Morgunblaðið - 19.08.1999, Blaðsíða 1
185. TBL. 87. ARG.
FIMMTUDAGUR 19. AGUST 1999
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Alþjóðasamfélagið bregst skjdtt við hörmungunum vegna jarðskjálftans í Tyrklandi
Erlendir hjálparstarfs-
menn streyma til landsins
Ankara, Istanbúl, Izmit, Lundúnum. Reuters.
FJÖLDI þeirra er látist hafa af völd-
um jarðskjálftans gríðarlega í norð-
vesturhluta Tyrklands var í gær-
kvöldi talinn vera um fjögur þúsund
og um sextán þúsund manns a.m.k.
höfðu slasast í hamförunum. Al-
þjóðasamfélagið brást í gær afar
skjótt við hjálparbeiðni ríkisstjórnar
Tyrklands og hafa erlendir hjálpar-
starfsmenn streymt til landsins og
eru nú um 1.300 slíkir að störfum í
landinu. Hefur atburðurinn fært
saman forna fjandmenn en í gær
bættust Grikkland og Kýpur við
þann mikla fjölda ríkja sem boðið
hafa fram aðstoð sína til að lina þján-
ingar almennings.
Þungamiðja hjálparstarfsins var á
svæðinu nærri iðnaðarborginni Izmit
en þar voru upptök skjálftans að-
faranótt þriðjudags. Hins vegar
sagði Bulent Ecevit, forsætisráð-
herra Tyrklands, í gær að hjálpar-
sveitir hefðu enn ekki komist til allra
þeirra þéttbýiiskjarna er illa urðu úti
í skjálftanum vegna örðugleika með
fjarskipti og tjóns á samgöngumann-
virkjum. Tyrkneska Anatolia-frétta-
stöðin sagði að um fjörutíu klukku-
stundum eftir skjálftann væru t.d.
um fímm þúsund manns enn innilok-
aðir í borginni Golcuk einni. Þá var
talið að um 150 manns væru enn
grafnir í rústum flotastöðvar tyrk-
neska hersins nærri borginni en fyrr
um daginn hafði 130 einstaklingum
verið bjargað lifandi úr húsarústum.
Olíuhreinsunarstöð í hættu
Á sömu stundu og hjálparstarfs-
menn leituðu að lífsmarki í húsarúst-
um í Izmit börðust flugmenn sérút-
búinna bandarískra og ísraelskra
flugvéla við að slökkva elda í stærstu
olíuhreinsistöð Tyrklands sem er
nærri borginni en mikil hætta var
talin á að verksmiðjan kynni að
springa og sagði forsætisráðherrann
að eldurinn væri eitt alvarlegasta
vandamálið er skapast hefði vegna
skjálftans. I gærkvöldi voru fleiri
vélar á leið til Tyrklands frá Frakk-
landi, Þýskalandi og Grikklandi.
Fulltrúar Evrópusambandsins
(ESB) lýstu því yfír í gær að ESB
myndi veita Tyrkjum andvirði 160
milljóna ísl. króna í neyðaraðstoð
vegna skjálftans og ríkisstjórnir
margra Evrópuríkja sögðust mundu
veita Tyrkjum peningaaðstoð til að
koma upp neyðarskýlum, færanleg-
um sjúkrahúsum og vatnshreinsi-
búnaði. Þá hafa Grikkir, fornir fjend-
ur Tyrkja, þegar sent þrjár flutn-
ingavélar hlaðnar hjálpargögnum til
skjálftasvæðanna og bættust þar
með í þann stóra hóp þjóða er sent
hafa leitarflokka og tækjabúnað til
Tyrklands. Ríkisstjórnir Bandaríkj-
anna, Bretlands, ísraels og Dan-
merkur eru á meðal þeirra sem þeg-
ar hafa sent leitar- og slökkviliðs-
flokka til landsins. Kofi Annan, aðal-
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, lýsti því ennfremur yfir í gær
að Tyrkir myndu hljóta alla hugsan-
lega aðstoð sem SÞ getur veitt þeim.
Almenningur reiður
stjórnvöldum
Tyrkneskur almenningur sakaði í
gær stjórnvöld og hermálayfirvöld
harðlega fyrir að bregðast illa við
náttúruhamförunum og að ekki
væri nóg gert til að leita að þeim
sem enn kynnu að finnast á lífi í
húsarústum. Forsætisráðherrann
sagði að stjórnvöld reyndu að gera
allt sem í þeirra valdi stæði til að
bregðast við aðstæðunum og enn
biðu hundruð eftir að verða bjargað.
Líkurnar á því að finna fólk á lífí
fara þó þverrandi með hverri
klukkustund er líður.
Líkum þeirra er fórust í náttúru-
Reuters
Björgunarmenn koma fyrir búnaði svo bjarga megi ein-
um þeirra er fannst á lífi í húsarústum í bænum Sakarya
í Norðvestur-Tyrklandi í gær. Á minni myndinni sjást
tyrkneskir hermenn koma lfkum þeirra er fundist hafa í
rústum húsa í borginni Izmit fyrir í ísgeymslu á meðan
ástvinur eins fórnarlambanna gengur grátandi hjá.
hamförunum var í gær komið fyrir í ur að reyna að bera kennsl á fórnar-
ísgeymslum til að koma þeim undan
miskunnarlausum ágústhitanum við
Marmarahaf. Blaðamönnum Reuters
var veittur aðgangur að slíkri bygg-
ingu í Izmit í gær og sáust þar raðir
af líkum og yfirbugaðir aðstandend-
lömbin. Flutningabílar fluttu stöðugt
fleiri lík á staðinn en talið er að í
Izmit einni hafi um eitt þúsund
manns látist í skjálftanum.
■ Reiði beinist gegn/28
Vargöld ríkir í einu ríkja Venesúeia
Morð verði
ekki stöðvuð
RÍKISSTJÓRI í Venesúela hef-
ur gefið lögreglu fyrirmæli um að
koma ekki í veg fyrir að sjálf-
skipaðir löggæslumenn myrði af-
brotamenn, að því er breska rík-
isútvarpið, BBC, greindi frá.
Orlando Fernandez er ríkis-
stjóri í Lara-ríki, sem er í mið-
hluta landsins. Hann sagði frá-
leitt að lögreglan kæmi afbrota-
mönnum til verndar þegar glæp-
astarfsemi væri útbreidd. „Eg
er of upptekinn til að mega vera
að því að vernda afbrotamenn,“
sagði Fernandez. „Eg þarf að
gæta heiðarlegs og almennilegs
fólks.“ Glæpum hefur fjölgað
gífurlega í Venesúela undanfar-
ið.
Um svipað leyti og Femandez
lét þessi orð falla réðst múgur
manns í öðru ríki á meintan
morðingja og brenndi hann til
bana. Mannréttindahópar hafa
fordæmt viðhorf Femandezar og
sagði fulltrúi mannréttindasam-
takanna Provea að Femandez
væri nú orðinn samsekur hinum
sjálfskipuðu löggæslumönnum og
engu betri en glæpamennimir.
Pólitísk framtíð
Júgdslavíu
Stjórnvöld
segjast
reiðubúin
til kosninga
Belgrad. AP, Reuters.
HATTSETTUR aðstoðarmaður
Slobodans Milosevics Júgó-
slavíuforseta sagði í gær að rík-
isstjóm landsins væri reiðubúin
að ganga snemma til kosninga
og brást þannig við gagnrýni
stjórnarandstæðinga. Er yfir-
lýsing Ivica Dacics, talsmanns
Sósíalistaflokks Milosevics, tal-
in til marks um að stjórnin
reyni nú að lægja óánægjuöldur
í landinu en í dag hefur verið
boðað til fjölmenns mótmæla-
fundar í Belgrad þar sem farið
verður fram á afsögn Milosevics
og þess krafist að komið verði á
fót bráðabirgðastjóm er standi
fyrir frjálsum og réttlátum
kosningum.
„Við teljum að það séu fleiri
aðkallandi mál en kosningar
sem þjóðin stendur frammi fyr-
ir, en ef stjórnarandstaðan vill
[kosningar], þá það. Við emm
reiðubúnir," sagði Ivica Dacic
við fréttastofu AP í gær.
Stjórnarandstaðan hefur krafist
þess að kosningar verði aðeins
haldnar að því tilskildu að al-
þjóðlegir eftirlitsmenn komi þar
að málum. Dacic vildi hvorki tjá
sig um hvort erlendum eftirlits-
aðilum yrði leyft að fylgjast
með kosningunum né hvenær af
þeim gæti orðið.
Mladjan Dinkic, forsvarsmað-
ur G-17 hópsins og einn af aðal-
hvatamönnum mótmælafundar-
ins í dag, sagði í viðtali við
Reuters í gær að fundurinn yrði
afar mikilvægur fyi-ir framtíðar-
þróun í Júgóslavíu, bæði fyrir
pólitísk öfl og þjóðina sjálfa.
„Ef við náum fleiri en 100.000
manns út á stræti Belgrad mun
það verða stjórnarliðum merki
um að nú sé síðasta tækifærið
til að yfirgefa stöður sínar og
stjórnarandstæðingum merki
um að þjóðin hefur ekki tíma til
að hlusta á innbyrðis deilur,"
sagði Dinkic.
Mannfall í liði Rússa í bardögum í fjöllum Dagestan
Rússar fullyrða að sigur
vinnist innan skamms
Grosní, Makatsjkala, Moskvu. Reuters.
ÁTTA rússneskir hermenn féllu og
20 særðust í árás sem uppreisnar-
menn í fjallaþorpi í rússneska
Kákasuslýðveldinu Dagestan hrundu
í gær, að sögn Adilgereis Magomedt-
agirovs, ráðherra í héraðsstjórn
Dagestans. Sagði hann jafnframt að
rússneskir hennenn héldu ótrauðir
áfram áhlaupum á þorpið Tando,
skammt frá landamærunum að
Tsjetsjníu.
Ráðherrann upplýsti þetta á fundi
stjórnarráðs Dagestans í höfuð-
staðnum Makatsjkala, en Igor
Sergejev, varnarmálaráðherra Rúss-
lands, og fleiri áhrifamenn frá
Moskvu sátu fundinn. Sergejev hélt
til Dagestan eftir að Borís Jeltsín
Rússlandsforseti óskaði eftir því að
hann tæki að sér lykilhlutverk í að
vinna sigur á uppreisnarmönnum,
sem lúta forystu nokkurra
tsjetsjenskra skæruliðaforingja.
Sergejev sagði það ekki mundu
taka langan tíma að brjóta mót-
spyrnu skæruliðanna á bak aftur og
Ánatolí Kvasnín, yfirmaður rúss-
neska heraflans, tjáði þinginu í
Moskvu að uppreisnin yrði brotin á
bak aftur innan fárra daga.
Kremlverjar treysta heitin
Vladímír Pútín forsætisráðherra
átti í gær fund í Kreml með þeim
Viktor Tsjernomyrdín, Sergei Kíríj-
enkó og Sergei Stepasjín. Virðast
viðræðurnar aðallega hafa haft það
að markmiði að treysta heit stuðn-
ingsmanna Jeltsíns og núverandi
ríkisstjórnar, nú þegar styttist í
þingkosningar. Tilefnið mun ekki
sízt vera það að Jevgení Prímakov,
og Júrí Lúzhkov hafa snúið bökum
saman í nýju kosningabandalagi,
sem þykir allsigurstranglegt.