Morgunblaðið - 19.08.1999, Side 31

Morgunblaðið - 19.08.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 31 ERLENT Alija Izetbegovic, forseti Bosníu og Hersegóvínu, ber af sér spillingarsakir Bandaríkj astj órn ekki kunn- ugt um stuld á hjálparfé Sarajevo. AP. TALSMENN bandarískra hjálpar- stofnana sögðust í gær vera full- vissir um að engu bandarísku hjálparfé hefði verið stolið af hátt- settum embættismönnum í Bosníu. En frétt dagblaðsins The New York Times, sem birt var á þriðju- daginn, nafngreindi embættismenn sem sagðir eru hafa komið undan allt að einum milljarði Bandaríkja- dala af alþjóðlegu hjálparfé. Sagð- ist blaðið byggja á niðurstöðum skýrslu sérstakrar nefndar, er kannað hafí spillingu í landinu. Wolfgang Petritchs, háttsettur er- indreki vesturveldanna í Bosníu, neitar tilurð skýrslunnar og segir ásakanirnar vera úr lausu lofti gi-ipnar. Að sögn blaðsins höfðu er- lendar hjálparstofnanir og sendi- ráð þagað yfir meintum þjófnaði til að koma í veg fyrir að erlendir fjár- festar hyrfu frá Bosníu. Ásakanim- ar beinast einna helst að háttsett- um embættismönnum er eiga að hafa stolið fé úr sjóðum er styrkja áttu ýmsar framkvæmdir tO upp- byggingar landsins. Einungis Sviss hefur staðfest að hafa orðið fyrir tapi í Bosníu og hótað því að hverfa frá frekari hjálparstarfsemi verði málið ekki rannsakað til hlítar. Neitar tilurð skýrslunnar Craig Buck, forseti nefndar, sem fyrir hönd USAID, stærstu ríkis- reknu hjálparstofnunar Bandaríkj- anna fer með málefni Bosníu, Montenegro og Kosovo, sagði á blaðamannafundi i Washington í gær að honum væri ekki kunnugt um að hjálparfé frá Bandaríkjun- um hefði lent í röngum höndum. Hins vegar ætti stofnunin kröfu á hendur þarlendri bankastofnun sem fyrir gjaldþrot sitt fékk að láni fimm hundruð þúsund Bandaríkja- dali. Átti sjóðurinn að styrkja fjár- festingar einstaklinga og smáiðnað heimamanna. Sagði Buck ráðstaf- anir hafa verið gerðar til að endur- heimta peningana. Wolfgang Petritschs sagðist á Bankastarfsmaður í Sarajevó telur peninga í gær. Reuters Breskt blóð undir smásjánni Bcrlín, London. Reuters. ÞYSKIR sérfræðingar sögðu í gær að engin áform væru uppi um það í Þýskalandi að fylgja fordæmi Bandaríkjamanna og Kanadamanna en þeir lögðu á þriðjudag bann við blóðgjöfum fólks sem dvaldi meira en sex mánuði í Bretlandi á árunum 1980-1997 af ótta við að blóðþegar gætu smitast af kúariðu í mönnum, eða Creutzfeldt-Jakob heilahrörn- unarsjúkdómnum. „Við höfum ekki haft uppi nein áform um að grípa til sambærilegra aðgerða,“ sagði Johannes Loewer hjá Paul Ehrlich-stofnuninni, sem ásamt þýska læknaráðinu leggur línur í Þýskalandi hvað varðar þær reglur sem gilda um bjóðgjafir. „En við höfum verið að ræða þessi mál um nokkurn tíma og ákvörðun Bandaríkjanna og Kanada eykur mikilvægi þeirrar umræðu.“ Meira en 35 hafa látist af völdum Creutzfeldt-Jakob sjúkdómsins í Bretlandi eftir að hafa borðað nautakjöt, sem sýkt var af kúariðu (BSE), en mikið kúariðufár geisaði í Bretlandi á árunum 1986-1992. Engar sannanir eru að vísu fyrir því að sjúkdómurinn smitist með blóðblöndun en heilbrigðisyfirvöld vestanhafs segjast enga áhættu vilja taka í þessum efnum. Er talið að bannið í Bandaríkjunum og Kanada geti leitt til þess að Ástralar og Japanar grípi til svipaðra ráðstafana en Þjóðverjar segja hins vegar að ræða verði málið á vettvangi Evrópusambandsins áður en slík ákvörðun verði tekin í Þýskalandi. blaðamannafundi í gær hvorki geta staðfest frétt The New York Times né tilurð umræddrar skýrslu. Hins vegar teldist sannað mál að all- margir háttsettir embættismenn innan stjórnsýslunnar væru flæktir í mjög alvarleg spillingarmál. Spill- ingarsakir þessar, réttar eða rang- ar, væru því tilvalið tækifæri til að herða aðgerðir gegn spillingu í landinu. Izetbegovic vísar ásökunum á bug Alija Izetbegovic forseti og Har- is Silajdzic, aðstoðarforsætisráð- herra landsins, harðneita öllum ásökunum um svo víðtæka spill- ingu. Segja þeir skýrsluna skaða landið á sama tíma og unnið er að því að vinna traust erlendra lánar- drottna og fjárfesta. Að sögn Sila- jdzics byggist skýi-slan á orðrómi og skoraði hann á nefndina að birta umrædda skýrslu hið fyrsta. Petritsch sagði eftir fund sinn með Izetbegovic að þeir hefðu rætt ýmis þekkt dæmi um spillingu í landinu. Hann hefði brýnt fyrir for- setanum að svo víðtækar ásakanir þyrfti að taka alvarlega og fara þyrfti í saumana á hverju einstöku máli til að tapa ekki trúverðugleika erlendra lánardrottna. Taívanar leita fulltingis Japana og Bandaríkjamaniia Kúiverjar auka enn þrýsting á Taívana Irakar sakaðir um vanrækslu Washington. AFP. BANDARÍKJASTJÓRN sakaði stjórnvöld í Irak í gær um að van- rækja velferð íraskra barna en grun- semdir hafa kviknað um að þarlend stjórnvöld hafi reynt að flytja út barnamat er ætlaður sé sárþjáðum börnum. Skipsfarmur af barnamat var gerður upptækur sl. sunnudag en enn hefur ekki sannast að írakar hafi ætlað að flytja varninginn úr landi. Skipið var kyrrsett af stjórn- völdum í Kúveit eftir að það sigldi inn fyrir landhelgi Kúveits og hefur skipstjóri þess sagt að ákvörðunar- staðurinn hafi verið Dubai. Segja heimildamenn BBC í Bagdad að skipið hafi verið sent til Dubai til að skila vörum er ekki uppfylltu gæða- kröfur. James Rubin, talsmaður banda- ríska utam-íkisráðuneytisins, sagði í gær að stjórnvöld í Bagdad hlytu að hafa haft vitneskju um farminn og leyft skipinu að halda úr höfn sem sýni að þau kæri sig kollótt um vel- ferð hrjáðra barna í landinu. Barnamatur hefur verið miðdepill ásakana sem gengið hafa á milli Bandaríkjastjórnar og stjórnar Saddams Husseins í Irak undanfarin misseri. Er upphafið rakið til þess er bandaríski herinn gerði árás á verk- smiðju sem Irakar staðhæfðu að framleiddi aðeins þurrmjólk fyrir börn. Stjórnvöld í Bandaríkjunum sögðu hins vegar að verksmiðjan hafi einnig framleitt lífefnavopn. Deila þessi kemur upp aðeins einni viku eftir að skýrsla Barna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna var birt en þar kemur fram að írösk börn séu í dag í tvisvar sinnum meiri hættu á að deyja áður en þau næðu fimm ára aldri en fyrir tíu árum. Taipei, Peking. Reuters, AFP, AP. LÉE Teng-hui, forseti Taívans, lýsti í gær stuðningi sínum við hugmyndir um að Taívan tæki þátt í fyrirhuguðu samstarfi Japana og Bandaríkjamanna um gerð eld- flaugavarnarkerfis í Suðaustur- Asíu. Yfirlýsing Teng-huis kom eftir að Kínverjar höfðu enn aukið þrýsting á Taívana í taugastríði því sem nú geisar milli landanna tveggja vegna yfirlýsinga Teng- huis fyrr í sumar um að Taívanar vildu haga sambandi landanna eins og um tvö aðskilin ríki væri að ræða. Kínverjar reyndu í gær enn að hræða Taívana til hlýðni þegar þeir sögðust frekar láta þúsundir hermanna falla í bardögum heldur en glata þumlungi landsvæðis. I forystugrein The Liberation Army Daily, sem er málgagn kínverska hersins, var hæðst að taívönskum stjórnvöldum fyrir að eyða millj- örðum Bandaríkjadala í hernaðar- gögn. „Hernaðarmáttur getur ekki bjargað Lee Teng-hui,“ sagði blað- ið. Fullyrt var að þrátt fyrir vopna- kaup ættu Taívanar við ofurefli að etja og að andinn meðal liðsmanna taívanska hersins væri afar lélegur í kjölfar yfirlýsinga Teng-huis fyrr í sumar, sem kínversk stjórnvöld fordæmdu sem skref í sjálfstæð- isátt. Margir liðsmanna taívanska hers- ins væru alls ekki hrifnir af frum- kvæði forseta síns. Á hinn bóginn hefðu liðsmenn kínverska hersins ávallt sett hags- muni Kína framar sínum eigin. „Við myndum fremur tapa þús- undum hermanna heldur en glata þumlungi landsvæðis," sagði í blaðinu, en stjórnvöld í Peking líta á Taívan sem hérað í Kína. Haft var eftir kínverskum stjórnarerindrekum að hersveitir, sem staðsettar eru í Gansu-héraði sem liggur næst Taívan, væru nú reiðubúnar í átök „hvenær sem væri“, yrðu gerðar frekari tilraun- ir til að kljúfa landið í tvö ríki. Kerfið á að nota í varnarskyni Ekki er líklegt að Kínverjar taki fagnandi óskum Teng-huis í gær um að Taívanir verði aðilar að eld- flaugavarnarkerfi Japana og Bandaríkjamanna en Kína hefur oftsinnis lýst mótmælum sínum við gerð kerfisins, enda telja ráða- menn í Peking að hugmyndin sé að nota kerfið í árásartilgangi. Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa reyndar ekki enn ákveðið hvort Taívan verði boðið að taka þátt í þróun kerfisins og Japanar fullvissuðu Kínverja aukinheldur um það í gær að kerfið ætti einung- is að nýta í varnarskyni. „Það á að nota til að skjóta niður flugskeyti, sem skotið hefur verið á okkur, og ég tel ekki að slíkt geti talist ógnun við annað ríki,“ sagði ónefndur jap- anskur embættismaður. EIGNABORG ® 5641500 FASTEIGNASALA if Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030. Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar Kaplaskjólsvegur — 3ja herb. 81 fm 3ja herbergja góð íbúð á 3. hæð. Tvö rúmgóð svefnherbergi, suðursvalir. Laus í október.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.