Morgunblaðið - 19.08.1999, Side 28
28 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Tyrkir leita einhvers sem hægt er að draga til ábyrgðar fyrir jarðskjálftatjónið
Reiði beinist gegn verktök-
um og stjórnmálamönnum
Ankara. Reuters.
„MORÐINGJAR!" stóð með stríðs-
fyrirsagnarletri yfir forsíðugrein
tyrkneska dagblaðsins Hiirriyet í
gær, daginn eftir að jarðskjálfti
banaði að minnsta kosti 3.500 íbúum
norðvesturhluta Tyrklands.
„Einu sinni enn gallaðar bygging-
ar, einu sinni enn glæpsamlegir
byggingaverktakar, sem svífast
einskis," sagði í blaðinu. Sjónvarps-
stöðvar sendu út myndir af fólki í
rústum heimila sinna, bölvandi lé-
legu byggingarefni, molnandi stein-
steypu.
Hundruð húsa í á annan tug
borga og bæja hrundu til grunna í
jarðskjálftanum, sem reið yfir rétt
eftir kl. þrjú að staðartíma aðfara-
nótt þriðjudags. Sum hús stóðu
hamfarimar af sér nær ósködduð,
en önnur - sem stóðu jafnvel aðeins
örfáum metrum frá - hrundu eins
og spilaborgir. Þúsundir manna,
sem flestir voru í fastasvefni,
krömdust undir.
98% Tyrkja búa
á jarðskjálftahættusvæði
Jarðskjálftar eru tíðir í Tyrk-
landi, enda ganga misgengi í jarð-
skorpunni þvers og kruss í gegn um
landið. Um 98% íbúanna búa á
svæði þar sem jarðskjálftahætta
telst mikil.
Nærri 33.000 manns fórust í jarð-
skjálfta í Erzincan í Austur-Tyrk-
landi árið 1939, um 2.400 dóu í
Varto árið 1967 og 653 í Erzincan
árið 1992. 145 til viðbótar fórust í
jarðskjálfta í nágrenni borgarinnar
Adana í Suður-Tyrklandi í fyrra.
„Eftir jarðskjálftann í Adana var-
aði Hurriyet bæði stjómvöld og
þessa ósvífnu morðinga við. Nú em
þeir menn sem ekki hlustuðu á
þessar aðvaranir þeir sem bera
stærstan hluta ábyrgðarinnar í
þessum harmleik,“ sagði í Hurriyet
í gær. Forsætisráðherrann Bulent
Ecevit sagði ekki hægt að gera
byggingaverktaka eina ábyrga fyrir
þvi hvemig fór. Hann nefndi sem
dæmi flotastöðina í Golcuk, þar sem
20 sjóliðar fórast og 200 er enn
saknað í rústum herbúða þeirra.
„Eg er sannfærður um að vegna
þess hve vandvirkur herinn er hafi
þessar byggingar verið byggðar af
kostgæfni," sagði Ecevit.
Eftir Erzincan-jarðskjálftann ár-
ið 1992 hófu ráðuneytisstarfsmenn
að vinna að endurskoðun tyrkneskr-
ar byggingalöggjafar með það að
markmiði að herða reglur í þeirri
von að það yki öryggi nýbygginga.
Þetta verkefni naut stuðnings Al-
þjóðabankans. Enn hefur þó ekkert
orðið úr þeim réttarbótum sem
„Erzincan-verkefnið“ átti að leiða
til.
En þeir sem þekkja tyrkneska
byggingalöggjöf vel segja að vanda-
málið sé ekki skortur á lögum og
reglugerðum. Stærsti vandinn sé sá
að eftirlit sé í molum. „Við höfum
ekkert virkt byggingaeftirlit," sagði
einn embættismaðurinn, sem ekki
vildi láta nafns síns getið. Hann
benti líka á, að nánast hver sem er
gæti tekið til starfa sem bygginga-
verktaki, eftirlitslaust.
Verktakar veijast
Talsmenn fagsamtaka tyrk-
neskra verktaka og byggingaverk-
fræðinga létu sér ekki lynda að sitja
undir því að þeirra menn væra út-
hrópaðir sökudólgar harmleiksins.
„Eftir hvern einasta jarðskjálfta
láta þeir [talsmenn stjómvalda]
nægja að skella skuldinni á nokkra
verkfræðinga og byggingaverk-
taka,“ sagði Fikri Kaya, formaður
landssambands tyrkneskra verk-
fræðinga. „VDji maður finna þá
raunveralega seku, væri réttast að
líta tú allra sem gegnt hafa embætti
byggingamálaráðherra síðustu árin,
og starfsmanna viðkomandi ráðu-
neyta.“
„Án virks eftirlits hrynja húsin að
sjálfsögðu við fyrsta skjálftakipp,“
sagði Kadir Sever, forseti lands-
samtaka tyrkneskra byggingaverk-
taka.
Að sögn vestrænna sérfræðinga
væri sú leið líklegust til að skila um-
bótum á þessu sviði að skylda hvem
íbúðareiganda til að tryggja eign
sína á almennum markaði. Þannig
yrði það allra hagur að íbúðabygg-
ingar uppfylltu ýtrastu öryggis-
staðla. Samkvæmt gildandi lögum í
Tyrklandi er ekki skylda að tryggja
allt húsnæði. Talsmenn stjómvalda
segja að verið sé að kanna málið.
Ef þú notar
Compeed
emu sinm.
Fingenevtter
NÝJAR VÖRUR HAFA BÆST VIÐ I COMPEED LÍNUNA
þá heldur þú
i
f K xf
§ * Ká vy
áfram að nota
Compeed
Compeed veitir vörn gegn vatni, óhreinindum
og bakteríum. Compeed dregur fljótt úr sársauka
og óþægindum. Compeed verndar húðina gegn
núningi og höggum. Plástrarnir eru
þunnir, teygjanlegir og lítið áberandi.
Compeed mýkir upp harða húð og líkþorn.
Compeed er fyrir börn og fullorðna.
Compeed krem fyrir hendur og fætur.
Fæst í apótekum
Össur hf. • Grjóthálsi 5*110 Reykjavík • Sími: 515 1335 • Símbréf: 515 1366 • Netfang: mail@ossur.is • Heimasíða www.ossur.is
Unglækn-
ar hóta
verkfalli
UNGLÆKNAR á Bretlandi
héldu á dögunum áfram bar-
áttu sinni fyrir bættum launa-
kjöram og vinnuaðstöðu. Hót-
uðu þeir að fara í verkfall ef
samningaviðræður við stjóm-
völd færa út um þúfur. Hættan
á verkfalli væri nú meiri en
nokkra sinni, að sögn fulltrúa
læknanna, sem alls eru um 35
þúsund. Breski heilbrigðis-
málaráðherrann tjáði BBC að
stjómvöld myndu gera lækn-
unum nýtt túboð sem meðal
annars fæli í sér bætta vinnu-
aðstöðu og minni vinnu án
launasamdráttar.
Springer ekki
í framboð
BANDARÍSKI sjónvarpsmað-
urinn Jerry Springer hefur
ákveðið að gefa ekki kost á sér
til setu á Bandaríkjaþingi fyrir
Demókrataflokkinn. Farið
hafði verið fram á það við
Springer að hann færi í fram-
boð og tók hann sér umhugsun-
arfrest. Hefur hann nú komist
að þeirri niðurstöðu að hann
hafi of mörgum öðrum verkefn-
um að sinna og megi ekki vera
að því að standa í framboði.
Bach gegn
bullunum
MOZART, Beethoven og Bach
verða spilaðir á þeim brautar-
stöðvum í Sydney þar sem
hætt er við vandræðum vegna
ólátabelgja, að því er yfirmenn
jámbrautarfyrirtækisins
CityRail tilkynntu í gær. Telja
þeir, að sé tónlist þessara snill-
inga spiluð í hátalarakerfum
stöðvanna muni það hafa mjög
hemjandi áhrif á óæskilegustu
viðskiptavini brautanna. Verð-
ur fyrst gerð tilraun í næsta
mánuði, í kjölfar þess að það
gaf góða raun að spUa tónlist
Bings Crosbys í hátalarakerfi
verslunarmiðstöðva.
Banvænt
raflost
í símaklefa
UNGUR Egypti átti sér einskis
ills von þegar hann leitaði uppi
símaklefa í Kaíró í gærmorgun.
Ali Otman hringdi í veika móð-
ur sína og innti hana eftir líðan
hennar þegar ónýtar tengingar
í símatækinu sendu frá sér öfl-
ugt raflost, sem gekk í gegnum
líkama hans með þeim afleiðing-
um að hann dó samstundis.
Lögreglumaður, er ekki vildi
láta nafns síns getið, sagði að
þijú ungmenni hefðu fyrir
skömmu lifað af raflost í sama
símaklefa. Símafyrirtækið sem
er skráður eigandi símans sagð-
ist ekki bera ábyrgð á dauða Ot-
mans, heldur mætti rekja
óhappið til skemmdarverka al-
mennings á símatækinu.
Nikótínfíklar
fái lyfseðil
EINN fremsti sérfræðingur
Dana í lungnalækningum
krafðist þess á dögunum að
sölu tóbaks yrði hætt með öllu
og að nikótínfíklar fengju að-
eins tóbak afhent gegn fram-
vísun lyfseðils. Þótti nánustu
samstarfsmönnum hans tillög-
umar helst til of víðtækar.