segir í skýrslunni. Bent er 1
að þróunin undanfarið hafi verið
með svipuðu sniði, enda þótt hækk-
anir hafi verið minni en á fyrr-
greindu tímabili. Engu að síður hafa
laun hækkað tvöfalt hraðar en í
helstu samkeppnislöndum okkar og
er varað við afleiðingum þessa. „Til
að auka umsvif frumkvöðla þarf að
draga úr áhættuþáttum í áætlunum
þeirra. Góð samkeppnisstaða m.t.t.
launakostnaðar nýtist ekki nema
fjárfestar treysti því að hægt sé að
byggja á slíkri samkeppnisstöðu til
lengri tíma en fárra mánaða.“
Hátt hlutfall mannafla
í hlutastörfum
Sveigjanlegt ráðningarfyrirkomu - *
lag er annað atriði sem máli skiptir
fyrir umsvif frumkvöðla í atvinnulífi.
Bent er á að víðtækar og stífar regl-
ur um vinnutíma og ráðningarsamn-
inga dragi úr verðmætasköpun fyr-
irtækja. „Einföldun laga og reglna,
sem gilda um vinnumarkaðinn, er
sjálfstætt markmið svo og samræm-
ing kjarasamninga. Þetta er sameig-
inlegt verkefni hins opinbera og að-
ila vinnumarkaðarins.“
Hér á landi er fjöldi fólks í hluta-
störfum tiltölulega mikill, sé miðað
við önnur lönd, en það er einn
mælikvarði á sveigjanleika vinnu-
markaðar. Fram kemur að 23,2% af
vinnandi mannafla eru í hlutastörf-^
um hér á landi og er það til muna
hærra hlutfall en víðast í Evrópu og
hærra en annars staðar á Norður-
löndum. Að sama skapi eru tekju-
skattar einstaklinga með minna
móti hér á landi, samanborið við ná-
grannalöndin. Hins vegar eru jað-
arskattar, þ.e. það hlutfall af aukn-
um vinnulaunum sem meðalstarfs-
maður í iðnaði þarf að greiða í
skatt, talsvert hærra en víða í Evr-
ópu. Lagt er til að stjórnvöld beiti
sér fyrir því að skattareglur ein-
staklinga verði rýmkaðar og tilli'g^
tekið til nýjunga á því sambandi.
„Stjórnvöld þurfa að tryggja að lög
og reglur veiti framförum í gerð
kjarasamninga brautargengi og
skattleggi til að mynda ekki óhóf-
lega þá sem vilja nýta hvetjandi
launakerfi á borð við valréttar-
samninga með hlutabréf,“ segir
skýrslulok.