Morgunblaðið - 12.11.1999, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ
Ein niyndanna á veggspjaldi
Samtaka sykursjúkra.
Samtök syk-
ursjúkra gefa
út veggspjald
UT er komið veggspjald hjá Samtök-
um sykursjúkra sem ber yfirskrift-
ina „Kannast þú við þessi einkenni?“
Veggspjaldið er afsprengi hugmynd-
ar Þóru Jónsdóttur, framkvæmda-
stjóra samtakanna, sem kviknaði
þegar kona nokkur kom á skrifstof-
una og lýsti líðan sinni áður en syk-
ursýki uppgötvaðist.
Talið er að um 1000 íslendingar
eða fleiri séu með ógreinda sykur-
sýki. A meðan ekki fæst greining og
viðhlítandi meðferð skemmast líffæri
þeirra og þeir verða fyrir alvarlegu
heilsutjóni. Markmiðið með útgáfu
plakatsins er að ná til þessara ís-
lendinga sem eru með tegund 2 af
sykursýki án þess að vita af því.
Sykursýki ógnar velferð þeirra
sem eru komnir á miðjan aldur, eru
aðeins of þungir og eiga ættingja
með sykursýki. Þetta eru opinberar
staðreyndir frá Alþjóða heilbrigðis-
stofnuninni WHO varðandi insúl-
ínóháða sykursýki. Sífellt fleiri
greinast með sykursýki af tegund 2
og á næstu 12 árum er reiknað með
að 100 milljónir manna í heiminum
öllum bætist í hópinn. Á íslandi
verða þetta um 2000 manns.
Alþjóðadagur sykursjúkra er 14.
nóvember. Daginn áður standa sam-
tökin fyrir sykursýkisleit á höfuð-
borgarsvæðinu og hvetja þau til og
aðstoða við blóðsykurmælingar úti á
landsbyggðinni.
Dönsk hljöm-
sveit á
Naustkránni
UANSKA danshljómsveitin Hotline
leikur í Naustkránni laugardags-
kvöld en hljómsveitin leikur og
syngur tónlist frá 6. áratugnum.
Hljómsveitina skipa: Kom Schil-
icting, trommur, söngur, Dorthe
Jensen, hljómborð, söngur, Allan
Hansen, bassagítar, söngur og
Flemming Mikkelsen, gítar, söngur.
------------
Handverks-
markaður
í Garðabæ
HANDVERKSMARKAÐUR verð-
ur á Garðatorgi á morgun, laugar-
daginn 13. nóvember. Opið verður
milli klukkan 10 og 18. Kvenfélagið
sér um kaffisölu meðan á markaðn-
um stendur
FRÉTTIR
Erindi um öryggismál
á Norður-Atlantshafí
DAVID Ai’chitzel, flotaforingi og
æðsti yfirmaður varnarliðsins á Is-
landi, heldur erindi á sameiginlegum
fundi Samtaka um vestræna sam-
vinnu (SVS) og Varðberg í Sunnusal,
Hótel Sögu, laugardaginn 13. nóv-
ember nk. Fundurinn hefst stundvís-
lega kl. 12. Þetta er fjórði fyrirlestur
ársins um málefni Norður-Atlants-
hafsbandalagsins í tilefni 50 ára af-
mælis NATO.
Yfirmaður varnarliðsins mun
ræða um hlutverk varnarstöðvar
Norður-Atlantshafsbandalagsins
(NATO) á Keflavíkurflugvelli á þess-
um tímamótum og hvernig hann sér
hlutverk hennar þróast í náinni
framtíð. Ai’chitzel mun jafnframt
ræða um hlutverk varnarliðsins í for-
tíð, nútíð og framtíð. í máli sínu mun
flotaforinginn koma inn á öryggi og
skipulag á flutningum og aðdráttum
eftir siglingaleiðum Norður-Atlants-
hafsins.
David Architzel, flotaforingi, er
fæddur árið 1951 í Ogdensburg í
New York-fylki. Hann lauk BS
gi’áðu í stærðfræði frá US Navel
Academy árið 1973 en að því námi
loknu hóf hann flugnám í flugskóla
flotanst á Flórída, sem hann lauk
1975. Um svipað leyti lauk hann MS-
gráðu í flugkerfisfræði frá Uni-
versity of West-Florida. Hann hefur
frá þeim tímna gegnt fjölda trúnað-
arstarfa innan bandaríska flotans,
m.a. varð hann yfirmaður á lq'arn-
orkubátnum USS Dwight D. Eisen-
hower árið 1990. Architzel hefur
einnig stjórnað fleiri þekktum her-
skipum eins og t.d. USS Theodore
Roosevelt. Hann hefur hlotið margar
viðurkenningar og orður bandaríska
hersins og auk þess sæmdi Juan
Carlos, konungur Spánar, hann orð-
unnin Spanish Naval Cross og Merit
á sl. ári.
David Architzel var skipaður
æðsti yfirmaður varnarliðsins fyrr á
þessu ári. Hann og kona hans, Bar-
bara, eiga tvær dætur og einn son,
John, sem er á Islandi með foreldr-
um sínum.
Fundurinn er opinn félagsmönn-
um SVS og Varðbergs auk þess öllu
áhugafólki um erlend málefni Norð-
ur-Atlantshafsbandalagsins og þró-
un öryggis- og stjórnmála í Evrópu.
Námsmenn fá 50% afslátt.
-------♦-♦-♦-------
Basar Dóm-
kirkjunnar
á morgun
HINN árlegi basar Kirkjunefndar
kvenna Dómkirkjunnai’ verður á
morgun, laugrdaginn 13. nóvember,
og hefst hann kl. 14. Basarinn verð-
ur í Safnaðarheimili Dómkirkjunnar
í Lækjargötu 14a.
Á basarnum verða hefðbundnar
basarvörur og ýmsar aðrar vörur og
föndur og auk þess verður þar
kökubasar þar sem áreiðanlega má
gera góð kaup fyrir jólin, segir í
fréttatilkynningu. Einnig verður
þar kaffi og vöfflur með sultu og
rjóma á vægu verði.
Allur ágóði af basarnum rennur
til líknarmála sem kirkjunefndai’-
konur vilja styðja og ber þar hæst
gjafir til líknarmála og til að prýða
Dómkirkjunnar.
20-40% afsláttur
til 26. nóvember
Rýmum fyrir nýjum vörum
Nýtt kortatímabil
Við ætlum að vera
flottar um jól og .
FTTTíHWiTíTEir
nfQO/c afmœlisafsia^
r föstudag og laugardag **
Full búð af nýjum vörum
IANA
Itölsk barnaföt
jJHS'
Lieaefínd Oua/itSt
Þýsk barnaföt
Skólavörðustíg 10 sími 551 1222
_______opið laugardag 10-16_______
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999 71
Glæsilegir amerískir rafmagnsnuddpottar
Acrylpottur í rauðviðargrind.
Innb. hitunar- og hreinsikerfi.
Vatns- og loftnudd. Engar leiðslur
nema rafm. 16 amp.
Einangrunarlok með læsingum.
Sjálfv. hitastillir.
Tilbúnir til afhendingar.
Nokkrir pottar á ótrúlegu verði kr. 410.000 staðgr.
Sýningarsalur opinn alla daga
VESTAN ehf., Auðbrekku 23, 200 Kópavogi,
sími 554 6171, fars. 898 4154.
r 4
■
Frábær tilboð
Blússur
Polyester-Velour.
Sídd u.þ.b. 70 sm.
Dragtir í úrvali
Allar stærðir - margir litir.
Verð frá kr. 2.900,- - 9.900,-
(Sluelle
DALVEGUR 2 - KÖPAVOGUR
SÍMI: 564 2000
4.990,
Fallegur jakki.
Sídd u.þ.b. 82 sm.
100% polyester
stretch efni.
Fóðraður.
3.750,
Stepp-jakki
með kraga.
Góðir vasar.
Vatteraðir og
fóðraðir.
Sídd u.þ.b. 82 sm.
890,
Shopper.
Falleg bæjar-
taska með
góðum hólfum.
AUGIÝSINGAOEIID
Sími: 569 1111 « Bréfsimi: 569 1110* Netfang: augl@mbl.is