Morgunblaðið - 19.08.1999, Síða 32

Morgunblaðið - 19.08.1999, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 ERLENT LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Leiðtogi breskra íhaldsmanna á undir högg að sækja Kjósendur segja Hague „undarlegan“ London. The Daily Telegraph. WILLIAM Hague, leiðtogi breska Ihaldsflokksins, er svo óvinsæll meðal kjósenda að íhaldsmenn hafa þurft að breyta spurningum, sem þeir leggja fyrir fólk í skoðana- könnunum, til að valda Hague ekki algerri niðurlægingu. Engu að síð- ur virðist ekkert geta breytt þeirri skoðun almennra kjósenda að Hague sé „undarlegur". Frá þessu er sagt í The Daily Telegraph í gær. Samkvæmt leynilegum könnunum íhaldsflokksins eru persónuvinsæld- ir Hagues minni en þeirra Michaels Foots og Neils Kinnocks, fyrrver- andi leiðtoga Verkamannaflokksins, þegar þeir voru hvað óvinsælastir á níunda áratugnum. Sýna þessar kannanir að einungis tíu prósent kjósenda telja að Hague yrði betri forsætisráðherra en Tony Blair eða Paddy Ashdown sem nú hefur látið af embætti leiðtoga frjálslyndra demókrata. Þessar óvinsældir Hagues skýra tilraunir ráðgjafa leiðtogans og eig- inkonu hans, Ffion, í síðustu viku til að breyta ímynd hans svo um mun- aði en þeir fyrrnefndu eiga afar erfítt með að sætta sig við að kjós- endur skuli með engu móti geta komið auga á kosti Hagues. Finnst þeim sem ímynd Hagues sé í engu samræmi við raunveruleikann en Hague er sagður gæddur góðri kímnigáfu og mikilli manngæsku, sem sjáist best á því að hann hefur ekki aflað sér óvina í Ihaldsflokkn- um á leiðinni á toppinn. Eins og aðrir stórir stjómmála- flokkar efnir Ihaldsflokkurinn reglulega til einkakannana þar sem kjósendur, sem oft vita ekki að þeir eru að taka þátt I slíkri rannsókn, eru spurðir hverju Ihaldsflokkurinn þurfi að breyta svo líklegra sé að fólk kjósi hann. Dagblaðið The Daily Telegraph segir niðurstöður slíkra kannana hins vegar svo nið- urlægjandi fyrir Hague að þeir hafí þurft að breyta spumingunni. Ástæðan er sú að svar kjósenda er nánast alltaf það sama: losið ykkur við William Hague. Hafa ráðgjafar Hagues nú bragð- ið á það ráð að spyrja viðmælendur sína frekar hvaða breytingar á Ihaldsflokknum ,fyrir utan þá að losa sig við William Hague úr leið- togasætinu“ myndu auka líkur á því að þeir greiddu Ihaldsflokknum at- kvæði sitt. Reuters Stúlkan gaumgæfði eina af mörgæsunum í dýragarðinum í Zurich í Sviss í gær. Búr mörgæsanna í dýragarðinum er innadyra, í regnskógarhúsinu, en Mörgæs í Ziirich ekki fylgir sögunni hvort það óvenjulega nábýli hafi áhrif á mörgæsirnar. Þarna geta gestir garðsins virt þær fyrir sér í návígi. Öljóst um eftir- mann Bildts Þriðjungur mannkyns með berkla- bakteríuna Chicago. Reuters. SAMKVÆMT niðurstöðum rann- sóknar Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar ber nær þriðjungur mannkyns berklabakteríuna í sér. Árið 1997 vora tæplega átta milljónir nýrra til- fella tilkynntar til stofnunarinnar en um 1,87 milljónir manna létust af völdum sjúkdómsins. Niðurstöður rannsóknarinnar, sem birtust i hinu víðlesna banda- ríska læknatímariti Journal of the American Medical Association, era þær, að um 1,86 milljarðar manna eða um 32% mannkyns beri í sér bakteríuna er berklaveikinni veldur. Telja vísindamennirnir mannleg mistök eða ófullnægjandi fyrir- byggjandi aðgerðir heilbrigðisyfír- valda í Suðaustur-Asíu, Austur- Evrópu og í löndum sunnanverðrar Afríku samfara hraðri útbreiðslu HlV-veirunnar meginástæðu þess hversu margir greindust með sjúk- dóminn. Eins væri eftirliti með sýktum einstaklingum víða mjög ábótavant. Mörg tilfelli eru kunn þar sem ein- staklingar bera sjúkdóminn í sér í langan tíma án þess að vita um það. En ónæmiskerfíð bregst mjög vel við og kemur í veg fyrir að viðkomandi sýkist af veikinni þó svo að hann beri berklabakteríuna í líkamanum. Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ÞEGAR Carl Bildt, leiðtogi sænska Hægriflokksins, tilkynnti fyrr í mánuðinum að hann gæfi ekki kost á sér aftur sem formað- ur flokksins, brustu á ákafar vangaveltur um eftirmann. Með því að tilkynna ákvörðun sína fyrst núna og ekki fyrr í sumar sá Bildt fyrir því að flokkurinn hefði aðeins um þrjár vikur til að finna nýjan formann, þar sem kjósa á nýjan formann á flokksþingi í haust. Miklar umræður hafa verið í sænskum fjölmiðlum um kom- andi formann og beinist athyglin einkum að hinum 52 ára Bo Lund- gren, fyrram skattaráðherra. Bildt hefur ekki gefið upp hvern hann styðji, en með athugasemd- um um að aldurinn sé ekki allt og að reynsla af stjórnarsetu væri æskileg hefur hann beint athygl- inni að Lundgren og Per Unckel, sem var kennslumálaráðherra í borgaralegu stjórninni 1991-1994 er Lundgren var skattaráðherra. Unckel er 51 árs og tilheyrir þröngum hring í kringum Bildt. Þriðja nafnið sem oft er nefnt er Chris Heister, sem er 48 ára skel- egg þingkona og einnig í innsta hringnum í kringum Bildt. Hún sat hins vegar ekki í stjórninni 1991-1994, en var aðstoðarráð- herra. Þótt margir bendi á að hún væri kærkomin tilbreyting frá Bildt og gæti bryddað upp á nýjum tón í flokknum virðist sem Bildt hafí ekki hugsað sér hana sem eft- irmann. Ýmsir ungir flokksmenn hafa látið í sér heyra og bent á að líkt og þegar BOdt var kosinn formaður aðeins 36 ára gamall sé nú lag að yngja upp og koma á kynslóða- skiptum í flokknum. Engin rök séu fyrir því að sama eigi ekki við nú og þá. Af yngri mönnum er gjarn- an bent á Henrik Landerholm, sem hefur verið atkvæðamikill þing- maður og einkum beitt sér í varn- ar- og öryggismálum. í umræðunum um afsögn Bildts hefur ýmsum hliðum verið velt upp. Bent er á að Bildt hafi einokað flokksumræðuna um of og ekki bú- ið flokkinn undir formannsskipti, þar sem enginn sjálfsagður eftir- maður sé nú í augsýn. Spurningin er líka hvernig og hvort nýjum for- manni tekst að ná tökum á flokkn- um, þar sem búast má við að nú blossi upp ákafar umræður um stefnu og leiðir, en slíkar umræður hafa legið niðri undir forystu Bildts. BÓKASALA í júlí Röð Titill/ Höfundur/ Úlgefandi ___________ 1 íslenska vegahandbókin / Steindór Steindórsson frá Hlöðum / íslenska Bókaútgáfan 2 Where nature shines-ýmis tungumái / Texti Ari Trausti Guðmundsson. Myndir Sigurgeir Sigurjónsson / Forlagið 3 úr landsuðri og fleiri kvæði / Jón Helgason / Mál og menning 4 Amazing lceland-ýmis tungumál / Sigurgeir Sigurjónsson / Forlagið 5 Uppvöxtur litla trés / Forrest Carter / Mál og Menning 6 Gönguleiðir - Hornstrandir / Páll Asgeir Ásgeirsson / Mál og Menning 7 Litla Spilabókin / / Steinegg 8 Kryddlegin hjörtu / Laura Esquivel / Mál og Menning 9-10 Litla Ijóskubrandarabókin / /steinegg 9-10 Portable lcelandic / Marianne Holmen / Mál og Menning Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLDVERK 1 Uppvöxtur litla trés / Forrest Carter / Mál og menning 2 Kryddlegin hjörtu / Laura Esquivel / Mál og menning 3-5 Bjargið bamÍnU/MargaretWatson/Ásútgáfan 3-5 Dagbók Bridget Jones / Helen Fielding / Mál og menning 3-5 Islandsförin / Guðmundur Andri Thorsson / Mál og menning 6 Vængjasláttur í þakrennunum / Einar Már Guðmundsson / Mál og menning 7 Vegur gegnum skóginn / Colin Dexter / Mál og menning 8 Blóðakur / Ólafur Gunnarsson / Forlagið 9 Englar alheimsins / Einar Már Guðmundsson / Mál og menning 10 Morð í myrkri / Dan Turéll / Mál og menning ÍSLENSK OG ÞÝDD LJÓÐ 1 úr landsuðri og fleiri kvæði / Jón Helgason / Mál og menning 2-3 Nýja söngbókin - 2 / Unnið af Söngfuglanefndinni / Klettaútgáfan 2-3 Spámaðurinn / Kahlil Gibran / Islendingasagnaútgáfan 4 Meðan þú vaktir / Þorsteinn frá Hamri / Iðunn 5-6 Gimsteinar: Ljóð 16 höfunda / Ólafur Haukur Árnason valdi / Hörpuútgáfan 5-6 Gullregn úr Ijóðum Hallgríms Péturssonar / Þorsteinn frá Hamri tók saman / Forlagið 7 Hugarfjallið / Gyrðir Elíasson / Mál og menning ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR 1 StÚfur / Harald 0glund / Björk 2 íslensku dýrin / Halldór Pétursson / Setberg 3 Stafakarlarnir / Bergljót Arnalds / Virago 4 Lata stelpan / Emil Ludvig / Mál og menning 5 Flikk kemur til bjargar / Walt Disney / Vaka-Helgafell 6 Stubbur / Bengt Nielsen / Björk 7-9 Bangsímon hittir Kaninku / Walt Disney / Vaka-Helgafell 7-9 Fyrsta orðabókin mín / Angeia wiikes / iðunn 7-9 Skilaboðaskjóðan / Þorvaldur Þorsteinsson / Mál og menning 10 Snúður skiptir um hlutverk / Pierre Probst / Setberg ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR 1 íslenska vegahandbókin / Steindór Steindórsson frá Hlöðum / Islenska bókaútgáfan 2 Where nature shines-Ýmis tungumál / Texti Ari Trausti Guðmundsson. Myndir Sigurgeir Sigurjónsson / Forlagið 3 Amazing Iceland-Ýmis tungumál / Sigurgeír Sigurjónsson / Forlagið 4 Gönguleiðir - Hornstrandir / Páll Ásgeir Ásgeirsson / Mál og menning 5 Litla spilabókin / / steinegg 6-7 Litla Ijóskubrandarabókin / /steinegg 6-7 Portable lcelandic / Marianne Holmen / Mál og menning 8 Litla gátubókin / / Steinegg 9 íslandsbókin / Jóhann Isberg / Tæknimyndir 10 Af bestu lyst / Ritstj. Laufey Steingrímsdóttir / Vaka-Helgafell Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni Höfuðborgarsvæðið: Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla Eymundsson, Kringlunni Penninn-Eymundsson, Austurstræti Penninn, Hallarmúla Penninn, Kringlunni Penninn, Hafnarfirði Utan höfuðborgarsvæðisins: Bókabúð Keflavíkur, Keflavík Bókval, Akureyri, KÁ, Selfossi í\ .Smh Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka í júlí 1999 Unnið fyrir Morgunblaðið, Félag íslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu timabili, né kennslubækur. Sýningum lýkur Hafnarborg ÞREMUR sýningum lýkur á mánu- dag. Sumarsýning á landslagsmál- verkum í eigu safnsins. í Sverrissal eru verk úr safni hjónanna Sverris Magnússonar og Ingibjargar Sigur- jónsdóttur. I Apótekinu eru dúkrist- ur Gunnars Ásgeirs Hjaltasonar. Sýningarnar eru opnar alla daga nema þriðjudaga frá kl. 12-18. Listasafn Árnesinga Sýningunni Norrænt landslag lýk- ur sunnudaginn 22. ágúst. Þar sýnir Norðuramerískur nævisti, fulltrúi norskrar myndbandsmenningar og fmteiknari frá Argentínu. Sýningin verður opin um helgina kl. 14-17. Gallerí Geysir, Ingólfstorgi Um helgina verður síðasta sýning- arhelgi á sýningu Þorbjargar Magneu Óskarsdóttur í Hinu húsinu. Sýningin verður einnig opin á Menn- ingarnótt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.