Morgunblaðið - 21.11.1999, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 21.11.1999, Qupperneq 40
40 SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ AXEL HJELM + Axel Hjeliri fæddist á Eski- firði 5. maí 1941. Hann varð bráð- kvaddur 7. október síðastliðinn. For- eldrar hans voru Olav Gunnar Svan- berg Hjelm og Þór- unn Aðalheiður Einarsdóttir og var Axel einn af _ 17 systkinum. Átta ára, eftir fráfall móður sinnar, fór hann í fóstur til systkinanna Runólfs Sigfússonar og Elísabetar Sig- fúsdóttur á Stafafelli í Fellum í Héraði. Árið 1958 hóf Axel búskap með Huldu Björk Kolbeinsdóttur en þau skildu árið 1967. Börn þeirra eru: Kolbeinn Þór, Aðalheiður Svan- björg, Runólfur Elís og Ragnar Ágúst. Þau eru öll búsett á íslandi. Önnur börn Axels eru: Björn, búsettur í Dan- mörku, Randí Anita, búsett í Nor- egi, Heidi Sólrún, búsett á Grænlandi, Hulda, búsett í Dan- mörku, og Ásbjörn, búsettur á íslandi. Útför Axels fór fram frá Hofsóskirkju 17. október. Kæri vinur, nú hefur þú lokið þessari jarðvist. Kynni okkar hófust fyrir rúmum tíu áium þegar við bæði bjuggum á Baldursgötunni. Það var þá eins og stundum gerist við fyrstu kynni að fólki fmnst það bara alltaf hafa þekkst. Fljótt bárust þá í tal Aust- firðir og böm þín sem bjuggu þar og voru vinafólk mitt. Margt hafðir þú brallað um dagana og víða farið á „bylgjunum bláu“ eins og þú kall- aðir það. Sjórinn var þér alltaf ofar- lega í huga, enda starfað meirihluta ævinnar á sjó og þá sem bryti, aðal- lega á erlendum skipum, meðal ann- ars á norskum rannsóknarskipum í íshafinu á árunum 1968-71. Einnig Vefmiðstöð almennings hugvefur.is kemur þínu efni á framfæri á Netinu á vefsíðu okkar. M.a. jólakveðjum, afmælisóskum, aldarminningum, barnsfæðingum, minningargreinum, ættarmótum, rit- og myndverkum og stuttum heimasíðum, auk Þinni skoðun. Skoðið vinsamlega vefsíðu okkar http://www.hugvefur.is Vefmiðstöð almennings info@h ugvefur.is po box 1464 -121 Reykjavík, s. & fax 562 8033. var hugur þinn oft við Grænland því rúman áratug hafðir þú búið og starfað þar, en fluttir síðan alkom- inn aftur til Islands 1983, ásamt Ás- birni, yngsta syni þínum. Gestrisni þín var alveg sérstök og þú galdraðir fram tíu rétta hlaðborð hvenær sem gesti bar að garði. Eft- ir að þú varst hættur á sjónum var alltaf tilbúinn matur hjá þér handa heilli áhöfn og þegar þú máttir ráða sendir þú gestina þína með nesti með sér heim. Eitt af þínum sérkennum var góður húmor og hæfileiki til að sjá björtu hliðamar á hlutunum þrátt fyrir að marga erfiða reynslu hafir þú gengið í gegnum allt frá bam- æsku. Þú glímdir við Bakkus og hafðir betur af eigin rammleik. Vegna margbrotinnar lífsreynslu þinnar áttir þú svo auðvelt með að skilja líðan og tilfinningar þeirra mörgu sem leituðu til þín og fengu aðstoð gegnum huglækningar þínar síðustu ár. Ávallt varstu tilbúinn að aðstoða, jafnt á nóttu sem degi, þeg- ar heilsa þín leyfði en aldrei tókstu gjald fyrir þessi störf sem þó vom á tímabilum sólarhringsvaktir. Trúin var einn sterkasti þáttur í lífí þínu þótt þú sæktir ekki trúarat- hafnir né bæðir bænir eftir for- skriftum, trúna iðkaðir þú með sjálfum þér á þinn eigin hátt. Um andleg mál varstu flestum fróðari og hafðir áhuga á mismun- andi trúarbrögðum, menningarsam- félögum og þroskaleiðum mannsins og sálarinnar, en mest af þekkingu þinni öðlaðist þú gegnum eigin Íínálíií ''JHÍ Lil) JJÍijjduiiJ ÚtfarQrstofQn annast meginhluta allra útfara ó höfuðborgarsvæSinu. Þarstarfa nú 15 manns við útfararþjónustu og kistuframleiðslu. Alúiteg þjónusta sem þyggir á langrí reynslu * Utfararstofa Kirkjugarðanna ehf. Vesturhlíð 2-Fossvogi-Sími 551 1266-www.utfarastofo.com 0 ÚTFARARÞJÓNUSTAN Stofnað 1990 Persónuleg þjónusta Aðstoðum við skrif minningarrgreina Sími: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is utfarir@itn.is LEGSTEINAR f Marmari Islensk framleiðsla Granít Vönduð vinna, gott verð Blágryti Sendum myndalista Gabbró MOSAIK Líparít Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík sími 5871960, fax 5871986 Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson útfararstjóri útfararstjóri þroskabraut og skyggnigáfu, því skyggn varstu á marga heima. Stundum vissir þú ekki hvort þú varst meira í öðrum heimi eða þess- um og margt af þinni dulrænu reynslu var svo sérstakt og merki- legt að það hálfa væri nóg. Þetta var þinn fjársjóður því þú safnaðir ekki jarðneskum auði. Síðastliðið ár dvaldir þú að mestu leyti hjá kærum vinum þínum, Sig- ríði og Jóni á Lindarbrekku á Hofs- ósi. Ekki var það ætlun þín í byijun að setjast þar að en þama líkaði þér vel og hafðir unun af náttúrufegurð- inni þar og sérstaklega kvöldsólinni yfir Skagafirðinum. Gaman hafðir þú af að kynnast álfabyggðum í Hegranesinu og á fleiri stöðum norður þar og Hofsós var orðið þitt „heima“. Það var sama hvar á landinu þú hélst þig frá því að kynni okkar hófust, alltaf styrktust vináttubönd- in, og þú varst svo bamgóður að dóttir mín ættleiddi þig strax sem afa. Við söknum þín, Axel afi, þú kvaddir svo fljótt. En endir jarðvist- arinnar er um leið upphaf annarrar vistar og þar hefur þú ábyggilega í nógu að snúast með „þeim hinum megin“ eins og þú kallaðir það, lík- amlega heilsan er þér ekki lengur byrði. Við biðjum alla góða krafta að fylgja þér, vinur, og styrkja fjöl- skyldu þína og kæra vini. Jónina og Sigurbjörg. Látin er í Reykjavík tengdamóð- ir mín, frú Ingibjörg Gunnarsdóttir hárgreiðslumeistari. Margs er að minnast og margt ber að þakka fyr- ir hálfs annars áratuga vináttu og tryggð. Pillu kynntist ég er við Oddur hófum búskap og mér varð það + ívar Ólafsson fæddist á Kross- hóli í Skíðadal 21. nóvember 1921. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 24. maí síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Akur- eyrarkirkju 31. maí. ívar Ólafsson hefði orðið 78 ára í dag, en hann dó á annan í hvítasunnu í vor. Af því tilefni langar mig til að festa á prenti örfá orð um samskipti okkar. Það var 1984, sem ég byrjaði að vinna á Varma hjá honum. Varmi rak plötusmiðju, þar sem Ivar vann sjálfur, rennismiðju og blikk- smiðju. Mál æxluðust þannig að í ársbyrjun 1986 tek ég við rekstri blikksmiðjunnar og stofna Blikk- rás, sem alla tíð hefur verið í sama húsi og mikill samgangur á milli fyrirtækjanna. Meðal annars sam- eiginleg kaffistofa, einnig, sem við höfum aðgang að vélum hvors annars. strax ljóst hversu náin þau mæðgin voru. Hefur alla tíð verið mikill samgangur milli heimila okkar. Þegar litið er yfir farinn veg streyma minningarnar fram og ber þar hæst hve yndislegur vinur hún ávallt var mér og umfram allt hve góð amma hún reyndist bömunum Þessi tími hefur verið einkar þægi- legur í nábýli við Iv- ar. Hann var afskap- lega ljúfur maður og góður í umgengni. Þannig hagar til á Varma að þegar far- ið er á skrifstofu Blikkrásar, þá er gengið í gegnum plötusmiðjuna. Það lýsir Ivari vel, að lítil dóttir mín, sem kem- ur stundum að heim- sækja pabba sinn, kallaði Ivar og son hans Ævar í plötusmiðjunni alltaf „glöðu mennina“. Það var mitt lán að kynnast þessum manni. Aldrei bar skugga á samstarf okkar. Aðstæður hög- uðu því þannig að ég gat ekki fylgt honum síðustu metrana í vor, en ég gerði það í huganum. Eg veit að Guð hefur tekið vel á móti honum og átt handa honum gott pláss. Eg vil þakka fyrir að fá að kynnast Ivari og verða honum samferða í hálfan annan áratug. Oddur Helgi Halldórsson. listarmaður, og kona hans, Ingveldur J.R. Björnsdóttir Rósinkranz, kjólameistari. Börn Ingibjargar og Björns eru: Gunnar, sóknarprestur og cellóleikari í Holti í Ónund- arfirði, Björn, tónlistar- og verslunarmaður, Horni, Kjal- arnesi, Ragnar, framreiðslu- maður, Efri-Reykjum, Mos- fellsbæ, Ragnheiður, hand- listakona í Reykjavík, og Odd- ur, 1. básúnulcikari Sinfóníu- hljómsveitar íslands. Ingibjörg lauk meistara- prófi í hárgreiðslu frá Iðnskól- anum í Reykjavík og starfaði um hríð á hágreiðslustofunni Ondúla. Þá rak hún um skeið, ásamt Elísabetu systur smni, hárgreiðslu- og snyrtistofuna Snyrtingu á Frakkastíg 6a. Hún vann lengi sem aðstoðar- kona hjá Bjarna Konráðssyni, lækni, í Þingholtsstræti 21 og var mörg síðustu árin umsjón- arkona á kennarastofu Menntaskólans í Reykjavík. Ingibjörg lést hinn 14. nóv- ember á Landspítalanum og var útför hennar gerð í kyrr- þey hinn 19. nóvember. okkar. Hún dekraði við þau í mat og drykk, lék við þau og söng frá fyrsta degi; var vakin og sofin yfir velferð þeirra allt til hinstu stund- ar. Heimili þeirra tengdapabba er þeirra annað heimili. Pillu var margt til lista lagt eins og heimili þeirra Bjössa ber glöggt vitni og nutum við sérstaklega góðs af prjónaskap hennar, en bömin vekja hvarvetna aðdáun og eftir- tekt í peysunum hennar ömmu. Þegar kynni okkar hófust voru ungarnir flognir úr hreiðrinu og Pilla komin út á vinnumarkaðinn á ný. Hún hafði um tíma verið henni Idu í Steinahlíð innan handar og aðstoðað Bjarna lækni Konráðsson í nokkur ár á rannsóknarstofu hans í Þingholtsstrætinu. Starfsævinni lauk hún í Menntaskólanum í Reykjavík þar sem hún stóð vakt- ina í tæp tuttugu ár af sama skör- ungsskap og einkenndi allt hennar líf. í fjölskyldu okkar er stórt skarð höggvið, tómarúmið mikið. Mestur er þó missir Björns er hann hér kveður eiginkonu og besta vin; ást- ríkan lífsförunaut sinn í tæpa sex áratugi. Guð blessi minningu Ingi- bjargar Gunnarsdóttur og gefi Birni styrk. í hinsta sinn kveðjum við þig, kæra tengdamóðir og vinur. Þú átt hugi okkar og hjörtu. Sam- leiðin með þér er ómetanleg. Far þú í friði, hafðu þökk fyrir allt. Ásta Kristín Gunnarsdóttir. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kr- inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar em beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins em birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar em birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverkn- að. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali em nefndar DOS-textaskrár. Þá em ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. INGIBJORG GUNNARSDÓTTIR + Ingibjörg Gunnarsdóttir fæddist í Reykjavík 28. mars 1925. For- eldrar hennar voru hjónin Gunnar Olafsson, nætur- læknabílstjóri í Reykjavík, og kona hans, Ragnheiður Bogadóttir. Gunn- ar var sonur hjón- anna Ólafs Ás- bjarnarsonar, kaupmanns í Kefla- vík og síðar í Reykjavík, Ólafs- sonar í Njarðvík, og konu hans, Vigdísar Ketilsdóttur, hreppstjóra og dannebrogs- manns í Kotvogi, Ketilssonar. Foreldrar Ragnheiðar voru Bogi Sigurðsson, bóndi og kaupmaður í Búðardal, bónda Finnbogasonar í Hallárdal, og kona hans, Ragnheiður Sig- urðardóttir kaup- manns Johnsen frá Flatey á Breiðafirði. Systkini Ingibjarg- ar: Hulda Dagmar, bifreiðastjóri og verslunarmaður, (móðir Huldu var Guðbjörg Kristó- fersdóttir ökumanns í Reykjavík Bárðar- sonar og konu hans, Ástríðar Jónsdótt- ur,) Jóhanna, fram- kvæmdastjóri Ás- _________ bjarnar Ólafssonar hf., Ragnheiður, húsfreyja, Elísabet. húsfreyja. og Ólafur, rithöfundur. Hinn 26. júlf 1947 gekk Ingi- björg að eiga eftirlifandi eigin- mann sinn, Björn R. Einarsson, hljómsveitarstjóra og hljóð- færaleikara í Reykjavík. For- eldrar hans voru Einar J. Jóns- son, hárskerameistari og tón- IVAR ÓLAFSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.