Morgunblaðið - 02.09.1999, Síða 68

Morgunblaðið - 02.09.1999, Síða 68
68 FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Breiðskífa Bowies á Netinu Bowie hélt útskriftarræðu fyrir nemendur Berkelee-háskóla síðastliðið vor þar sem hann sló á létta strengi. HÆGT verður að »'• 'sækja skrá með nýj- ustu breiðskífu Da- vids Bowies á Net- inu tveimur vikum áður en hún kemur í búðir. Bowie, sem er 52 ára, er ein af fyrstu rokkstjörn- unum sem Iáta til sín taka fyrir al- vöru á Netinu og verður hægt að nálgast breiðskíf- una hours... á Net- inu í tvær vikur frá og með 21. septem- ber. Aðeins verður hægt að nálgast breiðskífuna á heimasíðum versl- anakeðja sem taka þátt í mark- aðssetningunni en ekki á heima- síðu Bowies eða Virgin. Ekki hef- ur verið gefið upp hvaða keðjur það eru en líklegt er talið að þar á meðal séu Tower Records, HMV, Sam Goody og Wherehou- se Entertainment. Breiðskífan kemur út í Banda- ríkjunum 5. október. Hún mun verða seld á sama verði á Netinu yog í verslunum. Aukalag mun fylgja útgáfunni á Netinu en ekki hefur verið ákveðið hvaða lag það verður. Síðasta breiðskífa Bowies Earthling kom út árið 1997 og seldist í 87 þúsund eintökum þær sex vikur sem hún var á lista yfir 200 söluhæstu plötur í Bandaríkj- unum. Sá markaður, sem er sá stærsti í heiminum, er að jafnaði tæplega fjórðungur af heildar- sölu Bowies. SKIPHOLT 50a 105 REVKJAVÍK SÍMI 561 9797 FAX 562 7480 DonSsmiÐjon DANSSKÓLI AUÐAR HARALDS & JÓHANNS ARNAR Kennarar og leiðbeinendur í vetur: Auður Jóhann Örn Aðalsteinn Herborg Rósa Fríða Rut Brynjar Örn Árni Þór Erla Sóley Petrea Samkvæmisdansar Lfnudansar Barnadansar Freestyle Break Swing Salsa ofl.ofl.ofl. Innritun daglega frá kl. 10.00 til 19.00 FÓLK í FRÉTTUM Stórtónleikar í Borgarleikhúsinu í kvöld Söngvari með tíu líf Maríus Sverrisson hef- ur dvalið erlendis um ---------------------- tíma við nám og störf. I kvöld heldur hann ásamt öðrum lista- mönnum tónleika í Borgarleikhúsinu sem kallast Ekki segja mömmu. Sunna Ósk Logadóttir leit inn á æfíngu og ræddi við Maríus um nútíð, fortíð og framtíð. Morgunblaðið/Jim Maríus syngur af mikilli innlifun. FYRIR fimm árum kvaddi Maríus fósturjörðina og fór í Tónlistarhá- skólann í Vínarborg þar sem hann stundaði söngleikjanám næstu tvö árin. „Það var mjög fínt og mér gekk mjög vel í skólanum,“ rifjar Maríus upp á meðan aðrir söngvar- ar og dansarar sem munu koma fram með honum í Borgarleikhús- inu í kvöld æfa sig á sviðinu. „Fljót- lega eftir að skólinn var búinn fékk ég hlutverk í Sound of Music sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu í Ins- bruck. Síðan vann ég sem dansari í þremur sýningum; Kabaret, Kiss Me Kate og La Car Au Folle sem var líka mjög gaman.“ Margþætt nám Eftir það lá leiðin til Þýskalands, nánar thtekið th Hamborgar í fram- haldsnám hjá Stella skólanum. „Eg kom fram á þeirra vegum annað slagið en var samt þarna fyrst og fremst í námi. Eg söng t.d. við opn- unina á Potsdamer Platz í Berlín sem stóð heila helgi, það var mjög gaman.“ Er skólanum lauk fór Maríus til London sem af mörgum er álitin Mekka söngleikjanna. „Þar fékk ég hlutverk í söngleiknum Móses og lék Aaron, bróður Móses. Við héld- um forsýningar á West End í London og nú lítur út fyrir að það verði sett upp í almennri sýningu. En ég veit ekki hvað mun gerast, ég læt það bara ráðast," segir Maríus og brosir. - Hvernig er söngleikjanám frá- brugðið hefðbundnu söngnámi? „I söngleikjanámi er lögð jöfn áhersla á dans, söng og leiklist. Þess vegna var mjög eðlilegt fyrir mig að fara út í þetta því ég gat ekki ákveðið hvort ég vildi dansa, syngja eða leika þannig að það lá beinast við að blanda þessu saman. En svo finnur maður auðvitað sinn veg í þessu. Minn aðalstyrkur er söng- urinn en ég sé mig að mörgu leyti frekar sem leik- ara.“ Áður en Maríus ákvað að fara utan í nám hafði hann haft ýmislegt fyi-ir stafni hér heima, meðal annars var hann í Skilaboðaskjóð- unni í Þjóðleikhúsinu og Óskabörnunum. Öll reynsla kemur að notum En margir muna eftir Maríusi enn fyrr, frá þeim tíma er hann og Páll Óskar Hjálmtýsson settu upp drag-sýningar, með þeim fyrstu hér á landi. „Við tróð- um upp hér og þar og höfð- um mjög gaman af þessu. Það var fín reynsla sem nýt- ist mér mjög vel í söngleikj- unum.“ Fólk hafði skiptar skoðanir á uppátækinu og Maríus segir að sumum hafi fundist þetta alveg hrika- legt. „Stundum spáði ég í Eftirlætislög Maríusar munu hljóma í Borgarleikhúsinu í kvöld. hvort ég væri kannski búinn að eyðileggja ferilinn með þessu,“ seg- ir hann og glottir. „En svo komst ég að því að þetta hjálpaði mér heil- mikið. I mörgum söngleikjum er eitthvað drag-atriði þannig að þetta var fín reynsla og ég sé ekki eftir þessu. Það er eins og öll reynsla sem maður öðlast í lífinu nýtist manni á einhvem hátt, það er svo lengi sem maður kemst heill í gegn- um hana. Þó að sumt sem maður gerir virðist fáránlegt í fyrstu koma augnablik síðar þar sem sú reynsla kemur að góðum notum.“ Maríus á ekki langt að sækja sönghæfileikana því móðir hans er Margrét Pálmadóttir kórstjóri. „Ég man eftir mömmu þegar hún var að læra að syngja þannig að ég ólst upp við sönginn. Ég hef sjálfur sungið og dansað alveg frá því að ég var krakki en ég hafði engan sér- stakan áhuga á söngleikjum." Hann man þó sérstaklega eftir því er hann sá söngleikinn Kabaret í fyrsta sinn sem bam. „Það hafði rosaleg áhrif á mig. Mér fannst lög- in og Liza Minelli alveg æðisleg. Mér þykir voða vænt um hann. Ég lék í honum úti og það em svo mörg hlutverk í honum sem ég gæti leikið og vildi gjaman leika. Það era einmitt þrjú lög úr þeim söngleik á tónleikunum." Best að segja mömmu - Segðu mérfrá tónleikunum sem verða íkvöld. „Ég fékk hugmynd um að koma heim og halda tónleika og fékk mik- inn stuðning frá minni fjölskyldu og vinum. Svo vatt þetta svona upp á sig og vai’ð að lítilli sýningu. Kannski má segja að þetta sé óðs manns æði að ráðast í þetta. En ég er búinn að fá mjög mikið út úr þessu og jákvæð viðbrögð frá fólki svo að ég myndi mæla með því að allir gerðu eitthvað svona,“ segir Maríus og hlær. „Ég hef ekki tekið langan tíma í að undbúa tónleikana en mér finnst eins og ég hafi verið að undirbúa þá innra með mér í mjög langan tíma samt sem áður, sem er mjög sérkennileg tilfinning." - Hvað með lagavalið? „Ég valdi öll lögin sjálfur og þetta era mín uppáhaldslög. Þetta em lögin sem mér finnst skemmtilegast að syngja og finnst gaman að heyra annað fólk syngja." - Hvað með nafn tónleikanna, „Ekki segja mömmu“? „Titillag sýningarinnar heitir Don’t Tell Mama. En þetta er annað og meira fyrir mér. Sumt sem maður gerir á vissu tímabili í lífinu yill mað- ur ekki að mamma viti. Ymislegt sem maður gerði en þorði ekki að láta mömmu vita um, þótt hún hafi náttúrulega frétt af því. Það er viðkvæm- ast að segja mömmu, sem er þó Iíklegust til að elska þig þrátt fyrir allt.“ -Hvað með framtíðina? „Ég er að fara út aftur en ég ætla að reyna að koma oft heim. Þetta hefur verið svo brjálæðislegt ár, það hefur gerst svo mai-gt að það er eiginlega ekkert hægt að segja til um framtíðina. Stundum koma ár í lífinu þar sem maður getur planað allt og allt fer á þann veg sem maður planar. En svo koma önnur ár í lífinu þar sem maður virðist lifa tíu lífum á einu ári. Maður er bara allt í einu kominn eitthvert og að gera eitthvað. Það er eins og með þessa tónleika, fyrir mánuði vissi ég ekki einu sinni að ég ætlaði að halda þá, þótt einhver óljós hug- mynd hafi verið orðin tQ.“ - Finnst þér gott að koma heim til Islands? „Já, alveg rosalega," segir Maríus ákveðinn að lokum. Hljómsveitarstjórinn Agnar Már Magnússon við píanóið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.