Morgunblaðið - 14.07.1999, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 33
JJtorflnnMatitÍJ
AUGLÝSINGADEILD
KRINGLUNNI 1
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Eflum starf
íþróttafélaganna
í Reykjavík
UMMÆLI Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur, borgarstjóra
Reykjavíkur, hér í Mbl.
2. júM sl. um þörf á sam-
starfi á stefnumótun
milli Knattspyrnufélags
Reykjavíkur og borgar-
yfirvalda hafa vakið hjá
mér von um að borgar-
stjórinn sé loks að gera
sér grein fyrir þeim
krafti sem hægt er að
leysa úr læðingi innan
íþróttahreyfingarinnar
í Reykjavík. Þó að um-
mæli sem höfð eru eftir
henni bendi til að hún
sé enn nokkuð þröng-
sýn og heittrúaður KR-ingur vona
ég að hún geri alvöru úr því að efna
til ráðstefnu sem geti orðið til að
efla íþrótta- og tómstundalíf í borg-
inni, ekki bara með hennar eigin
sértrúarhópi, heldur hjá öllum
íþróttafélögum borgarinnar.
Þó að Ingibjörg Sóh'ún verði
kanski mest vör við aðstöðuleysi
Iþróttir
Ekki er vanþörf á að
borgaryfírvöld efni til
vinnuráðstefnu, segir
Sigurður Haraldsson,
til að marka stefnu um
uppbyggingu íþróttafé-
laga borgarinnar.
KR-inga vegna nábýlis og sérstaks
dálætis á því félagi, og hafi verið öll
af vilja gerð í borgarstjóratíð sinni
samkvæmt áður ívitnuðu viðtali að
rétta þeim hjálparhönd, þá vU ég
bormi á arí nnnur fálAn- f bnr/r.
wviiviíi liviuii u úu vmiúi ivivg i vvig
inni eru líka til og búa við sama að-
stöðuleysi og Vesturbæjarliðið, eins
og skort á grasi tU æfinga fyrir
yngri flokka félaganna og betri að-
stöðu tU keppni.
Á sama tíma og borgaryfirvöld
hafa útbúið þrjú sparksvæði í vest-
urbænum og eru að huga að öðrum
möguleikum tU að auka aðstöðu
KR-inga hefur borgarapparatið
ekki haft peninga til að útbúa
sparksvæði á öðrum svæðum borg-
arinnar þótt samþykktir þar að lút-
andi hafi verið gerðar fyrir sex ár-
um. Ég vil ekki gera lítið úr tUraun-
um tU að koma KR-ingum tU hjálp-
ar og veita fé í gerð sparkválla í
vesturbænum en ef það kostar alla
peninga sem borgin á í þessar fram-
kvæmdir verður hreinlega að auka
fé tU þessara verka þannig að hægt
sé að sinna þörf annarra félaga í
borginni líka.
Sigurður
Haraldsson
í hveiju á stefnan að felast?
Innan vébanda íþróttafélaga
borgarinnar býr mikill kraftur sem
er því miður ekki nýttur vegna
langvarandi fjárskorts félaganna og
sinnuleysis borgaryfirvalda. Með
stefnumótun þarf að leysa þessa
krafta úr læðingi þannig að ungir og
aldnir sjái sér fært að sinna félags-
málum innan íþróttahreyfingarinn-
ar í borginni án þess að allur tíminn
fari í peningabetl og að horfa upp á
að ekki sé hægt að starfa vegna að-
stöðuleysis og handahófskenndra
vinnubragða borgaryfirvalda.
Ef borgaryfirvöld standa sig jafn
vel í því að veita íþróttafélögunum
viðunandi starfsaðstöðu og fjár-
hagslegt öryggi og þau eru í því að
koma upp alls kyns félagsmiðstöðv-
um, sem að mínu mati stuðla frekar
að kynslóðaskiptingu og miður
æskilegum félagslegum áhrifum á
upprennandi kynslóðir, væru
vandamál tengd fíkni-
efnum auðveldari við-
fangs en nú er.
Með fjárhagslegu
öryggi væru íþróttafé-
lögin í stakk búin til að
veita miklu stærri hópi
ungmenna en þeim
sem eingöngu stunda
keppni fullnægju í
tómstundastarfi á
sama vettvangi og
eldri og reyndari aðil-
ar starfa á.
Borgaryfirvöld gera
íþróttafélögunum fært
með greiðslu á leigu
fyrir íþróttatíma í
íþóttahúsum að reka
íþróttahús félaganna, en ég mundi
vilja sjá að borgaryfirvöld mörkuðu
þá stefnu að styðja við bakið á
íþróttafélögunum á sama hátt varð-
andi alla tíma sem fara til þjálfunar.
I stað þess að sjá borgaryfirvöld
reyna að finna úrræði fyrir eldri
borgara, á sama tíma og íþróttahús
og sum aðstaða íþróttafélaganna er
vannýtt, vil ég sjá að borgaryfirvöld
komi á samstarfi félaga eldriborg-
ara og íþróttafélaganna og beini
íþrótta- og tómstundastarfi eldri
borgara til íþróttafélaganna.
I stað þess að borgaryfirvöld veiti
handahófskennd vínveitingaleyfi á
íþróttaviðburðum í borginni vil ég
sjá að þessi sömu borgaryfirvöld
krefjist þess af íþróttafélögunum að
þau sinni öflugu og árangursríku
foiyarnai-starfi í vímuefnamálum.
I staðinn fyrir að fara inn á braut
margra stórfyrirtækja á íslenskan
mælikvarða sem hafa dregið úr
stuðningi til reykvískra íþróttafé-
laga með þeim rökum að þau styrki
heildarsamtök íþróttahreyfingar-
innar vii ég sjá Reykjavíkurborg
semja um lægri þátttökugjöld reyk-
vískra íþróttafélaga til þessara
sömu samtaka þar sem það eru
Reykvíkingar sem oftast sjá þess-
um sömu samtökum fyrir þjóðar-
leikvöngum og þeirri aðstöðu sem
þarf til að standa að alþjóðakeppni á
sómasamlegan hátt.
Ég vil sjá Reykjavíkurborg gera
samninga við íþróttafélögin um að
þau sinni gegn greiðslu margskonar
þjónustu í sínu hverfi. T.d. hefur vak-
ið athygli mína að mörg grassvæði
hefa verið sérstaklega illa hirt und-
anfarin ár. Ef Reykjavíkurborg gerði
þjónustusamninga við íþróttafélögin
um umhirðu þessara svæða gætu þau
með auknum krafti séð um umhirðu
eigin starfssvæða og yrðu auk þess
sjáanlegri í hverfinu sínu og í meiri
tengslum við alla íbúa þess.
Af þessari upptalningu, sem er að-
eins brot af þeim hugmyndum og
þeirri framtíðarsýn sem ég vildi sjá í
samstarfi Reykjavíkurborgar og
íþróttafélaganna í borginni, sést að
það er ekki vanþörf á að borgaryfir-
völd efni til vinnuráðstefnu til að
marka stefnu um uppbyggingu
íþróttafélaga borgarinnar þannig að
þau fari að skara fram úr bæði á fé-
lagslegum og keppnislegum grunni,
öllum íbúum borgarinnar tiJ hags-
bóta.
Hufundur er stjórnurformuður Há-
skólafjölrítunur ehf.
Randalín ehf.
v/ Kaupvang
700 Egihstöðum
s1mi4.pl 2433
Handunnar gesta- og
minningabækur fyrir:
✓ Ferminguna
✓ Brúðkaupið
✓ Merka ófanga
✓ Erfidrykkjuna
Leitið upplýsinga um sölustaði
Svipmyndir vikunnar
1 Bi
Fáðu nýjar og ferskar
svipmyndir
á mbl.is
Fáðu vandaðar
Morgunblaðsmyndir sem:
hægt er að ná á Netinu
nota má sem skjámynd á tölvunni
eru endurnýjaðar á tveggja mánaða fresti