Morgunblaðið - 19.08.1999, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Pétur Gylfí Ax-
elsson, vélstjóri
ojg iðnrekandi á
Alftanesi, fæddist í
Reykjavík 11. októ-
ber 1938. Hann Iést
á Landspítalanum
11. ágúst síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru: Axel Krist-
jánsson, vélfræðing-
ur, forstjóri Rafha í
Hafnarfirði, f. 21.9.
1908 í Reykjavík, d.
4.6.
(skildu) Rósa Er-
lendína Erlends-
dóttir, f. 26.6. 1905 í Reykjavík,
d. 9.11. 1993. Systkini Péturs
sammæðra eru Hilmar A. Krist-
jánsson, f. 15.10. 1935, og Erla
Rósa Axelsdóttir Baren, f.
28.11. 1945. Sam-
feðra systkini eru:
Guðrún, f. 28.11.
1954, Sólveig, f. 10.2.
1956, Hrönn, f. 26.5.
1959 og Axel Krist-
ján, f. 23.6. 1962.
Pétur kvæntist 18.
júlí 1969 Hallberu
Kolbrúnu Jónsdóttur,
f. 14. maí 1944 í
Hafnarfírði. Foreldr-
ar hennar: Jón Jóns-
son, framkvæmda-
stjóri í Hafnarfírði, f.
25.9. 1908 á Ekru,
Rangárvallahr.,
Rang., og k.h. Björney Jakobma
Hallgrímsdóttir, kennari, f. 26.4.
1904 í Þing., d. 22.4. 1995. Sonur
Péturs: Frank Axel, f. 7.6. 1962 í
Þrándheimi. Fósturdóttir Péturs
PETUR
AXELSSON
Svili minn og góður vinur, Pétur
Axelsson, er fallinn frá aðeins sex-
tugur að aldri. Hann giftist Kol-
brúnu, mágkonu minni, 1969 en
Kolbrún var mjög náin okkur Stein-
unni systur sinni og dvaldi meðal
annars hjá okkur á námsárum okk-
ar í Kaupmannahöfn. Hún fór á
ar þeim tíma í Lýðháskólann í Heming
og á ritaraskóla í London. Systum-
ar störfuðu um tíma saman á skrif-
stofu Flugfélags íslands við Vester-
brogade í Kaupmannahöfn og síðar
hjá Byggingarþjónustunni við Hall-
veigarstíg. Pétur var iðnlærður,
rennismiður og mótasmiður, og fór
orð af honum sem listasmið við gerð
móta. Þegar þau Kolbrún kynntust
var Pétur búinn að hlaupa af sér
homin og læra plaststeypu og
mótagerð enn frekar í Kaupmanna-
höfn. Hann var hress og bjartsýnn
*" maður sem ók um á stómm litríkum
Kádilják. Eftir heimkomuna 1964
stofnaði hann fyrirtækið Mát og
stansa með föður sínum Axel Krist-
jánssyni (Axel í Rafha) og um tíma
var hann hjá Agli Skallagrímssyni
en stofnaði síðan 1976 með Kol-
brúnu plaststeypufyrirtæki sem
þau hafa rekið undir nafninu PeKo
(Pétur qg Kolla) og eftir að þau
fluttu á Alftanes nánast sem heimil-
isiðnað. Pétur flutti inn notaðar
plaststeypuvélar frá vini sínum
Jörgen Bruun í Kaupmannahöfn
sem var lærimeistari hans. Á náms-
áranum hjá honum kynntist hann
einnig Mogens Pedersen sem var
verkstjóri hjá Braun og hefur sú
** vinátta styrkst og blómgast síðan.
Mogens og hans fjölskylda hafa
margsinnis komið í heimsókn til ís-
lands og gagnkvæmt hafa Kolbrún,
Pétur og bömin verið aufúsugestir í
r [iíliim iii iiii: 2
H H H H H H H H H H H H H H H H H H Erfisdrykkjur P E R L A N Sími 562 0200 H H H H H H H H H H H H H H H H H H
niiiniTiiiirm
Kaupmannahöfn. Þetta góða fólk
hefur einnig tengst Steinunni og
bömum okkar náið. Mogens hefur
verið framsækinn í plastiðnaðinum í
Danmörku og einstakur vinur og
bakhjarl vinum sínum á Islandi.
Hann er nú kominn til landsins að
kveðja sinn góða vin og styrkja fjöl-
skylduna. Á frumherjaáranum
kynntist Pétur einnig Þórði Hafliða-
syni (Dúdda) og m-ðu þeir einnig
mjög nánir vinir en Þórður rekur nú
plaststeýpufyrirtækið Polyto og
hefur verið betri en enginn þegar
erfiðleikar dundu yfír.
Þegar við Steinunn voram að
reisa hús okkar við Hábæ á áranum
1967-70 vora þau Kolbrún og Pétur
nánast sem fastráðnir hjálparenglar
og man ég sérstaklega þær stundir
er við máluðum saman allt húsið að
innan veturinn 1970. Þegar þau
keyptu húsið sitt á Áltanesi og bið
varð á að ljúka smíði þess bjuggu
þau um tíma með Bimu Lísu hjá
okkur og vora það góðar stundir.
Kolbrún átti fjögurra ára dóttur frá
fyrra hjónabandi þegar þau Pétur
tóku saman og gekk Pétur strax
Bimu Lísu í föður stað og hefur
verið henni góður faðir og afí bama
hennar. Þeirra söknuður er mikill.
Sennilega hef ég ekki kynnst hjálp-
samari og óeigingjarnari manni en
Pétri og bið guð fyrir góðan dreng
og að styrkja Kolbrúnu svilkonu
mína, Bimu Lísu, og barnabömin.
Þorvaldur S. Þorvaldsson.
Pétur, ég vona að þú sért í að-
stöðu til að lesa orð mín. Þú skildir
að vísu eftir gleraugun þín þegar þú
fórst - en þú hlýtur að hafa einhver
ráð með það. Þú gleymdir þó ekki
ráðkænskunni? Víst er hjarta þitt
hætt að slá, augu þín lokuð og rödd-
in djúpa hljóðnuð. En í hugum okk-
ar sem þekktum þig ertu ljóslifandi.
Hjarta þitt heldur áfram að slá í
brjóstum okkar; við lokum augun-
um og sjáum þig. Og ég leyfi mér að
spyrja fyrir þína hönd: „Er annars
eitthvað að frétta?“ Ég sé þig sitja
inni í stofu með rjúkandi kaffi í hvít-
um bolla og glotta góðlátlega í
morgunsólinni. Þú ert auðvitað á
náttfótunum og stóra fimu hend-
umar þínar klóra Ylfu greyinu bak
við eyran. Vafalítið ertu búinn að
LEGSTEINAR
I rúmgóðum sýningarsölum okkar
eigum við ávallt fyrirliggjandi margar
gerðir legsteina og minnisvarða úr
íslenskum og erlendum steintegundum
Verið velkomin til okkar eða
hafið samband og fáið myndalist;
S.HELGASON HF
Hsteinsmiðja
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP. SÍMI 557 6677 / FAX 557 8410
og dóttir Kolbrúnar: Birna Lísa
Jensdóttir, f. 27.7. 1964 í
Reykjavík. Börn Birnu Lísu
með fyrra manni, Frey Franks-
syni, eru Hákon Freyr, f. 27.1.
1986, og Kolbrún, f. 13.2. 1988,
og með núverandi manni, Kjart-
ani H. Grétarssyni, Kjarf an Pét-
ur, f. 19.12. 1994.
Pétur lauk barna- og gagn-
fræðanámi í Austurbæjarskóla í
Reykjavík, vélstjóraprófí í Vél-
skólanum í Reykjavík 1960, raf-
magnsdeild, og sveinsprófi í
rennismiði í Vélsmiðjunni
Héðni hf. 1961; hlaut meistara-
réttindi 1965. Hann vann hjá
Jörgen Bruun Maskinfabrik í
Kaupmannahöfn 1962-’63, var
starfsmaður Raftækjaverk-
smiðjunnar hf. Hafnarfírði
1964, vann hjá fyrirtækinu Mót
og stansar hf. frá 1965-’74, Pl-
asti hf. 1974-’76 en rak síðan
eigin plastgerð.
Útför Péturs fer fram frá
Bessastaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
blaða gegnum Moggann og ugg-
laust hefurðu rekist á sitthvað snið-
ugt og annað alveg furðulegt.
„Þessir delerantar," segðir þú en
síðan mundir þú spyrja: „Hvernig
hefur litli karlinn minn það?“ Ég
svaraði því að hann svæfi enn og
síðan mundum við diskútera pólitík
fram undir hádegi. Svona gæti
þetta verið - svona er þetta að vissu
marki. En nú ertu staddur handan
þess litla sem maður skilur. Þú ert
staddur handan við allt gervihnatta-
samband og við, fjölskylda þín og
vinir, skiljum hvorki upp né niður.
Sennilegast finnst mér að þú hafir
reddað þér afbragðs stjömu-
skrúfjámi og sért nú að herða á
festingunni hér og þar. Héðan er
það helst að frétta, Pétur minn, að
við söknum þín sárt en huggum
hvert annað með sögum um þig og
sögum sem þú sagðir okkur. Við
munum minnast þín i hinu og þessu
smálegu; í svörtu kaffi, brennivíns-
staupi, leikföngum úr plasti, í borð-
ediki og dönskum patentlausnum.
En mest af öllu munum við sakna
þín um jólin, Jóli.
Vertu blessaður, við biðjum öll að
heilsa.
Kjartan Hallur Grétarsson.
„Heyrðu stúlka mín, réttu mér
einn öl!“ heyrði ég sagt á íslensku
við norska afgreiðslustúlku skammt
frá mér. Þetta var hljómmikil
bassarödd sem mér fannst ég kann-
ast svo vel við. Ég var þá staddur á
Fomebu-flugvelli á leið til Kaup-
mannahafnar. Það era tæpir fjórir
áratugir síðan. Ég gekk að mannin-
um og sagði: Þú hlýtur að vera
bróðir Hilmars, en hann hafði ég
þekkt um nokkurt skeið. Þannig
hófust kynni okkar Péturs sem var
þá á leið til Danmerkur til að halda
áfram námi í mótasmíði hjá Jörgen
Bran Maskinfabrik eftir jólafrí. Sá
vinskapur sem þama myndaðist
hefur haldist æ síðan.
Ég var þá byrjaður á framleiðslu
úr plasti. Það kom strax í ljós að
áhugamál okkar voru öll í kringum
plast, plastvélar, mót og þess háttar
tækni, enda gerðum við ýmiss kon-
ar tilraunasmíðar hér heima síðar,
þegar Pétur hafði yfir að ráða vél-
um til smíða í fyrirtækinu Mót og
Stansar, en ég var á þeim tíma með
lítið af vélum.
Á áram áður rak hann ásamt
konu sinni, Kolbrúnu Jónsdóttur,
fyrirtækið Plast hf. í fiskhallarhús-
inu í Tryggvagötu í samvinnu við
föður sinn, Axel Kristjánsson, sem
oftast var kenndur við Rafha. Aðal-
framleiðslan var jógúrtdósir með
áprentuðum myndum og letri í
mörgum litum. Þar var Pétur í
framkvöðlastarfi þar sem slíkar lit-
prentanir á steypt plastílát höfðu
ekki verið framkvæmdar hér á landi
áður. Þar var mikil framleiðsla og
var unnið eins og kraftamir leyfðu,
ekki spurt um klukku eða dag.
Eftir að hann sleit samstarfi við
föður sinn setti hann á stofn sinn
eigin rekstur að Hringbraut 119 og
framleiddi ýmsa smáhluti úr plasti.
Seinna byggði hann stóran bílskúr
við heimili sitt á Álftanesi þar sem
hann starfaði við framleiðsluna
fram til hins síðasta.
Pétur var hafsjór af hugmyndum
og kunni ýmislegt fyrir sér sem
tengdist málmsmíði, úrræðagóður
og hafði lært alls konar smíðabrell-
ur sem Danir era frægir fyrir.
Verkstjóri hjá Jörgen Bran var þá
Mogens Pedersen sem varð hans
besti vinur upp frá því og hafa þau
hjónin Aníta og Mogens oft komið
tU Kollu og Péturs og öfugt.
Pétur var alveg sérstaklega óeig-
ingjarn og afar hjálpsamur. Hann
var alltaf tilbúinn að láta sjálfan sig
sitja á hakanum en vera öðram til
hjálpar. Hann var góður vinur vina
sinna. Hann var algörlega af gamla
skólanum, þ.e. orð skyldu standa.
Pappír var honum ekki sérlega að
skapi.
Það er ótrúlegt að hann skuli nú
vera búinn að kveðja svona stuttu
eftir að sjúkdómur hans kom í ljós.
Við sem töluðum saman næstum
daglega. Það er þó deginum ljósara
að hann hefur verið orðinn þjáður
löngu áður en sjúkdómurinn upp-
götvaðist. Hann var sjálfum sér lík-
ur og gantaðist við stúlkumar sem
önnuðust hann á spítalanum, sló á
létta strengi fram undir það síðasta,
en síðustu tvo dagana hrakaði hon-
um svo mikið að ljóst var að ekki
var langt eftir. Þó kom það á óvart
hve stutt það var.
Elsku Kolla, Bima og aðrir ætt-
ingjar, við Ásta sendum ykkur okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Megi góður guð styrkja ykkur í
sorg ykkar.
Þórður Hafliðason.
„Hann fór alltof snemma.“ Þetta
var viðkvæðið þegar það spurðist
um Álftanesið að Pétur Axelsson
væri allur, rétt orðinn sextugur.
Víst vissum við að hann hafði um
nokkra hríð átt við alvarleg veikindi
að stríða, en allt virtist horfa til
betri vegar og við, Lions-félagar
hans, treystum því að Pétur myndi
koma til leiks í haust, keikur og
kíminn að vanda. En forlögin urðu
vonum okkar yfirsterkari og við
stöndum nú gagnvart þeim, þögulir
og hnípnir. Pétur var meðal stofnfé-
laga Lionsklúbbs Bessastaðahrepps
1985. Það var engin tilviljun. Hann
hafði það til að bera sem með þurfti:
Trausta og þægilega návist með
léttri lund og gleði á góðri stund,
hollustu við hagsmuni sveitarfélags-
ins og íbúa þess og vilja til að leggja
lið þegar með þurfti. Þannig var
hann með okkur alla tíð.
Pétur lá þó ekki á skoðunum sín-
um, hvort sem um viðfangsefni
klúbbsins eða framvindu funda og
viðurgjörning var að ræða, en hann
lét þær í ljós á þann veg að eftir var
hlustað af alvöra þótt yfirbragðið
t
Móðir okkar,
GUÐNÝ PÉTURSDÓTTIR
frá Snælandi
v/Nýbýlaveg,
Kópavogi,
andaðist miðvikudaginn 18. ágúst á hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elísabet Sveinsdóttir,
Pétur Sveinsson.
væri jafnan með launkímnum hætti.
Hann sinnti starfinu vel, var ein-
lægt nálægur og trúr og átti dyggan
þátt í þeim verkefnum sem klúbbur-
inn tók að sér. Hann og Kolbrún
vora aufúsugestir á skemmtunum
okkar, en það þótti loða við Pétur að
erfitt var að fá hann „af bæ“ þegar
félagarnir vildu fara út og skoða
hinn stóra heim, hvort sem var í
önnur sveitarfélög eða önnur lönd.
Við skynjuðum það sem táknræna
vísbendingu um hvað hann var orð-
inn rótgróinn á nesinu okkar. Veik-
indum sínum tók Pétur af æðraleysi
þótt hann vissi vel að alvara væri á
ferðum. „Elskan mín,“ var jafnan
eins og stef í viðræðum hans við
aðra og það lék honum einnig á
tungu síðustu vikumar: „Elskan
mín, höfum ekki áhyggjur af þessu,
ég er hjá svo fínum doktorum.“
Já, Pétur Axelsson fór alltof
snemma. Hans er sárt saknað með-
al Lions-félaga og annarra Álftnes-
inga. En sárastur er söknuður eig-
inkonu, dóttur, bamabama og ann-
arra vandamanna. Þeim vottum við
dýpstu samúð er við kveðjum góðan
dreng.
Blessuð sé minning Péturs Axels-
sonar.
Félagar í Lionsklúbbi
Bessastaðahrepps.
Það er miður janúar 1962. Gullfoss
er að leggja frá landi. Undirritaður
er meðal farþega og veifar frá borð-
stokknum til nokkurra kunningja á
hafnarbakkanum sem komið hafa til
að kveðja. Verið er að leggja af stað í
mjög áríðandi ferð til Kaupmanna-
hafnar. Nánar tiltekið til kvikmynda-
vers, Nordisk Film A/S í Kaup-
mannahöfn til að klippa og fullgera
mína fyrstu kvikmynd; „Slys“. Fé-
lagamir á bakkanum fjarlægjast óð-
um og brátt er skipið komið út á sjó.
Ég fer inn úr kuldanum og sest
inn á hlýlegan barinn og panta mér
einn af því forboðnasta af öllu í landi
í þá daga, sterkan bjór. Ég halla mér
aftur í leðurstólnum. Við hliðina á
mér situr ungur og hressilegur ná-
ungi. Við heilsumst og hann kynnir
sig: „Pétur Axelsson heiti ég góði og
skál!“ Þar með hófust kynni mín af
Pétri, sem ég vil minnast með fáum
orðum.
Ferðin til Hafnar var einhver
skemmtilegasta sjóferð sem ég hef
farið, aðallega vegna þess hvað
samferðafólkið var skemmtilegt
þrátt fyrir snarvitlaust veður á leið-
inni. Pétur gekk vasklega fram í því
að halda húmornum á lofti eins og
hans var ætíð vandi.
Ég var svo í Kaupmannahöfn
fram á vor og hitti Pétur oft á þeim
tíma og alltaf var það jafnánægju-
legt vegna þeirrar Ijúfmennsku sem
einkenndi hann.
Seinna var Pétur svo lánsamur að
kynnast einni bestu vinkonu, vin-
konu minnar og urðu þau síðan hjón
eins og ég og vinkona mín. En það
era að sjálfsögðu Kolla og Líney.
Hlotnaðist okkur Líneyju sá heiður
að vera svaramenn þeirra við brúð-
kaupið.
Árin liðu og Pétur og Kolla lifðu
saman í hamingju þótt á móti blési á
stundum. Mikið dáðumst við Líney
að dugnaði þeirra og bjartsýni við
að byggja plastverksmiðjuna á sín-
um tíma, þó svo að þau nytu ekki
ávaxtanna af því mikla erfiði. En
þau tóku því mótstreymi af æðra-
leysi og héldu bara áfram á sinni
braut og fluttu út á Álftanes þar
sem þau settu upp sína eigin plast-
framleiðslu öllum óháð. Kolla hóf
svo seinna starf hjá sveitarfélaginu
sem hún gegnir enn og gerðist virk-
ur þátttakandi í Kvenfélaginu en
Pétur starfaði við plastið.
Sökum langdvala erlendis, hefur
sambandið við þessa elskulegu vini
okkar verið stopult hin seinni ár. En
í hvert sinn er við höfum haft tæki-
færi til að hittast var Pétur jafnljúf-
ur og hress og brosið á sínum stað.
Við kveðjum með söknuði þennan
góða vin okkar og minnumst af
þakklæti alls hins besta sem tengist
minningu hans.
Við vottum Kolbrúnu og Bimu
Lísu og fjölskyldu hennar og systk-
inum Péturs okkar dýpstu samúð.
Reynir og Líney.
>