Morgunblaðið - 19.08.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 11
FRETTIR
fslenskur verkfræðingur heldur fyrirlestur um viðbrögð við bruna
Endurskoða
þarf kröfur
vegna bruna í
jarðg’öngum
Morgunblaðið/Kristinn
Dr. Haukur Ingason starfar við rannsóknir og
fræðistörf í tengslum við brunamál.
„ÞAÐ þarf að vinna í því að upplýsa
almenning um hvernig á að bregð-
ast við bruna,“ segir dr. Haukur
Ingason, sem starfar hjá SP, bruna-
rannsóknarstofnun sænska ríkisins.
„Það er ekki nóg að eingöngu verk-
fræðingar og slökkviliðin viti hvern-
ig á að bregðast við heldur verður
almenningur einnig að vera með á
nótunum."
Haukur er byggingaverkfræðing-
ur með doktorspróf í brunaverk-
fræði. Hann hélt fyrirlestur í gær á
ráðstefnu Slökkviliðs Reykjavíkur
um bruna- og öryggismál. Blaða-
maður Morgunblaðsins tók hann
tali að loknum fyrirlestrinum.
„Það þarf að endurskoða öryggis-
kröfur vegna bruna í jarðgöngum
en verið er að vinna í þvi að setja al-
þjóðlegar reglur í þeim efnum,“
segh- Haukur og telur það eiga við
hér á landi sem annars staðar, án
þess að hann hafí kynnt sér sérstak-
lega aðstæður hér. „Menn vita að
það geta komið upp brunar hér sem
annars staðar. Islenskir staðlar
hafa fylgt norskum stöðlum og þá
þarf að endurskoða eins og staðla
annars staðar í Evrópu."
Brunavörnum í jarðgöngum
ábótavant
Haukur segir að í kjölfar brun-
anna í vor, fyrst í Mont Blanc þar
sem 42 manns létust og svo í aust-
urrísku ölpunum þar sem 12 manns
létust, hafi menn alls staðar vaknað
til vitundar um að eitthvað þyrfti að
gera. „Því miður þarf oft stórbruna
til að menn átti sig á að eitthvað er
að. Brunarnir tveir í Ölpunum hafa
gjörbreytt viðhorfí manna gagnvart
brunavörnum í jarðgöngum, menn
hafa gert sér grein fyrir að þetta er
stórt vandamál. Nú lítur út fyrir að
Ný Nor-
ræna í lok-
að útboð
Á STJÓRNARFUNDI Smyril
Line, sem haldinn var í Færeyjum
í síðustu viku, var ákveðið að vinna
áfram að smíði nýrrar farþega- og
bílferju sem koma á í stað Nor-
rænu. Þetta kom fram í samtali
Morgunblaðsins við Jónas Hall-
grímsson, framkvæmdastjóra
Austfars, sem hefur umboð fyrir
Norrænu á íslandi.
30 til 40 þúsund brúttótonn
Jónas sagði að nokkrar skipa-
smíðastöðvar hefðu verið valdar og
þeim boðið að gera tilboð í smíði
skipsins og því væri um svokallað
lokað útboð að ræða. AUri hönnun-
arvinnu væri lokið og búið að af-
henda skipasmíðastöðvunum gögn-
in. Nýja skipið verður um 30 til 40
þúsund brúttótonn og mun taka
1.300 til 1.400 farþega og 500 til
1.000 fólksbíla. Það verður um 157
metra langt og 29 metra breitt.
Skipasmíðastöðvamar hafa frest
fram í miðjan október til að skila
inn tilboðum.
Að sögn Jónasar er reiknað með
að nýja skipið leysi hið gamla af
hólmi á vordögum árið 2002.
Norræna, sem er 11.800 brút-
totonn, var byggð árið 1973 og end-
urbætt árið 1983. Hún tekur 1.050
farþega og 300 fólksbíla.
kröfur og staðlar eigi eftir að breyt-
ast í kjölfarið og verða strangari."
Haukur segir að komið hafí ber-
lega í ljós í brunanum í Mont Blanc
að fólk vissi ekki hvernig ætti að
bregðast við. „Það voru margir sem
sátu bara kyrrir í bílunum, sáu að
það kom reykur en gerðu ekki neitt.
Þessu fólki fannst það eflaust vera á
öruggasta staðnum og vissi ekki
hvar var næsta útgönguleið. Síðan
þegar bruninn átti sér stað í Aust-
urríki forðaði fólk sér á hlaupum út
úr göngunum. Þá hafði það lesið um
brunann í Mont Blanc og vissi
hvernig það átti að bregðast við.“
Upplýsingar um öryggismál
mikilvægar
Haukur segir það hlutverk
slökkviliðs og eigenda jarðganga og
vegagerðarinnar að tryggja að al-
menningur viti hvað gera skal komi
upp bruni í jarðgöngum, það sé t.d.
mikilvægt að við munna jarðganga
séu nákvæmar upplýsingar um ör-
yggiskerfi í göngunum, ekki sé nóg
að standi eingöngu hversu löng þau
eru.
„Það getur haft úrslitaáhrif á
starf slökkviliðs að fólk bregðist
rétt við. Reyni t.d. ekki að snúa við
bflum og aka aftur út ef það kemur
að bruna. Það skapar öngþveiti og
gerir slökkviliði erfitt fyrir. Rétt er
að leggja bflnum til hliðar og forða
sér út hið snarasta. Þegar slökkvilið
kemur á staðinn er svo vitaskuld
mikilvægt að það viti hvorum megin
það eigi að fara inn í göngin. Ef
blásarar eru notaðir tfl að blása
reyknum í eina átt, þá þarf slökkvi-
lið að vita í hvaða átt er blásið
þannig að það lendi ekki í vandræð-
um. Slökkvilið þarf vitaskuld líka að
eiga réttan útbúnað," segir Haukur.
GUÐNI Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra hefur ákveðið að endur-
skipa samninganefnd til viðræðna
við Bændasamtök Islands um gerð
nýs sauðfjársamnings í stað gild-
andi samnings sem rennur út í lok
árs 2000. Jafnframt hefur landbún-
aðarráðherra skipað nefnd til að
gera úttekt og meta markaðsmögu-
leika og markaðssetningu lamba-
kjöts á mörkuðum erlendis. For-
maður nefndarinnar er Einar Odd-
ur Kristjánsson.
í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar frá 28. maí sl. er ákveðið að
efna til víðtæks samráðs stjóm-
valda við bændur og samtök þeirra
um framtíðarskipulag íslensks
landbúnaðar tfl að tryggja hag-
kvæmni í greininni og skapa þeim
sem landbúnað stunda sem besta
afkomu. Auk gerðar nýs búvöru-
samnings við sauðfjárbændur verði
gert sérstakt átak í alþjóðlegri
markaðsfærslu og sölu á landbún-
aðarvörum með áherslu á hollustu
og hreinleika íslenskra afurða. I
samninganefnd til viðræðna við
bændur um gerð nýs sauðfjársamn-
ings voru skipaðir Sveinbjörn Eyj-
ólfsson fonnaður, Guðmundur Sig-
Haukur bendir á að mikflvægt sé
að bflstjórar, einkum bflstjórar
stærri vöruflutningabifreiða, reyni
að slökkva eld með handslökkvitæki
ef kviknar í bflum þeirra. Ef það
tekst ekki þá að hringja í slökkvflið
og forða sér. „Það er mikilvægt að
fólk haldi ekki kyrru fyrir og bíði
eftir að sjá bfla springa í loft upp
eins og í bíómyndunum, slíkt gerist
ekki í raunveruleikanum og lykilat-
riði er að forða sér.“
Rannsóknarstofan sem Haukur
vinnur á sinnir rannsóknum á al-
mennum brunavörnum, auk ann-
þórsson varaformaður, Hákon Sig-
urgrímsson, Þórhallur Arason og
Þórarinn Sólmundarson.
Möguleikar í hollustu
og hreinleika
Nefnd um úttekt og mat á mark-
aðsmöguleikum lambakjöts á mörk-
uðum erlendis er ætlað að horfa til
þeirra möguleika sem kunna að vera
fólgnir í hollustu og hreinleika afurð-
anna tfl að skila bændum viðunandi
verði, taka afstöðu tfl þess hvort það
markaðsfyrirkomulag sem ríkt hefur
skili heildinni bestri markaðsfærslu
með skilaverð tfl bænda í huga og
horfa til framtíðar um markaðsþró-
un dflkakjöts með hliðsjón af sam-
keppni við aðrar búgreinar og af
þeim ramma sem alþjóðlegir við-
skiptasammngal• mynda. Nefndinni
er falið að hraða störfum svo sem
unnt er og skfla tfllögum sínum ekki
síðar en í lok þessa árs.
Auk Einars Odds Kristjánsson-
ar, formanns nefndai-innai', skipa
hana Baldvin Jónsson, Bryndís
Ragna Hákonardóttir, Jón Ás-
bergsson, Jón Sigurðsson, Kristín
Kalmansdóttir, Steinþór Skúlason
og Sveinbjörn Eyjólfsson.
arra verkefna. Haukur leiðir t.d. nú
rannsókn á diskóteksbrunanum í
Gautaborg. Við hann hafa verið not-
uð líkön sem hafa komið að góðum
notum við rannsóknina til að finna
út hvernig bruninn breiddist út og
segir Haukur að slík líkön geti
hjálpað tfl við að komast að því hvað
gerðist og fyrirbyggja að svipað at-
vik gerist á ný. „Lögreglan leitaði
til okkar en hún er óvön að fást við
svo stóra bruna. Lögreglan hefur
verið ánægð með samstarfið við
okkur og haft gagn af því í rann-
sókn sinni,“ segir Haukur.
Prestur Akureyrar-
prestakalls
Séra Jónína
Elísabet
skipuð
BISKUP íslands hefur ákveðið
skipan prests í Akureyrarprestakalli
og er það séra Jónína Elísabet Þor-
steinsdóttir. Valnefnd komst ekki að
einróma niðurstöðu og því var mál-
inu vísað til
ákvörðunar bisk-
ups. Þá hefur bisk-
up auglýst laust til
umsóknar embætti
prests í Garða-
prestakalli.
Einar Bjai’na-
son, formaður
sóknarnefndar
Akureyrarkirkju
sagðist í samtali
við Morgunblaðið vera mjög ánægð-
ur með niðurstöðuna. Hann hlakkar
til að eiga gott samstarf við Jónínu
Elísabetu í starfi við kirkjuna og
býður hana velkomna til starfa.
Séra Jónína Elísabet, sem verið
hefur fræðslufulltrúi kirkjunnar á
Norðurlandi, verður skipuð prestur
Akureyrarprestakalls frá 1. septem-
ber. Séra Svavar A. Jónsson, sem
gegnt hefur því embætti, hefur verið
skipaður í embætti sóknarprests
sama prestakalls. Valnefnd mat um-
sækjendur, samkvæmt starfsreglum
um presta, og ber henni að senda
biskupi niðurstöðu sína sem skipar
þann sem valnefnd ákveður. Komist
hún ekki að einróma niðurstöðu,
eins og varð í þessu tilviki, ákveður
biskup skipanina.
Prest vantar í Garðaprestakall
Umsóknarfrestur um. embætti
prests í Garðaprestakalli er til 20.
september. Því embætti hefur gegnt
séra Bjarni Þór Bjarnason, sem nú
starfar erlendis. Skipað verður í
embættið til fimm ára. Samkvæmt
starfsreglum um presta er heimilt
að óska eftir því að almennar prests-
kosningar fari fram og óski minnst
þriðjungur atkvæðisbærra sóknai'-
barna í prestakallinu þess er skylt
að verða við því. Skrifleg ósk um
kosningu skal hafa borist biskupi
eigi síðar en að hálfum mánuði liðn-
um frá því embættið er auglýst laust
til umsóknar.
0] Electrolux
Fnstíkistu-
tilboð
M
Frystikistur í
öllum stærðum
á tilboðsverði.
180-460 lítra.
Verð frá
31.990 kr.
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Landbúnaðarráðherra skipar samn-
inganefnd um nýjan sauðfjársamning
Markaðsmöguleikar
lambakjöts kannaðir
Jónína Elísabet
Þorsteinsdóttir