Morgunblaðið - 19.08.1999, Blaðsíða 46
h 46 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
(JMRÆÐAN
Aloe Vera, Armúla 32, S 588 5560
Vantar þig 885Punt*l
Uppl. í síma
Imán.-fös. frá kl. 9-21
Hin gleymda
fræðigrein íslenska
menntakerfísins
GOLFEFNABUÐIN
Mikið úrval
fallegra flísa
Borgartún 33 • RVK
Laufásgata 9 • AK
V* VATNSVIRKINN ehf
533 2020.
í PREDIKUN við
guðþjónustu er haldin
var á Laugardagsvelli
við upphaf Biristnihá-
tíðar í Reykjavík, gerði
hr. Karl Sigurbjöms-
son biskup m.a. að um-
ræðuefni sínu þá stað-
reynd að hér á landi er
engin trúarbragða-
fræði kennd í fram-
haldsskólum landsins.
Það hefur vissulega
verið boðið upp á trú-
arbragðafræði sem val-
grein í nokkram fram-
haldsskólum. En sem
valgrein hefur hún ver-
ið háð fjölda þeirra
nemenda sem velja sér hana. Taldi
biskup að þetta væri mikill missir
fyrir nemendur á framhaldsskóla-
stigi og gerði íslensk ungmenni
vanhæfari en ella til þess að mæta
nýjum tímum og minnkandi heimi.
Leyfí ég mér að taka heilshugar
undir þessi orð biskups Islands,
enda hefi ég oft bent á þennan ann-
marka í íslensku skólakerfi, bæði
hér í Morgunblaðinu sem á öðrum
vettvangi.
Nú er það svo að um hinn vest-
ræna heim þykir trúarbragðafræð-
in sjálfsögð kennslugiæin í fram-
haldsskólum. Þannig verða allir
nemendur að leggja stund á trúar-
bragðafræðina að einhverju marki,
óski þeir eftir að ljúka framhalds-
skóla, bæði á Norðurlöndunum, í
Vestur-Evrópu og í Bandaríkjun-
um. Hvers vegna ætli svo sé? í
Þórhallur
Heimisson
Opið:
Mánud-fimmtud. 10-18
Föstudaga 10-19
Laugardaga 10-18
Sunnudaga 12-17
heimi þar sem fjar-
lægðir minnka stöðugt
og menningarheimar
mætast á næsta götu-
horni, þykir nauðsyn-
legt að fræða ungt fólk
um framandi átrúnað
og siði. Slík fræðsla er
markmið trúarbragða-
fræðinnar. Fræðslan
eyðir fordómum milli
þjóða og þjóðarbrota,
trúflokka og safnaða,
og hjálpar nemendum
um leið að átta sig bet-
ur á eigin upprana og
gildi hans. Sá sem ekki
þekkir átrúnað náunga
síns, getur á engan
hátt skilið menningu hans né siði og
skoðanir. Skilningsleysi milli menn-
ingarsvæða eykur aftur á móti
þröngsýni, deilur og kynþáttahatur
T rúarbragðaf ræði
Trúarbragðafræðin er
nauðsynleg fræðigrein,
segir Þdrhallur
Heimisson, í nútíma
þjóðfélagi.
og fordóma, gerir öll samskipti erf-
iðari og einangrar þá sem ekki vilja
opna augun fyrir alþjóðamenningu
samtímans. Þess vegna er trúar-
bragðafræðin kennd í framhalds-
skólum hins vestræna heims. Nema
á Islandi!
Ég vil hvetja menntamálayfir-
völd til þess að taka orð hr. Karls
Sigurbjömssonar til sín. Trúar-
bragðafræðin er nauðsynleg fræði-
grein í nútíma fjölþjóða þjóðfélagi
og það er blettur á annars ágætu
menntakerfí að hennar skuli hvergi
sjá stað í framhaldsskólum lands-
ins, nema sem valgrein þegar nem-
endur óska sérstaklega eftir.
Höfundur er prestur við Hafnar-
fjnrðarkirkju og hcfur stunduð
framhaldsnám í trúarbragðafræð-
um við Árósarháskdla og Uppsala-
háskóla.
Pantaðu núna
W 555 2866
Kays - Argos - Panduro
B.Magnússon
Fax 565 2866 • bm@vortex.is
Af mynd-
listarumræðu
MYNDLISTAR-
MENN era frekar ein-
faldar sálir. Helst vilja
þeir vera í friði á sínum
vinnustofum að mála
sínar myndir, en sé
þeim boðið að vera með
í einhverjum uppá-
tækjum verða þeir
gjarnan uppveðraðh' og
stökkva af stað. Sér í
lagi ef um er að ræða
tækifæri til að sýna af-
urðir sínar, ræða um
myndlist eða ef ekki
vill betur til þrasa um
sýningarsali og mynd-
listarrýna.
Nú nýverið tók ég,
Ingibjörg
Hauksdóttir
myndlistarkonan, þátt í málverka-
sýningu í Listaskálanum í Hvera-
gerði þar sem færi gafst á öllu ofan-
greindu. Ég naut þess vissulega að
fá að sýna þar eitt af mínum mál-
verkum og fannst í raun mikið til
um þessa sýningu. Hún gaf þar að
auki tilefni til umræðu um málverk-
ið á Islandi, þar sem sýningin var
byggð á málverkum fjölmargra ís-
lenskra listmálara. Hins vegar hef-
ur lítið farið fyrir þeirri umræðu en
meira lagt uppúr þrasi um óskylda
hluti. Myndlistarrýnirinn Bragi Ás-
geirsson ríður á vaðið í Morgun-
blaðinu og ræðir um óperuhús í
Sydney, verðlag á írskum málverk-
um og listhörg í Bilbao, en afgreiðir
svo sýninguna sjálfa með því að
hún hafi einkennst af kraðaki og
gefur svo leiðbeiningar um hvernig
skipuleggja eigi sýningar sem þess-
ar. Aðalsteinn Ingólfsson skrifar
svo í DV um formála Einars Há-
konarsonar í sýningarskrá og veltir
fyrir sér einfeldni bankastjóranna
sem lánuðu fé til byggingar lista-
skálans og klykkir svo út með því
að benda á þá óhæfu að myndlistar-
menn verðmerki verk sín. Eftir það
kemur Einar Hákonarson og segir
Aðalstein Ingólfsson geðvondan og
réttlætir byggingu Listaskálans.
Næstur er samsýnandi minn Jón
Axel sem segist ekki hafa vitað
neitt um tilgang þessarar sýningar,
að listfræðingar séu þokkalegasta
fólk og að myndlist megi gera úr
hverju sem er. Þá kemur Bragi aft-
ur og ræðir einnig um formála Ein-
ars og grein Aðalsteins, um sýning-
arstjóra myndlistasýninga erlendis
og erfiðleika Einars við að fá
túrista í sýningarskálann. Sumsé
fimm greinar í dagblöðum og ekki
eitt einasta orð um myndirnar á
sýningunni, íslenska myndlist, þró-
un hennar eða framtíð.
Ekki ætla ég mér að færa þessa
umræðu að sjálfri myndlistinni,
hugsanlega er ég svo einföld að
halda að myndlistin sjálf skipti ein-
hverju máli í þessu samhengi. Ef til
vill er það mikilvægara
fyrir íslenskt menn-
ingarsamfélag að vita
af áhyggjum Aðal-
steins Ingólfssonar af
mistökum banka-
stjóra. Mér finnst
hinsvegar að meira
máli skipti að reist hafi
verið myndlistarsýn-
ingahús þar sem mál-
verk fá vel að njóta
sín. Hugsanlega hafa
einhverjir áhuga á
vangaveltum Aðal-
steins um hversu
margir myndlistar-
menn styðji Éinar Há-
konarson, en mér
finnst meira um vert að haldin hafi
verið sýning með verkum u.þ.b. 60
íslenskra myndlistarmanna. Vissu-
lega er fróðlegt að heyi'a um sýn-
Myndlist
Þrátt fyrír alla
óskhyggju er
listaskálinn í
Hveragerði, segir
Ingibjörg Hauksdóttir,
og þar var haldin
sýning sem hlýtur að
teljast viðburður í
íslensku menningarlifi.
ingarferðir Braga Ásgeirssonar á
þessu sumri en mér þætti gaman að
vita hvað Braga fannst um verkin á
sýningunni í Hveragerði.
Út af fyrir sig er listaskálinn í
Hveragerði einn besti sýningarsal-
ur landsins og það má vel vera að
hann ætti betur heima á Reykjar-
víkursvæðinu. Vissulega væri það
gott framtak ef einhver tæki að sér
að reisa slíkan sal hér. En þrátt
fyrir alla óskhyggju er listaskálinn í
Hveragerði og þar var haldin sýn-
ing sem hlýtur að teljast viðburður
í íslensku menningarlífi. Stemmn-
ingin við opnunina var einstök,
enda sýningin iðandi af lífi miðað
við það sem sést hefur síðustu ár.
Því er það sorglegt að hún gefi ekki
tilefni til annars en rifrildis um list-
fræðinga, fjármögnun sýningar-
sala, nostalgíu um samheldni ís-
lenskra myndlistarmanna og gaml-
ar erjur sem flestir hafa löngu
gleymt. Er það kannski misskiln-
ingur að íslensk myndlist sé kjarni
málsins?
Höfundur er myndlistarkona.
mm h«Sf ima
afsláttur
á hlaupaskóm
og línuskautum
Þeirsem skrá sig í hlaupið hjá okkur
fá drykkjarbrúsa að launum. Láttusjá þigl!
ÚTILÍF
Glæsibæ
Sími 581 2922 • www.utilif.is