Morgunblaðið - 28.10.1999, Side 50

Morgunblaðið - 28.10.1999, Side 50
.50 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Snoturt blað, en efnið s ekki eins margbrotið FRIMERKl Fi'fmerkjablaAid, 2. tbl. A DEGI frímerkisins gerðist það, að 2. tbl. Frímerkjablaðsins kom út. Þegar 1. tbl. birtist, var því vel fagn- að, enda höfðu safnarar lengi beðið eftir því að fá aftur málgagn, þar sem birtar yrðu greinar um margvís- legt frímerkjaefni. Jafnframt væntu menn þess, að blaðið yrði vettvang- ur, þar sem safnarar og aðrir áhuga- ■%nenn um frímerki gætu látið í ljós skoðanir sínar um þau málefni, sem efst væru á baugi í heimi frímerkj- anna, bæði hér á landi og erlendis. Eins og með öðrum stéttum fara skoðanir safnara ekki alltaf saman, enda væri í raun annað óeðlilegt. Þetta nýja tölublað er vissulega snoturt að ytra útliti, en efnið ekki eins margbrotið og síðast. Þar ber að mínum dómi hæst framhald greinar Ólafs Elíassonar frá 1. tbl. um flug- póstgjöld 1928-1939. Þá var ágætt að fá greinargerð frá Indriða Páls- syni við fyrirspum minni í Mbl. um Berufjörð 1872. Þá birti Hálfdán Heigason ágæta kynningargrein um Kólumbusar-safn Guðna Fr. Árna- sonar. Eins var fróðlegt að fá þarna viðtal, sem ritstjóri blaðsins átti við þann ágæta frímerkjahönnuð, Þröst Magnússon. Ég hef svo oft minnzt á hann í þáttum mínum og það mikla álit, sem ég hef á honum sem frí- merkjahönnuði, að óþarft er að fara hér um hann mörgum orðum. Ymis- legt annað er í blaðinu, sem verður ekki rakið nánar hér. Forystugrein með eindæmum Ég hlýt að játa og harma um leið, að ritstjóri Frímerkjablaðsins hefur látið fara frá sér forystugrein eða leiðara, sem er engan veginn sam- boðin blaðinu og Póstinum, ef hann vill - eins og hann lætur í veðri vaka - hafa hina ágætustu samvinnu við frímerkjasafnara. Ég vil næstum segja, að þessi grein sé með endem- um og eins og blaut tuska framan í frímerkjasafnara og ekki sízt þá, sem á liðnum árum hafa látið sér annt um frímerkjasöfnun og starf- semi frímerkjasafnara. Ef forstjóri Islandspósts hf. (og samstarfsmenn KthUUr Kílumbuv - Vilti Cuðn4 .úhihiui f>l*ntku Jolí»«l**(«lr i rilm(tk]am ntmtikl t»ti4 4» h4f4 >11 ■ htatiat Majttioum H**l tr Sltðktit'tut’ - 06» 8>4Adl Forsíða 2. tbl. Frímerkjablaðsins. hans) er sammála þeim orðum í grein ritstjórans, sem hér verða tek- in upp, reynist hugboð mitt um raun- verulegt áhugaleysi Póstsins í garð frímerkjasöfnunar rétt - því miður. Forystugreinin nefnist Hlutverk Frímerkjablaðsins. Fyrst ræðir rit- stjórinn um fyrir hvað blaðið eigi að standa. Hann segir síðan orðrétt: „Við sem sitjum í ritstjórn Frí- merkjablaðsins þurfum sífellt að vera með hlutverk þess og markmið í huga þegar við tökum ákvörðun um hvað eigi heima í blaðinu og hvað ekki. Þar verða hagsmunir blaðsins sjálfs að vera í fyrirrúmi. Eitt af því sem ritstjórnin hefur tekið fyrir og orðið sammála um að ekki eigi heima í þessu fagriti um frímerki eru að- sendar greinar í kvörtunartón. Af gefnu tilefni hefur ritstjórnin tekið þá ákvörðun að þeir sem eru ósáttir við stefnu íslandspósts í ákveðnum málum eða fúlir út í forsvarsmenn Landssambands íslenskra frímerkja- safnara eða einhvers af aðildarfélög- um þess verði að leita annað með óá- nægju sína. Þeir geta sem best snúið sér beint til fyrirtækisins eða félag- anna eða leitað í lesendadálka dag- blaðanna. Frímerkjablaðið verður ekki athvarf fyrir óánægða frí- merkjasafnara en örugglega vett- vangur fyrir alla þá sem eiga skemmtilegt frímerkjasafn eða hafa frá einhverju fróðlegu eða skemmti- legu að segja.“ Svo mörg eru þau orð og þau lýsa engu öðru en því, að rit- skoðun eigi að fara fram um efni þess, þ.e. hvað megi birta og hvað ekki. Nú hef ég vissu fyrir því, að það er ofmælt hjá ritstjóranum, að allir ritstjórnarmenn hafí samþykkt þessa stefnu, sem boðuð er í blaðinu. Ég vildi ekki heldur trúa því, að full- trúar frímerkjasafnara létu hafa sig til slíkrar ósvinnu. Þá talar ritstjór- inn ekki fyrir munn stjórnar LIF, enda formaður þess ósáttur við þessi skrif og vinnubrögð. Er sjálfsagt, að þetta komi hér skýrt fram, svo að safnarar viti, að leiðarinn er einungis á ábyrgð fulltrúa Póstsins í ritstjórn blaðsins. Eftir orðum ritstjórans að dæma er öllum þeim söfnurum, sem hafa aðra skoðun en Pósturinn og fylgifiskar hans, vísað út í hafsauga „með óánægju sína“ eða eru „fúlir“ út í forsvarsmenn Landssambands íslenzkra safnara, svo smekklega sem þetta er orðað af hálfu ritstjór- ans í blóra við formann LÍF. Sá, sem hér stýrir penna, skilur nú íyrr en skellur í tönnunum, við hvað hann á sérstaklega, og þakkar honum hér með fyrir kurteisina. Ég hef sagt það áður, að ég hef ekki of mikið álit á forráðamönnum Póstsins sem „fílatelistum", þ.e. vin- um frímerkjanna, eins og felst í merkingu hins grískættaða orðs. En ég hélt samt ekki, að þeir gerðu sig svo bera í fjandskap við þá, sem hafa aðra skoðun á útgáfumálum Póstsins og alh'i stefnu hans í samband við frímerki, að þeir gætu ekki stillt orð- um sínum og væntanlegum gerðum í hóf. Ritstjórinn segir í ofangreindum orðum, að þeir, sem eru óánægðir, geti m.a. „snúið sér beint til fyrir- tækisins" með óánægju sína. Það er nú einmitt það, sem hefur verið reynt í sambandi við breytingu á vélstimplum. Sjálfur var ég vitni að þessu á fundi í FF, þar sem forstjór- inn og fulltrúi hans sátu fyrir svör- um. Ekki man ég betur en vinsam- lega hafí verið tekið undir þær ábendingar, sem fram komu, með loforði um athugun og úrbótum. Hverjar hafa efndirnar svo orðið? Engar. Hvað sagði Bolli Davíðsson frímerkjakaupmaður líka í því að- senda bréfi, sem birt var í frí- merkjaþætti 30. sept. sl. Svo segir ritstjóri Frímerkjablaðsins, að nægjanlegt sé að snúa sér beint til Islandspósts hf. með beiðni um úr- bætur. Hvílík óskammfeilni, liggur mér við að segja, eftir þá reynsiu, sem frímerkjasafnarar hafa þegar fengið af skiptum við Póstinn í stimplamálum. Því miður er hér boðuð af hálfu Póstsins, sem öllu virðist ætla að ráða um stefnu hins nýja „mál- gagns“ frímerkjasafnara, hrein rit- skoðun, sem er óþekkt meðal kollega okkar á Norðurlöndum, þeg- ar kannski er undanskilið, að rit- stjóri Norsk Filatelistisk Tidsskrift, málgagns norska Landsambandsins, var látinn taka pokann sinn á liðnu ári fyrir greinaskrif um margvísleg mál, sem snertu eitthvað óþægilega bæði forráðamenn norska Lands- sambandsins og raunar fleiri nor- rænna landsambanda. Hér undan- skil ég Landssamband okkar í því samhengi, sem kom þar ekki við sögu - sem betur fer. Ekki er ósennilegt, að aftur verði komið að þessu máli hér í Mbl., enda mun ekki í önnur hús að venda með „kvartanir“ eða ábendingar eftir þau orð, sem ritstjóri Frímerkjablaðsins hefur látið falla. Ég vona hins vegar, að stjórn LÍF taki þetta frumhlaup ritstjóra Frímerkjablaðsins föstum tökum, enda henni ekki stætt á öðru fyrir hönd frímerkjasafnara. Jón Aðalsteinn Jónsson RAOAUGLVSINGA ÝMISLEGT Langar þig til að vera nemandi í sólskinsríkinu Kaliforníu? Kynningarfundur á Hótel Borg í kvöld 28. okt kl. 20.00. Dr. Bruce Pelkey frá College of the Cany- "ions í Santa Clarita, Kaliforníu, USA. ★ Margar námsleiöir í boöi. ★ Mjög góð námsaðstaða. ★ Hagstæð skólagjöld. ★ Góð staðsetning, aðeins 30 mín. frá VISTA ♦ CUtTURAL & EDUCATIONAL TRAVEL LÆKJARGATA 4 101 REYKJAVfK SfMI 562 2362 FAX 562 9662 NETFANG vista@skima.is Ertu óstöðvandi? Hjálp! Mig vantar 10 óða sölumenn strax. Magnað tækifæri. Upplýsingar í síma 897 6304, Díana (allan sólarhringinn). FLUGSKÓLI ISLANDS Flugskóli Islands auglýsir bóklegt atvinnuflugmannsnámskeið sem hefst í byrjun janúar næstkomandi. Haldin verða stöðupróf laugardaginn 6. nóv- ember og laugardaginn 4. desember. Nánarí upplýsingar fást á skrifstofu ^kólans í síma 530 5100. ®Ný byrjendanámskeið Fagteikning í AutoCad 14 laugardaga kl. 10—13 og þriðjudaga kl. 20—23. Þrívíddarteikning í 3D Studio MAX R2 laug- ardaga kl. 13.15—18.15 og fimmtudaga kl. 19—23. Námskeiðin hefjast 30. október nk. Inn- ritun í síma 555 1144 eða E-mail oaha@oaha.is. Ó, AHA, tölvu- og hönnunarskóli, Bæjarhrauni 22, 220 Hafnarfirði. TILKYNNINGAR Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hvamms og Hvammsvíkur í Kjósarhreppi Hreppsnefnd Kjósarhrepps auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvamms og Hvammsvíkur í Kjósarhreppi samkvæmt 1. mg. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Afmörkun skipulagssvæðisinsfylgir jarðamörkum að öðru leiti en því, að sumar- húsahverfi vestast á jörðinni er utan við skipu- lagssvæðið. Ennfremurfrestast að taka afstöðu til skipulags á núverandi byggingum. Gerðar eru landnemaspildurfyrir skógrækt, afmarkað- ir göngustígar og fleira. Breytingin verðurtil sýnis í anddyri Ásgarðs- skóla frá og með fimmtudeginum 28. október nk. til og með fimmtudeginum 25. nóvember 1999. Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Fresturtil að skila inn at- hugasemdum rennur út fimmtudaginn 9. des- ember 1999. Skila skal athugasemdum á sveit- arskrifstofu Kjósarhrepps, Félagsgarði. Þeir, sem ekki gera athugasemdir við breyting- artillögunar fyrir tilskilinn frest, teljast samþykkir henni. Oddviti Kjósarhrepps. ATVINNUHÚSNÆÐI Vinnustofa listmálara Bráðvantartil leigu eða kaups ca 100-150 fm húsnæði undir vinnustofu, helst miðsvæðis í Reykjavík, með útsýni yfir sjóinn. Annað kemur líka til greina. Upplýsingar í síma 895 7144. TIL SÖLU Byggingarréttur — krani og steypumót Til sölu byrjunarframkvæmdir að litlu fjölbýlis- húsi og parhúsi ásamt þyggingarkrana og ný- legum steypumótum. Áhugasamir leggi inn svör á afgreiðslu Mbl., merkt: „E — 8892." TILBOÐ/ÚTBOÐ Tilboð óskast Tilboð óskast í eftirfarandi bifreiðar, sem verða sýndar á Smiðshöfða 5 laugardaginn 30. október nk. kl. 12—15: Teaund 1 MMC L 200 double cab 2 MMC L 200 double cab 3 MMC L 200 double cab 4 MMC L 200 double cab 5 MMC L 200 double cab 6 MMC L 200 double cab 7 MMC L 300 8 manna 8 VW Transporter 11 m 9 Daihatsu Feroza 10 Daihatsu Feroza 11 MMCLancer 1600 GLXI 4x4 12 Ford Bronco XLT 13 Ford Bronco XLT 14 Toyota Hilux pickup 15 Ford Econoline ára. vél litur Skrésnr. '97 diesel grænn Yl 776 '97 diesel grænn LZ 649 '97 diesel hvítur LO 316 '96 diesel svartur NH 749 '94 diesel hvítur Al 897 '94 diesel grár ME 677 '94 diesel svartur RV 186 '93 diesel grænn RE 834 '94 bensín grænn AN 220 '96 bensín blár TU 410 '96 bensín grænn VJ 812 '88 bensín brúnn R79386 '88 bensín brúnn JT 650 '88 bensín brúnn IZ 207 '86 diesel brúnn ZT 272 Seljandi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Tilboð miðast við staðgreiðslu. FQSSVTRKI SU LTARTANGA SF ISTAK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.