Morgunblaðið - 02.09.1999, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999 15
Fyrirlest-
ur í Lista-
safninu
AKUREYRI
Blikur á lofti í rekstri fískvinnslufyrirtækisins Snæfells í Hrísey
Til athugunar er að færa
pökkunina til Dalvíkur
Morgunblaðið/Kristján
Hríseyingar hafa miklar áhyggjur af því að fiskpökkun Snæfells í
Hrísey verði flutt í burtu og teija að með því yrði rekstrargrundvellin-
um kippt undan starfseminni þar.
MAGNÚS Gauti Gautason, fram-
kvæmdastjóri Snæfells, átti í gær
fund með starfsfólki Snæfells í
Hrísey en fundurinn var haldinn að
ósk starfsfólksins. Eins og fram
hefur komið í Morgunblaðinu er
urgur og hræðsla í starfsfólki í
eynni vegna hugsanlegra breytinga
á rekstri fyrirtækisins þar.
Magnús Gauti sagði eftir fundinn
að rekstur fyrirtækisins væri til
skoðunar og m.a. væri verið að
kanna þann möguleika að færa
pökkunina frá Hrísey til Dalvíkur.
Hvort af því verður liggur hins veg-
ar ekki fyrir fyrr en í fyrsta lagi eft-
ir stjómarfund, sem haldinn verður
fljótlega eftir helgina.
Þrettán starfsmenn vinna við
pökkun hjá Snæfelli í Hrísey en hjá
fyrirtækinu vinna tæplega 50
manns. Auk pökkunar er fyrirtækið
með frystingu og reykingu á laxi og
regnbogasilungi.
Pétur Bolli Jóhannesson, sveitar-
stjóri Hríseyjarhrepps, sat starfs-
mannafundinn í gær og hann sagði
að pökkunin væri helsti broddurinn
í starfsemi fyrirtækisins og ef hún
færi yrði ekkert eftir til að byggja
á. „Það eru 50 manns á launaskrá í
33 heilsdagsstörfum og við erum að
tala um að 13 störf myndu tapast.
Nokkur óvissa er með annan rekst-
ur og reykingin hefur nú ekkert
gengið alltof vel, þótt útlitið sé
bjartara.“
Fer Snæfell út úr
rekstrinum?
Pétur Bolli sagði að í máli Magn-
úsar Gauta hefði komið fram að ef
til þess kæmi að pökkunin færi upp
á land myndi Snæfell reyna að
draga sig út úr rekstrinum í eynni
en að heimamenn tækju við hinum
rekstrareiningunum og að stofnað
yrði sérstakt félag um þær.
„Svona staða hefur ekki komið
upp áður hér í Hrísey og þetta
frystihús hefur alltaf skilað hagnaði
og hér hefur verið bullandi nóg að
gera. Þetta kemur því illa við fólk
og þessi óvissa er mjög niðurdrep-
andi. Við í sveitarstjórn tökum
þetta mjög alvarlega og höfum verið
að skoða til hvaða úrræða við getum
gripið, ef af þessu verður. Og við
munum halda áfram að vinna okkar
heimavinnu,“ sagði Pétur Bolli.
DR. HALLDÓRA Amardóttir
heldur fyrirlestur í Listasafninu á
Akureyri og nefnist hann Italianita,
umræða um byggingarlist og hönn-
un í Mílanó 1945-64. Fyrirlesturinn
er í kvöld, 2. september, og hefst kl.
21. Fyrirlesturinn er öllum opinn og
er aðgangseyrir 300 kr.
A fyrirlestrinum fjallar Halldóra
um efni doktorsritgerðar sinnar
sem hún varði í júní síðastliðnum
við University College London.
Hún mun greina frá því með hvaða
hætti ítalskir arkitektar og hönnuð-
ir notuðu sögu og hefðir til að
byggja á og miðla í nútímalegri
hönnun sinni. Þeir skynjuðu fortíð-
ina sem hluta af hinu mannlega um-
hverfi nútímans og sem stöðugan
áhrifavald á framtíðina.
I fréttatilkynningu kemur einnig
fram að ítölsk byggingarlist er ekki
einungis fólgin í byggingum og hlut-
unum sjálfum heldur einnig í al-
mennri og faglegri umfjöllun,
þ.e.a.s. ítölsk einkenni eru ekki ein-
ungis bundin við hlutinn, heimilið
eða borgina heldur gefur umræðan
um byggingarlistina henni ákveðna
þýðingu eða goðsagnakennda
ímynd.
Síðasti hreingjörningrir Önnu Richardsddttur í göngugötunni
Morgunblaðið/Kristján
Hreingjörningur Önnu Richardsdóttur í göngugötunni á Akureyri hef-
ur vakið inikla athygli. Hér er hún komin með brunaslöngu úr einum
af slökkviliðsbflum Slökkviliðs Akureyrar í hendumar.
Leitar eftir
liðsinni fólks
við þrifín
SPUNADANS Önnu Richards-
dóttur í göngugötunni á Akur-
eyri, sem hún kallar hreingjörn-
ing, hefur vakið verðskuldaða at-
hygli og hefur fjöldi fólks fylgst
með henni „þrífa" síðdegis á
föstudögum sl. eitt ár. Anna hef-
ur einnig gert víðreist og „þrifið“
erlendis, m.a. í Gautaborg, Eist-
landi og Ósló og hún hyggur á
enn frekari landvinninga.
A morgun, föstudag, kl. 16.30
dansar Anna í síðasta skipti í
göngugötunni og af því tilefni
leitar hún til Akureyringa og
nærsveitunga um að þeir komi
með sitt uppáhaldshreingerning-
aráhald og taki þátt í hreingjörn-
ingnum með sér. Auk þess vonast
hún eftir tónlistarfólki á staðinn,
„það er svo mikill kraftur í tón-
listinni".
Get ekki þrifið ein lengur
Anna sagðist vonast eftir já-
kvæðum viðbrögðum fólks, „og
þótt aðeins ein húsmóðir af
Brekkunni tæki þátt væri tak-
markinu náð, en auðvitað væri
skemmtilegast að sem flestir
tækju þátt. Ég get ekki þrifíð ein
lengur."
Anna sagði að fjöldi fólks hefði
að jafnaði fylgst með þessari
uppákomu sinni, sem vakið hefur
mikla athygli. „Fólk hefur lært
að horfa og veit hvað er um að
vera.“
Nett eykur umsvifin
NETT ehf. hefur aukið við þjónustu
sína og stækkað verslunina að Furu-
völlum 13 á Akureyri. Ætlunin er að
bjóða upp á enn meira vöruúrval,
auk sérstakra tilboða á Zeus-tölvum
og IBM-, Canon- og Lexmark-prent-
urum í tilefni þessara breytinga.
Nett hefur einnig mikil samskipti
við tölvufyrirtækið Nýherja í
Reykjavík og er nú þjónustu- og
umboðsaðili þess á Akureyri. Nett
hefur vaxið jafnt og þétt síðustu ár;
eða frá stofnun þess í júní 1996. I
upphafi var lögð megináhersla á að
bjóða netþjónustu fyrir einstaklinga
og fyrirtæki og er svo komið að í
dag er Nett langstærsti aðilinn á
þessum markaði á landsbyggðinni,
eins og segir í fréttatilkynningu fyr-
irtækisins.
Stór fyrirtæki tengd
netþjónustunni
Flest stærstu fyrirtæki á Akur-
eyri tengjast netþjónustu Nett og
má þar nefna Akureyrarbæ, KEA
og FSA, sem og á annað hundrað
smærri fyrirtæki. Starfsmenn fyrir-
tækisins hafa áralanga reynslu af
viðgerðum á tölvum og vinnu við
netkerfi en einnig annast þeir ráð-
gjöf, heimasíðugerð, tækjaleigu,
tölvulagnir og fleira.
Nett hefur umboð fyrir tölvubún-
að frá ýmsum viðurkenndum fram-
leiðendum, auk almennrar rekstrar-
vöru fyrir tölvur og prentara. Þá
hefur fyrirtækið haldið úti sérstakri
heimasíðu fyrir unnendur Quake-
tölvuleikja og í maí sl. opnaði Nett
nýjan leikjaþjón fyrir nýjustu út-
gáfuna Quake III.
Morgunblaðið/Kristján
Nýbyggingin við Dalvíkurskóla er um 1500 fermetrar og er mikil við-
bót við skólastarf á Dalvfk.
Nýbygging við Dalvíkurskóla
Allt skólahald
undir sama þaki
NÚ í sumar hefur staðið yfir loka-
frágangur á nýbyggingu við grunn-
skólann á Dalvík og þegar hún verð-
ur tekin í notkun í næstu viku verð-
ur allt skólahald undir einu þaki, en
það hefur ekki gerst í mörg ár, að
sögn Önnu Baldvinu Jóhannesdótt-
ur, skólastjóra. Skólahald hefst
mánudaginn 6. september og verða
um 250 nemendur í skólanum í vet-
ur. Þar af eru 16 böm að heija
skólagöngu sína.
„Nýbyggingin verður nú ekki al-
veg tilbúin þegar skóli hefst, ein-
hver frágangur verður eftir við
samkomusalinn, en ég vonast til að
þessu verði nú lokið fljótlega,"
sagði Anna Baldvina. Hún sagði að
vissulega væri þessi viðbót við
skólahúsnæðið búbót fyrir skóla-
starfið. „Eins og ég sagði er þetta í
fyrsta skipti í mörg ár sem allt
skólahald fer fram undir einu og
é)1 =
KOKKUR!
Matreiðslumann vantar á LINDINA, Akureyri.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Góð laun eru í boði fyrir réttan einstakling.
Upplýsingar gefur Valdimar Valdimarsson.
Vinnusími 461 3008. GSM 897 4792.
sama þaki. í þessari nýbyggingu
verða tvær almennar kennslustof-
ur, aðstaða fyrir allar verkgreinar,
sérkennslu og skólavistun. Einnig
munu ræstingarfólk og húsvörður
hafa sitt aðsetur í nýju bygging-
unni. Þar verða einnig skrifstofur
stjórnenda skólans og nýtt bóka-
safn, auk samkomusalar," sagði
Anna Baldvina.
Sveiflur í árgöngum
Anna Baldvina sagði að sveiflur í
árgöngum skólans væru miklar.
„Nú fáum við 16 sex ára böm, en í
fyrra vom þau í tveimur bekkjum
og á næsta ári verða þau fleiri en
30. Eins vom um 40 unglingar í tí-
unda bekk á síðasta ári en núna
verða þeir aðeins 20. Hins vegar
höfum við líka fengið ellefu börn frá
Kosovo inn í skólann," sagði Anna
Baldvina.