Morgunblaðið - 28.10.1999, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.10.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 19 NEYTENDUR tíma sem verðkönnunin er gerð og eins til að koma í veg fyrir allt mis- ferli. Helstu niðurstöður Samkvæmt niðurstöðum könnun- arinnar, sem sjást hér á súluritum, er lægsta vöruverðið í Bónus eða 82,3% miðað við meðalverðið 100 í öllum verslunum. Aðrar verslanir undir meðalverði eru Nettó, Hag- kaup og Fjarðarkaup. Hæsta meðalverð mældist í Ný- kaupi og Nóatúni eða 107,1 og 107,0 miðað við meðalverðið 100. Aðrar verslanir voru undir meðal- verði 100. Meðalverð í Nóatúni í sambærilegri könnun í mars var 101,6. Verð í Bónus lækkaði um 3,05 prósent frá síðustu könnun sem gerð var í september en þá hafði verð í Bónus hækkað um 3,07 af hundraði frá könnun sem gerð var í júlí. Sú hækkun hefur því að mestu gengið til baka. Verð í Samkaupi hafði einnig hækkað samkvæmt könnun í september en lækkaði nú aftur um sama hlutfall eða um 2,33%. Óveruleg hækkun varð jafn- framt í Strax, Fjarðarkaupi og Hagkaupi. Mesta verðhækkunin frá könnuninni í september var í verslunum 11-11, eða um 2,31%, en verð hækkaði einnig í Nettó, Nóa- túni, Nýkaupi og líillega í 10-11. Innkaup flestra verslana í gegnum Búr eða Baug Ef Fjarðarkaup er frátalið fara innkaup verslananna tíu í könnun- inni ýmist í gegnum Búr eða Baug. Verslanir sem mælast með hæsta og lægsta verð tilheyra báðar Baugi, en þær eru sem áður sagði Bónus og Nýkaup, og talsverður munur er einnig á Hagkaupi og 10-11 verslunum. Búrsverslanim- ar, 11-11, Strax og Nóatún raða sér hins vegar í efstu sætin ásamt Nýkaupi. Nýtt Bökunarbæk- lingur kondi- tormeistara BÖKUNARBÆKLINGUR sem ber heitið „Brot af því besta“ eftir Hall- dór Kr. Sigurðsson konditormeistara og bakara er komin út. Bæklingnum verður dreift í verslanir um allt land þar sem hann mun fást án endur- greiðslu fyrir viðskiptavini. Halldór lærði bakaraiðn á Islandi og nam kökugerðarlist í hinu þekkta „Konditori-Kransekagehuset" í kaupmannahöfn. Halldór hefur um nokkurt skeið haldið konfekt- og tertunámskeið fyrir almenning, en í bókinni kemur afrakstur vinnu hans síðastliðin ár í ljós. Recaro-Start barnabilstólar BÍLASMIÐURINN hf. annast inn- flutning og sölu á barnabílstólunum Recaro Start. Stólarnir eru fyrir böm sem vega frá níu til þrjátiu og sex kíló, hægt er að stilla hæð baks og lengd setu, einnig er hægt að halla stólnum og er all- ur bólstraður. Ymsir aukahlutir eru í boði s.s. inn- legg, höfuðpúði, hálskragi, beltapúði og það allra nýjasta er fótskemill. Recaro Start-barnastóllinn fæst með fimm mismunandi áklæðum og kost- ar frá 22.000 til 24.000 krónur og á honum er tveggja ára ábyrgð. Hann er viðurkenndur af félagi sjúkra- þjálfara í Berlín og hefur hlotið hönnunai-verðlaunin „International- er Desigenerpreis" í Pýskalandi. Hann hefur einnig verið valinn besti barnabílstóllinn af tveimur erlendum bflatímaritum. Söluaðilar stólsins eru Bflasmiðurinn hf., Fífa hf., Bfla- búð Benna hf. og Istraktor hf. Fæðubótarefni fyrir gigtarsjúklinga HEILSA ehf. hefur tekið til dreifíngar fæðubótarefnið Lið-Aktín. Lið-Aktín inniheldur fæðubótarefnin glúkó- samín súlfat og kondróitín súlfat en þau eru byggingar- efni brjósks sem meðal annars hemja virkni ensíma sem eyðileggja brjósk. Líkaminn getur framleitt glúkó- samín en svo virðist sem hann glati hæfni til þess með auknum aldri. Lið-Aktín er ætlað sem fæðubót fyrir þá sem er í vinnu eða æfingum sem veldur álagi á liði og auðveldar líkamanum að viðhalda hreyfanleika í liðum. Lið-Aktín er fáanlegt í Heilsuhúsinu, apó- tekum og í heilsuhillum matvörubúða. Leyndarmálið að skapa framtíð drauma þinna dagana 29.-30. október ef markmið þín í lífinu hafa ekki gengið eftir. Væri það þér einhvers virði að læra að hreinsa burt takmarkandi (truflandi) tilfinningar eins og reiði, ótta, vanmátt, kvíða, afbrýðisemi og öfund. Hvað með að læra nýjar leiðir við að setja þér markmið sem verða að þeim veruleika sem þú hefur til þessa aðeins látið þig dreyma um. Leiöbeinendur: Kári Eyþórsson (CMH, CHYP, PNLP, MPNLP) og Friðrik Karlsson (CMH, PNLP, PTLT) tónlistarmaður sem nýtt hefur sér þessa tækni með góðum árangri við störf sín sem einn af eftirsóttustu gítarleikurum í London. Skráning og upplýsingar í síma 588 1594. Kanebo - Ný heildarlausn fyrir augnsvæðið! KYNNING í Evitu, Kringlunni, í dag og á morgun kl. 12-17. Sérfræðingur frá Kanebo kynnir CELLULAR augnkremin og veitir faglega ráðgjöf. Kanebo SENSAI HÁÞRÓUÐ TÆKNI FRÁ JAPAN CELLULAR PERFORMANCE mörg sem ekki hafa boðist áður á Islandi. Hvort sem þú ætiar í veiði, á snjóbretti eða bara í góða gönguferð þá áttu erindi til okkar. Bæði þjónustan og úrvaiið eiga sér engan sinn líka. Komdu þér af stað. Njóttu Irfsins og láttu veðrið ekki koma þér á óvart. Vertu til! G0RE-TEX Gore-Tex er fremst me&al jafnlngja þegar talað er um öndunarefni. Gore-Tex hefur lengl verið fyrsta val kröfuhörðustu notenda útivistarfatna&ar I krafti yfírburða þess, bæði I vatnsheldni, öndun og endingu. NANOQ# Krlnglunni 4-12 ■ www.nanoq.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.