Morgunblaðið - 14.11.1999, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1999 11
Morgunblaðið/Kristinn
FERÐASKRIFSTOFA
Á HVERJU HEIMILI?
„Það hefur örugglega hvergi gerst
að 2% einhverrar þjóðar hafi keypt
eitthvað á Netinu - hvað þá af einu
fyrirtæki! Þetta snertir þessa net-
tilraunastofu sem ég nefndi áðan og
skiptir ekki bara okkur máli heldur
íslenskt viðskiptalíf í heild. Menn
verða að koma auga á þennan mögu-
leika og vera tilbúnir að fjárfesta í
honum til að taka áhættuna.“
Markaðshlutdeild
Flugleiða minnkar
Flugleiðir eru fyrst og fremst á
erlendum markaði. 80% tekna fé-
lagsins af millilandaflugi koma er-
lendis frá. „Við erum meira að segja
komnir með tiltölulega litla mark-
aðshlutdeild á Islandi og það er hlut-
ur sem menn átta sig ekki á. Ein-
ungis 50% Islendinga sem fljúga til
útlanda í leiguflugi og áætlunarflugi
fara með Flugleiðum. Markaðurinn
hefur vaxið mjög hratt en okkar
hlutdeild farið minnkandi. Mest var
hún yfir 80% en að hluta til er þetta
vegna þess að við erum ekki lengur
með leiguflugið, til dæmis til sólar-
landa. Fyrir sjö til átta árum vorum
við með allt leiguflug fyrir Úrval-
Útsýn, sem við eigum meira og
minna, en bæði það fyrirtæki og
Samvinnuferðir-Landsýn skipta nú
við Atlanta af því að það er hag-
kvæmara fyrir þau. Atlanta getur
boðið leiguflugsþjónustuna ódýrari
en við vegna þess hve félagið er með
stórar vélar.
Ef við ætluðum okkur að vera
með samsvarandi verð og bil á milli
sæta og Atlanta þyrftum við að vera
með 220 sæti í 757-vélunum okkar,
en erum með 189. Bretar fara meira
að segja upp í 235 sæti í sínum 757-
vélum. Þar munar 46 sætum! Þessu
viljum við hins vegar ekki breyta.“
Gífurleg breyting
á einum áratug
Uppstokkun fyrirtækisins hófst
fyrir alvöru 1989. „Við byrjuðum ár-
FRAMTÍÐIN er hugsanlega sú
að fólk kaupi flugmiða si'na í si-
auknum mæli á Netinu í tölv-
unni heima hjá sér. En skyldi
jafnvel fara svo að fólk skipu-
legði ferðir sinar einnig sjálft í
framtíðinni? Flugleiðamenn
trúa því að svo geti farið,
a.m.k. til staða eins og íslands,
og eru með 1 þróun hugbúnað í
þessum tilgangi, sem þeir segja
einstakan f heiminum.
„Þetta er mjög háþróað
kerfi, sem verður til þess að
neytandinn getur raðað saman
sinni eigin ferð heima hjá sér á
vefnum, og þarna verður hægt
að markaðssetja alla ferðaþjón-
ustu á íslandi á einum stað á
Netinu," segir Steinn Logi
Björnsson, framkvæmdastjóri
sölu- og markaðssviðs.
„Viðskiptavinurinn slær inn
upplýsingar um það hvað hann
vill sjá og gera og á hvaða tíma,
og sfðan skipuleggur töivan
ferðina fyrir hann. Hann gæti
óskað eftir bændagistingu í
Eyjafirði, hestaferð í Skaga-
firði, viljað fara til Vestmanna-
eyja, Mývatns og upp á jökul -
slær inn óskir sfnar og tölvan
raðar ferðinni sfðan saman og
sér hvort hún passar í tíma og
rúmi. Hún þekkir allar flugsam-
göngur og aðrar ferðir, hversu
langan tíma tekur að komast á
milli staða og þess háttar."
Nokkrir undirverktakar
koma að verkefninu og eru allir
gífúrlega spenntir fyrir því, að
sögn Flugleiðamanna. „Island
er svolftið sérstakt, eins konar
tilraunastofa varðandi Netið
eins og við segjum stundum. Við
höfúm hugsað okkur að byrja
með þetta fyrir ísland en í fram-
tfðinni gæti fólk einnig skipu-
lagt ferðir annað. Ekki Mallorca
eða Bandaríkjanna; allar ferða-
skrifstofur bjóða upp á alls kyns
ferðir þangað, en ég nefhi Nova
Scotia, Alaska, Nýja Sjáland,
Ástralíu og Noreg. Víða erlend-
is vita ferðaskrifstofúr h'tið um
ísland og hættan er sú að það
verði hreinlega til trafala. Að
annaðhvort séu gefnar lélegar
upplýsingar vegna vankunnáttu
eða viðskiptavininum sé hrein-
lega beint eitthvert annað; á
stað sem starfsfólkið þekkir bet-
ur. Þetta er því mikið tækifæri
fyrir Island.“
Apparatið er dýrt og mark-
aðssetning mun lfka kosta sitt.
En ekki er loku fyrir það skotið
að það verði komið f notkun
strax á næsta ári. „Þetta gæti
auðvitað misheppnast en gæti
líka slegið í gegn.“
Hugmyndin að þessu fyrir-
bæri varð til þjá Flugleiðum en
stefnan er að öll fslensk ferða-
þjónusta geti verið með þegar
þar að kemur. „Við sendum 900
fyrirtækjum spurningalista
vegna þessa, áður en farið var
af stað í þróun, og 650 svöruðu,
sem eru frábærar viðtökur."
Flugleiðamenn segja að ein-
hvers staðar í heiminum sé ef-
laust einhver að þróa eitthvað
svipað og hér um ræðir, en
spurningin sé hver verði fyrst-
ur á markaðinn.
ið áður en meginbreytingin hófst
1989. Þá kom fyrsta nýja þotan þeg-
ar við byrjuðum að endurnýja flug-
vélaflotann.“
Á þessum tíma snerist allt
Norður-Atlantshafsflug fyrirtækis-
ins um ferðir milli Lúxemborgar og
Bandaríkjanna. Fjórar DC 8-vélar
fóru á dag til Lúxemborgar en til
samanburðar má geta þess að sex
•slíkar fóru til Þýskalands á vegum
Flugleiða allt sumarið 1989! Þar var
um að ræða eina ferð á viku í einn
og hálfan mánuð yfir sumartímann.
„Við vorum með rúmlega 30% mark-
aðshlutdeild til íslands frá Þýska-
landi en Arnarflug var með mjög
mikið af fluginu hingað." Þetta vor
fór Steinn Logi Bjömsson, sem nú
er framkvæmdastjóri sölu- og mark-
aðssviðs, til Þýskalands og tók við
sem svæðisstjóri á meginlandinu.
Hann fór út með þau skilaboð í
farteskinu að næsta sumar yrði
ferðum fyrirtækisins til Lúxemborg-
ar fækkað úr fjórum á dag í eina og í
stað þess að allt kapp væri lagt á að
bjóða upp á ódýr fargjöld milli Lúx-
emborgar og Ameríku yrði áhersla
lögð á að fara að selja ísland.“
Raunar var hafist handa við
tvennt; að fjölga ferðum til íslands
og tengja aðra viðkomustaði Flug-
leiða en Lúxemborg við Ameríku.
Og nú, tíu árum síðar, fer fjórðung-
ur farþega Flugleiða frá Bandaríkj-
unum til meginlands Evrópu, íjórð-
ungur til Bretlands, fjórðungur til
Skandinavíu og fjórðungur til ís-
lands. Áður fóru hins vegar 95% far-
þega félagsins frá vesturheimi til
Lúxemborgar!
Flugleiðamenn segja lykilatriði í
því að breytingin gat orðið að veru-
leika að Flugstöð Leifs Eiríkssonar
var tekin í notkun. Það gerðist 14.
október 1987 og sú aðstaða sem þar
skapaðist var alger forsenda áður-
nefndra breytinga. Hún varð skipti-
stöð, félagið tók í notkun nýjar vélar
og fór samtímis að bjóða upp á nýtt
farrými, Saga Class. Eigið fé fyrir-
tækisins var mjög lítið, að sögn for-
ráðamanna þess, árið 1989. I heilan
áratug þar á undan var staðan raun-
ar mjög slæm en eftir að tengikerf-
inu var breytt og flugflotinn hafði
verið endurnýjaður batnaði afkoma
félagsins mjög og eigið fé jókst. „Við
fórum út í flugvélaviðskipti tengd
þessu og fyrirtækið í dag er allt ann-
að en það var þarna. Við erum með
nýjan flugflota, einn þann yngsta í
heimi og erum reyndar að byrja að
endurnýja hann aftur, fyrirtækið er
fjárhagslega sterkt, við höfum
stokkað upp innri uppbyggingu þess
- farið í gegnum ákveðinn heilaþvott
hér innanhúss með - og erum nú
búnir undir baráttuna í þessari nýju
veröld sem er nokkuð ógnvekjandi
en alveg gífurlega spennandi. Net-
byltingin, sem við höfiim trú á að við
stöndum frammi fyrir, er alveg ótrú-
leg.“
Sigurður segir Island að mörgu
leyti einstakt „og segja má að við sé-
um líka einstakt fyrirtækij sem kem-
ur okkur til góða núna. Eg held að
ekkert fyrirtæki í allri þessari ferða-
keðju sé í jafn mikilli snertingu við
viðskiptavininn, alveg frá því hann
pantar ferðina og þar til hann hefur
upplifað hana. Við erum í landkynn-
ingu og vitum hvernig viðbrögð eru
við henni, erum með vöruþróun af
því að við eigum ferðaheildsala á
markaðnum og erum að búa til
pakkana og svo mætti telja.
SAS er til dæmis bara í því að
flytja farþega og helst á viðskiptaf-
arrými. Fyrirtækið var í alhliða
ferðaþjónustu en seldi þau fyrir-
tæki; er að vísu hluthafi í hóteli en
það er rekið alveg sjálfstætt. Það að
vera í þessu öllu er fyrst og fremst
leið okkar út úr smæðinni, og
smæðin verður eiginlega okkar
styrkur."
Sigurður segir markmið Flugleiða
að skapa fyrirtækinu ímynd þannig
að það verði öðruvísi en stóru flugfé-
lögin, því erfitt sé að keppa við þau
með þeirra vopnum á þeirra vígvelli.
„Fáein stór bandalög í flugrekstri
stjórna helmingnum af öllu flugi í
heiminum í dag og allar horfur á að
sú þróun gangi enn lengra. Því er
spurning hvort við getum skapað
okkur öðruvísi ímynd en aðrir sem
gerir okkur að áhugaverðum kosti.
Ef ekki gætum við þurft að flýja inn
í eitthvert slíkt bandalag. Við viljum
það ekki og verðum því að reyna
þetta; ef við gerum ekkert er óhjá-
kvæmilegt að við endum í slíku
bandalagi."
Sigurður heíúr nefnt þá hugsan-
legu þróun að viðskiptavinurinn
kaupi í farmiða í mjög auknum mæli
beint af flugfélögum, en segir þró-
unina vissulega geta orðið þveröf-
uga. Hann upplýsir að í dag séu
seldar pakkaferðir á vegum Flug-
leiða í nafni verslanakeðja eins og
Horten og Karstad í Þýskalandi, „og
ef svo verður áfram er þessi sýn
okkar á beint samband flugfélagsins
við viðskiptivininn að engu orðin.
Svo gæti auðvitað farið að þekkt fyr-
irtæki á öðrum vettvangi,“ segir
hann - og nefnir verslanakeðjuna
Wal-Mart í Bandaríkjunum sem
dæmi - „færi að selja flugsæti í
gegnum netverslun sína; keypti þau
af einhverjum flugfélögum, sem sæu
síðan eingöngu um að fljúga. Að
flugfélögin yrðu sem sagt þrælar
annarra. Þetta er hugsanleg þróun.
Eða að ferðaskrifstofur og ferða-
heildsalar yrðu í þessu hlutverki og
flugfélögin þrælar þeirra. Allir Am-
eríkanar þekkja Wal-Mart en miklu
færri American Airlines," segir Sig-
urður.
„Það er gífurlega mikilvægt fyrir
okkur og alla aðra sem standa
frammi fyrir þessum rosalega snjó-
bolta, sem tækniþróunin er, að líta
ekki á breytingamar sem ógnun
heldur tækifæri. Það er grundvallar-
atriði. Margir sjá aðeins vandamálin
og hafa miklar áhyggjur af breyting-
um, en það er vonlaust að reyna að
stöðva þær. Hægt er að setja þetta í
sögulegt samhengi því hið sama ger-
ist á öllum tímamótum í sögunni.
Stofnanir eða fyrirbæri sem eiga
mjög sterk ítök og hagsmuni í kerf-
inu eins og það var verða fórnarlömb
breytinga ef þau skynja þær ekki
tímanlega. Og við erum ákveðnir í að
verða ekki fórnarlömb heldur nýta
tækifærin sem breytingarnar veita
okkur.“