Morgunblaðið - 19.08.1999, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 19.08.1999, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ STÓR HUMAR Glæný laxaflök 790 kr.kg. Vestfirskur harðfískur Stórlúða - Skötuselur - Stórar rækjur Fiskbúðin Vör - Gæðanna vegna - HaUST- OG VETRARTÍSKAN 1999/2000 ER KOMIN Blómkál Gulrófur Gulrætur Gúrkur Kartöflur Sveppir Spergilkál Ný reglugerð um nítrat í salati Salat nítr ríkasta grænmeti Magn nítrats í grænmeti á fs- landi hefur lækkað umtalsvert á siðustu tveimur árat ugum sam- kvæmt niðurstöðum úr nýrri rannsókn á vegum Matvælarann- sókna Keldnaholti. Rannsóknin ___ var meðal annars gerð í tilefni þess að Hollustuvernd ríkisins hef- ur gefið út nýja reglugerð um há- marksmagn nítrats í salati og spínati. Að sögn Ólafs Reykdal, matvæla- fræðings, er nítrat eðlilegur efnis- þáttur í plöntum og kemur úr jarðvegi og áburði. „Það getur safnast fyrir í plöntum en besta leiðin til að koma í veg fyrir það er nákvæm stjómun á áburðargjöf sem tekur mið af aðstæðum," seg- ir hann. Skaðsemi nítrats er ekki mikil í matvælum en að sögn Ólafs er myndun nítríts úr nítratinu fyrst og fremst varasöm. Ef mikið er af nítrítinu binst það flutnings- próteini súrefnis í blóðinu og dregur úr hæfileika blóðsins til að flytja súrefni. Ungaböm undir fjögurra mán- aða aldri em sérstaklega viðkvæm gagnvart miklu magni nítrats því meltingafærin em ekki full- þroskuð og framleiðsla á maga- sýmm takmörkuð. Matvæli með miklu nítrati ætti ekki að gefa bömum yngri en eins árs. „Nítrít getur myndast úr nítrati við vinnslu og geymslu á garðávöxt- um venjulega vegna starfsemi gerla og stuðlar skortur á hrein- læti og röng geymsluskilyrði að myndun þess. Mest hætta er á nítrítmyndun í því grænmeti sem inniheldur nítrat í miklu magni, en þó hefur nær ekkert nítrat mælst í grænmeti hérlendis," seg- ir Ólafur. I niðurstöðunum kemur fram að einna mest hafi mtratmagn minnkað í kartöflum og hafi það farið úr 345mg/kg í rannsókn sem gerð var 1979 í 79mg/kg nú. Mörkin sem sett eru í reglugerð Hollustuvemdar fyrir salat em þríþætt. Takmörkuð birta að vetr- arlagi veldur því að meira nítrat safnast upp í plöntunni og því er leyfilegt hámark nítrats mest á tímabilinu 1. okt-30. mars eða 4500 mg/kg. Yfir sumartimann er leyfilegt hámark nítrats í salati sem ræktað er í gróðurhúsum Iækkað í 3500mg/kg en um salat sem ræktað er utan gróðurhúsa er settar enn strangari kröfur og má nítrat ekki fara yfir 2500 mg/kg. f niðurstöðum rannsóknarinnar á Keldnaholti var grænmeti flokk- að í þijá hópa eftir nítratmagni þess. Blómkál, spergilkál, tómat- ar, paprika, sveppir og kartöflur em meðal þess grænmetis sem lenti íflokkniun sem inniheldur hvað minnsta mtratið, eða minna en 350 mg á hvert kg. í milii- flokknum er hvítkál, jöklasalat og rauðkál og inniheldur sá flokkur 350-1000 mg nítrats á hvert kg. Grænmeti í flokknum sem inni- heldur meira en 1000 mg á kg er til dæmis kínakál, salat, spínat og steinselja. Alþjóða heilbrigðisstofnunin hefur sett mörk um það hve mikils nítrats sé óhætt að neyta daglega án þess að það valdi skaða. Þar er miðað við að meðalneyslan á dag fari ekki yfir 3,6 mg fyrir hvert kg líkamsþyngdar. Einstaklingi sem vegur 80 kg er því óhætt að neyta allt að 288 mg nítrats að meðaltali á dag eða sem samsvar- ar um 12kg af tómötum eða tæp- lega lOOg af salati. Salater það grænmeti sem inni- heldur hvað mest af nítrati. Ungaböm undir fjögurra mánaða aldri eru sérstak- lega viðkvæm gagnvart miklu magni nítrats því | meltingarfærin eru ekki fullþroskuð og framleiðsla á magasýrum takmörkuð. Morgunblaðið/Þorkell NITRATINNIHALD | GRÆNMETI Lágt nítratinniald Meðal nítratinniald minna en 350 mgnitrat/kg 350-1000 mg nítrat/kg Hvítkál Jöklasalat (íssalat) Rauðkál Hátt nítratinniald meira en 1000 mg nítrat/kg Kínakál Salat Spínat Steinselja Ný keðja hverfísverslana Morgunblaðið/Arnaldur KEA hefur opnað nýja verslunarkeðju, STRAX. Áform eru um að opna aðra verslunarkeðju á höfuðborgarsvæðinu þar sem áhersla verður lögð á úrval sérvöru. KEA opnar STRAX í Kópavogi FYRSTA verslunin í nýrri keðju hverfisverslana sem hlotið hefur nafnið STRAX var opnuð við Hóf- gerði í Kópavogi síðastliðinn laugar- dag. STRAX er í eigu KEA og að sögn Sigmunds Ófeigssonar, fram- kvæmdastjóra verslunarsviðs er ætlunin að opna fleiri STRAX-verslanir víða um land. Til að byrja með verður verslun- um í eigu KEA á Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði, Húsavík og Akureyri breytt í STRAX-verslanir en jafn- framt er verið að reyria að útvega húsnæði fyrh fleiri STRAX-versl- anir á höfuðborgai’svæðinu. Markaður fyrir fleiri verslanir með langan afgreiðslutíma Sigmundur segir að með stofnun STRAX-verslunarkeðjunnar sé ver- ið að koma á móts við kröfur neyt- enda um lengri afgreiðslutíma. „Vöruúrval og verð verður sam- bærilegt við aðrar verslanir sem leggja áherslu á langan afgreiðslu- tíma, líkt og 10-11, Hraðkaup og 11- 11.“ Fyrirhugað er að hafa STRAX- verslanirnar stórar og bjartar með miklu kælirými þar sem áhersla verði lögð á ferskvöru. Sigmundur segist sannfærður um að markaður sé fyrir fleiri verslanir af þessu tagi á höfuðborgarsvæðinu. „STRAX-verslanimar eiga að vera hverfaverslanir þar sem vandað er til staðsetningar með tilliti til akst- ursleiða inn í hverfin svo auðvelt sé fyrir fólk að koma þar við á leiðinni heim úr vinnunni,“ segir hann. Von á nýrri verslunarkeðju á borð við Nýkaup og Nóatún Ekki er ætlunin að STRAX-búð- irnar keppi við lágverðsverslanir á borð við NETTÓ og Bónus og að- spurður segir Sigmundur að jafn- framt sé vilji fyrir því hjá KEA að opna fleiri Nettó-verslanir á höfuð- borgarsvæðinu en það strandi á því að ekki finnst hentugt húsnæði. Hann segir að á næstunni verði hjá KEA fyrst og fremst lögð áhersla á, að fjölga Nettó- og STRAX-verslunum. „Það er hins vegar í farvatninu að setja á stofn nýja verslunarkeðju þar sem boðið verður upp á meira vöruúrval en í Nettó, og aukið framboð sérvöru og verð verður þar því örlítið hærra,“ segir hann. „Þá verður KEA komið með þrjár verslunarkeðjur sem hafa ólíkar áherslur, lágverðskeðju, keðju þar sem áhersla er lögð á langan afgreiðslutíma og í þriðja lagi nokkurs konar sérvöruversl- anakeðju á borð við Nýkaup og Nóatún." NEYTENDUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.