Morgunblaðið - 28.10.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
245. TBL. 87. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ruglast
á Blair
og guði
London. Reuters.
BRESKUM börnum hættir til
að rugla saman Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, og
guði almáttugum og mörg halda,
að Elísabet drottning hafi ekk-
ert annað fyrir stafni en að
„sötra vín allan daginn“. Kemur
þetta fram í heimildamynd, sem
breska ríkisútvarpið, BBC, er að
gera um börn.
„Mér finnst það athyglisverð-
ast, að börnin skuli rugla saman
forsætisráðherranum, guði al-
máttugum og yfirmönnum kirkj-
unnar,“ sagði Philippa Lowt-
horpe, framleiðandi myndarinn-
ar. Eitt barnanna, Natasha, sjö
ára gömul, sagði að Blair væri
með „sítt grátt hár, gráskeggj-
aður í gráum kufli og gerði
kraftaverk". Hafa talsmenn
Blairs ekki gert neina athuga-
semd við þessa lýsingu á honum.
Reuters
Her- og lögreglumenn sátu um þinghúsið í Jerevan í gær og fyrir utan þinghúsgarðinn beið hjúkrunarfólk
eftir að geta hugað að særðu fólki. Þangað dreif líka mikinn fjölda borgarbúa.
Hryðjuverkamenn lögðu undir sig þinghúsið í Jerevan, höfuðborg Armeníu
Myrtu forsætisráðherr-
ann og fleiri þingleiðtoga
Jerevan. Reuters, AP. 1 1
FORSÆTISRÁÐHERRA Armeníu
og hugsanlega sjö aðrir frammá-
menn á þingi landsins voru myrtir í
gær er hópur vopnaðra manna
ruddist inn í þinghúsið í Jerevan,
höfuðborg landsins, og lét kúlunum
rigna yfir þá. Hrópaði einn árás-
armannanna, að um væri að ræða
stjórnarbyltingu en hundruð lög-
reglu- og hermanna umkringdu
þinghúsbygginguna á skömmum
tíma. Voru árásarmennirnir enn í
húsinu í gærkvöldi, hugsanlega með
tugi gísla.
Einn þingmannanna sagði að
fimm eða sex vopnaðir menn hefðu
ruðst inn í þingsalinn og hefði einn
þeirra tæmt byssuna á Vazgen
Sarksyan forsætisráðherra. I árás-
inni féllu einnig Karen Demirchian,
forseti þingsins, Yuri Bakhshian,
varaforseti þess og Leonard Petros-
ian orkumálaráðherra. Armensk
sjónvarpsstöð sagði í gær að 30
menn a.m.k. væru sárir
og sumir alvarlega.
Einn byssumann-
anna hrópaði að þeir
hygðust bylta stjórn-
inni í landinu og sagði
að þeir væru komnir til
að hefna þeirra sem
hefðu látið lífið fyrir
ættjörðina. Armenskir
embættismenn gerðu
lítið úr valdaránstil-
raun byssumannanna
og sögðu að þeir væru
aðeins hópur hryðju-
verkamanna.
Þekktur
þjóðernissinni
Blaðamaður, sem var staddur í
þinghúsinu í gær, segist hafa þekkt
einn byssumannanna, Nairiu Un-
anyan, sem væri fyrrverandi blaða-
maður og félagi í Dashnak, þjóðern-
issinnuðum flokki.
In terfax-fréttastofan
hafði hins vegar eftir
talsmanni Dashnak að
Unanyan hefði aðeins
verið í flokknum í
stuttan tíma árið 1990.
Fjölmennt lið her-
og lögreglumanna sat
um þinghúsið í gær en
ekki var vitað hve
marga gísla byssu-
mennirnir höfðu á valdi
sínu. Armensk sjón-
varpsstöð sagði þá vera
allt að 200 en rúss-
neska fréttastofan RIA
aðeins átta. Robert
Kocharyan, forseti Ar-
meníu, var við þinghúsið í gær þar
sem reynt var að semja við hryðju-
verkamennina. Var látið að kröfu
þeirra um að fá að koma fram í
sjónvarpi og sagði einn þeirra þar
að árásin hefði verið gerð í þágu
þjóðarinnar. Hann sagði ástandið í
landinu hörmulegt og ættu örlög
Sarsyans að verða öðrum víti til
varnaðar.
Tengist hugsanlega
Nagorno-Karabakh
Ekki var vitað hvað vakti fyrir
ódæðismönnunum en helst talið að
það tengist deilu Armeníu og
Aserbaídsjan um héraðið Nagorno-
Karabakh, sem er í Aserbaídsjan en
byggt Armenum. Stóðu um það
blóðugir bardagar fyrir nokkrum
árum en nú eru ríkin að reyna að
finna friðsamlega lausn.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna minntist í gær hinna látnu
með einnar mínútu þögn og margir
þjóðarleiðtogar fordæmdu hryðju-
verkin. Korcharyan, forseti lands-
ins, lýsti yfir í gær að ríkisstjórnin
hefði full tök á ástandinu.
„Kjötdeila“ Breta
og Frakka
Farin að
spilla sam-
skiptum
ríkjanna
London. Reuters.
BRESKA stjómin herti í gær á
kröfum sínum um að fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins, ESB, tæki ákveðna afstöðu í
„kjötdeilu" Breta og Frakka og
hæfi málsókn gegn frönsku stjóm-
inni fyrir að banna innflutning á
bresku nautakjöti. Vísindanefnd
ESB fjallar um málið í dag en ótt-
ast er að komist hún ekki að ein-
róma niðurstöðu muni það kynda
enn undir deilunni sem er farin að
hafa alvarleg áhrif á samskipti
ríkjanna.
„Það er stríð“ var forsíðufyrir-
sögnin á breska síðdegisblaðinu
Sun í gær og þar var Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, hvatt-
ur til að „byrja að sparka frá sér“,
jafnt í París sem Brússel. Blair
hefur hafnað kröfum Ihaldsflokks-
ins um að banna innflutning á
frönsku kjöti og á þingi í gær sagði
hann að slíkt bann væri heimsku-
legt og gegn breskum hagsmun-
um.
Mikil reiði í Bretlandi
Almennt er búist við að vísinda-
nefndin muni vísa frá mótbámm
Frakka við innflutningi á bresku
nautakjöti á fundi sínum í dag en
óttast ær að verði sú niðurstaða
ekki einróma geti það kynt enn
undir deilunni. I Bretlandi hafa
margar verslanir fjarlægt franska
vöru úr hillunum og sum bresku
blaðanna hvetja fólk til að snið-
ganga það sem franskt er. Nick
Brown, landbúnaðarráðherra Bret-
lands, kaupir ekki lengur franska
vöm og upplýsingar um að franskir
bændur hafi alið búfénaðinn á
skolpblönduðu fóðri hafa aukið enn
á reiði Breta sem saka Frakka um
yfirgengilega hræsni.
Blair ræddi í fyrrakvöld í síma
við Lionel Jospin, forsætisráðherra
Frakklands, og urðu þeir sammála
um að spara stóm orðin þar til nið-
urstaða vísindanefndarinnar lægi
fyrir.
Khatami íransforseti í Frakklandi
Vill bætta sambúð
við Vesturlönd
París. Reutcrs, AFP.
MOHAMMÁD Khatami, forseti
Irans, kom í þriggja daga heimsókn
til Frakklands í gær og hefur við-
búnaður frönsku lögreglunnar sjald-
an verið meiri.
Khatami átti í gær fund með
Jacques Chirac forseta og sagði að
honum loknum að hann vildi vinna að
heimi þar sem allar þjóðir virtu hver
aðra og lifðu saman í friði.
Franska lögreglan handtók í gær
um 40 manns, sem reyndu að grýta
bílalest með Khatami, og ströng
gæsla var á landamærunum þar sem
fjölda íranskra útlaga var vísað burt.
Búist er við, að franska stjórnin
muni ræða ástand mannréttinda-
mála í íran við Khatami en sjálfur á
hann undn- högg að sækja fyrir
írönskum harðlínumönnum, sem
voru andvígir heimsókninni.
Bandaríkjastjórn fagnaði í gær
Frakklandsferð Khatamis og James
Rubin, talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins, sagði að Banda-
ríkjamenn væru tilbúnir til „skilyrð-
islausra viðræðna“ við Irani um
ágreiningsefni ríkjanna.
Hólmganga
í Hanover
A1 Gore, varaforseti Bandarflg-
anna, og Bill Bradley öldunga-
deildarþingmaður tókust á í sjón-
varpseinvígi í gær en þeir berjast
um að verða útnefndir frambjóð-
andi demókrata í forsetakosning-
unum að ári. I könnunum hefur
Gore mikið forskot á Bradley á
landsvísu en samt hefur dregið
saman með þeim og Bradley hef-
ur vinninginn í sumum Norðaust-
urríkjanna. Frammistaða þeirra í
einvígjunum, sem verða alls sjö,
getur því ráðið miklu. Einvígið
fór fram í Hanover í New Hamp-
shire og átti að hefjast um mið-
nætti að ísl. tíma.
Reuters