Morgunblaðið - 28.10.1999, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Musharraf seg-
ir ríkisstjórn í
burðarliðnum
Islamahad. Reuters.
PERVEZ Musharraf, hershöfðingi
og æðsti valdamaður Pakistans eft-
ir valdarán hersins þar fyrir þrem-
ur vikum, sagði í gær að hann
myndi síðar í vikunni skipa nýja 12
manna ríkisstjórn. Sagði hann
meðlimi hennar verða valda „eftir
hæfni“.
Hershöfðinginn, sem í gær var
staddur í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum eftir viðkomu í
Sádí-Arabíu, sagði hins vegar ekk-
ert um hvenær efnt skyldi til kosn-
inga í landinu, en hann hefur sætt
gagnrýni erlendra stjómmálaleið-
toga fyrir að hafa ekki anzað
áskorunum þar að lútandi. Mus-
harraf hefur sagt að áður en hann
geri það vilji hann ganga milli bols
og höfuðs á landlægri spillingu og
endurreisa efnahaginn, sem er í
molum.
Musharraf hefur skipað fjóra
menn til að sitja ásamt sjálfum sér
og yfirmönnum flug- og sjóhers í
svokölluðu Þjóðaröryggisráði.
Þessir menn, auk nýútnefndra ráð-
herra fjár- og utanríkismála og rík-
issaksóknara, skipa kjama bráða-
birgðaríkisstjórnar Musharrafs,
sem kemur í stað hinnar föllnu
stjórnar Nawaz Sharifs, en í henni
sátu yfir 40 manns.
Sendinefnd Samveldisins
reynir að vitja Sharifs
Sendinefnd aðildarríkja Sam-
veldisins (áður Brezka samveldis-
ins) hélt í gær til Pakistans í því
skyni að gera úttekt á ástandinu í
landinu eftir valdaránið fyrir þrem-
ur vikum. Krefjast meðlimir nefnd-
arinnar, sem Lloyd Axworthy, ut-
anríkisráðherra Kanada, fer fyrir,
þess að fá að vitja Nawaz Sharifs,
fyrrverandi forsætisráðherra, en
hann hefur ekki sézt opinberlega
frá því honum var steypt af stóli
12. október.
Rétt áður en sendinefndin var
væntanleg til Islamabad greindi
pakistanskur hermaður frá því að
Sharif, sem er í varðhaldi hersins á
ókunnum stað, hefði átt samtal við
fjölskyldu sína, í fyrsta sinn frá
valdaráninu. Fram að þessu hefur
Sharif ekki verið leyft að eiga sam-
Föt á alla fjöisKyiduna
a frábæru versi
Fatamarkaðurinn Laugavegi 103
Sími: 562 3311
Reuters
Ibúar borgarinnar Lahore sýna stuðning sinn við valdarán hersins
með því að hampa veggspjaldi með málaðri mynd af Pervez Musharraf
hershöfðingja.
Deilur um
bók um Bush
halda áfram
skipti við nokkurn mann. Mann-
réttindasamtök, bæði í Pakistan og
alþjóðleg, hafa krafizt þess að
Sharif verði annað hvort birt form-
leg ákæra eða hann leystur úr haldi
og leyft að fá sér lögfræðing. Her-
inn sakar Sharif um spillingu og er
að taka saman gögn gegn honum.
Samveldið hefur gagnrýnt valda-
rán hersins í Pakistan harkalega
og leggur mikla áherzlu á að þar
verði sem allra fyrst snúið á ný til
lýðræðislegra stjórnarhátta.
Pakistan hefur verið hótað brott-
rekstri úr Samveldinu; endanleg
ákvörðun um hann verður tekin
síðar í mánuðinum.
„Við munum eiga viðræður við
hvern sem við getum hitt, til að fá
heildaryfirsýn yfir hvað er á seyði.
Við erum enn að reyna að fá að
hitta Sharif,“ sagði Axworthy. I för
með honum til Islamabad eru
starfsbræður hans úr ríkisstjórn-
um Malasíu, Ghana og Barbados,
en þessi ríki eiga öll aðild að „Ráð-
herraviðbragðshópi Samveldisins"
(Commonwealth Ministerial Action
Group), sem hefur það hlutverk að
rannsaka mannréttindabrot í Sam-
veldisríkjum. Þetta er fyrsta heim-
sókn háttsettra embættismanna
erlendra ríkja til Pakistans eftir
valdaránið.
The Washington Post.
AÐALRITSTJÓRI útgáfufyrirtæk-
isins St. Martin’s Press hefur
ákveðið að láta af störfum vegna
deilna um bók um George W. Bush,
líklegan forsetaframbjóðanda rep-
úblikana. Segir ritstjórinn, Robert
B. Wallace, að hann vilji ekki láta
bendla sig við bók, sem hann hafi
ekkert haft um að segja. „Eg hef
ekki einu sinni lesið bókina," segir
Wallace.
Bókin ber heitið „Hinn heppni
sonur“ og er þar fjallað um ævi og
störf Bush, sem nú sækist eftir til-
nefningu Repúblikanaflokksins, fyr-
ir næstu kosningar. Höfundur bók-
arinnar, J.H. Hatfield, heldur því
m.a. fram að Bush hafi verið hand-
tekinn í Texas árið 1972 fyrir að
hafa eiturlyf undir höndum en að
málið hafi verið látið niður falla fyr-
ir tilstuðlan föður hans, George
Bush, fyrrum forseta. Bush-feðg-
amir hafa báðir neitað þessum full-
yrðingum og segja þær uppspuna
og ekki hefur tekist að renna nein-
um stoðum undir staðhæfingar Hat-
fields.
Þegar í ljós kom, nokkrum dög-
um eftir útgáfu bókarinnar, að Hat-
field hafði sjálfur setið í fangelsi
fyrir að leggja á ráðin um að myrða
yfirmann sinn var upplag bókarinn-
ar, 90 þúsund eintök, innkallað og
ákveðið að eyðileggja það.
Málið hefur vakið upp nokkra
umræðu í Bandaríkjunum um
vinnubrögð bókaforlaga og þau ver-
ið sökuð um að vera of fús til að
ganga til samninga við höfunda,
sem lítil reynsla er af, segist þeir
hafa í fórum sér safaríkar upplýs-
ingar er kynt gætu undir sölu bók-
arinnar.
Egyptar hunsa leið-
togafundinn í Osló
Kaíró, Jerúsalcm, Bctlehem. Reuters. Ósló. Morgunblaðið.
EGYPTAR tilkynntu á þriðjudag
að þeir hefðu afþakkað boð Norð-
manna um að senda fulltrúa á leið-
togafundinn sem haldinn verður í
Ósló í næstu viku til að minnast
morðsins á Yitzhak Rabin, forsæt-
isráðherra ísraels, árið 1995. Ljóst
er að fundurinn getur orðið afar
mikilvægur vegna þess að auk for-
seta Bandaríkjana verða á staðn-
um forsætisráðherra Rússlands og
nýskipaður talsmaður Evrópusam-
bandsins í utanríkis- og varnarmál-
um, Javier Solana, auk helstu ráða-
manna ísraela, Palestínumanna og
fleiri þjóða.
Búist hafði verið við því að Amr
Moussa, utanríkisráðherra Eg-
yptalands, myndi sitja fundinn
sem fulltrúi Hosnis Mubaraks for-
seta. Moussa tilkynnti hins vegar
að af því yrði ekki. Arabískir og
evrópskir stjórnarerindrekar furð-
uðu sig á þessari ákvörðun Egypta
og sögðu hana óskiljanlega þar
sem þeir hefðu gegnt mikilvægu
hlutverki í friðarumleitununum.
Ráðgert er að Bill Clinton
Bandaríkjaforseti ræði við Ehud
Barak, forsætisráðherra ísraels,
og Yasser Arafat, leiðtoga Palest-
ínumanna, í Ósló til að freista þess
að blása lífií friðarviðræðurnar.
Stjórn ísraels hefur skipað
Oded Eran, sendiherra í Jórdaníu,
sem aðalsamningamann sinn í frið-
arviðræðunum í stað Gilads Shers,
er neyddist til að segja af sér
vegna reglna sem heimila ekki að
hann gegni opinberu embætti á
sama tíma og hann starfar sem
lögmaður. Palestínumenn höfðu
sakað ísraelsku stjórnina um að
hafa hindrað að viðræðurnar
kæmust á skrið með því að draga
það í margar vikur að skipa eftir-
mann Shers.
Blóðug átök í Betlehem
Hörð átök milli ísraelskra her-
manna og palestínskra ungmenna í
Betlehem hafa varpað skugga á til-
raunimar til að blása lífi í friðarvið-
ræðurnar.
Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, sem er í heimskókn í
Israel, aflýsti fyrirhugaðri ferð
sinni til Betlehem á mánudag
vegna óeirða sem blossuðu þar upp
eftir að ísraelskur hermaður skaut
Palestínumann til bana. Her ísra-
els segir að hermaðurinn hafi skot-
ið í sjálfsvörn þar sem Palestínu-
maðurinn hafi reynt að stinga hann
með hnífi. Palestínskir sjónarvott-
ar segja hins vegar að enginn hafi
ógnað hermanninum.
Hundruð Palestínumanna köst-
uðu grjóti að ísraelskum hermönn-
um eftir að Palestínumaðurinn féll
og ekkert lát var á óeirðunum í
gær. Hermennirnir og skutu
gúmmíkúlum á Palestínumennina
og særðu rúmlega 30 þeirra.
Ókyrrð var enn í borginni í gær.