Morgunblaðið - 28.10.1999, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Furstarnir á Einari Ben
Góðhjartaðar söngstjörnur
TÓNLIST snillinga á borð við
Frank Sinatra hljómar á íimmtu-
dagskvöldum á veitingastaðnum
Einari Ben um þessar mundir og í
kvöld verður engin undantekning
þar á. Það er hljómsveitin Furstarn-
ir sem hefur sérhæft sig í að flytja
gömul gullkom en í kvöld verður
Bjartmar Þórðarson, dansari með
meiru, gestasöngvari með sveitinni.
- Hvernig vildi þnð til að Bjart-
mar er kominn í lið með ykkur
Furstunum?
„Það var vinkona mín sem kynnti
mig fyrir þessum unga og efnilega
manni,“ segir Geir Ólafsson söngv-
ari og klappar vinalega á bakið á
Bjartmari. „Hann tók íyrh- mig eitt
lag og ég heillaðist af röddinni."
Sungið íleikhúsi
- Hefur þú sungið mikið, Bjart-
mar?
„Já, ég hef verið _að syngja annað
slagið í leikhúsi. Ég hef sungið í
ýmsum söngleikjum með áhugaleik-
hópum og svo einnig í atvinnuleik-
húsi.“ Margh' muna sjálfsagt eftir
Bjartmari úr sýningum sem settar
voru upp í Verslunarskólanum er
hann var þar við nám, m.a. Saturday
Night Fever. Hann þótti sýna góða
takta, dansaði, söng og lék af mikilli
list.
- Geir, er þetta uppáhaidstónlist-
in þín sem þið eruð að fiytja?
„Já, ég tel mig vera mjög heppinn
með það að vera í þessum tónhstar-
bransa og vita nákvæmlega hvemig
tónlist ég vil syngja,“ segir hann
ákveðinn. „Ég var alinn upp við
þessa tónlist og hef mjög gaman af
henni. Hins vegar hlusta ég næstum
á hvaða tónlist sem er.“
-Hvaða lög æ tlarðu að syngja ?
Morgunblaðið/Sverrir
Þeir Geir
Ólafsson
og Bjartmar
Þórðarson
munu trylla
lýðinn á Einari
Ben í kvöld.
„Það á eftir að koma í ljós og von-
andi á óvart líka,“ segir Bjartmar
hlæjandi en gefur þó upp að þeir
Geir muni syngja saman lagið Fly
Me To The Moon saman við upphaf
tónleikanna.
- Verða þessir tónleikar einstak-
ur viðburður?
„Það er nú svo skemmtilegt við
lífið að framtíðin er óljós en hins
vegar er ekki nokkur vafí á því að ef
vel tekst til á Bjartmar eftir að
syngja með Furstunum aftur
seinna," segir Geir.
Furstamir munu halda áfram að
spila á Einari Ben næstu vikur en
hvað skyldi Bjartmai' vera að
bralla?
„Ég er í Háskólanum í bók-
menntafræði sem er alveg ofboðs-
lega skemmtilegt," svarar hann að
bragði. „Ég held að þetta nám geti
nýst mjög vel í leikhúsi sem annars
staðar."
Furstana skipa auk Geirs, Ami
Scheving, Carl Möller og Þorleifur
Gíslason að ógleymdum Papa Jazz,
Guðmundi Steingrímssyni sem varð
sjötugur á dögunum.
-Hafíð þið í Furstunum gefíð
eitthvað út?
„Það kemur út plata með mér eft-
ir áramótin,“ segir Geir. „Því miðui-
tókst mér ekki að gefa hana út á
þessu ári, en hún kemur. Furstamir
spila undir en þetta er sólóplata með
nokkmm fmmsömdum lögum auk
lánslaga."
- Þið seljið líka stuttermaboli fyr-
irgóð málefni, ekki satt?
„Já, ég afla styrkja frá fyrirtækj-
um til að kosta bolina," segir Geh'.
„Bolimir era merktir okkur Furst-
unum og allur ágóði af sölunni mun
renna til líknarmála; til krabba-
meinssjúkra og hjaitveikra barna.
Ég er að gera þetta af einlægni því
ég vil láta gott af mér leiða sem
söngvari. Þú getur rétt ímyndað þér
hvað ég á eftir að gera þegar ég er
búinn að slá í gegn.“
- Er það stefnan hjá þér?
„Já, það er nokkuð ljóst að ef ég
næ markmiði mínu mun ég leggja
mitt af mörkum til líknarmála, það
er engin spuming."
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 67
tidagskrá
Okkar vinsæla jólahlaðborð
hefst 26. nóvember.
Sum kvöld aö seljast uppl
Leikhúskjallaranum
með glæsilegum kvöldverði.
Sýningar á föstudags- og
laugardagskvöldum.
Tilvaliö fyrir hópa, stóra sem smáa.
Fjöllistahópurinn Hey,
blönduð dagskrá
með leik, söng
og dansi,
þar sem mörk
siðgæðisins
á ýmsum tímum
verða skoðuð.
Leikhúskjallarinn / Hverfisgötu 19 / Sími 551 9636
•S
C
Kringlukast 20%-30%
Skyrtur:
Kjólar:
Áður
Nú
2.495,-
3.495,
Áður
Nú
Buxur: Frá
Úlpur: (Sv/Hv) 5.995,-
3.495,
3.995,