Morgunblaðið - 02.09.1999, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999 45
UMRÆÐAN
Er þetta ekki hafnfírskt?
í MAI síðastliðnum
var tveimur yfirmönn-
um á Félagsmálast-
ofnun Hafnarfjarðar,
félagsmálastjóra og
aðstoðarfélagsmálast-
jóra, tilkynnt fyrir-
varalaust að störf
þeirra væru ekki leng-
ur til samfara breyttu
skipulagi á stofnun-
inni og þeim gert að
rýma skrifstofur sínar
ekki síðar en daginn
eftir. Ekki þarf að fara
mörgum orðum um
aðferðina sem var við-
höfð. Hún lýsir fá-
dæma virðingarleysi
við starfsfólk sem hefur gegnt
þessum störfum, án þess að fundið
hafi verið að, í meira en áratug.
Nýja skilvirknin
A bæjarstjómarfundi þann 1.
júní sl. tók ég málið upp og lagði
nokkrar spurningar fyiir bæjar-
stjóra. Þrátt fyrir ítrekaðan eftir-
rekstur var spurningunum ekki
svarað fyrr en 5. ágúst. Talandi um
skilvirka stjómsýslu.
Nú hefði mátt ætla að tveir mán-
uðir dygðu til að ganga frá vönduð-
um svörum við einfoldum spuming-
um. Eg varð fyrir vemlegum
vonbrigðum þegar svörin bárust.
Þau einkennast af hroðvirkni, út-
úrsnúningum, lítilsvirðingu og
hreinum ósannindum í sumum til-
vikum.
Ekkert samráð haft
Eg spurði hvort leitast hefði ver-
ið við að ná sameiginlegri niður-
stöðu um starfslok. Svarið var
þetta: Reglum um starfslok bæjar-
Guðmundur Rúnar
Amason
starfsmanna var fylgt,
sem gilda um niður-
fellingu starfa hjá
bænum. Orðið var við
þeim óskum sem
komu fram í viðtali við
þá aðila sem um ræðir
þegar þeim var til-
kynnt ákvörðun um
niðurfellingu starfa
þeirra. Þetta þýðir á
mannamáli að ekkert
var rætt við viðkom-
andi starfsmenn, utan
það að þeim var gefinn
kostur á að hafa skoð-
un á málinu í hálftíma
viðtali þegar þeim var
fyrirvaralaust sagt að
hypja sig. Hver sem er getur sett
sig í þau spor að reyna að hugsa
málið í heild og móta óskir um
starfslok við slíkar kringumstæður.
Hrein ósannindi og brot á
Iögum
Spurt var hvort aðstoðarfélags-
málastjóra hafi verið boðið starf á
skólaskrifstofu sem var auglýst á
svipuðum tíma. Auglýst var eftir
sérkennslufræðingi, eða sálfræð-
ingi með kennararéttindi eða
kennslureynslu. Svo sem kunnugt
er, ber vinnuveitanda skylda til að
bjóða starfsmanni við niðurlagn-
ingu starfs sambærileg störf sem
losna eða verða til næstu 5 ár eftir
að starf hans er lagt niður.
Svarið við spumingunni var
skýrt og skorinort: Nei. Þá var
spurt af hverju það hefði ekki verið
gert. Svarið var svohljóðandi: Að-
stoðarfélagsmálastjóri uppfyllti
ekki þær kröfur sem skólaskrif-
stofa gerir til starfsins þar sem
hann hefur ekki kennararéttindi í
grunnskóla. Við þetta er margt að
athuga. I fyrsta lagi var ekki kraf-
ist kennararéttinda. I öðru lagi
voru forsvarsmenn skólaskrifstofu
aldrei spurðir um álit á möguleik-
Skipulagsmál
Skipuritið er óútfærðir
kassar án innistæðu,
segir Guðmundur
Rúnar Arnason, án
rökstuðnings og
starfslýsingarnar hafa
ekki verið skrifaðar.
anum að bjóða aðstoðarfélagsmál-
astjóra (sem er sálfræðingur með
víðtæka kennslureynslu) starfið. I
þriðja lagi var aldrei leitað eftir
upplýsingum frá aðstoðarfélags-
málastjóra um hvort hann hefði
kennsluréttindi eða kennslu-
reynslu. í fjórða lagi er einstakling-
urinn sem var ráðinn ekki með
kennararéttindi! Meti hver fyrir
sig.
Engum verið sagt upp?
Spurt var hvort bæjarstjóri
hygðist segja af sér ef dómstólar
komast að þeirri niðurstöðu að upp-
sögnin hafi verið ólögleg. Svarið
var eftirfarandi: Það hefur engin
uppsögn átt sér stað. Þetta er auð-
vitað tær snilld. Hér er ekki um
uppsögn að ræða, heldur niðurlag-
ningu starfs.
Eg kem til með að umorða spurn-
inguna þannig að ekki verði með
orðhengilshætti hægt að snúa út
úr. Það er nefnilega á tyllidögum
sagt að stjómmálamenn, sem verð-
ur alvarlega á í starfi, skuli sæta
ábyrgð. Komi í ljós að lög hafi verið
brotin, hlýtur bæjarstjóri að axla
pólitíska ábyrgð á málinu.
Allt skipuritinu að kenna
Félagsmálastjóri og aðstoðarfé-
lagsmálastjóri voru látnir hætta á
grundvelli þess að nýsamþykkt
skipurit gerði ekki ráð fyrir tilvist
þessara starfa en í staðinn kemur
forstöðumaður félagsþjónustunn-
ar. Félagsmálastjóri kom ekki til
greina í þetta starf. Þess vegna var
ekki óeðlilegt að spyrja hvenær
ráðgert væri að ráða forstöðumann
félagsþjónustunnar og hvort það
starf yrði auglýst. Fyrri spuming-
unni var svarað þannig að ákvörðun
hefði ekki verið tekin og vísað til
þess sem svars við síðari spurning-
unni.
Rúsínan
Síðan kemur rúsínan í pylsuend-
anum. Af því að skilgreiningin á
starfi forstöðumanns félagsþjón-
ustunnar er þess eðlis að hún úti-
lokar að félagsmálastjóri uppfylli
kröfumar, var eðlilegt að fá á
hreint í hverju munurinn væri bein-
línis fólginn. Því spurði ég: Hver er
nákvæmlega munurinn á starfi fé-
lagsmálastjóra og starfi forstöðu-
manns félagsþjónustunnar? Svar:
Starfslýsing forstöðumanns félags-
þjónustunnar hefur ekki verið rituð
og ákvarðanir þar um em í mótun.
Ljóst er þó að um mun er að ræða
og verða t.d. kröfur um nám og
starfsreynslu aðrar en vom fyrir
stöðu félagsmálastjóra!!! Þetta
þýðir að félagsmálastjóri var látinn
fara af því að hann uppfyllti ekki
kröfur sem gerðar eru í starfslýs-
ingu sem er ekki til og er í mótun.
Þetta er undarleg röð á hlutunum.
Það verður fróðlegt að sjá hvort
menntunarkröfumar verða þannig
að framkvæmdastjóri fjölskyldu-
sviðs, sem nú gegnir starfi for-
stöðumanns félagsþjónustunnari*'
með vinstri hendinni, sé gjaldgeng-
ur. Raunar væri fróðlegt að sjá
hvaða kröfur em gerðar um mennt-
un og starfsreynslu nýrra yfir-
manna sem komið hafa til starfa í
tíð núverandi meirihluta, að bæjar-
stjóra meðtöldum.
Málinu ekki lokið
Eftir stendur, að tveir starfs-
menn vom látnir fara á forsendum
sem ekki er búið að móta ennþá, nú
tæpum ársfjórðungi síðar. Forseti
bæjarstjórnar lét hafa eftirfarandi
eftir sér í DV um daginn: Það hefði **
enginn lagt út í að breyta heilu
skipuriti til þess að losna við eina
manneskju. Eg spyr: Hvað með að
losna við tvær manneskjur? Maður
fær á tilfinninguna að nýja skipu-
ritið hafi snúist um það eitt að losna
við tvo starfsmenn. Skipuritið er
óútfærðir kassar án innistæðu, án
rökstuðnings og starfslýsingarnar
hafa ekki verið skrifaðar!!
Vandamálin gufa ekki upp
í þessu öllu er fólginn alvarlegur
vitnisburður um viðhorf ráða-
manna til starfsfólks og þeirra við-
fangsefna sem það sinnir. f þessum
gjömingi opinberast glögglega það
viðhorf þessa fólks að allt sem orðið
„félags" tengist við sé vont og það
er persónugert í einstaklingunum
sem bera ábyrgð á málaflokknum.
Eg óttast að þessum snillingum
bregði í brún þegar þeir komast að
því að félagsleg vandamál hverfa
ekki við það eitt að láta þá starfs-
menn sem bera ábyrgð á að sinna
þeim hætta.
Höfundur er varabæjarfulltrúi
F-listans.
108 Reykjavík
Faxafen 8
Bamapeysur 990
Flísgallar á börn 2490
Barnaúlpur frá 1490
Dömupeysur frá 990
Herraskyrtur frá 690
Flíspeysur frá 1990
Halim Al og dæturnar
úr allri hættu
EIGINMAÐURINN
ELSKAR MU!1
MINN HATAR
HUNDA OG
HOMMA!