Morgunblaðið - 14.07.1999, Page 56
Heimavörn
Sími: 580 7000
pN>r0imM$tMi
Drögum næst
27. iútí
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA fSLANDS
vænlegast til vinnings
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 6691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Þorp risið
við Úlf-
ljótsvatn
LANDSMÓT skáta var sett á
tílfljótsvatni í gærkvöldi. Er gert
ráð fyrir að hátt í 5.000 manns
taki þátt i mótinu og má segja að
þarna hafi risið hið myndarleg-
asta þorp. Undirbúningur fyrir
mótið hefur staðið yfir í tvö ár til
að tryggja mótsgestum sem best-
ar aðstæður og sem Qölbreyttasta
dagskrá.
Meðal þess sem boðið verður
upp á er klifur og sig, auk göngu-
ferða og vatnasafarís. Ætti því að
vera nóg við að vera fyrir þátttak-
endur, en þar sem skipulagðri
^ dagskrá lýkur má segja að al-
menn samfélagsþjónusta taki við,
því að sögn Helga Grímssonar,
fræðslustjóra Bandalags íslenskra
skáta, mun heilt bæjarfélag rísa á
tílfljótsvatni þar sem hægt verður
að komast í verslun og banka og
fylgjast með fréttum af mótinu
með því að hlusta á útvarpsstöð
mótsins eða lesa dagblað þess.
Gert er ráð fyrir að um 1.000
erlendir skátar frá 22 Iöndum
sæki mótið og eru 120 þeirra
starfsmenn þess.
xrm-------------------------
■ Skátamót/6
Morgunblaðið/Jim Smart
ÞESSIR ungn skátar voru glaðir þegar þeir biðu eftir að mótið hæfist.
Samanburður milli þjóða á þeim verðmætum sem ein vinnustund skapar
Island er í 18. sæti ríkja
sem eiga aðild að OECD
Jf'RUMKVÖÐLAR á íslandi búa
við ófullnægjandi starfsumhverfi
og er það að miklu leyti skýring
þess að hver vinnustund hér
á landi gefur minna af sér en
í flestum þróuðum ríkjum. Þetta
kemur fram í nýútkominni skýrslu
um starfsskilyrði frumkvöðla á
íslandi sem gefin er út á vegum
Samtaka iðnaðarins og Iðn- og
atvinnurekendasamtaka Evrópu
(UNICE).
í skýrslunni kemur fram að sé
miðað við þau verðmæti sem ein
vinnustund skapar hafnar ísland í
„Mikil karfa-
sala til
Þýskalands
SALA á fiskmarkaðinum í Bremer-
haven í Þýskalandi var tvöfalt meiri í
júní en á sama tíma í fýrra og er gert
ráð íyrir að salan í júlí verði einnig
meiri en í sama mánuði í fyrra. Um
70 til 80% fisks, sem seldur er, er frá
íslandi.
Aukninguna má meðal annars
ijfcekja til aukins framboðs á út-
' nafskarfa og veiða skipa Evrópu-
sambandsins úr karfakvóta þess við
strendur Islands. Þá eru þýskir fisk-
verkendur farnir að kaupa ferskan
karfa til flökunar í auknum mæii.
Samtals voru 1.560 tonn af fiski
seld á markaðinum en 790 tonn í
sama mánuði í fyrra.
18. sæti af 29 meðal ríkja OECD.
Ein vinnustund hér á landi gefur
að meðaltali af sér aðeins 64% þess
sem hver vinnustund gefur af sér í
Lúxemborg og 75% af því sem hún
gefur í Frakklandi, svo dæmi séu
tekin. „Munurinn merkir að við
höfum lægri heildartekjur, minni
frítíma eða hvort tveggja en þær
þjóðir sem við viljum helst bera
okkur saman við,“ segir í skýrsl-
unni og er ein meginástæðan sögð
vera sú að frumkvöðlum hafa ekki
verið búin viðunandi starfsskilyrði
hér á landi.
Lýst er áhyggjum af því að verð-
bólga hefur aukist hér að undan-
förnu og mun, samkvæmt spám
OECD og fleiri aðila, aukast á
næstunni. Verðhækkanir opinberr-
ar þjónustu á síðustu misserum eru
nefndar sem ein meginorsök þessa
og bent á að á milli áranna 1997 og
1998 hafi hækkanirnar numið tæp-
lega 11%.
Hærri vextir
hérlendis
Eitt af því sem frumkvöðlar
þurfa á að halda er stöðugleiki í
verðlags-, gengis- og vaxtamálum.
A þessum áratug hefur íslenskt
efnahagslíf notið meiri stöðugleika
í verðlagsmálum en um margra
áratuga skeið en þó er á það bent í
skýrslunni að vextir hér á landi eru
mun hærri en í helstu viðskipta-
löndunum.
Einnig er lýst áhyggjum af því
að verðbólga hefur aukist hér að
undanförnu og mun, samkvæmt
spám OECD og fleiri aðila, aukast
á næstunni.
■ Starfsumhverfi/28
Eimskip
íhugar
farþega-
siglingar
FORRÁÐAMENN Eimskips íhuga
að hefja áætlunarferðir með far-
þega- og bílferju milli íslands,
Færeyja, Danmerkur og Aberdeen
í Skotlandi næsta sumar, í sam-
keppni við færeyska fyrirtækið
Smyril Line.
Frá þessu segir í færeyska dag-
blaðinu Sosialurin. Erlendur
Hjaltason, framkvæmdastjóri utan-
landssviðs Eimskips, staðfestir að
hugmyndir af þessu tagi hafi verið
skoðaðar, en að engar ákvarðanir
hafi enn verið teknar.
I samvinnu við DFDS
í Sosialurin segir að Eimskip og
danska flutningafyrirtækið DFDS
séu í sameiningu að athuga mögu-
leika á farþegasiglingum milli
Færeyja og Danmerkur. DFDS er
eitt stærsta fyrirtæki á sínu sviði í
Danmörku og hefur umboð fyrir
Eimskip þai- í landi. Það hafði lengi
með höndum áætlunarsiglingar
milli Danmerkur, Færeyja og
Islands.
Erlendur segir að hugmyndir
um farþegasiglingar til Islands
tengist áætlunum um tengingu
milli Bretlands og Færeyja. „Aber-
deen er áhugaverð höfn í þessu
sambandi vegna þess að hún er
norðarlega, þannig að siglingatím-
inn er stuttur. Að auki má nefna að
ef olíuvinnsla hefst í Færeyjum
verður tenging við Aberdeen mjög
mikilvæg."
I frétt Sosialurin segir að fleiri
fyrirtæki tengist áætlunum Eim-
skips og DSDF. Erlendur vildi þó
ekki tjá sig um þau mál í samtali
við Morgunblaðið gær.
Fjöldi fæðinga í
sumar í meðallagi
SUMARIÐ hefur verið sá tími
ársins þegar flest börn fæðast og
þetta árið er engin undantekn-
ing. Þó eru engir afgerandi topp-
ar eða lægðir í þeim efnum sam-
kvæmt upplýsingum frá fæðing-
ardeildum Landspítalans og
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri.
Fyrstu sex mánuði ársins var
fjöldi faaðinga hefðbundinn á
landinu. Á Landspítalanum voru
1.365 fæðingar til 1. júlí en á
sama tímbili í fyrra voru þær
1.395. í júnímánuði voru þar 243
fæðingar en í fyrra 255 talsins.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
rúnar Eggertsdóttur yfirljós-
móður gengur lífið sinn vana-
gang á fæðingardeild Landspít-
alans, en minna verður um fæð-
ingar þar í júlí en í fyrra. Ástæð-
an er að fæðingardeild sjúkra-
hússins í Keflavík mun ekki
verða lokuð í júlí á þessu ári líkt
og reyndin var á síðasta ári.
Á fæðingardeild FSA er fjöldi
fæðinga 189 fyrstu sex mánuði
ársins. Á sama tímabili í fyrra
voru þær 219 en Ingibjörg Jóns-
dóttir yfirljósmóðir á fæðingar-
deild FSA telur árið verða í með-
allagi. Þrjátíu fæðingar voru í
júní sem er frekar lítið miðað við
sumarmánuð. í sama mánuði í
fyrra ólu alls 49 konur börn en
Ingibjörg bendir á að þá hafi ver-
ið sérstaklega annasamt á fæð-
ingardeildinni. Einnig segir hún
að von sé á mörgum fæðingum í
júlí og ágúst á fæðingardeild
FSA.
■ Karfasala/Cl