Morgunblaðið - 19.08.1999, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 19.08.1999, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 33 Mílli skinns og hörunds TÓIVLIST S a 1 u r i n n ÓPERUTÓNLEIKAR Aríur og samsöngvar úr Töfraflaut- unni (Mozart), Lohengrin (Wagner), Carmen og Perluköfurunum (Bizet), Ævintýrum Hoffmanns (Offenbach), Macbeth og Rigoletto (Verdi), Don Pasquale (Donizetti), L’Arlesiana (Cilea), Itölsku stúlkunni frá Alsír, Oskubusku og Rakaranum frá Sevilla (Rossini). Arndfs Halla Ásgeirsdóttir S, Signý Sæmundsdóttir S, Ingveldur Yr Jónsdóttir MS, Gunnar Guðbjörns- son T, Kristinn Sigmundsson B; Jónas Ingimundarson, píanó. Þriðjudaginn 17. ágúst kl. 20:30. UNDIR samheitinu „Tíbrá“ hófst starfsemi vetrarins 1999-2000 í Tón- listarhúsi Kópavogs með glæsileg- um óperutónleikum á þriðjudags- kvöldið var með þátttöku lungans úr „landsliði" íslenzkra óperusöngv- ara við dyggan píanóstuðning eins eftirsóttasta undirleikara landsins, Jónasar Ingimundarsonar. Oftgetinn söngáhugi almennings brást ekki frekar en fyrri daginn, því hvert hinna 300 sæta var skipað og „mikill hugur í fólki“, eins og stundum er sagt um aðsteðjandi verkföll af neikvæðara tilefni. Dag- skráin hófst á fullum dampi með viðureign Tamínós við orminn ógur- lega í upphafsatriði Töfraflautunn- ar, „Zu Húlfe! Zu Húlfe! Sonst bin ich verloren!", þar sem Dömumar þrjár kraftbirtast á 11. stundu pilti til aðstoðar. Viðeigandi örvænting- arfullur hetjutenór Gunnars Guð- bjömssonar kallaði þar fram smellandi samtaka þrísöng þeirra Arndísar Höllu Ásgeirsdóttur, Signýjar Sæmundsdóttur og Ing- veldar Yrar Jónsdóttur, svo raðað sé eftir röddum. Kristinn Sig- mundsson söng að því loknu eitt af glansnúmemm sínum, Hofsöng Sarastrós, af göfugmannlegri mildi og á sérlega fallegu mp í 2. erindi. Á leikhæfileika hans og Gunnars reyndi með miklum ágætum í tví- sönglesinu Wo willst, kúhner Fremdling, hin?, og Gunnar söng þvínæst aríu Tamínós, Wie stark ist nicht dein Zauberton, á alkunnu víðu styrksviði, þar sem honum þvarr að vísu óvænt stuðningur á sumum veikustu stöðum. Hann átti þó eftir að nýta sér píanissímóið sitt fræga betur síðar. Eftir laglegan dúett Pamínu og Sarastrós (Herr, ich bin zwar Ver- brecherin) í höndum Kristins og Signýjar Sæmundsdóttur kom að fyrsta hápunkti kvöldsins, þegar hin unga nýráðna söngkona okkar við Komische Oper í Berlín, Arndís Halla Ásgeirsdóttir, réðst til atlögu við einhvern alræmdasta kólóratúr- barkabrjót samanlagðra óperabók- mennta, Der Hölle Rache eða aríu Næturdrottningar. Kenna mátti í blábyrjun ávæning af taugaóstyrk, og ekki að tilefnislausu, en öllum að óvömm meðhöndlaði Arndís þessa svínerfiðu flúrsöngsaríu af þvílíkum glæsibrag að hlustandinn sat eftir gjörsamlega gáttaður á því hvaðan og hvernig önnur eins áreynslulaus tækni væri fengin á aðeins hálfu öðm ári frá því er hann heyrði hana síðast. Að hér væri ekki bara um staka hundaheppni að ræða undir- strikaði Amdís rækilega í seinni einsöngstækifæmm sínum, vél- brúðuaríunni úr Ævintýmm Hoff- manns og Quel guardo 0 cavaliere úr Don Pasquale, þar sem bráðfal- leg, tær en þétt sópranrödd hennar við sem næst fullkomna inntónun, ásamt óþvingaðri sviðsframkomu og gáskafullum en hófstilltum sjónleik, afhjúpuðu ekkert minna en verð- andi stórstjörnu. Eftir sorgmædda túlkun Signýjar á raunum Elsu úr Lohengrin og eggjandi útleggingu Ingveldar Yrar á Habanem Carmenar luku Gunnar og Kristinn fyrri hluta með tveim jarknasteinum úr Perluköfumm Bizets. Fyrst söng Gunnar Ró- mönzu Nadirs, Je crois entendre encore, af sannri snilld þar sem heiðrík birta hans blómstraði á of- urveiku „serenissimói" í hæðinni. Líkt og enn væri á umræðuefni áheyrenda í hléinu bætandi, tóku þeir Kristinn loks dúettinn heims- fræga, Au fond du temple saint, svo manni rann kaldur Indlandssjór milli skinns og hömnds, enda óum- deilanlegt „topplag í toppflutningi“, eins og plötusnúðar myndu orða það. Menningardagur í Hafnarfírði MENNINGARDAGUR verður haldinn í Hafnarfirði sunnudaginn 22. ágúst, daginn eftir Menning- amóttina í Reykjavík. Hafnarborg: Sumarsýning Hafn- arborgar, lista- og menningarmið- stöðvar Hafnarfjarðar, heitir Nokk- urt yfirlit yfir landslagshefðina í ís- lensku málverki. Þjóðlagaflokkur- inn Bragarbót flytur íslensk þjóðlög með fræðilegu ívafi kl. 17. Meðlimir Bragarbótar em Diddi fiðla, Kristín Olafsdóttir, KK og Ólína Þorvarðar- dóttir. Bæjarbíó: Kvikmyndasafn Is- lands verður með þrjár sýningar: Punktur, punktur, komma, strik verður sýnd kl. 15, Playtime eftir Jacques Tati kl. 21 og kl. 23 verður sýnd tónleikamynd úr tónleikaferð Rolling Stones, Time is on my side. Byggðasafn Ilafnarljarðar efnir til sagnagöngu undir leiðsögn Jónatans Garðarssonar. Farið verð- ur af stað kl. 13 frá mótum Herjólfs- götu og Drangagötu. Gengið um byggðina í kringum malimar. Smiðjan, Strandgötu 50: Leik- fangasýningin Og litlu bömin leika sér og Sögu- og minjasýningin Þannig var... verða opnar frá kl. 13-17. Fornbílaklúbburinn verður með bíla til sýnis á planinu við Smiðjuna og börnunum gefst kostur á að aka rafbílum í portinu við safnið. Sívertsenshús, Vesturgötu 6, elsta hús Hafnarfjarðar og hluti Byggðasafnsins, verður opið og leikarar frá Leikfélagi Hafnarfjarð- ar verða við leik og störf í húsinu. Kynning á bókunum Einfalt mat- reiðsluvasakver fyrir heldri manna húsfreyjur eftir Mörtu Maríu Stephensen og Uppkast til forsagna um brúðkaupssiðu hér á landi eftir Eggert Ólafsson. Siggubær, Kirkjuvegi 10, sýnis- hom af verkamanns- og sjómanns- heimili í Hafnarfirði á fyrri hluta þessarar aldar, verður einnig til sýnis og boðið er upp á hestakerru- akstur á milli Siggubæjar og Sívert- senshúss frá 13—17. Sjóminjasafn íslands: Opnuð verður sýning á málverkum eftir Svein Bjömsson. Félagar úr Kvæðamannafélaginu Iðunni kveða hafrænar vísur og rímur kl. 14 og aldraðir fiskimenn sýna handbrögð við sjóvinnu. Harmonikuleikur og leikarar í sjóklæðum og búningum fyrri tíma verða í húsinu. Þá verður Póstminjasafnið opið frá kl. 13-17. Ókeypis er inn á allar sýningar safnanna. Meistaraleg tilþrif Nokkm lengra var stórra höggva á milli í seinni hálfleik en í hinum fymi. Kristinn söng fyrst Studia il passo, aríu Bankós úr Macbeth, af voldugri en tilfinningaheitri karl- mennsku, og eftir launkímna með- ferð Amdísar á kátu ekkjunni Nor- inu í Pasquale opinberaði Gunnar hlustendum sálarkvöl Federicos í E solita storia úr L’Arlesiana af engu minni karlmennskulegum krafti en Kristinn skömmu áður. Þegar kom að meistara Rossini slógu Ingveldur Yr og Kristinn fyrst á kómíska strengi, Oh! che muso úr Itölsku stúlkunni, og eftir flúrsöng Ingveld- ar í Non piu mesto úr Öskubusku, sem hlaut ágætar undirtektir, vatt Kristinn sér í hlutverk Don Basilios í La calunnia úr Rakaranum af kostulegri en kannski ívið of trúðs- legri þórðargleði. Frá sömu ópem kom síðan aría Rosínu, Una voce poco fa, sem Signý söng af öryggi við töluverða hrifningu áheyrenda. Prentaðri dagskrá lauk með kvar- tetti Gildu, Magdalenu, hertogans og hirðfíflsins úr Rigoletto Verdis sem eftir smáþóf, að virtist vegna nótnablaðavíxlunar á slaghörpunni, flaug um loft með miklum tilþrifum þeirra Amdísar, Ingveldar, Gunn- ars og Kristins í seinni atrennu, þegar blöðum hafði verið komið í lag. Fáum blöðum var hins vegar um myndarbrag þessara tónleika að fletta því hér átti svo til einvalalið í hlut, undirleikur Jónasar Ingi- mundarsonar var að vanda í há- gæðaflokki og á boðstólum hver konfektmolinn af öðram úr eftirlæt- isöskju óperaunnenda. Þó að auka- lagið - Kattadúett Rossinis, hér í fimmbreima útgáfu allra söngvar- anna - kynni að koma vandlátustu fagurkeram fyrir sjónir sem hálf- gerð lághvörf fyrir „galleríið" vakti það ósvikna kátínu tónleikagesta og söngvaramir virtust ekki skemmta sér síður en fólkið úti í sal. Ríkarður Ö. Pálsson TÖIVLIST Lislasiiln Sigurjðns (ílafssonar KAMMERTÓNLEIKAR Matej Sarc, Peter Tompkins og Daði Kolbeinsson fiuttu tríó eftir Anton Wranitzky og Ludwig van Beethoven. Þriðjudagurinn 17. ágúst, 1999. SUMARTÓNLEIKARNIR s.l. þriðjudagskvöld, í Listasafni Sigur- jóns Ólafssonar, voru bornir uppi af þremur óbóleikurum, Marc Sarc, Peter Tompkins og Daða Kolbeins- syni. Mjög snemma var óbóið leið- andi hljóðfæri, bæði sem kammer- hljóðfæri og í hljómsveitum, en það var þó ekki fyrr en á 19. öld sem þetta gamla hljóðfæri var fullgert, í þá vera sem það er nú. Nokkrar gerðir eru til af óbó-hljóðfærum og var cor anglais, englahorn eða enskt horn, eins og það er ýmist nefnt, vin- sælt af tónskáldum á 19. öld en tón- svið þess liggur fimm tónum neðar en óbó. Tónleikarnir hófust á tríói fyrir tvö óbó og enskt horn, eftir Anton Wranitzky (1761-1820), en hann og bróðir hans Pavel voru mikilsvirtir fiðluleikarar, tónskáld og leikhús- menn í Vínarborg. Tríóið er mjög skemmtilega samið og var flutning- urinn einstaklega glæsilegur, bæði hvað snertir tækni og fallega mótun tónlistarinnar. Annað viðfangsefnið var tilbrigði eftir Beethoven við það fræga lag La ci darem la mano, úr 1. þætti óper- unnar Don Giovanni eftir Mozart. Tríóþáttur þessi er saminn 1795 eða seinna og er merktur WoO 28, þ.e. verk án ópusnúmers, og var þetta tríó ekki gefið út fyrr en 1914, í Leipzig. Tilbrigðin era skemmtileg og ávallt mjög nærri framgerð lags- ins og samkvæmt venju á þessum tíma fær hver hljóðfæraleikari sitt tilbrigði til að sýna leikni sína, sem þeir og gerðu félagarnir og það svikalaust. Síðasta verkið, Tríó í C-dúr, op. 87, einnig eftir Beethoven, er falleg tónlist en þrátt fyrir hátt ópusnúmer er það samið 1795, sem skýrist af því að það er ekki gefið út fyrr en 1808 í Vínarborg. Það má merkja það á rit- hætti verksins að höfundurinn er að- eins 25 ára en á þessu ári gefur hann út op. 1, píanótríóin þrjú, sem marka upphafíð á útgáfu verka hans. Það ríkir töluverð mildi í tveimur fyrstu þáttunum en svo gerist tónmálið glettnara og i hröðum lokakafla verksins slær Beethoven verulega í hvað snertir hraða og skemmtilegar tónlínur. Verkið var glæsilega flutt. Leikur félaganna var bæði fjöragur og fallega mótaður og hvað tækni varðar sýndu þeir oft meistaraleg til- þrif og vora þetta því sérlega skemmtilegir kammertónleikar. Jón Ásgeirsson E.S. I gagnrýni um glæsilegan flutning á H-moll messunni, eftir meistara Johann Sebastian Bach, varð mér á að eigna Unni Maríu það sem Martial Nardeau átti í flutningi tenoraríunnar, Benedictus. Þar er um að kenna ógætni og gleymsku, vegna þess að í raddskrá Kalmus-út- gáfunnar er forskriftin einleiksfiðla. Um þessa aríu hefur verið deilt, því Bach tiltók ekki á hvaða hljóðfæri ætti að leika. Þá er og þess að geta, að undirrituðum þótti svo mikið til um söng Gunnars Guðbjörnssonar, og að samleikur Nardeau féll svo vel að söng hans, að athyglin beindist öll að söngnum og bið ég lesendur og flytjendur að virða viljann fyrir verkið, því að mörgu var að hyggja í upprifjun þessa mikla verks. Jón Ásgeirsson Útsala 20-70% afsláttur Ath. nýtt kortatímabil HREYSTI ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL — Skeifunni 19 - S. 568 1717 — Opið mánud,- föstud. kl. 9 - 18, laugard. kl. 10 - 16 Tilboð á bakpokum!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.