Morgunblaðið - 19.08.1999, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 19.08.1999, Qupperneq 62
62 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ S.O.S. Kabarett í leikstjórn Sigga Sigurjónss. lau. 21/8 miönætursýn. á menningar- nótt Reykjavíkur örfá sæti laus íös. 27/8 kl. 20.30 örfá sæti laus laugardaginn 4/9 kl. 20.30 laugardaginn 11/9 kl. 20.30 HATTUR OG FATTUR BYRJA AFTUR EFTIR SUMARFRÍ sunnudag 12. sept. kl. 14.00. Á þin fjölskylda eftir aö sjá Hatt og Fatt? Miðasala í s. 552 3000. Opið virka daga kl. 10—18 og fram að sýningu sýningardaga. Miðapantanir allan sólarhringinn. ! lí ÍSLENSKA ÓPKRAN í III__iiiii Gamanleikrit í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar Fim. 19/8 kl. 20.00. Uppselt Fös. 20/8 kl. 20.00. Uppselt Fös. 27/8 kl. 20.00. Lau. 28/8 kl. 20.00. Fim.2/9 kl. 20.00. Lau. 4/9 kl. 20.00. Ósóttar pantanir seldar daglega Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 10 Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga nema sunnudaga FÓLK í FRÉTTUM Hlutverkaleikur á vegum ungmennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauða kross íslands Á flótta Þau voru blaut og hrakin, tortrygg- in og hrædd, en samt fannst þeim það þess virði að taka þátt í leikn- ---------------------------------- um „A flótta“. Birna Anna Björnsddttir ræddi við verkefna- stjóra leiksins, Fannýju Jóhanns- dóttur, og tvo þátttakendur, þau Valgerði Helgu Jóhannsdóttur og Daniel Marques Lourenco. Morgunblaðið/Kristinn Fanný Jóhannsdóttir er verkefnastjóri leiksins „Á flótta“ fyrir hönd ungmennadeildar Reykjavíkur- deildar Rauða kross Islands. Daniel Marques Lourenco og Valgerður Helga Jóhanssdóttir tóku þátt í leiknum og fannst áhugavert að fá innsýn í aðstæður flóttamanna. AFLÓTTA er heiti á hlut- verkaleik sem hefur þann tilgang að gefa þeim sem taka þátt í honum raunsanna mynd af því hvað það er að vera flóttamaður. Leikurinn stendur yfir í 24 klukkustundir og á þeim tíma ganga þátttakendur í gegnum ferli þar sem sviðsettar eru ýmsar aðstæður sem flóttamenn standa frammi fyrir og komast þeir þannig sem næst því að upplifa sjálfir hvemig það er að standa í sporum þeirra. Leikurinn var búinn til í Dan- mörku af framhaldsskólakennara sem heitir Steen Cnops Rassmus- sen sem hefur verið að þróa hann undanfarin tíu ár og hafa um 3.000 dönsk ungmenni tekið þátt í honum. Nú hefur ungmennadeild Reykja- víkurdeildar Rauða kross Islands tekið að sér að útfæra og setja leik- inn upp hér á landi og kom verk- efnastjóri leiksins í Danmörku, Michael Schollert, hingað til lands til að fylgja leiknum úr hlaði en ætl- unin er að hafa þrjá til fjóra leiki hér, frá ágúst fram í desember og fór fyrsti leikurinn fram fyrir stuttu. í hlutverkum í sólarhring Fanný Jóhannsdóttir stjómar verkefninu fyrir hönd ungmenna- deildar RRKÍ og tók blaðamaður hana tali í höfuðstöðvum leiksins, í Ártúnsskóla, rétt áður en leikurinn hófst. Hvernig fer leikurinn fram ? „Þátttakendur mæta hingað klukkan eitt og þá fá þeir íyrirlest- ur um Sómalíu, sögu landsins, menningu og þess háttar. Þeir eiga að leika flóttamenn frá Sómalíu og geta því allar upplýsingar sem fram koma í fyrirlestrinum hjálpað þeim í leiknum. Svo er þátttakendum skipt niður í fjölskyldur og fær hver og einn hlutverk innan hennar. Svo hefst leikurinn og þau mega aldrei detta út úr hlutverkunum þá 24 klukkutíma sem hann stendur. Þau byrja á því að reyna að safna eyðublöðum til að komast út úr landinu, fá svo að vita að hermenn séu búnir að umkringja húsið og þurfa því að flýja strax.“ Spilltir landamæraverðir og in- dælt hjúkrunarfólk Fanný segir að þau lendi í ýmsum hindrunum, eins og miður skemmti- legum landamæravörðum sem gengur ekkert að komast fram hjá nema að brögðum sé beitt eins og til dæmis mútum. Það eru sjálfboðalið- ar úr ungmennadeild RRKI sem leika landamæraverði, skrifstofu- fólk, hjúkrunarfólk og aðra sem verða á vegi flóttamannanna. Þau komast í flóttamannabúðimar, eftir að hafa gengið í nokkra klukkutíma og þar fá þau loksins mat. Þeim er svo sagt að búið sé að umkringja búðimar og að þau þurfí að flýja aftur og er miklu meiri has- ar í þessum næturflótta. En svo komast þau til Islands sem í þessu tilfelli er tjald uppi í Heiðmörk og þar fá þau að sofa í nokkra tíma en eru svo handtekin eldsnemma um morguninn og yfirheyrð því þau eru ólöglegir flóttamenn. Þau fá svo að sofa aðeins lengur og eru síðan vak- in aftur og yfirheyrð. Leiknum lýk- ur svo um hádegi og þá er haldinn fundur þar sem farið er yfir leikinn. Reynslan er sögu ríkari „Eg var búin að vinna við undirbún- ing leiksins hér lengi og meira að segja búin að þýða efnið sem er not- að í leiknum og vissi því nákvæm- lega hvemig hann væri. Svo prófaði ég að taka þátt og gleymdi þá ein- hvem veginn öllu sem ég vissi um leikinn á meðan á honum stóð og var upplifunin alveg ótrúlega mögn- uð.“ Hver er tilgangurinn með leiknum, er þetta kannski liður í þjálfun þeirra sem ætla sér að vinna við að aðstoða flóttamenn? „Ekkert endilega, tilgangurinn með leiknum er bara sá að veita fólki innsýn í líf flóttamanna, því þeir lenda í miklu meira en því sem við sjáum á fréttamyndum í sjón- varpinu. Þeir þurfa ekki bara að flýja heimili sín og fara í flótta- mannabúðir heldur þurfa þeir líka að hafa samskipti við fólk sem er ekki þægilegt við þá.“ Tortryggin, hrædd og hrakin Þátttakendur í leiknum voru ung- menni sem starfa sem sjálfboðaliðar hjá ungmennadeild RRKÍ. Ásamt þeim tók þátt hópur portúgalskra ungmenna sem er í heimsókn hjá þeim á vegum Evrópskra ung- mennaskipta og alls voru þátttak- endur í leiknum um 30 talsins. Blaðamaður tók tali þau Valgerði Helgu Jóhannsdóttur og Daniel Marques Lourenco sem voru bæði í hópi þátttakenda. Valgerður segist hafa lært mikið af leiknum. „Þetta er ekki auðvelt, þetta á ekki að vera auðvelt, en maður lærir mikið af þessu. Maður er flóttamaður, á flótta, hræddur og getur engum treyst. Maður verður því tortrygginn og vill ekki þiggja hjálp frá fólki því það hafa svo margir þegar brugðist manni. Mað- ur komst fljótt að því að engum var treystandi nema fjölskyldunni og því varð fjölskyldan fljótt mjög samheldin." Upplifið þið þessar tilfinnigar raun- verulega á meðan á leiknum stend- ur? „Já, enda er það markmið leiks af þessu tagi,“ segir Daniel. „Maður verður að finna þær, annars er mað- ur ekki að gera rétt. Sumum reynist það reyndar of erfitt, ef þeir eru veikir fyrir og reyndar er mismun- andi hvað er lagt á einstaklinga í leiknum. Sumir þurftu til dæmis að vaða yfir á og blotnuðu í fæturna og þurftu að ganga þannig langar leiðir og líkaði þeim það mjög illa.“ „Það er auðvitað misjafnt hversu mikið fólk þolir,“ segir Valgerður, „og markmiðið er auðvitað að ýta fólki að mörkunum en ekki að fara yfir mörkin og er það auðvitað mjög vandasamt. Þetta var vissulega erfitt, við þurftum að flýja um miðja nótt, vorum elt og það var kalt og við vorum blaut og hrakin og feng- um lítið að sofa. Við þurftum að fylla út eyðublöð aftur og aftur, svara spurningum aftur og aftur, eiga við alls konar fólk sem var ósanngjarnt við okkur og ég held að við höfum með þessu móti fengið ör- litla innsýn í líf flóttamanna. Maður veit ekki hverjum maður getur treyst eða við hvern maður á að tala til að fá upplýsingar eða aðstoð." Tvímælalaust þess virði Fannst ykkur þess virði að taka þátt í leiknum, þrátt fyrir alla hrakningana? ,AJveg tvímælalaust," segir Val- gerður og Daniel tekur undir það. „Eg held að flestum hafi fundist þetta áhugaverð lífsreynsla," segir hann, „það voru reyndar nokkrir sem voru ekki undir þetta búnir andlega og hættu en fyrir utan það held ég að fólk hafi verið nokkuð sátt þó að þetta hafi verið erfitt.“ Hafíð þið hug á því að starfa með fíóttamönnum? „Já, það gæti vel verið að ég muni gera það,“ segir Daniel, „og þá er eg viss um að reynslan úr þessum leik kemur að góðum notum. Nú hefur maður einhverja smáhug- mynd um hvernig þessu fólki líður. Samt var þetta bara leikur sem stóð yfir í sólarhring, en flóttamenn búa kannski við svona ástand í alvörunni í marga mánuði." MYNDBÖND Kosninga- slagur úr böndunum Hjónabandsmiðlarinn (The Matchmaker)_______ Gamanmvnd ★★★ Leikstjórn: Mark Joffe. Aðalhlutverk: Janeane Garofalo, David O’Hara, Milo O’Shea og Denis Leary. 97 mín. Háskólabíó, júlí 1999. Aldurstak- mark: 12 ára. ÍRLAND heillai’ marga þá' sem hafa gaman af kráarstemmningu og söng. Þessi ágæta rómantíska gam- anmynd gerist í litlu írsku þorpi þar sem fram fer hátíð fyrir ein- hleypa í hjóna- bandshugleiðing- um. Þessi bak- grunnur fléttast saman við sögu af bandarískri konu sem vinnur við kosningaherferð öldungadeildar- þingmanns í vandræðum. Persónu- sköpun er í fyrirrúmi og fjöldi furðufugla setur mjög skemmtileg- an svip á myndina. Ástarsagan er jafnframt sérstaklega sæt og eins örlar á ádeilubroddi sem beinist að bandarískum stjórnmálum. Allir helstu leikarar eru í besta lagi, sæt- ir og sjarmerandi. Andinn er miklu frekar írskur en bandarískur og myndin fyrir vikið talsvert ólík bandarísku fjöldaframleiðslunni. Þetta er ánægjuleg og rómantísk mynd sem flestir ættu að njóta. Guðmundur Ásgeirsson Lúmsk uppreisn Uppreisn! (Strike!)___________ Gamanmynd ★★ 14 Leikstjóri og handritshöfundur: Sarah Kernochan. Aðalhlutverk: Kirsten Dunst, Gaby Hoffman og Lynn Redgrave. (93 mín) Bandarikin. Myndform. Öllum leyfð. STÚDÍNURNAR í stúlknaskóla fröken Godard eru svosum engir englar, en skólastýran ber hag þeirra samt sem áður fyrir brjósti þegar hún berst ítrekað gegn því að hinn illa fjár- magnaði Godard- skóli verði samein- aður fjársterkum drengjaskóla. Þegar stúlkurnar síðan frétta af væntanlegum samruna taka þær upp málstað skólastýrunnar og hefja lymskulegar mótmælaaðgerð- ir. Við fyrstu sýn birtist þessi kvik- mynd sem ærslafull unglingamynd, séð frá sjónarhomi stelpna árið 1963, en brátt fer kröftugur kven- réttindatónn að gera vart við sig. Þessir fletir renna 'ágætlega saman og úr verður skemmtileg og áhuga- verð unglingamynd. Hún skartar valinkunnum leikkonum af ungu kynslóðinni og bresku leikkonunni Lynn Redgrave. Uppreisn þessi kemur skemmtilega á óvart. Heiða Jóhannsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.