Morgunblaðið - 28.10.1999, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
Eyrnaíokkagöt
Forkastanleg
vinnubrögð KSÍ
Nú einnig
100 gerðir af eymalokkum
3 stœrðir
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg (Simi^010)
r lStofnaS 1918 O
Frá Vigni Rúnarssyni:
AÐ FALLA niður um deild er
mönnum lítið ánægjuefni, en það er
ekki sama hvernig það á sér stað. I
flestum tilvikum er það styrkleika-
munur á liðunum sem ræður úrslit-
um og menn sætta sig venjulega við
það, en þegar lélegir dómarar og
stjórn þeiira mála eiga stóran þátt í
fallinu er erfitt að taka því með öllu
þegjandi.
Við Víðismenn undum því illa að
dómari skráður í Þrótti fengi það
verkefni að dæma leik Stjörnunnar
og Víðis í lokaumferðinni í 1. deild,
vegna þess að Þróttur var í fallbar-
áttunni, eins og Víðir, með einu
stigi minna. Auk þess hafði um-
ræddur dómari, Garðar Örn Hin-
riksson, reynst mjög glámskyggn í
starfi á leiktíðinni, en tólfunum
kastaði í bikarleik Vals og Víðis á
Hlíðarenda. Þar dæmdi hann víta-
spyrnu og brottvísun í byrjun leiks
á Víði og eyðilagði þar með leikinn,
fyrir eitthvað sem enginn sá, - víst
nema hann. Víðismenn óskuðu
skýringa á þessum furðudómi, bæði
hjá dómara og eftirlitsmanni og
einnig að fá að lesa skýrslu hans, en
var synjað með ónotum. Þess má
einnig geta að Garðar Örn neitaði
að taka í höndina á leikmönnum
Víðis í leikslok.
Ekki var því nema eðlilegt að
Guðjón Guðmundsson, þjálfari Víð-
is, óskaði eftir öðrum dómara en
Garðari í þennan þýðingarmikla
leik. Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, taldi það útilok-
að. Það væri löngu búið að raða
dómurum niður á leikina, hins veg-
ar gæti hann vel skilið okkar af-
stöðu. Einnig fór Þorsteinn Jó-
hannsson, formaður
knattspyrnudeildar Víðis, fram á
það sama, en Birkir Sveinsson mót-
astjóri tók það ekki í mál. Birkir
upplýsti hins vegar að upphaflega
hefði KA-dómari átt að dæma leik-
inn, en frá því hefði verið horfið fyr-
ir þremur dögum. Þá vaknaði sú
spurning, - hvers vegna og hver fór
fram á þá breytingu? Var t.d. ekki
alveg eins hægt að verða við ósk
Víðismanna um breytingu á dóm-
ara? Spyr sá sem ekki veit.
Svo vikið sé nánar að umræddum
leik, þá átti léleg frammistaða dó-
marans drjúgan þátt í því að hans
félag, Þróttur, hélt sæti sínu í 1.
deild og Víðir féll, með því að
sleppa augljósri vítaspyi'nu, fyrir
brot sem allir sáu, - nema hann.
Margir voru þeirrar skoðunar að
rétt fyrir leikslok, þegar staðan var
2-1 fyrir Stjörnuna, hafi knötturinn
farið yfir marklínu Stjörnunnar.
Þessi atvik ásamt reyndar mörgu
öðru skýra ótta Víðismanna við
Garðar sem dómara leiksins. Þess
má og geta að hann dæmdi leik Vík-
ings og KR í efstu deild og þar
fengu áhorfendur, bæði á leikvan-
ginum og í sjónvarpinu, að sjá hve
hrapallega hann vann sitt verk og
sannaði að hann veldur ekki verk-
efnum sínum með flautuna.
Víðismenn sætta sig við orðinn
hlut og eru staðráðnir í að vinna sig
upp í 1. deild að ári, en eins og fram
kemur í upphafi greinarinnar erum
við óánægðir með stjórn dómara-
málanna, sem hefur bitnað illa á
okkur, en við vonum hins vegar að
þeir vandi betur til verka á kom-
andi leiktíð.
VIGNIR RÚNARSSON,
gjaldkeri knattspyrnudeildar
Víðis, Garði.
Herra-
undirföt
KRINGLUNNI
SÍMI 553 7355
CITY - FAGAÐ OG TIMALAUST UTLIT
ecco
www.ecco.com
15%
kynningarafsláttur af öllum
ecco skóm 28. til 30. október.
CITY WALKER
13764
SKÓUERSLUN
KÓPAUOGS
HAMRABORG 3 • SÍMI SS4 1754