Morgunblaðið - 19.08.1999, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALOG
í litlar einingar og dregið upp mynd að hverri einingu fyrir sig.
Teikning eftir Conrad, en hann hefur bútað göngustíginn niður
Göngustígur umhverfís Lagarfljót
Tengist öðrum
styttri gönguleiðum
Egilsstaðir. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Conrad Langley, nemandi í landslagsarki-
tektúr, valdi hönnun göngustígs í kringum
Lagarfljót á Fljótsdalshéraði, sem masters-
verkefni við North Carolina State University.
HUGMYND að göngustíg í kring-
um Lagarfljót, þ.e. frá Lagarfljóts-
brú inn í Hallormsstað og Fljótsdal,
eða Fljótsdalshringinn eins og leið-
in er nefnd þegar hún er ekin á bíl,
hefur verið uppi á borði í nokkur ár.
Hugmyndin er komin frá Framfara-
félagi Fljótsdalshéraðs. Þessi hug-
mynd að göngustíg í kringum Lag-
arfljót er bæði stór og kostnaðar-
söm og ekki er augljóst að sjá og
fmna út hvar auðveldast og hag-
kvæmast er að leggja stíginn. Verði
stígurinn að veruleika myndi hann
liggja víða í gegnum lönd bænda í
Valla-, Fljótsdals- og Fellahreppi.
Bændur í þessum hreppum eru ekki
allir sammála um ágæti þessarar
hugmyndar.
Til þess að gera fyrstu drög að
göngustígnum og tengja hugmynd-
ina veruleikanum var fenginn hing-
að til lands bandarískur nemandi í
landslagsarkitektúr, Conrad
Langley, en hann hefur verið að
vinna hugmyndir að því hvar ákjós-
anlegast sé, með tilliti til bæði land-
gæða og fjárhagshagkvæmni, að
leggja stíginn. Hann hefur dvalið
hér í allt sumar og búið á Setbergi í
Fellahreppi og á Skriðuklaustri í
Fljótsdal, meðan hann hefur verið
að vinna að verkefninu.
Ormurinn styður hugmyndina
Verkefni Conrads er mastersverk-
efni við North Carolina State Uni-
versity. Ástæðan fyrir því að hann
kemur inn í þetta verkefni er sú að
Philip Vogler, formaður Framfara-
félags Fljótsdalshéraðs, hafði sam-
band við íslenska stúlku sem er
nemandi við sama skóla og kannaði
hvort hugmynd þessi þætti áhuga-
verð meðal nemendanna. Conrad
fannst hugmyndin vel koma til
greina og kom til landsins 1997 og
kynnti sér verkefnið. Hann ákvað
því að slá til og fékk styrk frá Ful-
bright-stofnuninni til verkefnisins.
Conrad segir fleiri hafa komið að
þessu máli. Auk þess sem Fram-
farafélag Fljótsdalshéraðs hefur
unnið að ýmsum skipulagsmálum
fyrir verkefnið hefur Helgi Hall-
grímsson, náttúrufræðingur á
Egilsstöðum, unnið mikið starf sem
lýtur að þessari stígagerð og einnig
hefur Dagmar Þórisdóttir skrifað
ritgerð um hluta af leiðinni, í sínu
námi, hjá Hinum konunglega land-
búnaðarháskóla í Kaupmannahöfn.
Fyrirmyndir að göngustíg sem
þessum eru til víða í Evrópu, m.a. í
Bretlandi en þar eru göngustígar
fyrir langar vegalendir, víða í
Bandaríkjunum og í Þýskalandi.
Conrad telur einnig ímyndina og
söguna um Lagarfljótsorminn,
styðja hugmyndina um göngustíg
og vitnar þá í Loch Ness á
Skotlandi sem hefur sambærOega
sögu. Stígurinn er hugsaður sem
hjóla- og göngustígur í framtíðinni
en eingöngu er horft á hann sem
göngustíg tO að byrja með. Mark-
miðið er að hann liggi um sem fal-
legast umhverfi en ekki er mögu-
legt að velja staðsetningu eingöngu
með tilliti til útsýnis heldur þarf
raunsæi og hagkvæmni
að fylgjast að, segir
Conrad. Hann segir
einnig mikOvægt að
reyna að tengja athygl-
isverða staði við göngu-
stíginn og þannig sé
m.a. hægt að hafa
styttri gönguleiðir sem
liggja frá aðalgöngu-
stígnum sjálfum. Hann
segir landsvæði þetta
eiga eftir að breytast
mikið á næstu 20 árum,
en þá verði það orðið
skógi vaxið, svo miklu
hefur verið plantað nið-
ur á undanförnum ár-
um. Conrad hefur bútað
leiðina niður í litlar ein-
ingar og dregið upp
landslagsmynd af
hverri vegalengd íyrir
sig þar sem fram koma
einnig upplýsingar um
hæð yfir sjávarmáli og
lengd stígsins. Þær
myndir hafa verið
sýndar á Café Nielsen
á EgOsstöðum og einnig í Flugstöð-
inni á Egilsstöðum. Conrad hefur
einnig útbúið könnun eða spuming-
ar sem lagðar hafa verið fyrir íbúa
Fljótsdalshéraðs, og eru hluti af
verkefni hans. Þar leitar hann eí'tir
því hvernig íbúarnir upplifa um-
hverfi sitt.
ATVINNUHÚSNÆÐI
KOPAVOGUR - TIL LEIGU
í þessu vandaða húsi í Auðbrekku 1, Kóp., er til leigu ca 520 fm verslunar-/at-
vinnuhúsnæði. Húsnæðinu má skipta í minni einingar. Góð aðkoma að húsinu
og frábær staðsetning en húsnæðið blasir við fjölförnum umferðaræðum.
Húsnæðið verður afhent fullbúið að utan og tilbúið til innréttinga að innan.
Möguleiki á langtímaleigu.
LYNGÁS GARÐABÆ
Mjög gott ca 101 fm atvinnuhúsnæði á götuhæð. Mjög góð staðsetning. Verð
8,2 millj.
Fasteignasalan
KJÖRBÝLI
Nýbýlavegi 14, sími 564 1400,
fax 554 3307.