Morgunblaðið - 19.08.1999, Síða 12

Morgunblaðið - 19.08.1999, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Smíðar yfírbyggingu á slökkvibfla og selur sveitarfélögum Langt kominn með sýningarbíl Morgunblaðið/Kristján Signrjón Magnússon vinnur að sýningarbflnum sem brátt verður tilbúinn og verður þá sýndur hjá slökkviliðum víða um iand. SIGURJÓN Magnússon í Ólafsfírði hefur siðan árið 1991 unnið að hönnun og smíði yfirbygginga á slökkvibfla. Fyrst um sinn starfaði hann hjá fyrirtækinu Múlatindi en stofnaði síðan einnig fyrirtækið Almenna vörusalan ehf. undir starfsemina. Fjóra bfla hefur hann selt til Dalvíkur, á Blönduós, til _ Súðavfkur og síðan í Ólafsfirði. í tæp 3 ár hefur hann unnið að öðr- um verkefnum en nú er hann langt kominn með sýningarbfl sem hann ftyííffst aka með um landið á næstu mánuðum. Með því vonast hann til að geta kynnt sína framleiðslu fyr- ir sveitarfélögum í landinu, en hann telur sína bfla fyllilega stand- ast samkeppni við erlenda fram- leiðslu. Morgunblaðið hitti Sigur- jón í Ólafsfirði og spjallaði við hann um yfirbyggingamar og aðr- ar hugmyndir sem hann er með í kollinum. Var með lægsta tilboðið „Ég byijaði árið 1991 að smiða yfirbyggingar úr áli og jámi á slökkvibfla og seldi Ijóra bfla á næstu ámm á eftir. Þá vom um- ræður um sameiningu sveitarfé- laga mjög háværar og sveitarfélög héldu að sér höndum í fjárfesting- um á þeim tíma. Á meðan vann ég að endurhönnun yfirbygginganna og ákvað að nota trefjaplast í stað- inn fyrir járnið og fékk með því léttari bfl með stærri vatnstank og meira pláss fyrir búnað. Á næstu vikum verður smiði fyrsta bflsins Iokið og verður hann sýndur hjá slökkviliðum á Iandinu. Miðað við viðbrögð þeirra sem til þekkja tel ég bjartari tíma framundan," sagði Sigurjón. „Eignarhaldsfélag Brunabóta- félagsins hefur boðið út smiði fimm stærri bfla og tveggja lítilla og mitt tilboð í minni bflana var um 11% lægra en næsta tilboð. Það er auðvitað ekkert öruggt enn þá að ég fái það verkefni en mér fyndist það fyllilega eðlilegt, annars er hreinlega verið að ganga fram hjá íslenskum iðnaði, sem jafnframt er þá þetta ódýr- ari,“ sagði Siguijón. Siguijón segir að stærri sveitar- félög en þau sem þegar hafa keypt bfla hjá honum geti hiklaust nýtt sér þessa bfla. „Þessi bfll er í raun og veru mun öflugri en fólk al- mennt gerir sér grein fyrir. Yfir- byggingin á þessum bfl nýtist bet- ur en yfirbyggingin á mörgum af þessum stóru bflum,“ sagði Sigur- jón. Hann segist Ieitast við að hafa yfirbygginguna sem léttasta og hafa gott pláss fyrir búnað þrátt fyrir 2.000 lítra vatnstank. „Bfllinn er léttur í akstri, fljótur í förum og stærðin er hentug þar sem hús- pláss er ekki mikið. Það að hann Hlynur Hallsson ræðir verk sín í TILEFNI af sýningu á verk- um listamannanna Hlyns Hallssonar og Aida Makoto á Listasafni Akureyrar mun Hlynur ræða um verk sín við áhorfendur í kvöld, fimmtu- dagskvöld, kl. 21. Á sýningunni eru ljósmyndir, myndbanda- verk og m.a. skoðanakönnun þar sem gestum gefst tækifæri á að taka þátt. Verkin sýna það sem tengist daglegu lífi og reynir listamaðurinn að höfða til sameiginlegrar reynslu og vekja fólk til meðvitundar um eigið líf og möguleikana sem í því búa. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18, en henni lýkur 10. október. sé fljótur í förum getur vissulega skipt sköpum þegar eldsvoði er annars vegar,“ sagði Siguijón. Hann talar þar af reynslu því að hann er varaslökkviliðssljóri í Ólafsfirði og hefúr þar með reynslu af vettvangi. Hentar á fleiri bíla Siguijón hefúr alfarið hannað þessa yfirbyggingu sjálfur. „Ég hef hins vegar átt gott samstarf við slökkviliðsstjóra og menn með þekkingu á þessum málum hér á landi og erlendis. Hér á íslandi höfum við þörf fyrir sérstaka bfla og þurfum að koma meiri búnaði fyrir heldur en víða erlendis, þar sem fleiri bflar eru á hverri stöð,“ sagði Sigurjón. Hann kvaðst vera tilbúinn í smíði stærri bfla einnig og segist ekki horfa eingöngu til slökkvibfla. „Yfirbyggingin er þannig að auðvelt er að breikka hana eða hækka. Ég hef því uppi áform um að gera tilraunir með framleiðslu yfirbyggingar á sjúkrabfla. Þessi yfirbygging hentar í raun vel á allar gerðir sendibfla og jafnvel hjálparsveita- bfla. Þrátt fyrir að byggingin sé létt hefur hún mikla burðargetu," sagði Siguijón. Siguijón hefur ákveðnar skoð- anir á því að framleiðslu slíkra yf- irbygginga skuli alfarið flylja hingað til lands. „Ég skil ekki af hveiju það ætti að vera kaupa vör- una frá útlöndum ef hægt er að framleiða hana hér á landi. Svona iðnaður hlýtur einnig að vera at- vinnuskapandi. Ef við tökum yfír- KANADÍSKIR háskólanemar frá háskólanum í Guelph, Kanada, og nærliggjandi háskólum dvöldu nú í ágústmánuði í þijár vikur hér á landi og tóku þátt í þverfaglegu námskeiði á vegum Bændaskólans á Hólum, Háskóla íslands, Háskólans á Akur- eyri og Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Að sögn Skúla Skúlason- ar, annars af aðalskipuleggjendum námskeiðsins og nýráðins skóla- stjóra á Hólum, koma nemendumir úr ýmsum greinum, en þeir fá nám- skeiðið hér metið til eininga og þurftu að skila ritgerð í lok nám- skeiðsins. „Hingað til lands komu 23 kanadískir nemendur ásamt einum fararstjóra. Nemendurnir voru ann- aðhvort á fyrstu árum í háskóla eða lengra komnir í masters- eða dokt- orsnámi. Þeir koma einnig úr mis- bygginguna aftur sem dæmi þá verður hún alfarið til hér hjá okk- ur, allt frá hönnun að smiði líkans og móts,“ sagði Siguijón. Framleiðir einnig þurrsalerni Fyrirtæki Sigurjóns Almenna vörusalan, MT-bflar hefur ekki eingöngu fengist við yfirbygging- ar heldur hefur það einnig fram- leitt svokölluð þurrsalerni. Þetta eru útisalemi fyrir til dæmis tjaldstæði, fjallaskála og göngu- leiðir, þar sem vatn er ekki til staðar. „Salernin em framleidd eftir norskri og sænskri fyrir- mynd. Þau henta mjög vel þar sem erfitt er að komast í vatn. Þau em þannig hönnuð að allur úrgangur fer ofan í kassa sem era undir salerninu. Þar skilst þvag frá og seytlar út í jarðveginn. Eft- ir verður þurrúrgangur sem brotnar niður og verður að mold á rúmu ári. Vifta sér svo um að loftræsta kassann og engin lykt á SIGFRÍÐUR Þorsteinsdóttir, Framsóknarflokki, hefur fengið lausn frá embætti sem bæjarfulltrúi. Ástæðuna kveður hún þá að hún heldur til náms í stjórnmálafræði við Háskóla íslands nú í haust. Að sögn hennar kemur Guðmundur Ómar Guðmundsson, formaður Félags byggingarmanna, í hennar stað. „Eg sat einnig í byggingarnefnd munandi greinum, s.s jarðvísindum, líffræði, sagnfræði, umhverflsfræði og landfræði. Markmið námskeiðs- ins er að vekja menn til umhugsun- ar um menningarmál, umhverfis- mál, sögu og náttúrufræði, þetta er sem sagt þverfaglegt námskeið,“ sagði Skúli. Haldið annað hvert ár Skúli sagði að þetta væri þriðja námskeiðið af þessu tagi sem væri haldið hér á landi, en þau eru haldin annað hvert ár. Samstarfssamning- urinn milli skólanna hefur verið í gildi í fimm ár. „Námskeiðið í ár stóð frá 3. ágúst til 19. ágúst. Fyrsti hluti námskeiðsins fór fram á Þingvöllum. Þá fórum við yfir Kjöl og dvöldum á Akureyri og ferðuðumst einnig að Mývatni. Eftir það fór námskeiðið fram hér á Hólum,“ sagði Skúli að berast upp úr salerninu," sagði Sigurjón. Hann sagði að þeir væra ekki enn farnir út í almenna markaðssetningu á þessari fram- leiðslu en hefðu þó þegar selt nokkuð. Þurrsalernin hönnaðu Siguijón og Valur Þór Hilmars- son frá Akureyri. Blaðamaður spurði Sigurjón að lokum hvort hann myndi hætta að framleiða þessar yfirbyggingar ef hann fengi ekki verkið sem Eign- arhaldsfélag Branabótafélagsins bauð út. „Nei, ég ætla ekkert að hætta. Það er alveg Ijóst að þörfin er brýn fyrir endumýjun slökkvi- bfla hér á landi. Ég bendi til dæm- is á þá gríðarlegu aukningu sem orðið hefur í sumarhúsabyggð hér á landi, sem gjarnan er þá staðsett töluvert frá þéttbýli. Þarna þurfa að koma til bflar sem era fljótir á vettvang, hafa stóran vatnstank en era jafnframt léttir í akstri. Þá tel ég mig geta fram- leitt," sagði Sigurjón að lokum. og umhverfisnefnd en ekki verður tekin ákvörðun um eftirmann minn þar fyrr en á næsta bæjarstjórnar- fundi,“ sagði Sigfríður. Sigfríður var bæjarfulltrúi 1982-86 og kom síðan aftur inn árið 1990. Hún var forseti bæjarstjómar 1984-85 og síðan aftur 1994-96. Að sögn Sigfríð- ar hættir hún störfum sem bæjarfull- trúi um næstu mánaðamót. Skúli sagði að á Hólum hefðu ver- ið haldnir fyrirlestrar á morgnana og þar var fjallað um grundvallarat- riði í sögu, landafræði og jarðfræði íslands. „Einnig voru sérhæfðari fyrirlestrar um ýmiss konar at- vinnuvegi sem stundaðir eru hér á íslandi. Þung áhersla var einnig lögð á umhverfismálin, það er að segja umhverfissiðfræði eða nátt- úruheimspeki," sagði Skúli. Fyrir- lesarar voru frá skólunum fjórum sem standa að samstarfssamningn- um og frá ýmsum stofnunum í at- vinnulífinu. Eftir hádegið tóku nemendurnir síðan þátt í ýmsum verkefnum og höfðu þá aðgang að leiðbeinendum. Eins og áður sagði er námskeiðið metið til eininga og þurftu nemend- umir að skila 10—15 blaðsíðna rit- gerð í lok námskeiðsins. Heitur fimmtu- dagur HLJÓMSVEITIN Blues Ex- press leikur á næsta Tu- borgdjassi á „heitum fimmtu- degi“ í Deiglunni, Akureyri, í kvöld kl. 21:30. Blues Express spilar blúsrokktónlist eftir lagahöfunda eins og Albert Collins, Stevie og Eric Clapton, ásamt frumsömdum lögum. Hljómsveitin Blues Express hefur starfað í sex ár og hana skipa Matthías Stefánsson á gítar, Ingvi Rafn Ingvason á trommur, Gunnar Eiríksson syngur og leikur á munnhörpu og Atli Freyr Ólafsson spilar á bassa. Sérstakur gestur með hljómsveitinni verður Ástvald- ur Traustason hljómborðsleik- ari. Þess má geta að allir með- limir hljómsveitarinnar eru Akureyringar. Aðgangur á tónleikana er ókeypis. Skák í Deiglunni FÆREYSKIR skákmenn sækja Akureyringa heim þessa dagana. Af því tilefni er efnt til hraðskákmóts og landskeppni milli skákmanna frá Akureyri og Færeyjum. Færeyingamir koma til Akureyrar í dag og hraðskák- mót hefst í Deiglunni kl. 20 á föstudagskvöld. Landskeppnin fer svo einnig fram í Deiglunni á laugardag og sunnudag og hefst báða dagana kl. 14. Loka- hóf verður haldið á sunnudags- kvöld en þó verða einnig tefld- ar hraðskákir á mánudags- kvöld kl. 20. Keppnisskákinni verður þannig háttað að hvor kepp- andi hefur 120 mínútur fyrir 40 leiki og að auki 30 mínútur til að Ijúka skákinni. Gönguferð FERÐAFÉLAG Akureyrar stendur fyrir gönguferð nú um helgina 21- 22. ágúst frá Kleif- um í Ólafsfirði út yfir Hvann- dalabjarg, þar sem gist verður í Hvanndölum. Daginn eftir er gengið yfir Víkurbyrðu í Vík- urdal og um Rauðskörð að Kleifum. Á þessari leið er komið að Hvanndalabjörgum sem er hæsta strandberg frá sjó á landinu, eða 630 m. Þessi gönguferð er innan um stór- kostlegt og tilkomumikið landslag og reynir nokkuð á göngufólk. í þjóðsögum eru ýmsar sagnir sem tengjast Hvanndalabjörgum og fræg er sagan um konuna sem hvarf í björgin. Upplýsingar og skráning á skrifstofu félagsins, sem er op- in alla virka daga frá kl. 16-19. Síminn á skrifstofunni er 462-2720. Söngvaka SÖNGVAKA verður í Minja- safnskirkjunni á Akureyri í kvöld, fimmtudagskvöldið 17. ágúst. Þar munu Rósa Kristín Baldursdóttir og Hjörleifur Hjartarson flytja sýnishorn úr íslenskri tónlistarsögu í tónum og tali. Söngvakan hefst kl. 21 og er miðaverð 700 kr. Inni- falið í verðinu er aðgangseyrir að Minjasafninu sem er opið alla daga frá kl. 11-17 og einnig þriðjudags- og fimmtu- dagskvöld kl. 20-23. Kanadískir háskólanemar á námskeiði á Islandi Sigfríður Þorsteinsdóttir hættir sem bæjarfulltrúi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.