Morgunblaðið - 21.11.1999, Síða 37

Morgunblaðið - 21.11.1999, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1999 37 hins vegar mátt bera út af til að j ekki færi illa og á stundum má " kalla það glópalán að ekki fór verr en raun varð á. Verðbréfafyrirtæki hafa verið drifkraftur þessara breytinga, en stundum meira af kappi en forsjá, enda oft til mikils að vinna. Sú venja hefur skapast hér á landi, eins og víða annars staðar, að verð- bréfafyrirtæki aðstoði fyrirtæki við á að skrá hlutabréf sín á opnum Ihlutabréfamarkaði. Verðbréfafyr- irtækið annast gerð útboðslýsingar og jafnframt sölu á nýjum hluta- bréfum í viðkomandi fyrirtæki. Oft á tíðum á verðbréfafyrirtækið verulega mikið undir því að hluta- bréíin seljist enda útboðið oftar en ekki sölutryggt. Fjárfestar styðj- ast hins vegar við útboðslýsinguna þegar þeir taka ákvörðun, en varla er hægt að halda því fram að um hlutlausa úttekt sé að ræða á fram- I tíðarmöguleikum fyrirtækisins | sem leitar eftir áhættufjármagni. Fyrir um það bil áratug sóttist útgáfufyrirtækið Fróði eftir því að komast á hlutabréfamarkað og höfðu öll verðbréfafyrirtæki sem þá voru starfandi hug á því að sjá um hlutafjárútboð til almennings. Þessi áform runnu út í sandinn eft- ir að Morgunblaðið birti ítarlega i fréttaskýringu um viðkomandi fyr- j irtæki.* Það hefði haft ófyrirsjáan- legar afleiðingar fyrir hlutabréfa- * markað sem ekki var búinn að sh'ta bamsskónum ef umrætt hlutafjár- útboð hefði þá farið fram. Fjölmiðlar og verðbréfafyrir- tæki féllu á prófinu þegar kom að ævintýrafyrirtækinu Softís, sem var hafíð upp til skýjanna. Fjöl- miðlar heilluðust af fyrirtækinu sem og verðbréfamiðlarar - gengi hlutabréfa rauk uppúr öllu valdi þó efnislegai’ ástæður væru ekki fyrir I hendi eins og síðar kom í ljós. Eng- inn taldi ástæðu til að staldra við og spyrja áleitinna spurninga, a.m.k. ekki á opinberum vettvangi. Þvert á móti var fyrirtækinu hampað sem dæmi um hvernig við Islendingar gætum unnið okkur út úr djúpstæðri efnahagskreppu. Það virðist sem heilladís vaki yfir íslenskum verðbréfamarkaði og komi í veg fyrir að afleiðingar mistaka og jafnvel vítaverðra við- | skiptahátta hafi mikil áhrif á tiltrú almennings og fjárfesta á verð- bréfum. Þetta sannaðist ekki að- eins varðandi Softís, heldur einnig þegar Avöxtun hf. varð gjaldþrota og sjóðir Fjárfestingarfélags fs- lands, síðar Skandia, voru lokaðir í langan tíma. Og dæmin eru fleiri. Árið 1998 sá Verðbréfaþing ástæðu til að „átelja“ vinnubrögð íslenskra sjávarafurða í tengslum við hlutafjárútboð fyrirtækisins. I Astæða þessa var að sama dag og útboðslýsingin var birt opinber- lega kom stjórn ÍS saman og tók ákvarðanir sem breyttu verulega efni og forsendum hlutabréfaút- boðsins. í útboðslýsingunni skrif- aði forstjóri ÍS undir yfírlýsingu sem sagði að lýsingin væri „samin eftir bestu vitund, í fullu samræmi við staðreyndir og engu mikil- vægu atriði væri sleppt sem áhrif 1 gætu haft á mat á félaginu eða hlutabréfum þess“. Þessa yfirlýs- ingu undirritaði forstjórinn 29. október 1998 fyrir hönd stjórnar fyrirtækisins. Daginn eftir var ákveðið að forstjórinn myndi flytja til Bandaríkjanna og taka við yfírstjórn Iceland Seafood og að stjórnarformaður ÍS myndi taka að sér aukin verkefni á með- an. Jafnframt áréttaði stjórn ÍS að dótturfyrirtækið Iceland Seafood væri enn rekið með umtalsverðu tapi og að ÍS stæðu í mikilli fjár- hagslegri endurskipulagningu. Svipað var upp á teningnum í hlutafjárútboði Járnblendifélags- ins í aprfl 1998. Rúmlega 2.800 að- ilar skráðu sig fyrir hlutabréfum og fékk hver og einn að kaupa bréf að nafnverði 80 þúsund krón- ur á genginu 2,50. Með þessum hætti voru seld bréf að nafnverði 225 milljónir til almennings og starfsmanna fyrirtækisins. Tæpar 150 milljónir voru síðan seldar með útboðsfyrirkomulagi til FBA og Kaupþings. Allir þessir aðilar byggðu ákvörðun sína um fjárfest- ingu í hlutabréfum fyrirtækisins á útboðslýsingu sem gerð var. Nokkrum mánuðum síðar kom hins vegar í ljós að mikilvægar upplýsingar um rekstur fyrirtæk- isins vantaði í útboðslýsinguna. Ekki var minnst einu orði á að hugsanlegt væri að fyrirtækið yrði fyrir skerðingu á raforku frá Landsvirkjun. Og auðvitað kom til skerðingar skömmu eftir útboðið. Sætir nokkurri furðu að enginn sem keypti hlutabréf fyrirtækisins skuli ekki hafa látið reyna á ábyrgð fyrirtækisins og Lands- bankans sem annaðist útboðið. Talnaleikir Trúnaður og traust verða seint ofmetin í viðskiptum með hluta- bréf og forsenda þessa er að fyrir- tækin sjálf hagi upplýsingagjöf sinni þannig að þær veki ekki tor- tryggni. Það eru hins vegar merki um nokkurt afturhvarf í því efni. Fyrirtæki á hlutabréfamarkaði eru farin að nýta sér möguleika til að fela upplýsingar svo sem um eignarhlut í öðrum fyrirtækjum, enda gera lög ekki kröfu til þess að þær upplýsingar séu veittar í ársreikningi. Og þegar eftir því er leitað hafa sum fyrirtæki neitað að veita þessar upplýsingar sem þó skipta miklu þegar reynt er að meta rekstur og efnahag fyrirtæk- isins. Þannig eru dæmi um að fyr- irtæki sem hefur bundið liðlega helming eiginfjár í hlutabréfum annarra fyrirtækja veitir ekki upplýsingar um hvaða hlutabréf þetta eru eða hvernig mati þeirra er háttað. Það hefur færst í vöxt að sjávarútvegsfyrirtæki kaupi og selji kvóta, sem er jákvæð þróun í sjálfu sér. Hins vegar hafa mörg þessara fyrirtækja verið í ein- hvers konar talnaleikjum. Til að gera dæmið einfalt skulum við gera ráð fyrir að sjávarútvegsfyr- irtækið Útgerð hf. hafí átt 100 tonn af þorskkvóta sem ekki var eignfærður enda fékk fyrirtækið kvótann úthlutaðan á sínum tíma. Á síðasta ári seldi Útgerð hf. þennan kvóta fyrir 100 milljónir króna en notaði peningana til að kaupa eða réttara sagt skipta á þorski og rækju. Við þetta lagað- ist bókfærð eiginfjárstaða fyrir- tækisins um 100 milljónir króna. f rauninni hefur hins vegar ekkert gerst hjá Útgerð hf. annað en að það á nú rækjukvóta í stað þorsk- kvóta þó rækjan henti hugsanlega rekstri þess betur en þorskur. Það sem meira er, fyrirtækið sem lét Útgerð hf. fá rækjukvótann í skiptum fyrir þorskinn hefur einnig lagfært stöðu sína um 100 milljónir króna. Svipað má segja um kaup og sölu á skipum. Talnaleikir af þessu tagi eru ávísun á vandræði í framtíðinni. Óskiljanlegt er að endurskoðendur undirriti ársreikninga án athuga- semda þegar loftfimleikar af þessu tagi eru gerðir. Að ekki sé minnst á allan þann fjölda sérfræðinga sem vinna hjá verðbréfafyrirtækjum sem láta þetta átölulaust og raunar nýta sér talnaleikina í útboðslýs- ingum til að gera hlutabréf við- komandi íyrirtækis enn áhuga- verðari fyrir fjárfesta. * Auðvitað er ekki rétt að tala um einkafyrirtæki og Sambandsfyrirtæki líkt og rekstrarform þeirra sé ólíkt. Þannig er t.d. enginn munur á stöðu eigenda 01- íufélagsins og Skeljungs. Bæði fyrirtækin eru hlutafélög skráð á opnum hlutabréfa- markaði. Ég hef hins vegar gripið til þessarar nafngiftar til að aðgreina þessi fyrirtæki og sú aðgreining er eingöngu söguleg, en á lítið skylt við nútímann. * Kjalar ehf., sem er í eigu Ólafs Ólafs- sonar, forstjóra Samskipa, eignaðist í september 1999 29,1% hlut í Samskipum. Hlutinn keypti Kjalar af þýska félaginu Nordatlantik Transport Gmbh. sem Ólaf- ur átti til jafns við Bischoff-fjölskylduna. * Höfundur skrifaði þessa úttekt í Morgunblaðið. Stimpilklukkukerfi SKERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 • Sími 568 8055 www.islandia.is/kerfisthroun BIODROGA snyrtivörur *Q-10* húðkremið Bankastræti 3, sími 551 3635. Skólavörðustíg 21 • sími 551 4050 • Reykjavík -/eline^ Fegurðin kemur innan frá Laugavegi 4, sími 551 4473 Á sunnudögum eru fjölmargar verslanir opnar. VERSLANIR frá kl. 13.00 - 17.00 STJÖRNUTORG skyndibita- og veitingasvæðiö frá kl. 11.00-21.00 Aörir VEITINGASTAÐIR og KRINGLUBÍÓ eru meö opiö fram eftir kvöldi. J R R T fi fl S L fER Sími skrifstofu: 568 - 9200 Upplýsingasími: 588 - 7788

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.