Morgunblaðið - 02.09.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999 49
Fíkniefni,
forvarnir o.fl.
FYRIR síðustu alþing-
iskosningar lofaði
Framsóknarfl. að verja
einum milljarði kr. tO
fíkniefnamála til við-
bótar því fjármagni
sem nú er varið til
þessa málaflokks.
Markmiðið væri að efla
löggæslu og forvarnir í
landinu gegn þessum
vágesti. Vissulega fög-
ur og tímabær fyrir-
heit, en frekari skil-
greining á skiptingu
fjármagns milli þeirra
ráðuneyta sem koma að
þessum málum s.s.
dómsmála-, heilbrigðis-
og menntamála var ekki tilgreind í
þessu kosningaloforði flokksins. Þá
komu heldur ekki fram neinar til-
lögur um breytta og nýja skipan
löggæsluaðgerða og forvarnaþátta,
flokkurinn var að lofa einhverjum
óskilgreindum aðgerðum. Vonandi
skýrast viðhorf ílokksins í fjárlög-
um næsta árs.
Hér er um að ræða mjög flókin
og vandmeðfarin mál, sem varða
hagsmuni allra landsmanna. S.l.
þrjátíu ár hefur fjöldi stjórnskip-
aðra nefnda og samtök áhugamanna
reynt að leita leiða til að hamla
gegn útbreiðslu fíkniefna. Sjálfsagt
hefur viðleitni allra sem að þessum
málum hafa komið verið góð, en
þekking á hinum margslungnu or-
sakaþáttum sem leiða til fíkniefna-
notkunar var ekki nægjanleg. Sama
gildir um aðgerðir löggæslu er
varðar leiðir til uppljóstrunar, hér
hafa þróast skipulögð innflutnings-
og dreifíkerfi á fíkniefnum, sem
virðast fullnægja eftirspurninni,
sem löggæslan ræður ekki við. Við
höfum með öðrum orðum verið á sí-
felldu undanhaldi s.l. þrjátíu ár,
fíkniefnaneytendum fjölgar, sterk-
ari og hættulegri eiturefni verða sí-
fellt algengari skv. skýrslum með-
ferðarstofnana og löggæslu, afleidd-
um afbrotum vegna fíkniefnaneyslu,
s.s. ránum og þjófnuðum fjölgar ár
frá ári, að óskráðum hörmungum
þúsunda heimila og síauknum
kostnaði heilbrigðiskerfisins .
Er hér um að ræða alþjóðlega
þróun, sem ekki verður við ráðið?
Höfum við íslendingar einhverja
sérstöðu, sem við getum sem fá-
mennt eyríki nýtt okkur í barátt-
unni gegn þessum vágesti? Eg tel
að svo sé, en þá verðum við nánast
frá grunni að endurskoða aðgerðir
okkar á svið löggæslu og forvarna.
Verum jafnframt þess minnug að
Kristján
Pétursson
reynsluheimur og rétt-
arvitund fólks eru afar
breytileg og því engin
allsherjarlausn sem við
á í þessum efnum.
Hvað er til ráða?
F organgsverkefni
stjómvalda gætu
m.a.verið eftirfarandi:
1. Allir sem sannir
eru að sök fyrir inn-
flutning og dreifingu
fíkniefna sæti gæslu-
varðhaldi þar til dómur
er genginn og afpláni
þá strax sína refsingu.
2. Refsingar séu
hertar frá því sem nú
er, bæði er tekur til hærri sekta og
lengri fangelsisdóma.
3. Gætt sé fyllstu aðgætni varð-
andi skilorðsbundna dóma.
4. Fangelsisdómar fyrh' meiri-
háttar fíkniefnabrot séu sérstaklega
skilgi-eindir og komi þá ekki til
skerðingar á afplánun dóma.
5. Farbann sé sett á alla þá sem
bíða dómniðurstöðu.
6. Sérhæfðh' löggæslumenn ann-
ist skipulagða kennslu innan skól-
anna er varðar umferðar- og útivist-
armál ungmenna, fíkniefnamál og
ráðgjafastörf til foreldraráða og
skólayfirvalda.
7. Löggæslan hafi skýrar og af-
dráttarlausar reglur og fyrirmæli
varðandi aðgerðir við uppljóstranir
fíkniefnamála og fái viðtækari rann-
sóknarheimildir en nú tíðkast, m.a.
með víðtækum upplýsingakerfum,
fullkomnum tækjabúnaði og geti
með auðveldum og skilvirkum hætti
(dómsúrskurði) fengið upplýsingar
frá skattayfirvöldum og fjármála-
stofnunum varðandi grunsamlega
aðila, m.a. þá sem ætla má að fjár-
magni fíkniefnakaup.
8. Fræðsluþættir séu a.m.k.
tvisvar í mánuði í sjónvarpi um
Pantaðu núna
® 555 2866
Kays - Argos - Panduro
B.Magnússon
Fax 565 2866 • bm@vortex.is
skaðsemi og afleiðingar fíkniefna.
Aðilum innan heilbrigðis-, dóms-
mála- og menntamálaráðuneyta sé
falið að skipuleggja þessa þætti.
9. Stutt sé af fremsta megni við
einstaklinga og félagasamtök.sem
sýnt hafa góðan árangur í meðferð-
armálum áfengis- og fíkniefnaneyt-
enda.
10. Heilbrigðis- og dómsmálaráð-
herra hafi hið allra fyrsta forgöngu
um stofnun nýrrar meðferðar- og
fangelsisstofnunar fyrir fíkniefna-
neytendur. Hún væri aðskilin milli
fanga, sem dæmdir hafa verið fyrir
fíkniefnabrot, sem þurfa á læknis-
legri aðstoð að halda og fíkniefna-
sjúklinga svo hægt væri að samnýta
störf lækna og hjúkrunarfólk.
11. Veigamest af öllu er þó að
virkja almenning til samstarfs í
Forvarnir
Veigamest af öllu, segir
Kristján Pétursson, er
að virkja almenning
til samstarfs.
þessum efnum. Upplýsingastreymi
til löggæslunnar með almennri þátt-
töku og samstarfi við heimiiin í
landinu er virkasta leiðin til að snúa
vörn í sókn. Til eru ýmis lokuð upp-
lýsingakerfi, sem vernda upplýs-
ingaaðila gegn ógnunum og hótun-
um fíkiefnasala. Fullkomið traust
verður að byggja upp milli löggæsl-
unnar og almennings m.a. með
fræðsluþáttum í sjónvarpi og for-
eldrafundum innan skólanna.
Hér er aðeins lítið sýnishom af
því sem þarf að gera í löggæslu- og
forvarnamálum fíkniefnamála og
era þó ekki tekin til umfjöllunar
áfengisvandamálin. Eins og framan-
greind upptalning ber með sér vant-
ar marga miljarða til þessa mála-
flokks, en milljarður Framsóknarfl.
er þó góð viðleitni til að ýta úr vör
þeim verkefnum sem mest brenna á
þjóðinni í baráttunni við eitur-
efnapöddur samtímans.
Höfundur er fyrrverandi deildar-
sljóri.
Léttar í sDori
— Ný heildarlausn fyrir augnsvæðið!
Kynning
í Classic, Hafnargötu 22,
Keflavík í dag og á morgun
kl. 14—19.
Kynnið ykkur nýju haustlitina
og cellular- augnkremin.
Fagleg ráðgjöf,
húðgreiningartölva
og spennandi
gjöf.
HÁÞRÓUÐ TÆKNI FRÁ JAPAN
SENSAI
CELUUtAR PERPORMANCI