Morgunblaðið - 21.11.1999, Page 36

Morgunblaðið - 21.11.1999, Page 36
36 SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Óli Kr. Sigurðsson á blaðamannafundi en nafni hans Óli Björn Kára- son segir í bók sinni að á margan hátt megi halda því fram að kaup Óla Kr. Sigurðssonar á Olís árið 1986 hafi markað töluverð tímamót í íslensku viðskiptalífi. Valda- blokkir riðlast Um þessar mundir kemur út á vegum Nýja bókafélagsins bókin Valdablokkir riðlast, átök og ferskir straumar í íslensku viðskiptalífí, eftir Ola Björn Kárason, rit- stjóra DV og fyrrverandi ritstjóra og stofnanda Viðskiptablaðsins. I bókinni er fjallað um þau straumhvörf sem orðið hafa á íslensku viðskiptalífí síðustu 10-15 árin með auknu frjálsræði á fjármálamarkaði, uppgangi í sjávarútvegi og innreið ungra manna með nýjar hugmyndir og vinnu- brögð í viðskiptum. S OLI Bjöm Kárason bregður í bók sinni kastljósinu á þá ein- staklinga og þau fyrir- tæki sem helst koma við sögu og sviptir hulunni af ýmsu sem gerst hefur baksviðs, að því er segir í frétt frá útgefanda. Bókina prýða um 20 teikningar eða Þanka- strik Gísla J. Astþórssonar. Hér er gripið niður á tveimur stöðum í bókinni með leyfi höfund- ar og útgefanda. Jafnvægi brestur Fremur auðvelt var að átta sig á íslensku viðskiptalífi á árum áð- ur. Þó það sé mikil einföldun að halda því fram að það hafi skipst upp í tvær fylkingar, er sann- gjarnt að segja að ákveðið við- skiptalegt og pólitískt jafnvægi hafi ríkt á milli Sambandsins og einkaframtaksins. Þetta jafnvægi er ekki lengur fyrir hendi enda Sambandið liðið undir lok þó sterk fyrirtæki hafi risið upp á rústum þess, sum að vísu tíma- bundið. Einkafyrirtækin eru held- ur ekki einsleitur eða samstilltur hópur heldur fyrirtæki í harðri samkeppni. Eftir fall Sambands- ins hélt togstreita og valdabarátta áfram milli rótgróinna einkafyrir- tækja og gömlu Sambandsfyrir- tækjanna sem lifðu af.* Fjölmiðl- ar hafa yfirleitt talað um barátt- una milli Kolkrabbans og Smokk- fisksins. Þessar gömlu valda- blokkir hafa hins vegar riðlast og heyra brátt sögunni til. Ekki vegna þess að forystumenn þeirra settust niður og sömdu um „vopnahlé" heldur vegna ytri að- stæðna og þar réð enginn ferð- inni. Þrír þættir hafa öðrum fremur orðið til þess að gömlu valdablokk- irnar hafa smátt og smátt molnað niður. Markaðsvæðing sjávarút- vegsins með innleiðingu kvótakerf- isins með frjálsu framsali aflaheim- ilda hefur gert útsjónarsömum út- gerðarmönnum kleift að byggja upp glæsileg fyrirtæki sem hafa fjárhagslega burði til að taka þátt í atvinnulífinu á flestum sviðum. í stað þess að vera upp á opinbera fyrirgreiðslu og velvilja birgja komin hafa orðið til öflug og sjálf- stæð fyrirtæki í sjávarútvegi. Auk- ið frelsi á fjármálamarkaði og þá ekki síst þróun hlutabréfamarkað- ar hefur gert fyrirtækjum, fjárfest- ingarfélögum, lífeyrissjóðum og einstaklingum kleift að taka beinan þátt í atvinnulífinu og auðgast verulega. Hlutabréfamarkaðurinn og frelsi á fjármálamarkaði hefur auk þess opnað nýja og áður óþekkta möguleika fyrirtækja til fjármögnunar - þau þurfa ekki lengur að ganga með betlistaf í hendi á milli stjómmálamanna og valdsherra einkaframtaksins eða Sambandsins. Þessi mikla markaðsvæðing sjávarútvegs og fjármálakerfisins hefur verið möguleg vegna þess að skynsamlega hefur verið haldið á efnahagsmálum undanfarin ár. Seðlabankinn hefur fylgt aðhalds- samri stefnu í peningamálum á sama tíma og meiri agi hefur kom- ist á fjármál ríkissjóðs þó enn sé þar víða pottur brotinn. Óðaverð- bólga fyrri ára sem gerði ókleift að reka fyrirtæki með skynsam- legum hætti, er aðeins slæm minn- ing. Jafnvægi og markaðsvæðing Jafnvægi í efnahagsmálum og markaðsvæðing hefur lagt grunn- inn að auðlegð fjölda einstaklinga sem hafa nýtt sér fjárhagslegt sjálfstæði til að innleiða ný vinnu- brögð í viðskiptalífið, þar sem söguleg skipting atvinnulífsins skiptir litlu eða engu máli. Hægt og bítandi hafa þessir einstaklingar holað múra valdsins og neytt for- ráðamenn „kolkrabbans" og „smokkfisksins" til að horfast í augu við nýja tíma. Síðasti áratug- ur 20. aldarinnar hefur því verið áratugur nýrra manna í viðskipta- lífinu sem gamalgróin viðskipta- veldi hafa á stundum þurft að láta í minni pokann fyrir. Utangarðs- mönnum hefur tekist að ná fótfestu og eru orðnir valdamiklir leikendur á brothættu leiksviði viðskiptalífs- ins. Á margan hátt má halda því fram að kaup Óla Kr. Sigurðssonar á Olís árið 1986 hafi markað tölu- verð tímamót, enda fyrirtækinu „stolið“ fyrir framan nefið á Lands- bankanum og Skeljungi. Hallar- byltingin í Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna á vordögum 1999 er annað dæmi um hvernig gamalgróið valdakerfi hefur þurft að láta í minni pokann fyrir nýjum mönn- um. Hlutfallslega hafa völd gamla valdakerfisins því minnkað þó fyr- irtæki og fyrirtækjasamsteypur innan þess hafi mörg hver styrkst fjárhagslega. Þátttaka lífeyrissjóða og hlutabréfasjóða í hnmadansi hlutabréfamarkaðarins hefur aukið enn frekar valddreifingu, þó halda megi því fram að vegna uppbygg- ingar lífeyrissjóðanna skapist ákveðin hætta, enda þar á ferð fé án fjárhirðis. I upphafi níunda ára- tugarins snerust átök í viðskiptalíf- inu fyrst og fremst um viðskipta- hagsmuni einkaframtaksins og Sambandsfyrirtækjanna. Margt bendir til að þessum átökum sé nú að mestu lokið eða að þau séu að minnsta kosti háð undir öðrum merkjum en áður. Það skiptir miklu að endurreisn Sambandsins í gegnum sjálfstæð hlutafélög mistókst að mestu, samhliða því að yngri menn sem hafa haslað sér völl í viðskiptalífinu eru ekki bundnir á sama klafa sögunnar og hinir eldri - hafa ekki fengið hið pólitíska uppeldi. Sambandið fellur og rís upp I byrjun tíunda áratugarins benti allt til þess að Samband ís- lenskra samvinnufélaga væri kom- ið í strand og umfangsmiklar björgunaraðgerðir kæmu ekki að gagni. Verulegir hagsmunir voru í húfi, ekki síst fyrir Landsbankann sem var aðalviðskiptabanki Sam- bandsins. Á aðalfundi Sambandsins í júní 1990 var samþykkt að stofna sér- stök hlutafélög um einstaka rekstr- arþætti. Þá gerðu menn sér enn góðar vonir um að hægt væri að sigla Sambandinu í gegnum erfið- leikana, en síðar átti annað eftir að koma á daginn. Hitt er svo ljóst að með þessari ákvörðun tókst að bjarga verulegum verðmætum sem annars heþlu hugsanlega farið for- görðum. Á gnmdvelli samþykktar aðalfundarins voru nokkur hlutafé- lög stofnuð. Islenskar sjávarafurð- ir voru stofnaðar á grunni sjávaraf- urðadeildar SIS, Samskip voru byggð á stoðum skipadeilda, og Goði byggði á búvörudeild svo dæmi séu nefnd. Tvö fyrrnefndu fyrirtækin voru leiðandi í gagnsókn Sambandsfyrirtækjanna gegn einkaframtakinu. Fjórmenningar í brúnni Endurreisn Sambandsins var leidd af fjórum fyrirtækjum, hvert á sínu sviði: Olíufélaginu undir stjórn Geirs Magnússonar sem áð- ur hafði stýrt Samvinnubankanum; Samskipum sem Ólafur Ólafsson hefur stýrt frá 1993; íslenskar sjávarafurðir undir stjórn Bene- dikts Sveinssonar; og Vátrygginga- félag Islands þar sem Axel Gísla- son er við völd. Allir fjórmenningarnir tengjast Sambandinu sterkum böndum og þrír eru uppaldir innan Sambands- ins. Geir Magnússon er Samvinnu- skólagenginn, var starfsmaður Sambandsins frá 1961 og fram- kvæmdastjóri frá 1976 til 1984 þegar hann tók við stöðu banka- stjóra Samvinnubanka íslands. Geir var ráðinn forstjóri Olíufé- lagsins 1991. Axel Gíslason, sem er verkfræð- ingur að mennt, hefur verið for- stjóri VIS frá 1989 en var áður að- stoðarforstjóri SÍS frá 1985 og þar áður gegndi hann ýmsum stjórnun- arstöðum innan Sambandsins frá 1972 svo sem framkvæmdastjórn iðnaðardeilda og skipadeildar. Ólafur Ólafsson er Samvinnu- skólagenginn en lauk viðskipta- fræðiprófi frá Háskóla Islands. Hann starfaði lengi við ullariðnað bæði hér á landi og erlendis, auk þess að reka sjálfstætt fyrirtæki. Árið 1990 tók Ólafur við starfi for- stjóra Álafoss hf. en eftir endalok fyrirtækisins 1991 rak Ólafur Rekstrai'félag Álafoss hf. fyrir Landsbanka Islands. Hann stofn- aði eigið fyrirtæki, Kjalar hf., árið 1992 og rak það uns hann tók við starfi forstjóra Samskipa hf. árið 1993. Benedikt Sveinsson var ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri sjávar- afurðardeildar Sambandsins 1987 36 ára að aldri. Hann varð síðar forstjóri deildarinnar og fyrsti for- stjóri Islenskra sjávarafurða 1991. Gríðarlegur kraftur og þor ein- kenndi strax störf þessara fjögurra manna. _ Erfiðasta verkefnið fékk Ólafur Ólafsson sem frá fyrstu tíð þurfti að glíma við öflugan and- stæðing, Eimskip. Verkefni félag- anna var hins vegar ekki auðvelt enda flæktist þrot Sambandsins mjög fyrir. Landsbankinn neyddist til að yf- irtaka stóran hluta eigna Sam- bandsins síðari hluta árs 1992. Hér var um hreina skuldajöfnun að ræða upp á 2,5 milljarða króna. Þannig eignaðist bankinn 33% hlut í Olíufélaginu, sem keypti sjálft bréfín og lækkaði eigið fé á móti. Kaup Olíufélagsins á þessum bréf- um sýna hversu fjárhagslega sterkt fyrirtækið var og hve vel það var í stakk búið að leggja veru- lega af mörkum í því viðskiptastríði sem var framundan. Um 41% hlutafjár í íslenskum sjávarafurð- um kom í hlut bankans og 85% hlutafjár í Samskipum, en þessi hlutafjáreign reyndist töluverður höfuðverkur fyrir bankann, sem jafnframt var viðskiptabanki Eim- skips. Auk þessa yfirtók Lands- bankinn ýmsar aðrar eignir Sam- bandsins svo sem hlutabréf í Efna- verksmiðjunni Sjöfn, Samvinnu- ferðum-Landsýn og Kaffíbrennslu Akureyrar. Reginn hf. var yfirtek- inn með húð og hári. Forráðamenn Eimskips töldu þátt Landsbankans í uppbyggingu Samskipa í besta falli óeðlilegan, enda fjármagnaði bankinn rekstur félagsins. í júlí 1994 var síðan til- kynnt að tekist hefði að ná inn nýjum hluthöfum í Samskip og þar á meðal voru nokkur þekkt fyrirtæki, sem fram að þessu höfðu fremur talist til einkafram- taksins. Hluthafarnir voru Hag- kaup, Samherji hf., Akureyri, Fóðurblandan hf., Vinnslustöðin hf., þýska skipafyrirtækið Bruno Bischoff Reederei, Olíufélagið hf., Vátryggingafélag Islands, Sam- vinnulífeyrissjóðurinn og stjórn- endur Samskipa. Síðar kom í ljós að Ólafur Ólafsson var stór hlut- hafi í Samskipum í samvinnu við þýska skipafélagið og skapaðist tortryggni á milli hans og hluthafa sem stóðu utan sambandshópsins. Gunnar Jóhannsson í Fóðurblönd- unni, sem var stjórnarformaður Samskipa, sagði sig úr stjórn í febrúar 1996 ásamt Jóni Pálma- syni sem sat í stjórninni sem full- trúi Hofs, eignarhaldsfélags þeirra Hagkaupsbræðra. Síðar seldu þessir aðilar sín bréfj með góðri ávöxtun, en ljóst er að þeir töldu að Ólafur hefði blekkt þá og ekki komið hreint til dyranna varðandi eignarhlut sinn í félag- inu.* Heilladísir Eins og áður hefur verið vikið að er virkur hlutabréfamarkaður ein- hver stærsta breyting sem orðið hefur á umhverfi íslenskra fyrir- tækja á síðustu árum. Lítið hefur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.