Morgunblaðið - 19.08.1999, Síða 63

Morgunblaðið - 19.08.1999, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 63 FÓLK í FRÉTTUM KVIKMYNDIR/Bioborgin frumsýnir um helgina myndina „The Big Swap“ sem er með Mark Adams, Sorcha Brooks, Mark Caven, Alison Egan og fleirum en leikstjóri er Niall Johnson Orlagarík skipti Frumsýning A G BYST við að ég hafi alltaf verið heillaður af kynlífi. Hvemig það orkar á okkur, hvað það getur gert fyrir okkur og hvað það getur gert okkur. Ef bar- átta kynjanna stendur ennþá yfir (og auðvitað gerir hún það) og þú átt í sambandi þar sem kynlíf kem- ur við sögu, ertu eflaust kominn langleiðina með að stíga á jarð- sprengju." Þessi orð em höfð eftir Niall Johnson, handritshöfundi, fram- leiðanda og leikstjóra myndarinnar „The Big Swap“, sem Bíóborgin tekur til sýninga um helgina. Hún segir af fimm pömm á fertugsaldri sem notið hafa vináttu og félags- skapar hvert af öðra í mörg ár og komið sér ágætlega fyrir í lífinu. Kvöld eitt ákveða þau að gera svo- lítið sem þau hafa aldrei gert áður, skipta um bólfélaga innan vina- hópsins. I fyrstu líta þau aðeins á það sem skemmtilega tilbeytingu sem þau geti vel ráðið við en fljót- lega kemur í ljós að skiptingin hef- ur gríðarleg áhrif á líf þeirra. Myndin var framsýnd á síðasta ári en hún var gerð fyrir lítinn pen- ing og með óþekktum leikuram. „Mitt stærsta vandamál frá upp- hafi,“ segir Niall, „var að gefa ekk- ert eftir varðandi gæði myndarinn- ar jafnvel þótt við hefðum ekki mikla peninga milli handanna." Niall er Breti fæddur í Birming- ham árið 1964. Hann stjórnaði ung- lingaleikhúsi frá fjórtán ára aldri og lærði fræði sín við kvikmynda- og leiklistardeild háskólans í Bristol. Árið 1989 safnaði hann nógu miklu fé til þess að gera hryllingsmyndina „Dawn“ en „The Big Swap“ er önnur myndin hans. Hann hefur starfað töluvert við sjónvarp. Örlagaríkar ákvarðanir hafa áhrif á samskipti vinanna. „Þetta er mynd um afleiðingarn- ar sem ákvarðanir þínar geta haft í lífinu," segir leikkonan Alison Eg- an, sem leikur Evu í „The Big Swap“. Sorcha Brooks, sem leikur Ellen, segir: „Þetta er mynd um Vinimir gleðjast saman; úr myndinni „The Big Swap“. sambandsleysið á milli fólks og um gjörðir fólks sem engan veginn er hægt að sjá fyrir. Það er sama hversu vel þú telur þig þekkja fólk, það getur alltaf komið þér á óvart. Enginn í þessari mynd segir hug sinn allan. Það hafa allir eitthvað að fela, allir hafa sín leyndarmál og þrár. Þegar hlutirnir fara úr skorð- um verður fólkið að takast á við líf sitt.“ Leikstjórinn Johnson segir: „Þetta er mynd um breytingar sem við öll göngum í gegnum. Hún seg- ir frá því þegar eitthvað gerist í lífi fólk sem fær það til þess að hugsa líf sitt upp á nýtt. Það má vera að þú hafir boðið upp á það og kannski gerist það fyrir algera til- viljun en það verður til þess að líf þitt tekur miklum breytingum frá því sem var.“ UNLIMITE Laugavegi 95 og Kringlunni 4 íi'

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.