Morgunblaðið - 12.11.1999, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. NÖVEMBER 1999 4l
LISTIR
Hluti af verki eftir Ingibjörgu
Jóhannsdöttur af sýningunni
Grafík í mynd sem sýnd er á
Kjarvalsstöðum.
Fjölskyldu-
dagurá
Kjarvals-
stöðum
Á KJARVALSSTÖÐUM verður
sameiginleg leiðsögn fyrir böm og
fullorðna um sýningar safnsins
sunnudaginn 14. október kl. 15.
Farið verður í ratleik ásamt safn-
kennara þar sem hver þátttakandi
fær í hendur tösku með vísbending-
um. Þær leiða hann að ákveðnum
verkum og vonandi að einhverri
lausn á þeirri þraut sem listin oft
er.
Leiðsögn sem byggð er upp á
leikjum og þrautum er nýjung í
starfsemi safnsins og er að jafnaði
einu sinni í mánuði.
Á sunnudag kl. 16 verður einnig
almenn leiðsögn um sýningarnar
Grafík ímynd sem er sýning á inn-
lendri og alþjóðlegri grafíklist og
Katla Rögnu Róbertsdóttur í
miðrými og utandyra
--------------
Verk úr reka-
viði í Keflavík
ÞÓRARINN Sigvaldason heldur
yfirlitssýningu á verkum sínum
helgina 13.-14. nóvember í Iðns-
veinafélagshúsinu, Tjarnargötu 7,
Keflavík.
Þórarinn vinnur mest úr rekavið
í bland við annan efnivið úr sjó.
Á sýningunni verða skúlptúrar,
módelsmíðuð sófaborð og fleira.
Verkin eru unnin á síðastliðnum
fjórum árum. Þetta er fjórða einka-
sýning Þórarins.
-----♦-♦-♦---
Verkúr
myndlistar-
maraþoni
NÚ stendur yfir í Gallerí Geysi,
Hinu húsinu v/Ingólfstorg sýning á
verkum úr myndlistarmaraþoni
Unglistar 99.
Þátttakendur í myndlistarmara-
þoninu fengu 42 klukkustundir til
að útfæra þemað „lífsstíll" og er nú
afrakstur 30 þátttakenda til sýnis í
galleríinu. Verðlaunaafhending fer
fram á morgun, laugardag, kl. 16.
Sýningin stendur til miðviku-
dagsins 17. nóvember.
Vertu í plús!
Rúmur frítími gefúr fyrirheit um að gera ýmislegt sem
alltaf hefur setið á hakanum. Láttu ekkert standa í
veginum, njóttu þess að vera til og hugsaðu um heilsuna.
Plús3 er nýtt viðbit sem er fituskert með smjörbragði
og inniheldur Omega-3 fitusýrur. Rannsóknir benda til
að þær hafi góð áhrif gegn teðaköUtun ogá hjarta. Einnig
inniheldur Plús3 A og D vítamin, en D vítamín er
forsenda þess að líkaminn geti nýtt kalk úr fæðunni og
varist þannig beinþynningu.
Hugsaðu um plúsana!
www.ostur.is
y