Morgunblaðið - 28.10.1999, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 28.10.1999, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN . FIB ruglar enn Á ÁRINU 1996 hóf Alþjóðleg miðlun ehf. í samstarfi við Félag íslenskra bifreiðaeig- enda (FÍB) að bjóða ökutækjatryggingar hér á landi. Vátr- yggjandinn var breskur, IBEX, sem starfaði innan Lloyd’s. Vátrygging- arnar voru og eru boðnar undir heitinu FÍB-trygging. IBEX hefur einkum boðið vátryggingar í Bret- landi, en einnig nokk- uð í öðrum ríkjum. Iðgjöld IBEX eru meiri en iðgjöld ökutækjatrygg- inga allra íslensku félaganna sam- anlagt, og iðgjaldatekjur íslensku félaganna eru einungis örlítið brot af tekjum þeirra, sem starfa innan Lloyd’s of London. FÍB hefur fjárhagslega hagsmuni af því að fá bifreiðaeigendur til að kaupa FÍB-tryggingu, því inn- heimtar eru auk iðgjaldsins um kr. 3.300.- af vátryggingartökum í formi félagsgjalds tiþFÍB. Þegar byrjað var að selja FÍB-trygging- una buðust ákveðnum hópum bif- reiðaeigenda töluvert lægri ið- gjöld en íslensku félögin buðu. Höfðu félögin talið, að afkoman í ökutækjatryggingum væri ekki slík, að unnt væri að lækka ið- gjöld mikið. Hvorki tjónatíðni né bótareglur hér á landi réttlættu það. Hér hlyti því að vera um að ræða undirboð, sem vart gætu staðið til langframa. Til að glata þó ekki viðskiptavinum sín- um færðu íslensku fé- lögin iðgjöld sín nær iðgjöldum FÍB- tryggingar. Miðað yið „raunverð" FÍB- tryggingarinnar (ið- gjöld ásamt FIB-ár- gjaldi) var bifreiða- eigendum oft gert að greiða jafnvel hærri fjárhæð en íslensku félögin buðu. Er þá ekki tekið tillit til þess viðbótarafslátt- ar sem stóð til boða hjá innlendu félögun- um, keyptu menn aðrar vátrygg- ingar fyrir sig og sína. Málsvarar FIB með fulltingi samkeppnisyf- irvalda komu í veg fyrir, að ís- lensku félögin bæru opinberlega saman, hver væri raunverulegur kostnaður við vátryggingatökuna hjá FIB-tryggingu. Jafnframt klifaði FÍB á því, að nú væri ljóst, að innlendu félögin hefðu okrað á bifreiðaeigendum. IBEX fyrir vonbrigðum í ársskýrslu IBEX fyrir árið 1998 kemur fram að starfsemin á íslandi hafi ekki staðið undir væntingum. I síðasta mánuði fóru að berast fréttir í fjölmiðlum þess efnis, að IBEX hygðist draga sig út af íslenska markaðnum. I stað þess að upplýsa bifreiðaeigendur um raunverulega ástæðu þess, þ.e. slæma afkomu, gripu mál- Tryggingar IBEX kom inn á ís- lenskan vátryggínga- markað í von um hagn- að, segir Sigmar Ármannsson. Ekki í greiðaskyni. svarar FÍB-tryggingar til hinna undarlegustu skýringa. í Mbl. 21. september sl. er haft eftir Hall- dóri Sigurðssyni: „Vegna mun betri _ viðbragða bifreiðaeigenda við FÍB-tryggingum en við bjugg- umst við upphaflega hefur tekið skemmri tíma að ná upp í þann fjölda, sem rammasamningur FÍB-trygginga við IBEX-trygg- ingafélagið í Bretlandi kvað á um.“ Því þurfi að semja við IBEX á nýjan leik. Hinn 26. september sl. hætti IBEX að taka nýjar öku- tækjatryggingar hér á landi. Þeg- ar enn var leitað skýringa hjá Halldóri svarar hann í Mbl. 12. október sl., að IBEX hyggist snúa sér alfarið að heimamarkaði. Þessi skýring málsvara FIB- tryggingar er ekki í nokkru sam- ræmi við ráðagerðir IBEX, eins og þær eru settar fram í síðustu skýrslu félagsins. Þar kemur fram, að IBEX hyggist styrkja stöðu sína erlendis. Séu til athug- unar nýir markaðir, bæði í og ut- Sigmar Ármannsson an Evrópu. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, tjáir sig svo í Mbl. hinn 16. október sl. um ástæður þess, að IBEX vill ekki lengur koma að FÍB-tryggingu. Er nú skýringin sú, að Samband íslenskra tryggingafélaga, í gegn- um samtökin Alþjóðlegar bif- reiðatryggingar á Islandi sf. (ABÍ), hafi reynt að leggja stein í götu FIB-tryggingar með því að taka að sér upplýsingagjöf til breskra vátryggjenda um ís- lenska bifreiðatryggingamarkað- inn, og hafí þar bifreiðatrygg- ingamarkaðurinn verið málaður dekkri litum en ástæða væri til. Hafi þetta orðið til þess, að IBEX ákvað að hætta starfsemi hér. Átti að neita IBEX um upplýsingar Öllum, sem selja ökutækja- tryggingar hérlendis, er skylt að eiga aðild að því félagi, sem gerir upp tjón af völdum óþekktra og óvátryggðra ökutækja, ber ábyrgð á akstri íslenskra öku- tækja erlendis og gerir upp tjón, sem erlend ökutæki valda hér á landi. Þeim útgjöldum, sem þessu eru samfara, verða öll vátrygg- ingafélögin að standa undir í hlut- falli við markaðshlutdeild sína. Alls staðar á Evrópsku efnahags- svæði er þessi háttur á hafður. Hér á landi er það ABI sem hefur þessi verkefni með höndum. Er stjórn og uppbygging félagsins með sama hætti og í öðrum ríkj- um. Vátryggjandinn IBEX, sem FÍB var í samstarfi við, varð aðili að ABÍ á árinu 1996. Meðal verk- efna ABI er að halda utan um lög og reglur, sem varða ökutækja- tryggingar, og hafa áhrif á starf- semi félagsins og þær skuldbind- ingar, sem á félagið og vátryggjendur kunna að falla. ABÍ upplýsir félögin um slíkt, einkum um breytingar á umferð- arlögum, t.d. árlegar breytingar á vátryggingafjárhæðum, og um breytingar á skaðabótalögum. Auðvitað var ABI skylt að koma þessum almennu upplýsingum á framfæri við IBEX eins og önnur aðildarfélög sín. Það er hins veg- ar engu líkara en framkvæmda- stjóri FÍB hafi ætlað að lokka IBEX til áframhaldandi sam- starfs með því að leyna IBEX upplýsingum. Slík vinnubrögð dæma sig sjálf, og eru ekki til þess fallin að skapa gagnkvæmt traust í viðskiptum. Villandi upplýsingar IBEX kom inn á íslenskan vá- tryggingamarkað í von um hagn- að, en ekki í greiðaskyni við ís- lenska neytendur. Samstarfið við FÍB-tryggingu stóð í þrjú ár. Af- koman í ökutækjatryggingum hér á landi stóð ekki undir vænting- um. Því fór sem fór. Alþjóðlegur vátryggjandi, IBEX, hefur hætt starfsemi sinni hér á landi. Skýringar málsvara FÍB-tryggingar um ástæður þess eru út í hött. Fullyrðing um að „bolabrögð" íslenskra keppinauta, eins og framkvæmdastjóri FIB segir í Mbl. hinn 16. október sl., hafi valdið þessari ákvörðun IBEX er í besta falli brosleg. Málflutningur FÍB-tryggingar virðist vera liður í því að drepa umræðunni á dreif og rugla neyt- endur í ríminu. Það hentar ekki fyrirsvarsmönnum FÍB að viður- kenna, að sjónarmið íslenskra vátryggjenda hafa reynst rétt. Höfundur er framkvæmdastjóri Sambands íslenskra tryggingafé- laga. DAIHATSU Fj ölnotasparnaður Hlaðinn búnaði Af ríkulegum staðalbúnaði Gran Move má nefna tvo öryggispúða, vökvastýri, rafdrifnar rúður og spegla, samlæsingu, útvarp og segulband með fjórum hátölurum, plussáklæði, fjóra höfuðpúða, tvískiptan málmlit og ræsitengda þjófavörn. Bíllinn er jafnframt fáanlegur með sjálfskiptingu og ABS-hemlalæsivörn. Rúmgóður og þægilegur Daihatsu Gran Move er rúmgóður og þægilegur fjölnotabíll sem hentar jafnt í snúninga sem ferðalög. Lofthæð er mikil og dyrnar stórar, þannig að auðvelt er að setjast inn og stíga út. Barnastólar valda engum erfiðleikum. Hægt er að stækka farangursrýmið í 800 lítra með því að fella niður bakið á aftursætinu. Gran Move sjálfskiptur 1.520.000 kr. - Gran Move beinskiptur 1.400.000 kr. brímborg Tvisturinn Faxastíg 36, Vestmannaeyjum Sfmi 481 3141 S í m í 5 1 5 7 0 0 0 Brimborg-Þórshamar Bíley Betri bílasalan Bílasalan Bílavík Tryggvabraut 5, Akureyri Búðareyri 33, Reyðarfirði Hrlsmýri 2a, Selfossi Holtsgötu 54, Reykjanesbæ Sími 462 2700 Simi 474 1453 Slmi 4823100 Sfmi 421 7800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.