Morgunblaðið - 28.10.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 33
Sonur
kolanámu-
mannsins
KVIKMYIVIIIR
Bíðborgin
OKTÓBERHIMINN ★ ★★%
Leikstjóri Joe Johnston. Hand-
ritshöfundur Lewis Colick, byggt á
bókinni Rocket Boys, e. Homer H.
Hickam Jr. Kvikmyndatökustjóri
Fred Murphy. Tónskáld Mark Is-
ham. Aðalleikendur Jake Gyllenha-
al, Chris Cooper, Laura Dern, Chris
Owen, William Lee Scott, Chad
Lindberg, Natalie Canerday. 108
mín. Bandarísk. Universal, 1999.
SPUTNIK þykir ekki merkilegt
fyrirbrigði í samanburði við há-
tækni nútímans, en braut engu að
síður blað í sögunni. Sovét tók for-
ystuna um sinn í kapphlaupinu um
himingeiminn, Bandaríkjamenn
töpuðu sóknarfæri í eilífri þráskák
kalda stríðsins. Ungir draumóra-
menn um veröld viða góndu hug-
fangnir upp í októberhimininn
1957 og vildu verða þátttakendur í
síðasta landnáminu. Meðal þeirra
er Homer Hickam (Jake Gyllen-
haal) skólastrákur í afskekktu
námuhéraði í Appallachian-fjöllun-
um, sem löngum eru tekin sem
dæmi um örgustu útnára Banda-
ríkjanna. Framtíðin virðist mörkuð
kolanámunum, þar sem John, faðir
hans, (Chris Cooper) ræður ríkj-
um.
Homer þráir allt annað. Útgeim-
urinn heillar eftir að Sputnik
kveikir áhugann á geimvísindum,
innan tíðar fer Homer að þróa sína
eigin eldflaugasmíð. Til að byrja
með einn og óstuddur en fær fljót-
lega til liðs við sig þrjá skólabræð-
ur og stuðning ungfrú Riley
(Laura Dern) einarðrar, framsýnn-
ar kennslukonu. Tilraunirnar
ganga upp og ofan en markvisst
fram á við, en enda með ósköpum
þegar réttvísin kennir félögunum
um skógarelda sem kvikna í ná-
grenni tilraunasvæðisins.
Heima fyrir skapast spennan í
loftinu þegar hið nýja áhugamál
tekur hug Hómers allan. John vill
fá son sinn niður í námuna, lítur á
hann sem sjálfsagðan erfðaprins
undirdjúpanna. Ekki síst eftir að
hann hættir námi um sinn og
hleypur í skarð föður síns er hann
slasast og er frá sem fyrirvinna
heimilisins. Homer er tvístígandi
um framtíðina en Riley og vinir
hans hvetja hann til að taka aftur
upp þráðinn og keppa um náms-
styrk fyrir framlag þeirra í þágu
vísindanna.
Af og til berast myndir sem
koma þægilega á óvart, Október-
himinn er sannarlega ein þeirra.
Jákvæð, hlý og mannleg, full af
einlægum, væmnislausum tilfinn-
ingum. Viðfangsefnið sígilt, leit
mannsins að betra lífi, könnun hins
óþekkta. Draumunum sem knýja
okkur áfram. Það eykur enn gildi
hennar að vera byggð á sönnum at-
burðum, byggð á minningum Hom-
ers, sem náði settu marki og vann
sitt ævistarf hjá NASA - Banda-
rísku geimferðastofnuninni. Leik-
stjóranum, John Johnston, og
Lewis Carlick handritshöfundi,
tekst að finna rétta tóninn. Strax í
upphafi glæða þeir frásögnina
töfraljóma ævintýrsins; geimvís-
indi og kolanámur Virginíu á sjötta
áratugnum eru í ljósárafjarlægð
hvort frá öðru. Þá velja þeir þann
kostinn að ráða óþekktan leikara,
Jake Gyllenhaal, til að fara með
erfitt og fyrirferðarmikið hlutverk
Homers. I stað þess að fá eitthvert
kunnuglegt sjónvarpskrúttið, líkt
og venjulega, er auðvelt að setja
sig í spor piltsins sem Gyllenhaal
gerir trúverðugan. Glæðir son
námumannsins þessum ódrepandi
eldmóði sem fær unga menn til að
verða stærri en umhverfi þeirra og
greiða götu þeirra úr fásinni í
fremstu röð samferðamanna. Jafn-
vel enn betri er stórleikarinn Chris
Cooper, fæddur í hlutverk kolan-
ámuverkstjórans. John verður í
hans höndum tákn suðurrískra
mannkosta; stoltur maður og heið-
arlegur og trúr sínum hnignandi
heimahögum. Samleikur þeirra og
samskipti eni hin mikilvæga
þungamiðja myndarinnar, eld-
flaugatilraunirnar kryddið. Sú al-
genga mynd sem dregin er upp í
bíómyndum af dæmigerðri, banda-
rískri fjölskyldu, fær óvenju djúpa
merkingu. Virðing fjölskyldunnar
fyrir heimilisföðurnum, byrgðar
tilfinningar meðal feðga, sem hafa
oftar en ekki gert þá þumbaralega,
jafnvel fáránlega, eru einstaklega
trúverðugar og einlægar í Októ-
berhimni. Handritið er kjötmikið,
leikstjórnin eftirtektarverð (mynd-
in er ekki fokdýr stórmynd heldur
er haldið óvenju vel á dölunum)
myndin er samt sem áður þeirra
Gyllenhaals og stórleikarans Coop-
er, sem fær einstakt tækifæri til að
viðra sjnar bestu hliðar og bregst
ekki. A a.m.k. skilið Oskarsverð-
launatilnefningu. Aðrir leikarar
standa sig vel og kvikmyndataka
Freds Murphy (Trip To Bountiful)
sveipar ævintýrið tilheyrilegri
dulúð og ljóma.
Sæbjörn Valdimarsson
Nýjar bækur
• SKAÐABÓTARÉTTUR-
Kennslubók fyrir byrjendur er
eftir Arnljót Björnsson, og kem-
ur nú út í annarri útgáfu. I henni
er fjallað um
helstu réttar-
reglur sem gilda
í íslenskum
skaðabótarétti.
Bókin er eink-
um ætluð sem
kennslubók fyr-
ir byrjendur en
kemur jafn-
framt að góðum
notum sem upp-
flettirit fyrir þá
sem fást við skaðabótarétt í störf-
um sínum, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Ennfremur segir: „I þessari út-
gáfu er í aðalatriðum byggt á
grunninum frá 1. útgáfu, sem
kom út árið 1986. Þó hafa orðið
miklar breytingar á löggjöf á
sviði skaðabótaréttar síðan þá og
því eru nokkrir kaflar í seinni
hluta bókarinnar nokkuð fyllri en
samsvarandi kaflar í fyrri útgáfu,
auk þess sem vísanir til um 90
hæstaréttardóma frá árunum
1986-1999 hafa bæst við.“
Höfundur bókarinnar, Arnljót-
ur Björnsson hæstaréttardómari,
var um árabil prófessor við laga-
deild Háskóla íslands og kenndi
þar m.a. skaðabótarétt.
Utgefandi er Bókaútgáfa Ora-
tors. Bókin er 210 bls. Verð: 5.900
krónur.
Arnljótur
Björnsson
Við þurfum ekki að opna nýja verslun í Finnlandi til þess að geta boðið
besta verdid
yy\jstercook
Ódýrustu eldavélar á
Islandi
\EDESA
\mmm irli
bvottavél 800 sn.
L841 Tekur 5 kg. af þvotti
13 þvottakerfi, flýtiþvottur,
ullarþvottakerfi, hitastillir o.m.fl.
i
j
J ,é . J .
Mistercook eldavél 2010
1 hraðsuðuhella, grill, o.fl. Stærð:
85x50x60
Mistercook cldiuél 7214
4 keramikhellur, grill, blástursofn
m/hitajafnara statrænni klukku o.fl.
Stærð: 85x60x60
Mastercook elðavél 2315
1 hraðsuðuhella, grill, blástursofn o.fl.
Stærð: 85x50x60
35.900-
Mastercook eldavél 7ð6
1 hraðsuðuhella, grill.o.fl.
Stærð: 85x60x60
38.900. -
Mastercook eldavél TM5
1 hraðsuðuhella, grill, blástursofno.fl.
Stærð: 85x60x60
43.900-
Mastercook eldavél 7242
Keramikhellur, grill, blástursofh, stafræn
klukkao.fi.
69.900. -
Mastorcook eldavél 7241
Burstað stál, keramikhellur, grill, blástursofn,
stafræn klukkao.fi. Stærð: 85x60x60
34.900
►
Creda Þurrkarí/37636E
m/rakaskynjara
Snýr f báðar áttir, 60 mín. tímastillir,
2 hitastillingar, rakaskynjari o.fl.
Barki fylgir með.
29.900-
89.900.-
Verð áður kr. 42.900.-
Dvottavél 1000 sn. 11041
Tekur 5 kg. af þvotti
13 þvottakerfi, flvtiþvottur,
ullarþvottakerfi, nitastillir o.m.fl.
►
29.900.- 69.900.-
39.900 -
á íslandi
EXPERT er stærsta
heimilis-og
raftæ kj a ve rs I u n a r keðj a
í Evrópu - ekki aðeins á
Norðurlöndum.
1
■
RflFTíEKJflUERZLUN ÍSLflNDSIE
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776