Morgunblaðið - 19.08.1999, Page 68
JÞ 68 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
r
HASKOLABIO
HASKOLABIO
Hagatorgi, sími 530 1919
HK DV
RANT
„Vona að allir
sjái myndina þvi
maður kemur
brosandi út úr
bíóinu“
fjR4HiSraNDUM “
BRÚÐKAUPAOG .WuMwkosllusliOranl
JARDARFARAR
Sýnd kl. 5, 6.45, 9 og 11.15.
★★★OV ★★★ Rás2
★★★iVlBL 95 af 100 TvihóWi
FUCKING
AMAL
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. b.í. 12
4 l'Tt íTím
NÝJASTA MYND PEDRO ALMODÓVAR ÞYKIR HANS BE5TATIL ÞESSA.
MYNDIN HEFUR HLOTID MIKU AÐSÓKN í EVRÓPU
UNDANFARID 06 STAL 5ENUNNI í CANNES Í VOR.
Sýnd k, 5, 7, 9 og 11. B.i. 12.
ehduRSÝnd í örfAadaga
, mS
Kl. 5, 9 og 11.15.
Kl. 9 og 11. Síö. sýn. B.u6ára.
rrnTwwPnTrtB,,MP
UmJhLmmmmUm
æsta söluturni
■a
.mímISb aaaffln ÆtÁMfllii ^maHia
www.samfilm.is
Sjaldgæf
skjaldbaka
FERÐALANGUR frá Bangkok,
Bunkit Bunsanot, fann sjald-
gæfa skjaldbökutegund á ferð-
um sínum í Suður-Taflandi.
Skjaldbakan er afar smágerð
eins og sjá má af myndinni og
er skel hennar stjörnulaga svo
hún geti betur varist árásum.
Skjaldbakan er kennd við málm-
inn silfur, eða Ngurn á taí-
lensku, og er talin mikið gæfu-
tákn í Taflandi.
Góðar m
á Aus
Ljósmyndir: Sigríður Dóra Sverrisdóttir
HLJÓMSVEITIN Sigur Rós hefur
verið að spila víða á landsbyggðinni
og á morgun spila þeir á Hótel Sel-
fossi. En um síðustu helgi var
hljómsveitin á ferðalagi um Austur-
land og hélt hún tónleika á Egils-
stöðum og í Vopnafírði. Afráðið
hafði verið fyrir tónleikana að
hljómsveitarmeðlimir fengju að
tjalda í garðinum hjá kjamorkukon-
unni Sigríði Dóru Sverrisdóttur á
Vopnafírði og manni hennar,
Svavari Halldórssyni, gegn því að
þeir tækju til í garðinum.
„Þegar þessar elskur komu til
mín og ætluðu að fá að tjalda í garð-
inum, fannst mér það ekki við hæfí
að fara að þræla þeim út í garðinum
og vildi bara að þeir hefðu það gott
hjá mér. Það væri eiginlega bölvað-
ur óþokkaskapur að níðast þannig á
gestum. Eg ákvað því að búa um öll
rúmin í húsinu og bjóða þeim bara
inn og leyfa þeim að gista,“ segir
Sigríður Dóra.
Daginn eftir var hljómsveitinni
boðið í grillveislu hjá Sveini Anton-
íussyni og Ásrúnu Jörgensdóttur,
vinafólki Sigríðar Dóru, en þau
höfðu skotið skjólshúsi yfir Olaf
Pál Gunnarsson útvarpsmann sem
kom með Sigur Rós austur. Eftir
matarboðið var haldið í Félags-
heimili Vopnafjarðar þar sem
hljómsveitin hélt tónleika fyrir
heimamenn.
Allir á Hofsball
Eftir tónleikana brugðu þeir sér á
Hofsball að Hofi í Vopnafirði, en
Hofsböllin eru árlegur viðburður
þar um slóðir og eina sveitaball
hvers sumars í Vopnafirði. Rekja
má tilurð dansleikjahalds á Hofi allt
til þriðja áratugarins, en böllin hafa
verið haldin í sama húsinu frá árinu
1952.
„Daginn eftir ballið fór svo öll
hljómsveitin í veiði ásamt Óla Palla
upp í Hofsá. Á meðan var ég bara
heima og eldaði fyrir strákana."
- Er algengt að þú takir svona að
þér heilu hljómsveitimar?
„Það hefur nú komið fyrir að ég
hafi gefið hljómsveitum að borða
eftir böll og svona, og kannski þveg-
ið af þeim skyrtur þegar vel liggur á
mér.“
- Þér hefur htist vel á strákana í
SigurRós?
Nú verður Sigríði Dóru mikið
niðri fyrir. „Þeir voru hreint út sagt
alveg yndislegir og hvers manns
hugljúfi. Það er sko ekki vandamál
Það jafnast ekkert á við
” ' sveitaball.
0 Hér hefur einn gest-
anna á Hofsballinu tekið
myndavélina og smellt
mynd af Sigríði Dóru uppi á
sviði ásamt Karli Guð-
mundssyni, söngvara Buzzy
sem spilaði fyrir dansi.
að taka á móti svona gestum og það
var alveg æðislega gaman alla helg-
ina. En ég gæti náttúrlega ekki
framkvæmt allar mínar hugmyndir
ef ég væri ekki svona vel gift.“
-Þú hefur ekkert orðið vör við
söngl á kvöldin meðan hijómsveitin
gisti?
„Nei,“ segir Sigríður af þunga.
„Ég varð nú bara ekkert vör við þá.
Þeir eru þvílíkir ljúflingar. Ef ég
gæti kvartað yfir einhverju væri
það helst að þeir séu ekki nógu mat-
gráðugir. Það var einna skemmti-
legast að gefa Jónsa söngvara að
borða, því ég hef svo gaman af því
þegar fólk tekur vel til matar síns.
Það er hundleiðinlegt að ganga frá
matarafgöngum."
Sigur Rós í grillveislunni hjá Sveini og Ásrúnu. Frá vinstri: Georg Holm bassaleikari, Valgarð Bragason
rótari, Kjartan Sveinsson hljómborðsleikari, Jón Þór Birgisson, söngvari og gítarleikari, og Orri Páll
Dýrason trommuleikari.