Morgunblaðið - 28.10.1999, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 28.10.1999, Blaðsíða 62
62 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Hundalíf Petta er ekki hei'msendír Ég er víss um að þú kemst í annað pílukastlið! y Smáfólk 600D M0RNIN6.)i /oKM, lúHAT Y l‘M TAKIN6 AN ( DO YOU WANT f OPINION POLL^/ \TO A5K MEjj^ NO, YOU A5K ME Y PON'T YOU 50METHIN6, AND (MAVE ANYTHIN6 THEN l'LL 6IVE V0Ll\ BETTER T0 MY OPINION..^VPO?^ y ^ N t wmWM Y" %//,. Góðan daginn. Ég er að gera skoðanakönnun. Jæja, og hvað ætiarðu að spyrja mig um? Nei, þú spyrð mig um eitthvað og þá færðu mína skoðun. Hefurðu ekkert annað að gera? Ég hef enga skoðun á þvf. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Setjum sígarett- una í sóttkví Frá Jóhönnu Magnúsdóttur: ÉG vil byrja á því að þakka Rann- veigu Rist, forstjóra ísal, fyrir góða grein í Morgunblaðinu 20. október sl. Pað er ánægjulegt þeg- ar forstjórar stórfyrirtækja sýna slíka fyrirmynd sem hún gerir, því eins og við vitum þá hafa limirnir tilhneigingu til að dansa eftir höfð- inu. Einnig vil ég óska alþingis- mönnum til hamingju með að vera famir að fara eftir eigin reglum og reykja ekki á alþingi íslendinga. En orrustan er ekki unnin. Ég held að við þurfum byltingu í hugarfari hvað varðar fíkniefnið tóbak. Við lifum ekki aðeins á mikilli upplýsingaöld, heldur einnig á tim- um þar sem heilbrigt líferni er í sí- auknum mæli sett á oddinn. Þvi miður er sú brotalöm á að við virð- umst ekki nýta okkur þær upplýs- ingar sem við höfum nema að sumu leyti, hvað hollustuna varðar. Við erum ansi reglugerðaglöð þjóð og t.d. vann ég hjá heildsölu þar sem ætlunin var að flytja inn „marg- vítamíndjús" af þekktu vönduðu vörumerki. Hollustuvernd heimil- aði ekki innflutning á djúsnum á þeim forsendum að hafa þurfti vit fyrir landanum hvað vítamminn- töku varðaði. Menn gætu jú fengið vítamíneitrun. Hvað segir Holl- ustuverndin um tóbakið? Er ekki fullsannað að tóbak er hlaðið eitur- efnum og vanabindandi? Hvar eru reglugerðimar þá? Eg lít á tóbak sem fíkniefni og því miður eru þeir sem „dottnir eru í bmnninn“ orðnir þrælar þess. Ég hef reynslu af vinum og nánum vandamönnum sem líða fyrir það að reykja, bæði andlega og líka- mlega. Oft hættir fólk ekki fyrr en í virkileg óefni er komið, lungun orð- in full af tjöru og öðmm óþverra og oft ekki hægt að snúa við. Það má kannski líkja tóbakinu við tölvuvír- usa sem allir sem eiga tölvur ótt- ast. Við keppumst við að fá sem best vírasvarnarforrit svo tölvan okkar smitist ekki. Ég óttast tó- bakið eins og tölvarinn vírasinn og ég held að við verðum að búa til öfl- uga sóttkví til varnar ungu kyns- lóðinni. Það sem mér fínnst einmitt sorg- legast að horfa upp á, og það sem hvetur mig til að „rífast og skamm- ast“, það er að horfa upp á börn og unglinga sem eru að hefja göngu sína sem reykingamenn. Því miður er þessi vara á boðstólum í næstum hverjum einasta söluturni, - þó hefur Bónus, að ég best veit, ekki séð ástæðu til að græða á þessari sölu, sem mér fínnst virðingarvert. Aðgengi er allt of auðvelt að mínu mati. Þó að gefnar séu út reglur um aldurstakmark held ég að flest- ir viti að unglingar geta nálgast tó- bak næstum eins auðveldlega og sælgæti. Mér fínnst að við verðum að byrja á því að koma tóbakinu í meiri einangraða sölu fyrir það fólk sem alls ekki treystir sér til að hætta að reykja. Ríkið hlýtur að fá gífurlegan gróða af tóbakssölu. En tóbakið tekur stóran toll af heil- brigðiskerfinu, og einnig er dýrt að reka forvarnastarfíð, sem því mið- ur virðist ekki ganga nógu vel. Þrátt fyrir að stærsta ósk mín varðandi þetta efni væri sú að banna tóbaksinnflutning alveg þá veit ég að sú ósk er óraunhæf - en hún er þó samt til staðar. I þessari tölu minni hef ég ekki minnst á óbeinar reykingar, sem eru afskaplega hvimleiðar. Ég hef horft upp á reykjandi móður með ungabarn í bílstól. Aftan á bílnum var merki: „Barn í bílnum". Fyrir hvern skyldi þetta merki hafa ver- ið? Við verðum að fara að gera eitt- hvað! Hjálpum börnunum okkar að verða ekki reykmenningunni að bráð. - Kæri reykingamaður, ég veit að þér finnst þú ofsóttur af „fanatísku" fólki eins og mér, en því miður þá er búið að eitra fyrir þér og ég lít á reykingar sem sjúk- dóm, ég hef enga ástæðu til að ráð- ast á sjúklinga, en vinsamlegast hjálpaðu mér við að forða þeim sem ekki enn era smitaðir. Vilt þú að barnið þitt byrji að reykja? Auglýsingamar gegn reykingum era orðnar grófar og þér finnst þér misboðið, en er nokkuð annað sem dugar en „shock treatment" til að komast út úr þessu fari sem við virðumst komin í? Þetta er ekki af illgirni og ekki gegn þér, sem ég skrifa þetta, held- ur gegn reykingum almennt og af þeirri einföldu ástæðu að ég vil „byrgja branninn áður en barnið dettur ofan í“ því eins og ég hef fylgst með sé ég að ekki er auðvelt að klifra upp úr honum og ég get ekki lengur horft aðgerðarlaus á. JÓHANNA MAGNÚSDÓTTIR, nemandi í Háskóla íslands og móðir, Álfaskeiði 50, Hafnarfirði. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér lútandi. lief hafið sölu á glæsilegum samkvæmisfatnaði, pilsum, drögtum P> og toppum frá % Ronald Joyce London. * T Ragna, Garðatorgi. simi 565 6680 Opia kl. 9-16. lau. kl. 10-12 Stimpilklukkukerfi KERFISÞROUN HF. Fákafeni 11 »Sími 568 8055 www.islandia.is/kerfis1hroun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.