Morgunblaðið - 21.11.1999, Side 30
30 SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sverrir
Ari Arnalds, framkvæmdastjóri Verk- og kerfísfræðistofunnar, segir viðskiptavini verða að geta treyst því að fá aðgang að sérfræðiþekkingu á
öllum stigum þjónustunnar, ekki aðeins að hluta til.
STYRKUR OG SÉR-
STAÐA í GÆÐAKERFI
VIÐSHPTIAIVINNULÍF
Á SUNIMUDEGI
► Ari Arnalds er fæddur í Reykjavík 15. desember 1944. Hann
varð stúdent frá stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavilí
1964, lauk B.Sc.-námi í eðlis- og stærðfræði frá Liverpool Uni-
versity 1968, B.Eng.-námi í rafmagnsverkfræði frá sama skdla
1970 og M.Sc.-námi í rafmagnsverkfræði frá Alberta-háskóla í
Kanada 1973. Eiginkona hans er Sigrún Helgadóttir tölfræð-
ingur, deildarstjóri hjá Hagstofu íslands, og eiga þau tvö börn.
Eftir Sindra Freysson
ugbúnaðarfyrirtækið
Verk- og kerfisfræði-
stofan hf., VKS, hlaut
íslensku gæðaverðlaun-
in 1999, sem Davíð Oddsson for-
sætisráðherra afhenti, við hátíð-
lega athöfn í íslensku óperunni
fyrir um viku. í umsögn dómnefnd-
arinnar sagði m.a. að þau stjórn-
og upplýsingakerfi sem fyrirtækið
hefði notað í eigin gæðastarfi ættu
eflaust eftir að nýtast mörgum fyr-
irtækjum og stofnunum til upp-
byggingar í gæðastarfi sínu, auk
þess að eiga góða möguleika á út-
fiutningi þar sem lausnir VKS
væru íyllilega samkeppnisfærar
við það sem best þekktist á alþjóð-
legum vettvangi á þessu sviði.
Ari Arnalds, framkvæmdastjóri
VKS, hóf að loknu framhaldsnámi i
Kanada að vinna fyrir Póst og síma
sem rafmagnsverkfræðingur í árs-
byrjun 1974 en tók fljótlega að
skipta sér af tölvumálum hjá þeirri
stofnun og síðari misseri sín þar
vann hann nær eingöngu að þeim.
Hann hætti 1978 að vinna hjá P&S
og tók í kjölfarið þátt í að stofna
fyrirtækið Tölvun.
Tölvukaup helsti
tilgangurinn
„Þetta fyrirtæki hafði nánast
það eina hlutverk að eignast tölvu,
sem gerði eigendum fyrirtækisins
kleift að vinna að hugþúnaðargerð
fyrir viðskiptavini sína. Við keypt-
um af Reiknistofnun háskólans
tölvu af gerðinni DEC, eina al-
fyrstu smátölvuna sem kom hingað
til lands, og sú vél hafði 64 kb í
minni, en til samanburðar má
nefna að tölvan á skrifborðinu
mínu hefur 128 mb í minni. Hver
diskur sem fylgdi þeirri vél rúmaði
um 2,4 mb, en tölvan sem ég nota í
dag er með 10 gb. Vinnslugetan í
vélinni er í svipuðu hlutfalli, eða
nokkrum milljón sinnum meiri en
vélin sem við byrjuðum með. Þetta
sýnir vel hversu gríðarlega hröð
þróunin hefur orðið á aðeins tutt-
ugu árum,“ segir Ari.
í ársbyrjun 1979 stofnaði hann
síðan Verk- og kerfisfræðistofuna
ásamt Friðriki Marteinssyni kerf-
isfræðingi. „Það var raunar ekki
mjög formlega staðið að stofnun
VKS. Við Friðrik gerðum samning
við Flugmálastjórn í apríl 1979 um
þróun og uppsetningu á skeyta-
dreifingarkerfi fyrir flugstjórnar-
miðstöðina í Reykjavík og unnum
hvor upp á sinn reikning, en síðan
kom að því að Flugmálastjórn vildi
fá einn reikning frá okkur. Við
settumst niður og spáðum í hvað
við ættum að kalla fyrirtækið á
reikningnum, og þar sem ég var
verkfræðingur og hann kerfisfræð-
ingur varð niðurstaðan Verk- og
kerfisfræðistofan. Þetta var aldrei
ætlað til annars en að vera nafn á
reikningi, en síðan eru liðin tuttugu
ár þannig að það fór á talsvert ann-
an veg en ætlað var í upphafi," seg-
ir Ari. Fyrsta verkefni fyrirtækis-
ins, skeytadreifingarkerfið, byggð-
ist upp á að nútímavæða það kerfi
sem stuðst hafði verið við fram til
þess tíma.
Tölvukerfínu treyst
varlega
„Þegar við komum að málinu
bárust skeytin frá flugvélunum á
telex-vélum og einhver manneskja
las þau, reif af pappírsrúllunni og
fór með til þess flugumferðarstjóra
sem átti að afgreiða vélina. Við
settum upp nk. hlerunarbúnað, þ.e.
við tókum rafmagnsmerkin sem
fóru inn á telex-vélina og fluttum
beint inn í tölvu, án þess þó að taka
eldri búnaðinn úr sambandi. Ekki
var hægt að treysta einvörðungu á
tölvukerfið en ef það brást var til
vara alltaf hægt að afgreiða skeyt-
in með gamla laginu. Eg held raun-
ar að það hafi sárasjaldan komið til
þess að grípa þyrfti til varakerfis-
ins,“ segir Ari. Næsta stóra verk-
efni fyrirtækisins var að búa til al-
veg frá grunni stjórnkerfi, svokall-
aðan kerfisráð fyrir orkuver Hita-
veitu Suðurnesja í Svartsengi.
Kei'fisráðurinn gerði vaktmanni
kleift að hafa stjórn á ákveðnum
rekstrarþáttum verksins, þar á
meðal allri orkuvinnslu.
„Við Friðrik vonim enn aðeins
tveir í fyrirtækinu þegar við tókum
verkið að okkur og byrjuðum í einu
herbergi í Bolholti 4, en síðan flutt-
um við 1. desember 1981 í stærra
húsnæði, 100 fermetra íbúð á horni
Skeggjagötu og Snorrabrautar
sem við leigðum og breyttum í
skriftofu. Starfsmönnum fjölgaði í
kjölfarið og voru orðnir um tíu tals-
ins þegar við fluttum haustið 1982 í
hálfa hæð í Húsi verslunarinnar, og
þá var orðið svo þröngt um okkur
að það sat nánast hver ofan á öðr-
um,“ segir hann.
Sama ár, eða 1982, var efnt til
útboðs á gerð kerfiráðs fyrir Hita-
veitu Reykjavíkur og gerði VKS
tilboð í verkið og var eina íslenska
fyrirtækið sem taldi sig ráða við
slíka framkvæmd. Þau fyrirtæki
önnur sem buðu í verkið voru flest
þekkt erlend stórfyrirtæki á borð
við Texas Instruments í Bandaríkj-
unum og ASEA í Svíþjóð.
Barátta um verkið
„Fjórtán tilboð bárust og við
vorum með næstlægsta tilboðið og
ég tel að lægsta tilboðið hafi nánast
verið ónothæft, enda varð fyrir-
tækið sem stóð á bak við það gjald-
þrota ekki mjög löngu síðar. Mönn-
um leist samt sem áður ekki of vel
á að fela íslenskt fyrirtæki, sem þá
hafði sjö manns á að skipa, verk-
efni af þessari stærðargráðu. Fyrir
vikið varð geysileg barátta að fá
verkið. Tilboðsfresturinn rann út í
júlí og við skrifuðum ekki undir
samning um verkið fyrr en á gaml-
ársdag 1982.
A þessu hálfa ári sem leið þurft-
um við í raun og veru að sannfæra
menn um að okkur væri treystandi
fyrir verkinu og gerðar voru ítar-
legar athuganir á fyrirtækinu. Við
skiluðum þessu verki haustið 1985
og lukum því það vel að kerfið var í
notkun alveg fram til byrjun þessa
árs, þ.e. það hefur gengið í fjórtán
ár og þykir ekki slæm ending,"
segir Ari.
„Þetta var tvímælalaust frum-
herjavinna, enda hafði slíkt verk-
efni aldrei verið unnið hérlendis af
íslenskum aðilum áður, að frátöldu
kannski stjórnkerfinu sem við
gerðum fyrir Hitaveitu Suður-
nesja. Við vorum að keppa við er-
lend fyi’irtæki sem áttu í raun allan
hugbúnaðinn tilbúinn og þurftu
ekki annað en að laga hann að ís-
lenskum aðstæðum, en við þurftum
að semja allan hugbúnaðinn frá
grunni,“ segir Ari.
Grunnur að gæðakerfi
VKS óx fiskur um hrygg á þess-
um árum og samfara gerð kerfí-
ráðsins tóku forsvarsmenn þess að
leggja grunn að gæðakerfi, þar
sem verkefnið leiddi í ljós að ýmsir
hnökrar voru á starfseminni sem
sníða þurfti af.
„Þetta var mjög erfiður tími,
enda um gríðarlega krefjandi verk-
efni að ræða, og þegar upp var
staðið töpuðum við á verkefninu i;
fjárhagslega en á móti kom að við
græddum feikilega reynslu og
þekkingu. Það má raunar segja að
það að við töpuðum á verkinu er
grundvöllur þess að við erum að
hagnast í dag. Við tókum að skoða
verkstjórnaraðferðir, mat á vinnu-
framlagi og hönnunaraðferðir, til
að reyna að fyrirbyggja að við lent-
um í samskonar erfiðleikum og við
áttum í þegar kerfiráðurinn var
smíðaður. Við þurftum að finna
markvissari ieiðir og gera betur.
Við efndum m.a. til verkstjómar- y"
námskeiða sem við bjuggum til
sjálfir fyrir starfsmenn fyrirtækis-
ins,“ segir hann.
Fleiri breytingar urðu einnig á
starfseminni um þetta leyti, íyrir-
tækinu var breytt í hlutafélag og
komu þeir Daði Örn Jónsson, Jón
Ágúst Guðjónsson og Nicholas
Hall inn í eigendahópinn. Síðar |
seldu þeir Nicholas og Friðrik síð-
an hlut sinn og eru því núverandi
eigendur VKS hf. þeir Ari, Daði 10
Örn og Jón Ágúst, og eiga þeir fé-
lagar jafnan hlut.
Starfsemi VKS hefur alla tíð snú-
ist að miklu leyti um sérhönnuð
kerfi. Á undanförnum 20 árum hef-
ur hins vegar orðið mikil breyting á
þessum markaði. „Hugbúnaðurinn
tók að færast meira en áður út í til-
búin kerfí. I mörgum tilfellum er þó
hagstætt fyrir fyrirtæki að leggja í J
slíka frumsmíði kerfanna, því að-
eins með því móti fá þau það kerfi s
sem þau þurfa virkilega á að halda.
Þá hefur tækni við hugbúnaðarþró-
un breyst mikið og notar VKS nú
svokallaða hlutbundna aðferða-
fræði við mest af sinni vinnu. Þessi
aðferðafræði gerir mögulegt að
sérsmíða kerfi upp úr hlutum sem
geta verið sameiginlegir með mörg-
um kerfum, sem geta jafnvel haft
mjög mismunandi virkni. Þanmg
má ná því fram að sérsmíða kerfi
með tiltölulega litlum kostnaði."
f fremstu röð í
gæðastjórnun
Ai’i kveðst telja að helsti styrkur
VKS og sérstaða í dag sé sú mikla
áhersla sem lögð hefur verið á
gæðastjórnun og vönduð vinnu-
brögð innan fyrirtækisins og vart
ofmælt að það standi í fremstu röð
íslenskra fyrirtækja í þeim efnum.
VKS þróaði m.a. gæðakerfi sem EP
nær til allrar starfsemi fyrirtækis-
ins og var fyrst íslenskra hugbún-
aðarfyrirtækja til að fá það vottað
samkvæmt alþjóðlega staðlinum
ISO 9001, árið 1995.
Einnig má geta þess að Gallup á
Islandi gerði nýverið þjónustumat
fyrir fyrirtækið, þar sem það fékk
að meðaltali 8,5 í einkunn, sem
þykir óvenjuhá einkunn. Starfs-
menn fengu m.a. hæstu einkunn
fyrir viðmót og framkomu og tæp i
100% viðskiptavina töldu skipu-
lagningu verkefna betri hjá VKS
eða svipaða og hjá öðrum hugbún-
aðai-íyrirtækjum. 91% sögðust
myndu mæla með þjónustu VKS
við aðra aðila.
„Þessar niðurstöður endur-
spegla nánast allar ef ekki allar
styrk þess gæðakerfis sem við höf-
um komið okkur upp og þá áherslu 0
sem við höfum lagt á starfsmanna-
mál. Viðskiptavinir okkar bera
okkur mjög gott orð hvað varðar
alla þjónustu og skipulagningu
verkefna, og það er vissulega fagn-
aðarefni,“ segir Ari.
„Á seinustu árum sjáum við að
rekstrarafkoman hefur farið stór-
fellt upp á við ár frá ári. Bæði velta
og hagnaður hafa aukist stórum gg&
skrefum og er rekstrarhagnaður
fyrir skatta u.]).b. 18-20% af veltu,
sem er mjög viðunandi að okkar
mati. Veltan hefur aukist mikið
milli ára og við stefnum að því að
auka veltuna áfram og halda enn-
fremur áðurnefndu hlutfalli rekstr-
arhagnaðar, og gerum okkur góðar
vonir um að það takist."
Húsnæðið þrefaldað
árið 2000
Til marks um stórhug fyrirtæk-
isins er að á næsta ári mun það
flytja starfsemi sína úr um 580 fer-
metra húsnæði í Bíldshöfða í um