Morgunblaðið - 28.10.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 28.10.1999, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ 56 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 UMRÆÐAN Sjálfseignardeig Listaháskólans HUGTÖKIN menn- ing og listir hafa hæfi- lega óljósa merkingu svo hægt sé að grípa tíl þeirra nánast umhugs- unarlaust JÞessi hugtök eiga að gegna lykilhlut- verki í mótun byggða- stefnu, stjómmála- menn hafa þau umleikis þegar þurfa þykir og sjálfsímynd einstak- linga er sögð í þoku nema spegli menningar og lista verði við komið því einmitt í honum eiga að birtast innri víddir mannsins. En oft vill gleymast að listalíf- ið er einnig knúið áfram og því stýrt af margvíslegum ytri öflum rétt eins og önnur afmarkaðri svið sam- félagsins: fjárveitingum og fyrir- greiðslu, miðstýringu eða markaðs- öflum og markhópum, hagsmuna- ». gæslu og hentistefnu. Þeir sem með Listaháskóla Islands möndla vilja nú aldeilis vera með á nótunum og hafa því brugðið á það ráð að hræra sem flestum rekstrarmöguleikum saman og kalla svo deigið „Sjálfs- eignarstofnun". Deigslíkingin er reyndar ekki úr lausu lofti gripin því nýskipaður rektor stofnunarinnar hefur beitt deigið ófyrirsjáanlegum listbrögð- um og mótar nú eftir eigin geð- þótta. Þessu til áréttingar hefur hann látið frá sér fara stefnuyfir- lýsingu til að undir- strika óhefðbundin vinnubi-ögð sín. „Mér kemur ekkert við hvernig hlutirnir eru gerðir í öðrum há- skólum, hér gerum við bara það sem okkur sýnist." Þama þurfti listamannseðlið að vísu að vera í viðbragðs- stöðu þegar ýjað var að því hvernig sá upp- taktur gæti staðist að ráða Kristján Stein- grím Jónsson í starf deildarforseta mynd- listardeildar Listahá- skóla Islands, mann með minni grunnmenntun en kraf- ist er af nemendum sem sækja um inngöngu í skólann. Nú eru fjöl- margir utanaðkomandi aðilar orðn- ir forvitnir að heyra meira um þetta dæmalausa ráðningarmál. En eins og Bjarni Daníelsson, fyrr- verandi skólastjóri MHI, benti ný- lega á í grein í Morgunblaðinu virð- ist sem einkennilegur þagnarmúr umljúki allt innra starf hins ný- stofnaða Listaháskóla. Ekki höfðu handsöl lengi kólnað kringum ráðningu Kristjáns í for- setaembættið að djúpstæðar efa- semdir skutu upp kollinum. Tveir af þremur meðlimum dómnefndar- innar sem skipuð var til að meta hæfi umsækjenda staðfestu fljót- lega að umræddur einstaklingur Stöðuveiting Tveir af fjórum um- sækjendum um stöðu deildarforseta, segir Hannes Lárusson, hafa fundið sig knúna til að leita ásjár Jafn- réttisráðs og umboðs- manns Alþingis. væri fjarri því að vera hæfastur umsækjendanna að teknu tilliti til þeirra þátta sem opinberlega voru lagðir til grundvallar, þ.e. mennt- unar, starfsferils, fræði- og rit- starfa. Aðrar óopinberar forsendur hlytu því að liggja til grundvallar en umbeðnar matsskýrslur. Þvert á álit dómbærra manna hefur rektor stoltur haldið því fram að staðan hafi verið veitt þeim ein- staklingi sem óumdeilanlega hafi skarað fram úr öðrum umsækjend- um. Svo vissir voru rektor og stjóm Listaháskólans um niðurstöðuna að ekki þótti ástæða til að kalla um- sækjendur í viðtöl. Rökstuddar grunsemdir hafa því vaknað um að með ofangreindri málsmeðferð hafi alvarlega verið farið út fyrir eðli- legar heimildir og viðtekna starfs- hætti. Frá því snemma í vor hefur ítrekað verið farið þess á leit við forráðamenn skólans að utanað- komandi fagaðilar yrðu kvaddir til þess að endurmeta gögnin til að eyða þar með óvissunni um túlkun þeirra. Þessu hefur algerlega verið vísað frá án efnislegra skýringa. Sjálfseignarstofnunin Listaháskóli Islands er alfarið rekin af opinberu fé. Núverandi menntamálaráðherra Björn Bjamason hefur tilnefnt tvo af fímm mönnum í stjórn skólans, einnig hefur hann látið húsnæðis- mál stofnunarinnar töluvert til sín taka. Leitað var til ráðherra varð- andi umrædda ráðningu. I svar- bréfi hans var áréttað að sam- kvæmt samningi sem ráðuneytið hefði gert við Listaháskólann lúti starfsmannamál þai- nú „reglum hins almenna vinnumarkaðar". Þegar leitað var eftir frekari skýr- ingum á þessu var lögfræðingur ráðuneytisins Valur Amason fljót- ur til svars: „Ráðuneytinu kemur þetta mál ekkert við né Listaháskólinn yfir- leitt“. Nú er svo komið að tveir af fjóram umsækjendum um stöðu deildarforseta við myndlistardeild Listaháskóla Islands hafa fundið sig knúna tO að leita ásjár Jafnrétt- isráðs og umboðsmanns Alþingis í von um að hægt verði að varpa ljósi á málið, enda hefur umrædd stöðu- veiting gróflega misboðið fagvit- und kennara, nemenda og starf- andi listamanna. Of snemmt er því að fullyrða hvort hér hafi rektor Listaháskólans gefið fordæmi sem honum og íylgismönnum hans muni takast að festa í sessi. Því miður virðist vera að koma æ betur í ljós að þrátt fyrir langan aðdraganda að stofnun Listahá- skólans er allt mjög laust í reipun- um og gildir þá einu hvort um er að ræða skipulagsskrá, rekstrarfyrir- komulag eða drög að innra starfi. Um þessar mundir er Listaháskóli Islands reyndar ekki nema annað nafn á Myndlista- og handíðaskóla Islands, róttækar breytingar vora gerðar á bréfsefnum og símanúm- eram en annað látið liggja milli hluta. Nýnæmi finnst sumum þó að sjá þar utanaðkomandi mann hnoða nýfengið sjálfseignardeig sitt í spennuþrangnu andrúmslofti. Aætlanir eru um að á næstu árum muni kennsla í tónlist, leiklist og jafnvel hönnun, arkitektúr og list- dansi fara fram undir merkjum Listaháskólans. Full ástæða er til að hvetja forsvarsmenn og velunn- ara þessara listgreina til að fylgj- ast vel með framvindu tilraunar- innar með Myndlista- og handíða- skólann sem nú stendur yfír og hafa vaðið fyrir neðan sig. Almenn- ingur og nemendur ættu ef til vill einnig að leiða hugann að því hverra hagsmuna þeir aðilar séu að gæta sem ætla sér að reka opin- bera skólastefnu með tilkalli til há- skólastigs undir leiðarstefinu: „Við geram bara það sem okkur sýnist." Eftir að hafa nýverið fylgst með Hjálmari H. Ragnarssyni, rektori Listaháskóla Islands, elta deigið um listina og menninguna og fjöregg þjóðarinnar, varð kunn- ingja mínum að orði að það hefði e.t.v. ekki verið svo illa til fundið hjá Hjálmari undanfarin ár að þrá- staglast svona á Jóni Leifs. Það væri engu líkara en hann kepptist við að sýna með eigin skynhelgi og tvískinnungi hvers konar andrúms- loft í listalífinu var sköpunarstai-fi Jóns hvað mótdrægast. - Það er vonandi að þessi hótfyndni eigi ekki eftir að eiga jafn vel við og nú horfir. Höfundur er kennari við Listahá- skóla íslands og var einn af um- sækjendum um stöðu deiidarforseta við myndlistardeild skólans. Hannes Lárusson FIMMTUDAG, FOSTUDAG, LAUGARDAG OG SUNNUDAG ALLAR ULPUR ÁflUR ALLT AD 9900 KR. STK GALLARUXUR Istk. 198U 2stk. 298U DRESS MANN Ath Sendum í póstkröfu. Laugavegi 18b Sími 562-9730 Fax 562-9731 Grænt númer 800-5730 Kringlunni Sími 568-0800 Fax 568-0880 Grænt númer 8006880 TILBODIN GILDA EINNIGI l/ERSLUN OKKAR Á LAUGAVEGINUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.