Morgunblaðið - 14.11.1999, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 7/11-13/11
►HLÝTT var um land allt í
vikunni og mældist hiti
víða 10-15 stig á miðviku-
daginn. Mestur hiti mældist
þó á Seyðisfirði, eða 19,7
gráður á þriðjudag. I
Algarve í Portúgal og
Messina á Ítalíu mældist
hitinn 18 stig og virðast
Seyðfirðingar því hafa not-
ið mestu verðurblíðunnar.
►ÞOTU Flugleiða með 112
manns um borð á leið til
Halifax á Nýfundnalandi
sneri aftur til Keflavíkur sl.
mánudagskvöld vegna bil-
unar í vökvakerfum væng-
barða. Stuttan tima tók að
gera við bilunina og hélt
vélin aftur af stað til
Nýfundnalands eftir við-
gerð. Talsmaður Flugleiða
lagði áherslu á að aldrei
hefði verið hætta á ferðum
fyrir vélina eða farþega
hennar.
► TALIÐ er að vinna megi
1.600 gígavattstundir á ári
úr þekktum jarðhitasvæð-
um á Norðausturlandi þeg-
ar í lok ársins 2003, ef fjór-
ir nýir virkjunarstaðir
standa undir væntingum.
Þetta er niðurstaða grein-
argerðar Orkustofnunar
um jarðhitagufustöðvar á
Norðausturlandi, sem Val-
garður Stefánsson og Ás-
grímur Guðmundsson
skrifa. Samkvæmt greinar-
gerðinni gæfu slikar fram-
kvæmdir meiri orku en
Fljótsdalsvirkjun.
►HÆSTIRÉTTUR hefur
dæmt manni 20 þúsund
krónur í bætur vegna hand-
töku. Rétturinn sagði það
andstætt ákvæðum laga um
meðferð opinberra mála að
halda manninum í fanga-
geymslum eftir að í ljós
kom að ekki var ástæða til
að gruna hann um lögbrot.
Kio Briggs handtek-
inn í Danmörku
BRETINN Kio Alexander Briggs var
handtekinn sl. sunnudag í Sönderberg á
Jótlandi vegna 800 e-taflna og var úr-
skurðaður í þriggja vikna gæsluvarð-
hald. Hann var handtekinn hér á landi
þegar hann kom til landsins með 2.000
e-töflur, en var sýknaður í Hæstarétti í
júlí sl. vegna vafa í málinu. Verjandi Kio
Briggs hér á landi telur ekki að hand-
taka Kios í Danmörku hafi áhrif á
skaðabótamál sem Briggs fyrirhugar að
höfða gegn ríkinu, og nemur skaða-
bótakrafan 27 milljónum króna.
Hækkun leikskóla-
gjalda hafnað
Á FUNDI Reykjavíkurdeildar Lands-
samtaka foreldrafélaga leikskólabarna
si. fimmtudag var samþykkt að krefja
borgaryfirvöld um lausn núverandi
vanda leikskólanna og hafnaði fundur-
inn alfarið væntanlegri hækkun leik-
skólagjalda. Foreldrar lýsu yfir óá-
nægju sinni með aðgerðir borgaryfir-
valda og m.a. kom fram að nýr dvalar-
samningur kunni að vera ólöglegur.
Borgarráð samþykkti sl. þriðjudag að
auka framlög til leikskóla og endur-
skoða hlutdeild foreldra í kostnaði.
Þingsályktunartillaga
um framkvæmdir við
Fljótsdalsvirkjun
ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA iðn-
aðarráðherra um framhalda fram-
kvæmda við Fljótsdalsvirkjun var lögð
fram á Alþingi á fóstudaginn. Meðal
fylgiskjala með tillögunni er skýrsla
Landsvirkjunar um umhverfisáhrif sem
kynnt var sl. fimmtudag. Reiknað er
með áð iðnaðarráðherra mæli fyrir til-
lögunni á þriðjudag nk. og að fyrsta um-
ræða fari fram um hana á þriðjudag og
miðvikudag. Friðrik Sophusson, for-
stjóri Landsvirkjunar, vonast til þess að
ákvörðun Alþingis liggi fyrir áður en
þingi verður slitið fyrir jól, svo sam-
starfsáætlun Landsvirkjunar og Hydro
Aluminium fái staðist.
Óttast að Indónesía
leysist upp
HUNDRUÐ þúsunda manna söfnuðust
saman á miðvikudag í Banda Aceh, höf-
uðstað Aceh-héraðs í Indónesíu, til að
krefjast stofnunar sjálfstæðs ríkis í hér-
aðinu. Var þetta fjöl-
mennasta samkoma
aðskilnaðarsinna í
sögu indónesíska rík-
isins en öryggissveit-
irnar, sem eru sagðar
hafa kynt undir sjálf-
stæðiskröfum með
hrottaskap og
grimmd, voru hvergi
sjáanlegar.
Abdurrahman Wahid, forseti
Indónesíu, léði máls á þjóðaratkvæða-
greiðslu um sjálfstæði Aceh og sagði að
stjórnvöld myndu virða niðurstöðu
hennar. Þingmenn í Indónesíu sögðust
hins vegar andvígir því að Aceh fengi
sjálfstæði.
Amien Rais, forseti Þjóðarráðsins
(MPR), æðstu löggjafarsamkundu
Indónesíu, varaði við því að yrði hérað-
inu leyft að lýsa yfir sjálfstæði blasti við
upplausn ríkisins.
„Skelfílegt ástand“
í búðum Tsjetsjena
NORÐMAÐURINN IGm Traavik, sem
fór fyrir sendinefnd Oryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu (OSE) í Tsjet-
sjníu, hvatti á fimmtudag Rússa og
þjóðir heims til að leysa vanda þeirra
200.000 manna sem flúið hafa Tsjetsjmu
síðustu vikur vegna árása Rússa. Travik
sagði að ástandið í flóttamannabúðun-
um í Ingúsetíu, nágrannahéraði Tsjet-
sjníu, væri „skelfilegt" og aðgerða væri
þörf í snatri.
Átökin í Tsjetsjníu verða tekin til um-
fjöllunar á leiðtogafundi ÖSE í Tyrk-
landi á fimmtudag og föstudag. Vest-
ræn ríki hafa hert gagnrýni sína á árás-
ir Rússa fyrir fundinn og ítrekað hvatt
þá til að hefja friðarviðræður við yfir-
völd í Tsjetsjníu.
► TIJGIR manna týndu lífi
þegar sex hæða fjölbýlishús í
bænum Foggia á ftalíu
hrundi á fimmtudag.
Björgunarsveitir höfðu
fundið 29 lik í rústunum á
föstudag og 30 manna til
viðbótar var enn saknað. 17
manns var bjargað en talið
var ólíklegt að fleiri myndu
finnast á Iífi eftir að eldur
kviknaði í rústunum á
fóstudag.
► ÞEIR þrír menn, sem mest
komu við sögu á lokaspretti
kalda stríðsins - Helmut
Kohl, Mikhafi Gorbatsjov og
George Bush - áttu
endurfundi f Berlín á
mánudag í tengslum við
hátíðahöld í tilefni af því að
tíu ár eru liðin frá falli
Berlfnarmúrsins, helsta
tákns járntjaldsins.
► DAVID Trimble, leiðtoga
stærsta flokks
sambandssinna (UUP) á
Norður-írlandi, tókst ekki að
te\ja flokksbræður sína á
norður-írska þinginu á að
samþykkja tillögur um
hvernig standa eigi að
afvopnun Irska
lýðveldishersins (IRA) og
myndun heimastjórnar í
héraðinu. Fjórtán þingmenn
UUP munu hafa hafnað
tillögunum og þrettán stutt
þær .
► MICHEL Camdessus,
framkvæmdastjóri
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
(IMF), lilkynnti á þriðjudag
að hann hygðist láta af
embætti í febrúar af
pcrsónulegum ástæðum.
Hann sagði að lygn sjór
virtist framundan í
efnahagsmálum heimsins
og liann hefði ákveðið að
draga sig í hlé.
FRÉTTIR
Delta hf. hlýtur viðurkenningu Lagnafélags Islands
Flókin lag’iiaverk
og til fyrirmyndar
Morgunblaðið/Ásdís
Róbert Wessman, framkvæmdastjóri Delta hf., tekur við viðurkenn-
ingunni „Lofsvert lagnaverk" úr hendi Ingibjargar Pálmadóttur heil-
brigðisráðherra. Fyrir aftan þau stendur Krislján Ottósson, fram-
kvæmdasljóri Lagnafélags Islands.
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA,
Ingibjörg Pálmadóttir, afhenti á
föstudag Lyfjaverksmiðjunni Delta
hf. viðurkenningu Lagnafélags Is-
lands, „Lofsvert lagnaverk 1998“.
Lagnafélagið hefur frá árinu 1990
veitt viðurkenningar fyrir lagna-
verk í nýbyggingu á Islandi sem
þykja framúrskarandi í hönnun og
uppsetningu.
Áð þessu sinni hlýtur ný lyfja-
verksmiðja Delta hf. í Hafnarfirði
viðurkenningu fyrir hve vel og fag-
mannlega var staðið að hönnun og
úrvinnslu lagnaverka í verksmiðj-
unni. I áliti viðurkenningarnefndar
Lagnafélagsins segir meðal annars:
„Heildarverk við lagnir í lyfja-
verksmiðju Delta hf. eru öll til fyrir-
myndar. Aðgengi að öllum tækjum
og lögnum er mjög gott, handverk
iðnaðarmanna allt til fyrirmyndar,
handbækur lagnakerfa og sérlega
vel unnið tölvustýrt þjónustu- og
viðhaldskerfi er til eftirbreytni."
Einnig segir: „Lagnakerfi nýbygg-
ingar Delta hf. eru afar flókin. Um
er að ræða fimm aðskilin loftræsti-
kerfi sem þjóna ólíkum kröfum og
þar að auki eru sérhæfð kerfi sem
tengjast framleiðslubúnaði, með
heildarloftmagn um 130.000
rúmmetrar á klukkustund. Einnig
er um að ræða mjög sérhæfð pípu-
lagnakerfi."
Viðurkenningarnefndin veitti
lagnakerfi hússins við Fellsmúla 17
til 19 einnig viðurkenningu fyrir
lofsvert handverk í flokki smærri
lagnaverka og hús Endurmenntun-
arstofnunar Háskóla íslands fékk
viðurkenningu fyrir það frumkvæði
að taka upp nýjungar við notkun
kælirafta.
Moggabúðin opnuð á Netinu
Á VEFNUM mbl.is hefur verið
opnuð Moggabúð. I búðinni er
hægt að kaupa merktar smávör-
ur, boli, húfur, töskur, golfkúlur,
músamottur og klukkur á meðan
birgðir endast.
Islandspóstur hefur tekið að
sér að komá vörunum í hendur
viðtakanda hvort heldur er heim
eða á vinnustað. Allar kaupupp-
lýsingar eru dulritaðar, þ.e.
greiðslukortanúmeri er breytt í
leynilegan tölvukóða og eru því
viðskipti með greiðslukort örugg
á Netinu. í tilefni opnunarinnar
fá fyrstu 50 sem versla í búðinni
ókeypis hliðartösku og bíómiða.
„Við höfúm rekið búðina í
nokkur ár en ekki kynnt hana
með öðrum hætti en sýningar-
skáp í anddyri Morgunblaðshúss-
ins. Til að auðvelda fólki kaup úr
búðinni ákváðum við að nýta
okkur Netið. Nú geta allir sem
aðgang hafa að Netinu farið inn
á mbl.is, kíkt i' búðina á þeim
tima sem hentar, sent okkur
pöntunina og Islandspóstur keyr-
ir vörurnar til viðtakanda. Kaup
í búðinni eiga að vera einföld og
er hægt að smella á allar vörurn-
ar og fá þá stærri mynd. Stefnt
er að því að bjóða síðan reglu-
lega nýjar vörur á hagstæðu
verði,“ segir Margrét Kr. Sigurð-
ardóttir, markaðsstjóri Morgun-
blaðsins.
Útboð á skólaakstri
Skaðleg áhrif
á samkeppni
ÚTBOÐ Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu á skólaakstri
fyrir fötluð börn er, í nýlegri
ákvörðun Samkeppnisráðs, talið
hafa haft skaðleg áhrif á sam-
keppni. Jafnframt er kveðið upp úr
með að útboðið hafí ekki verið í
samræmi við góða viðskiptahætti.
Umrædd útboð fór fram vorið
1998 og var í framhaldi kært til
samkeppnisyfirvalda. Samkeppnis-
ráð kemst að þeirri niðurstöðu að
forsendur útboðsins hafi ekki verið
raunhæfar að því leyti að ekki sé
unnt að veita þá þjónustu sem boðin
var út á grundvelli úboðslýsingar.
Með þessu hafi Samtök sveitarfé-
laga raskað jafnræði tilboðsgjafa
með óraunhæfum úboðslýsingum og
þar með útilokað keppinauta frá
markaðnum.