Morgunblaðið - 19.08.1999, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fyrsti þingmaður Norðurlands eystra um símakostnað við fjarvinnslu
Kemur verulega á
Guðmundur Hauksson
um dreifða eignaraðild
Ekkert
hefur
breyst
„ÉG ER búinn að tjá mig ítarlega
um þetta mál og það sem ég sagði í
viðtali við Morgunblaðið á laugar-
dag stendur og það hefur ekkert
breyst í því máli,“ sagði Guðmundur
Hauksson, sparisjóðsstjóri og
stjómarformaður Scandinavian
Holding, er hann er spurður um
ummæli viðskiptaráðherra þess efn-
is að ríkið stefndi að dreifðri eignar-
aðild við sölu á hlut sínum í Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins.
í viðtali við Morgunblaðið síðast-
liðinn laugardag sagði Guðmundur
Hauksson að athygli forráðamanna
Scandinavian Holding hefði verið
vakin á því að ríkissjóður kynni að
hafa frjálsari hendur um sölu á
bréfunum en áður var talið, þ.e. að
dreifð eignaraðild væri ekki eins af-
dráttarlaust skilyrði og áður hefði
verið rætt um.
Finnur Ingólfsson sagði í Morg-
unblaðinu í gær að forráðamenn
sparisjóðanna hefðu ekki haft
ástæðu til að ætla að stefnubreyting
væri á döfinni hjá ríkisstjóminni og
að lögð hefði verið áhersla á að sala
á hlut bankans færi fram á árinu.
-------------
Ráðinn að-
stoðarmaður
utanríkis-
ráðherra
ÁRNI Magnússon hefur verið ráð-
inn aðstoðarmaður Halldórs Ás-
grímssonar utanríkisráðherra og
tekur hann til
starfa 1. septem-
ber næstkomandi.
Ámi er 34 ára
og lauk prófi frá
Samvinnuskólan-
um á Bifröst 1983.
Hann hefur und-
anfarin rúm fjög-
ur ár gegnt starfi
aðstoðarmanns Finns Ingólfssonar,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, en
starfaði áður við blaða- og frétta-
mennsku.
Ámi er kvæntur Eddu Björgu
Hákonardóttur förðunarfræðingi.
Þau eiga fimm börn og búa í Hvera-
gerði.
„ÞAÐ kemur mér vemlega á óvart
og ég hef ekki fengið skýringar á
því hvernig á þessu getur staðið,“
segir Halldór Blöndal, fyrsti þing-
maður Norðurlands eystra og for-
seti Alþingis, þegar hann er spurð-
ur álits á erfiðleikum fjarvinnslu á
landsbyggðinni vegna mikils síma-
kostnaðar.
Þingmaðurinn segist hafa verið á
Raufarhöfn þegar fyrirtæki ís-
lenskrar miðlunar tók formlega til
starfa. „Þá spurði ég sérstaklega
um það hvort símakostnaður væri
sambærilegur á Raufarhöfn og höf-
uðborgarsvæðinu og mér var sagt
að svo væri. Ég hef ekki talað við
Svavar Kristinsson, forstöðumann
fyrirtækisins, en bæði rætt við sam-
gönguráðherra og forstjóra Lands-
símans og fleiri um þá stöðu sem
upp er komin að dreifbýlið sé ekki
samkeppnisfært við höfuðborgina á
fjarskiptasviði. Ég hafði áhyggjur
af þessu sem samgönguráðherra og
vissi ekki betur en að þessi mál
væm í góðu horfi og því kemur
þetta mér mjög mikið á óvart.
Ég tel óhjákvæmilegt að gripið
verði í taumana með byggðarlegum
aðgerðum. Að öðmm kosti munu
fjarskiptin með tölvuvæðingunni
leggjast á þá sveif að landsbyggðin
eigi sér ekki viðreisnar von. Það vil
ég ekki sjá og því vil ég ekki trúa.
Eg tel þess vegna að við lands-
byggðarmenn munum fylgjast mjög
vel með því sem er að gerast á
þessu sviði.“
Höfðum tilboð upp
á 350 þúsund krónur
Svavar Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Islenskrar miðlunar,
segir ummæli forstöðumanns upp-
óvart
lýsinga- og kynningarmála hjá
Landssímanum í Morgunblaðinu í
gær röng, þ.e. ummæli um að gjald-
ið hefði ekki átt að koma forráða-
mönnum íslenskrar miðlunar á
óvart.
Svavar segir fyrirtækið hafa feng-
ið tilboð frá Landssímanum upp á
350 þúsund krónur án virðisauka-
skatts og því komi reikningur upp á
um 600 þúsund krónur á óvart.
Ljóst sé að jafna verði þennan mun
á símakostnaði eigi atvinnuupp-
bygging með þessum hætti á lands-
byggðinni að geta dafnað.
Brú smíðuð yfír Tunguós
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
FYRIR helgina var lokið við að steypa gólf
brúar við Tunguós á nýja veginum við
Búlandshöfða. Núna eru brýrnar orðnar fjór-
ar í stað tíu sem voru áður á þessari leið.
Skipavík í Stykkishólmi, sem er undirverk- sljóra hefur verkið gengið samkvæmt áætlun.
taki, sá um verkið en aðalverktaki við 8-10 manns hafa unnið við verkið að staðaldri
Búlandshöfða er Héraðsverk frá Egilsstöðum. og þegar mest var unnu 15 manns við brúna.
Að sögn Sævars Harðarsonar framkvæmda- Hún er 8 metra breið og 22 metrar að lengd.
Nýr formaður kjörinn á þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna sem er að hefjast
Aukin harka komin
í kosningabaráttuna
ÞING Sambands ungra sjálfstæðis-
manna hefst á morgun, föstudag, í
Vestmannaeyjum, en á þinginu
verður m.a. nýr formaður kjörinn í
stað Ásdísar Höllu Bragadóttur,
sem ekki gefur kost á sér til endur-
kjörs. Tveir eru í kjöri, þeir Jónas
Þór Kristjánsson og Sigurður Kári
Kristjánsson. Stuðningsmenn fram-
bjóðendanna hafa verið duglegir við
greinaskrif síðustu vikur, en upp á
síðkastið hefur tónninn í þeim skrif-
um breyst nokkuð og greinilegt á
öllu að aukin harka hefur færst í
kosningabaráttuna.
í Morgunblaðinu undanfama
daga hafa verið margar aðsendar
greinar helgaðar kosningabarátt-
unni. í greinunum, sem tengjast all-
ar kosningabaráttunni óbeint, ásök-
uðu flokksbræður og samstarfsfólk
hvert annað um óheilindi í starfi,
eins og t.d. brot á vinnureglum við
fulltrúaval.
Alls eiga 458 fulltrúar frá félög-
um ungra sjálfstæðismanna á öllu
landinu rétt til setu á þinginu, en
stjóm hvers félags sér um að velja
sína fulltrúa. Þeir einir hafa kosn-
ingarétta á þinginu.
í laugardagsblaði Morgunblaðs-
ins fjallar Ólöf Hrefna Kristjáns-
dóttir, stjómarmaður í Heimdalli,
m.a. um fulltrúavalið í grein, sem
birtist undir fyrirsögninni
„Skammarleg vinnubrögð stjórnar
Heimdallar.“ í greininni ásakar
Ólöf Hrefna samstarfsfólk sitt um
óheiðarleg vinnubrögð og segir hún
það hafa ýtt til hliðar settum regl-
um þegar það hafi valið fulltrúa.
Heimdallur sendir 194 fulltrúa á
þingið, eða tæplega helminga allra
þingfulltrúa.
í samtali við Morgunblaðið sagð-
ist Ólöf Hrefna ekki hafa samþykkt
tillöguna um fulltrúana á þeim for-
sendum að hún hefði ekki haft að-
gang að listum með nöfnum á þeim
sem hefðu sótt um.
í sunnudagsblaði Morgunblaðs-
ins birtist grein undir fyrirsögninni
„Vísvitandi rangfærslum Ólafar Hr-
efnu svarað“ og var hún skrifuð af
Ingva Hrafni Óskarssyni, Örnu
Hauksdóttur og Hauki Emi Birgis-
syni, stjórnarmönnum í Heimdalli.
í samtali við Morgunblaðið vísaði
Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður
Heimdallar, ásökunum Ólafar Hr-
efnu algjörlega á bug.
Svona umtal
skaðar lireyfinguna
„Ég held að það sé augljóst mál
að allt svona umtal er bara til þess
fallið að skaða hreyfingu ungra
sjálfstæðismanna og jafnvel flokk-
inn sjálfan," sagði Ingvi Hrafn.
Ingvi Hrafn sagði að þar sem
Ólöf Hrefna hefði mætt á sinn
fyrsta stjórnarfund í á þriðja mán-
uði í síðustu viku hefði hún augljós-
lega ekki tekið þátt í undirbúningn-
um fyrir fulltrúavalið, sem staðið
hefði miklu lengur. Hann sagði að á
sjálfum fundinum hefði hún ekki
tekið þátt í umræðunum og hvorki
beðið um að fá að sjá fleiri gögn, né
gert athugasemd við tillögur um val
á fulltmum. Ólöf Hrefna sagðist að-
eins hafa verið erlendis í einn og
hálfan mánuð og að fram að því
hefði hún mætt samviskusamlega á
stjómarfundi.
„Það er eins og hún hafi verið bú-
in að ákveða að birta þessa grein,
því fundinum lauk rúmlega fjögur á
föstudaginn og hálfum sólarhring
síðar vai' greinin komin í Morgun-
blaðið og þeir sem þekkja til vita að
aðsend grein fæst ekki birt í blaðinu
með svo stuttum fyrirvara,“ sagði
Ingvi Hrafn.
Olöf Hrefna sagðist hafa lagt
ákveðin drög að greininni fyrir
fundinn, þar sem hana hefði grunað
að tillagan um fulltrúavalið yrði
samþykkt án þess að hún myndi fá
að sjá öll gögn, en það fannst henni
afar ósanngjamt.
Val á fulltrúum
erfitt viðfangs
„Ég hef í raun ekkert meira um
þetta að segja, annað en það að ég
stend við allt sem að ég segi í grein-
inni,“ sagði Ólöf Hrefna.
Að sögn Ingva er það fyrirkomu-
lag að stjómir félaganna velji sjálfar
fulltrúa á SUS-þing að mörgu leyti
erfitt viðfangs. Hann sagði að stjóm
Heimdallar hefði fengið mikla gagn-
rýni úr báðum áttum, þ.e. bæði frá
stuðningshópi Sigurðar Kái'a og
Jónasar Þórs. Hann sagði að stjóm-
in hefði stuðst við ákveðnar reglur
við fulltrúavalið, þar sem meginvið-
miðið hefði verið það að láta virka fé-
laga hafa forgang.