Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 19
Fram-
kvæmdir í
Hlíðarfjalli
FRAMKVÆMDIR við nýjan þjón-
ustu- og veitingaskála á skíða-
svæðinu í Hlíðarfjalli eru nú í
fullum gangi. Að sögn Ivars Sig-
mundssonar, forstöðumanns
skíðasvæðisins, er nú búið að
steypa kjallarann og byrjað að
reisa bjálkana. „Við stefnum að
því að húsið verði risið í lok sept-
ember, maður veit aldrei hvenær
það byrjar að snjóa hérna á okk-
ur,“ sagði Ivar.
Að sögn fvars vonast hann til
þess að húsið verði að fullu tilbú-
ið fyrir jólin en skíðavertíðin get-
ur hafist í desember eða janúar,
þó að það sé misjafnt eftir tíðar-
fari. „Þetta hús bætir aðstöðu
okkar til muna. Hér voru fyrir
tvö gömul hús sem verða rifin,“
sagði ívar. Það er Trénaust sem
sér um að reisa bjálkana en tveir
trésmiðir á Akureyri sáu um að
steypa kjallarann.
---------------
Framkvæmdir við
hafnargarða á Dalvík
og í Qlafsfírði
Viðræður
að hefjast
við lægst-
bjóðendur
SIGLINGASTOFNUN íslands
hefur fengið umboð til að ganga til
viðræðna við lægstbjóðendur að
framkvæmdum við hafnargarða á
Dalvík og í Olafsfirði. Jón Leví
Hilmarsson, forstöðumaður hafnar-
sviðs, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að yfirmenn hafnarmála á
Dalvík og Ólafsfirði hefðu gefið
Siglingastofnum umboð til að hefja
viðræður við þá aðila sem lægst
buðu. Lægstbjóðandi á Dalvík var
Guðlaugur Jónsson ehf. frá Hafnar-
firði en hans tilboð var 13% yfir
kostnaðaráætlun. Lægstbjóðandi
fyrir framkvæmdir við Ólafsfjarðar-
höfn var Gáma- og tækjaleiga Aust-
urlands, en þeirra tilboð var um
23% yfir kostnaðaráætlun.
Jón Leví sagði að ekki væri ljóst
hvenær niðurstaða yrði af þessum
viðræðum. „Þetta er á byrjunarstigi
enn þá. Ég á þó von á því að þegar
tilboð um samninga liggur fyrir eigi
viðræður ekki eftir að taka langan
tíma. Vonandi verður þetta ljóst
núna í byrjun seþtember," sagði
Jón Leví. Þess má geta að verklok á
Dalvík eiga samkvæmt útboði að
vera ekki seinna en 15. desember.
Gáma- og tækjaleiga Austurlands
bauð hins vegar í lið B í Ólafsfirði
en þar var gert ráð fyrir því að
geyma mætti ákveðna verkþætti
fram á vorið 2000.
------♦-♦-♦----
Nýja Hríseyjar-
ferjan væntan-
leg- eftir mánuð
AFHENDING nýju Hríseyjarferj-
unnar hefur dregist á langinn en
upphaflega stóð til að hún yrði kom-
in fyrir Fjölskylduhátíðina sem hald-
in var fyrr í sumar. Að sögn Péturs
Bolla Jóhannessonar, sveitarstjóra í
Hrísey, er nú verið að leggja loka-
hönd á smíði ferjunnar, eftir er að-
eins að ganga frá innréttingum og
öðrum lítilsháttar lagfæringum.
„Ferjan verður að öllum líkindum
sjósett iyrir sunnan hinn 3. septem-
ber og þá eiga eftir að fara fram
ýmsar sjóprófanir og skoðanir. Hún
er svo væntanleg hingað til Hríseyj-
ar einhvern tímann um mánaðamót-
in september/október," sagði Pétur
Bolli.
Morgunblaðið/Hörður Geirsson
Hér sést yfir framkvæmdasvæðið í Hlíðarfjalli.
Starfshópur
fjallar um fram-
kvæmd Halló
Akureyri
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum síðastliðinn
fimmtudag að skipa fimm manna
starfshóp sem fjalla skal um fram-
kvæmd síðustu Halló Akureyri há-
tíðar og skal hópurinn skila greinar-
gerð og tillögum um framtíð þess
viðburðar til bæjarráðs. I hópnum
verða formenn eftirfarandi nefnda:
félagsmálaráðs, atvinnumálanefnd-
ar, skólanefndar, íþrótta- og tóm-
stundai’áðs, umhverfisnefndar og
áfengis- og vímuvamaráðs.
Við höfum aldrei átt eins mikia möguleika.
Strákarnir þurfa á þér að halda!
Forsala er hafin á ESSO-stöðvunum
á höfuöborgarsvæðinu, í
H á Akranesi og á Akureyri. f?T"Ir*" \
Hólf C, D, F og G í eldri stúku og M, N, 0 og P í nýrri stúku
Fullt verð: 5.000 kr. • Safnkortsverð: 4.000 kr.
Hólf A, B, H og I í eldri stúku og L og R í nýrri stúku
Fullt verð: 4.000 kr. • Safnkortsverð: 3.000 kr.
Hólf J, K, S og T í nýrri stúku (börn eða fullorðnir með börn)
Fullt verð fullorðnir: 4.000 kr. • Safnkortsverð: 3.000 kr.
Fullt verð börn (16 ára og yngri): 1.000 kr.
• Safnkortsverö (ónúmeruð sæti); 800 kr.
Eftir sjö umferðir hefur Ukraína fengið 15 stig, Frakkland 14,
Rússland 12, fsland 12, Armenía 5 og Andorra 0.
Góður árangur í þessum leikjum skiptir okkur því öllu máli!
Njóttu ávinningsins
Olíufélagíð hf