Morgunblaðið - 02.09.1999, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
Ertu á leið til Alaborgar?
Frá Ágústi G. Valssyni:
FYRIR ári skrifaði ég grein í Morg-
unblaðið um félagslífið í Alaborg og
vonandi hefur sú grein nýst þeim
sem voru á faraldsfæti til Danmerk-
ur. í framhaldi _af þeirri grein fékk
ég og aði-ir í íslendingafélaginu í
Alaborg, hringingar, bréf og tölvu-
póst frá íslendingum. Margar fleiri
spurningar brunnu á mörgum. Það
getur verið gagnlegt fyrir þá sem
hyggjast koma til Álaborgar til
náms eða starfa _að ná upplýsingar
um starfsemi íslendingafélagsins
þar. í þessari stuttu grein verður
sagt frá starfseminni í grófum
dráttum.
íslendingum hefur fjölgað mikið í
Álaborg. Talið er að félagsmenn ís-
lendingafélagsins í Álaborg og ná-
grenni séu u.þ.b. 500 talsins. Börk-
ur Brynjarsson er fonnaður nýrrar
stjórnar félagsins, en ný stjórn tók
við störfum á síðasta skólaári.
Innan félagsins blómstrar félags-
lífið. Karlarnir æfa saman körfu-
bolta einu sinni á viku og knatt-
spymu tvisvai’ til þrisvar sinnum á
viku. Á hverju ári er haldið fótbolta-
mót milli íslendingafélagana í Dan-
mörku og Svíþjóð, sem kallað er
„Klaka-mótið", og var það haldið í
Álaborg í október síðastliðnum.
Mótið fór glæsilega fram eftir mikla
skipulagningu og vinnu margra fé-
lagsmanna. Vart þarf að taka fram
að A-lið félagsins í Álaborg sigraði
mótið með glæsibrag. Islendingafé-
lagið í Álaborg átti þrjú önnur lið á
mótinu. Nánari upplýsingar um ár-
angur þeirra á mótinu fást ekki - að
gefnu tilefni.
Yfir 120 íslendingar mættu á
„Klaka-mótið“ og gistu gestirnir í
einum grunnskóla borgarinnar. Á
mótinu var margt til gamans gert,
bæði fyrir böm og fullorðna. Meðal
annars fengu bömin loftdýnu til að
leika sér á og auðvitað var boðið
upp á íslenskt sælgæti. Hinir eldri
kneyfuðu danskt „öl“ - í hófi þó
auðvitað! Endað var á glæsilegu
sjávarréttarhlaðborði og var það
mál manna að það sé nauðsynlegt
fyrir íslendinga sem búa í Skandin-
avíu, að hitta landa sína fi’á Fróni
reglulega, skemmta sér saman og
ræða um menn og málefni. Næsta
knattspyrnumót íslendingafélag-
anna verður í Kaupmannahöfn.
Eftir sigurvímuna frá „Klaka-
mótinu“ ákváðu flestir af knatt-
spyrnustrákunum að fara í
skemmtiferð saman til Þýskalands,
nánar tiltekið til Hamborgar. Sumir
horfðu á knattspyrnuleik, aðrir fóru
í tyrkneskt gufubað. Aðrh’ sáu sér
ekki fært að gera nokkurn skapað-
an hlut vegna „þreytu“ og hvíldu sig
á hóteli.
Hjá kvenkyns meðlimum íslend-
ingafélagsins í Álaborg er það fast-
ur liður að fara til Þýskalands í
verslunarferð. Yfirleitt fara þær að
heiman á laugardagsmorgni og
koma heim að kveldi með ái’angur
erfiðisins eftir heimsóknir í þýskar
verslanir. Þá fara þær stundum
saman í skemmtiferð til Svíþjóðar.
Kvenmennimir æfa saman blak
reglulega og vitað er um tilvist
nokkurra „ekta“ íslenskra sauma-
klúbba en undirritaður getur þó
ekki tjáð sig nánar um starfsemi
þeirra - enda ekki kvenmaður!
Haldin eru leikjanámskeið íyrir
bömin og auk íþróttaæfinga ýmiss
konar. Krakkarnir eru einnig dug-
legir að mæta í sunnudagaskóla og
sér íslenskur prestur um skólann.
Þorrablót em haldin á hverju ári
og spila íslenskar hljómsveitir fyrir
dansi á „blótinu". Margt annað er
gert hjá Islendingafélaginu og skal
stiklað á stóru. Á lýðveldisdaginn 17.
júní er skrúðganga o.fl., jólaböll em
haldin, áramótaball ásamt áramóta-
brennu, vor- og haustgrill, spila-
Grafarholt -
Vatnabyggð
Frá Kristni Snæland:
SL. föstudag birtist í Morgunblaðinu
greinargerð Þórhalls Vilmundarson-
ar að tillögu um götunöfn í hinu
væntanlega Grafarholtshverfi.
Vonandi fær tillaga þessi góðar
undirtektir og skoðun en verður síð-
an lögð kurteislega til hliðar.
Skipulagning nafna í nýrri hverf-
um borgarinnar hefur allt síðan
stafrófskerfið var tekið upp með
„löndin“ neðan Bústaðavegar, verið
á þann ágæta og auðskiljanlega veg
að nýta stafrófið til að auðvelda röt-
un. Áðeins út frá því sjónarmiði að
auðvelda fólki þekkingu og rötun í
nýju hverfi með nafngiftum gatna
er tillaga Þórhalls ónothæf. Ef
menn vilja hinsvegar heiðra þá ís-
lensku kristni sem kúgaði og undir-
okaði almúga fólks og dró undir sig
eigur landsmanna, þá er sjálfsagt
við hæfi að heiðra skálkinn með
þessum nafngiftum. Hitt atriðið í
þessu efni að gefa umhverfi nöfn, þá
er gott að nýta sér kenningu sem
sett hefur verið fram um íslenskar
nafngiftir landslags og umhverfis,
þ.e.a.s. náttúrunafnakenninguna
svonefndu sem er afar skemmtileg
og sennileg.
Væri náttúrunafnakenningunni
beitt í Grafarholti færi vel á því að
kalla landsbyggðina Vatnabyggð
enda liggur svæðið að bæði Rauða-
vatni og Reynisvatni og getur síðar
náð að Hafravatni og þeim vötnum
sem austar eru á svæðinu.
Út frá þessu væri gott að nýta
„vatn“ sem endingu á götuheiti
byggðarinnar. Aðkomugatan inn í
byggðina og austur héti þá Vatna-
braut, gatan eftir endilangri hæðinni
Hæðarvatn eða Hlíðarvatn, megin-
gatan með Vesturlandsvegi Norður-
vatn og framhald hennar ofan og inn
með golfvellinum Vesturvatn.
Húsagöturnar nefndust í stafrófs-
röð frá norðausturhorni hverfisins
réttsælis og gæti fyrsta gatan nefnst
Arnavatn og loks sú síðasta Öskju-
vatn. Hringborg hverfisins mætti
nefna Hólma og göngustígi Læki.
Með þessu eða samskonar gatna-
kerfi og verið hefur í borginni yrði
ekki af slíku villuslysi og tillaga Þór-
halls Vilmundarsonar leiddi til. Eða
hversu flókið yrði að vísa vegvilltum
í Þúsöld á Kristnibraut?
KRISTINN SNÆLAND,
Engjaseli 65.
Bíllinn
yfirForinn
of B&L
Vandamál eru lagfærð
og bíllinn þrifinn hátt
og lágt. 7 stjörnu bílar
eru afhentir með fullan
tank af bensfni.
Þetta er ein af sjö ;
ástæðum til að kaupa =
sjö stjörnu bíl hjá B&L. í
^BUalan^&^^qótháls^^ím^7^230
/
kvöld, vísnakvöld, „velkomst-ball“
sem er haldið á hverju hausti fyrir
nýflutta íslendinga. Þá er starfandi
kór í félaginu, og fara kórfélagar
stundum í söng- og skemmtiferðh’ til
annarra borga og bæja.
Nánari upplýsingar um starfsemi
íslendingafélagsins í Álaborg og
starfsemi annarra Islendingafélaga
í Danmörku auk upplýsinga um
nám í Álaborg o.fl. er að finna á
heimasíðu Islendingafélagsins í Ála-
borg: http://members.xoom.com/di-
fn/. Heimasíða kórsins er http:
//www.bigfoot.com/~alakor
ÁGÚST G. VALSSON,
rafvirki.
Ný og flott
lína frá
LOUIS
NORMAN
Teg. 12322
Verð 7.995.
Litur: Svartur. Stærðir: 37-41
Teg. 83397
Verð 8.995.
Litur: Svartur. Stærðir: 36-41
Teg. 82380
Verð 7.995.
Litur: Svartur. Stærðir: 36-42
Teg. 83311
Verð 8.995.
Litur: Svartur. Stærð: 36-41
Teg. 83310
Verð 8.995.
Litur: Svartur. Stærðir: 36-41
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
DOMUS MEDICA
við Snorrabraut - Reykjavik
Simi 551 8519
KRINGLAN
Kringlunni 8-12
Sími 568 9212
Reykjavík
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Að láta drauminn rætast
Hvað viltu fá út úr lífinu?
Ertu að leita þér að starfi?
Ertu að velta því fyrir þér að skipta um starf?
Ertu í góðu starfi en vantar eitthvað...?
Stendur þú á tímamótum?
Viltu meta stöðuna og huga að framtíðinni?
Ertu með marga drauma en
veist ekki hvar á að byrja?
Kynning á námskeiðinu
verður í Norrænahúsinu fimmtudaginn
2. september kl. 20.30.
Nánari upplýsingar veitir Höskuldur Frímansson
í síma 553 6147 eða 899 6147
30^
Ertu
orkulaus?
Þá færðu þér náttúrulega ORKU.
Kynning á ORKU bætiefnum og vítamínum
verður í Lyfju Hamraborg í dag og Setbergi á morgun. kl. 14 -18.
KAUPAUKI FYLGIR KAUPUM Á VÍTAMÍNUM!
ORKU
TTITTri
I & bætiefrti I
Eb LYFJA
Lyf á lágmarksverði
Ráðgjöf í Lyfju kl. 14 -18: Lágmúla mánudag, þriðjudag og föstudag. Hamraborg í Kópavogi miðvikudag. Setbergi í Hafnarfiröi, fimmtudag.
0] Electrolux
Frvstíkistu -
tilboð
m
Frystikistur í
öllum stærðum
á tilboðsverði.
180-460 lítra.
Verð frá
31.990 kr.