Morgunblaðið - 21.11.1999, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA
í DAG
Kapella eldklerksins á Kirkjubæ.
Par bjó aldrei
heiðinn maður
Kirkjubær og nágrenni rísa hátt í
kristnisögu landsins. Stefán Friðbjarn-
arson segir líkur standa til að í Kirkju-
bæ hafí aldrei búið heiðinn maður.
í HUGVEKJUM hér í blaðinu
hefur verið vakin athygli á því,
síðustu mánuði, að kristinn siður
á Fróni reki rætur til fyrstu
mannvistar í landinu. Sitthvað
styður líkur þess. Meðal annars
þetta:
1. Þegar norrænt landnám hófst
hér á seinni helmingi níundu ald-
ar (trúlega um eða fyrir 870)
vóru fyrir í landinu írskir ein-
setumenn, sem komu hingað
gagngert til að iðka trú sín'a. Ari
fróði segir í Landnámu að þar
hafi verið á ferð „menn kristnir,
þeir er Norðmenn kalla Papa“.
Fjöldi örnefna minnir á veru
þeirra hér.
2. Norrænir landnámsmenn
vóru flestir heiðnir. Þeirra á
meðal vóru engu að síður kristn-
ir menn. Jón Aðils sagnfræðing-
ur telur að þessir kristnu land-
námsmenn hafí, sumir hverjir,
dvalið árum saman á írlandi, í
Skotlandi eða á Vesturhafseyjum
áður en þeir settust hér að.
Hann segir og að flestir kristnir
landnámsmenn hafí verið af ætt-
legg Ketils flatnefs, m.a. Helgi
bjóla, sonur Ketils, Örlygur
Hrappsson, bróðursonur hans,
Auður djúpúðga, dóttir hans,
Helgi magri tengdasonur hans
og Ketill fíflski, dóttursonur
hans.
3. Virtur fræðimaður, Einar
Arnórsson, segir í tímaritinu
Skírni árið 1930 að í hópi !and-
námsmanna hafí og verir „fáeinir
alírskir eða skozkir". Hann nefn-
ir til sögunnar: Avangur (hinn
írski á Botni við Hvalfjörð), Kýl-
an (Bresason við Kollshamar),
Kalman (Bresason bjó að Kata-
nesi), Bekan (á Bekansstöðum)
og Erpur (Meldunsson, skozkur,
bjó að Erpsstöðum). Enn má
nefna Dufan í Dufansdal,
Kjallakur á Kjallaksstöðum og
Kjaran í Kjaransvík.
4. Síðast en ekki sízt fylgdi nor-
rænum landnámsmönnum fjöldi
ófrjáls fólks. Einar Laxness seg-
ir í Islandssögu sinni: „Þrælar
urðu aðalatvinnustétt á stórbýl-
um hérlendis á 10. öld og hlut-
fallslega fjölmennir." Þeir vóru
flestir frá Bretlandseyjum og
taldir kristnir.
í viðtali við Jón Helgason,
fyrrverandi alþingismann og
ráðherra, hér í blaðinu, þar sem
fjallað er m.a. um Kirkjubæ á
Síðu og grannsveitir, segir m.a.:
„Kristnisaga héraðsins er mjög
yfirgripsmikil. Sagt er að á
Kirkjubæjarklaustri hafí aldrei
búið heiðinn maður og þar að
auki eru sagnir um Papa á þessu
svæði, m.a. í Kirkjubæ.“ Á
Kirkjubæ á Síðu bjó Ketill fíflski,
dóttursonur Ketils flatnefns,
kristinn maður. Bæjarheitið
styðst trúlega við það að þar hafi
verið reist kirkja þegar á 10. öld.
„Eigi máttu þar heiðnir menn
búa,“ segir Landnáma.
Já, allar götur frá því að Síðu-
Hallur fór fyrir kristnum mönn-
um á Alþingi árið eitt þúsund
hefur þetta hérað verið fyrirferð-
armikið í kristnisögu landsins.
Þorlákur helgi Þórhallsson (bisk-
up í Skálholti 1178 til 1193)
dvaldi á Kirkjubæ áður en hann
stofnaði munkaklaustur af
Ágústínarreglu í Þykkvabæ árið
1186 og varð ábóti þar. Annað
klaustur var stofnað á svipuðum
tíma á sjálfum Kirkjubæ, nunnu-
klaustur af Benediktsreglu.
I þessum klaustrum var unnið
merkt og mikið menningar- og
bókmenntastarf, eins og raunar í
flestum klaustrum landsins á
þeirri tíð, ekki sízt á dögum
Brands ábóta í Þykkvabæ, sem
tók þar við leiðsögn af Þorláki
helga. Eysteinn Ásgrímsson,
höfundur Lilju, sem allir vildu
orkt hafa, var munkur í Þykkva-
bæ.
Fyrsti lúterski biskupinn í
Skálholti, Gissur Einarsson
(1540-1548), var fæddur Holti á
Síðu. Og hver þekkir ekki sögu
eldklerksins, Jóns Steingríms-
sonar, sem þjónaði á Prestbakka
þegar Skaftáreldar hófust árið
1783 - og margir töldu bjargvætt
byggðarlagsins. Auk merkrar
sjálfsævisögu skrifaði eldklerk-
urinn fróðlegt rit, þar sem gangi
eldgossins er lýst út í hörgul.
Það verður seint of mikið gert
úr kristnisögu þessa fagra hér-
aðs, sveitanna umhverfís Kirkju-
bæ, þar sem kristnir menn hafa
búið frá fyrstu mannvist í land-
inu. Það er máski tilviljun - og
þá skemmtileg tilviljun - að
næsta nágrannaþjóð Islendinga í
Atlantshafínu, Færeyingar, sem
eru og skyldastir okkur að upp-
runa og menningu, eiga einnig
sinn Kirkjubæ, biskups- og
menntasetur um aldir. Andvari
sögunnar leikur um sérhvern ís-
lending, sem heimsækir þetta
fagra og forna menningarsetur
frændþjóðarinnar, Kirkjubæ á
suðvesturströnd Straumeyjar.
Þessar grann- og vinaþjóðir,
sem gengu báðar kristni á hönd
árið þúsund, þurfa að slá skjald-
borg um „kirkjubæi" sína, þjóð-
kirkjur sínar. Þær þurfa að varð-
veita af trúmennsku sinn dýr-
mæta kristna menningar- og trú-
ararf - inn í 21. öldina, sem er í
hlaðvarpa.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Kvalræði
í eyruni
VELVAKANDA hefur
borist eftirfarandi:
„Fyrir tveimur árum
kom einkennilegt og
hræðilegt kvalræði fyrir
New York-búann Jack Le-
onard. Hann fór að heyra,
alveg að ástæðulausu, allt í
einu, hvæs eins og kemur
frá biluðuðu gufuröri.
Hávaðinn í hægra eyra
hans gerði honum ómögu-
legt að einbeita sér og hélt
fyrir honum vöku um næt-
ur.
Hann fór á millli lækna,
en þeir gátu ekkert gert.
„Læknarnir sögðu að þetta
væri hlutur sem ég yrði að
lifa með,“ segir Leonard.
„Ég var alveg að tapa mér
og þar kom að ég kærði
mig ekki um að lifa leng-
ur.“
Leonard þjáist af
„tinnitus", undarlegum
sjúkdómi, þar sem sjúk-
lingarnir heyra ýmiskonar
hávaða. Tinnitus kemur úr
latínu, tinnire (að hringja)
og getur verið í ýmsum
myndum svo sem: hring-
ing, hvæs (blístur) drunur,
suð, glamrandi hljóð í
breytilegu magni; líka
hreinn tónn. Um það bil 7
milljónir Bandaríkja-
manna eru á barmi ör-
væntingar - og stundum
eru framin sjálfsmorð -
vegna þessa erfiða sjúk-
dóms. „Ég veit varla um
nokkurn sjúkdóm, sem
veikir fólk eins mildð, eða
dregur jafn mikið úr lífs-
vilja þess,“ segir Jack A.
Vernon, læknir, sem er yf-
irlæknir Kresge Clinic við
University of Oregon
School of Medicine. „Þú
getur ekki unnið, verður
getulaus og ófær um að
umgangast fólk.“
I sumum tilfellum vill
svo heppiléga til að hægt
er að finna orsakir hljóðs-
ins og lækna sjúklinginn.
I mörgum tilfellum
stafar „tinnitus" frá há-
vaða, hvellum, svo sem frá
byssum eða háværri
hjómlist. Að öðru leyti eru
orsakir „tinnitus“ að
mestu ókunnar. Jafnvel
heyrnarlaust fólk getur
þjáðst af „tinnitus" vegna
hliðarverkana heyrnarbil-
unar.
Á Tinnitus-lækninga-
stofunni hjá New York
Downstate Medical Center
eru gerðar allskonar
heyrnarprófanir til að leita
að mögulegum orsökum
sjúkdómsins. „Okkur gæti
tekist að fínna hvaðan há-
vaðinn kemur, en vitum
vanalega ekki hvað orsak-
ar hann,“ segir Dr. Abra-
ham Shulman, yfirlæknir
stofnunarinnar.
Sumum sjúklingum er
hjálpað með rafeindatæki,
sem gefur frá sér hljóm
sem „dulbýr“ („masks“ -
mask=gríma) tinnitus-há-
vaðann. Þetta tæki var
fundið upp af J.A. Vernon
fyrir fjórum árum og er í
venjulegri heyrnartæk-
isumgjörð.
Það er stöðugt unnið að
rannsóknum á þessu sviði
og ný tækni notuð við gerð
tækja með fjölbreyttari
tíðni. Einnig er verið að
prófa meðul. I Los Angel-
es hefur Dr. William Hou-
se, gert tilraunir með að
koma tækinu fyrir í innra
eyranu, og virðast þessar
tilraunir lofa góðu.
Ég hef, viljandi, sleppt
ýmsum dæmum um slæma
líðan fólks, sjálfsmorð,
skilnaði og fleira þess hátt-
ar.
Ur dagbók vinar míns:
30. júní, 1975. Ég á orðið
bágt með að umgangast
fólk, en er enn að vinna.
Ég fór á Heilsuvemdar-
stöðina í Reykjavík, í dag
og var gerð nákvæm mæl-
ing á eyrunum. Ég reynist
hafa fulla heym, en hávað-
inn mælist 65 decibel -
8.000 rið. Ég talaði við
Gylfa og sagði hann að ég
væri kominn í vítahring,
sem ekki væri hægt að
lækna. Ég yrði að læra að
lifa með þetta. Þessi tónn
er svo hávær, að ég heyri
hann alltaf. Sama hvaða
hávaði er í kringum mig.
Þetta hvín og syngur í
höfðinu og er alveg hræði-
legt. Ég...“
Þýtt og endur-
sagt af P.H.
íbúar Ólafsvíkur
FÓLK frá Ólafsvík sem
kom dóti í geymslu hjá
Valdísi Báru Kristjáns-
dóttur frá Þingeyri er vin-
samlegast beðið að hafa
samband við Sólveigu
Vagnsdóttur í síma
456 8316.
SKAK
limsjón Margeir
Péturssnn
STAÐAN kom upp í viðureign tveggja
Rússa á opna Monarch Assurance
mótinu í Port Erin á Isle of Man í nóv-
ember. P. Kiriakov (2.550) hafði hvítt
og átti leik gegn Sergei Tivjakov
(2.610).
14. Rd5 (Þekkt stef til að taka vald
svarts af peðinu á h7) 14. - exd5 15.
Bxf6 - Bxf6 16. Dxh7+ - Kf8 17. cxd5 -
d6 (Ekki 17. - Bxg5 18. D6 og svartur
verður mát eða tapar drottningunni)
18. Bh5! - Bxg5 19. Dh8+ - Ke7 20.
Dxg7 - Hf8 21. Dxg5+ _ Ke8 22. Hcl-
Dd8 23. Df5 - De7 24. Hc4 - Rd7 25.
Hc7 - Bc8 26. Hfcl (Hvítur stendur nú
uppi með gjörunnið tafl. Lokin urðu)
26. - Kd8 27. Bg4 - De8 28. Hlc6 - Hg8
29. h3 - b5 30. Df4 - Df8 31. Bxd7 -
Flugkennarinn hringdi og sagði að þú
Hvítur leikur og vinnur hefðir fallið á prófinu.
Víkverji skrifar...
SKÝRSLA Landsvirkjunar um
mat á umhverfisáhrifum vegna
Fljótsdalsvirkjunar var gefin út fyr-
ir fáeinum dögum. Þar er mikið rit á
ferðinni, nokkur þúsund blaðsíður
og að sjálfsögðu á íslensku. Fram-
kvæmdastjórar fjórtán landsdeilda
innan náttúruverndarsamtakanna
World Wide Fund for Nature
(WWF) í Evrópu voru þó ekki lengi
að efast um hlutleysi skýrslunnar.
Þeir sátu í vikunni fund einhvers
staðar hinum megin á hnettinum en
sendu engu að síður frá sér yfírlýs-
ingu, meðal annars þessa efnis. Vík-
verji er með þessu alls ekki að lýsa
andstöðu við lögformlegt umhverfis-
mat, en gat ekki annað brosað út í
annað þegar hann heyrði af yfirlýs-
ingu WWF. Skyldu fjórtánmenning-
arnir hafa lesið skýrsluna, eða á
hverju byggja þeir efasemdir um
hlutleysi hennar? Eingöngu þeirri
staðreynd að Landsvirkjun vann
hana?
xxx
VÍKVERJI er mikill áhugamað-
ur um kvikmyndir. Hann hefur
þó lengi átt afar erfítt með að sætta
sig við þann leiða sið, sem tíðkast í
íslenskum kvikmyndahúsum, að
gert sé hlé á myndum þegar leikur
stendur sem hæst.
Vissulega hefur Víkveiji heyrt
þau rök að kvikmyndahúsin geti illa
orðið af þeim tekjum sem sælgætis-
sala í hléi tryggir þeim en eiginlega
telur Víkverji þar ekki á ferðinni
fullgilda réttlætingu fyrir því að
skemmtunin sé eyðilögð fyrir kvik-
myndaáhugafólki. Telur hann sig
eiga heimtingu á betri meðferð sem
viðskiptavinur.
Gaman væri að heyra bíófrömuði
reyna að réttlæta hléin því Víkverji
er sannfærður um að fjöldamargir
deila skoðunum hans og blundar
hálft í hvoru í honum vilji til að blása
í herlúðra í þessum málum.
Hvert er tilefni þessa æsings nú?
Jú, þótt Víkverja hafi oft orðið heitt
í hamsi þegar hlé er gert einmitt
þegar leikar standa hæst tók út fyr-
ir allan þjófabálk þegar Víkveiji
skellti sér að sjá hina umtöluðu
mynd The Blair Witch Project í einu
Sambíóanna. Þeir sem til þekkja
vita að þessi mynd hefur farið sigur-
för um heiminn og þykir hinn mesti
tryllir. Sá tryllir er hins vegar ekki
byggður á tæknibrellum heldur stíg-
anda í ofboðslegum ótta söguhetj-
anna, stigmagnandi angist og
örvinglan sem fer svo gjörsamlega
forgörðum ef gert er fímmtán mín-
útna hlé á myndinni (og hléið var að
minnsta kosti 15 mínútur!) að áhorf-
andinn kemst aldrei aftur í takt við
myndina, nær aldrei aftur að sam-
sama sig söguhetjunum og myndin
er því harla lítið óttaleg þegar há-
punkti er náð.
Burtséð frá hinum hvimleiðu hlé-
um almennt furðar Víkverji sig á því
að kvikmyndahús taki ekkert tillit til
þess hvers konar mynd er verið að
sýna, og hvort hún yfirhöfuð þoli
hlé. I öllu falli hljóta menn jú stund-
um að hugsa um hag kvikmyndaá-
hugamannsins? Eða hvað?
Ekki þar fyrir utan að þeim muni
ekki refsast fyrir það því Víkverji
heyrði skýrt og greinilega að yngri
gestirnir voru ekkert alltof upp-
næmir yfír myndinni, og hún mun
því væntanlega ekki spyrjast jafn
vel út og raunin hefði orðið. Kvik-
myndahúsið mun því þar af leiðandi
verða af tekjum.
Víkverji hefur reyndar óljósan
grun um að sumar sýningar, til
dæmis 7-sýningar, hafi ekkert hlé
og kvikmyndahúsaeigendur gætu
því svarað því til að hann eigi ein-
faldlega að sækja slíkar sýningar, ef
honum er þetta svona mikið hjart-
ans mál. En þá er því við að bæta að
kvikmyndahúsin hafa ekkert fyrir
því að auglýsa hvort hlé sé á mynd
eða ekki. Mætti ekki í það minnsta
ráða bót á því?
xxx
EFTIR að upplýst var í vikunni
að hugmyndin að kaupum á
enska knattspyrnufélaginu Stoke
City væri komin frá Guðjóni Þórð-
arsyni, landsliðsþjálfara, og að all-
an tímann hafi verið ljóst að hann
tæki við stjórninni þar á bæ ef af
kaupum yrði, skilur Víkverji mæta
vel að KSI skyldi ekki gera Guð-
jóni tilboð um áframhaldandi starf,
eins og hann kvartaði yfir að ekki
væri gert. Fólk hlýtur nú að sjá
málið í allt öðru ljósi en áður. For-
maður KSI hefur bersýnilega vitað
hvernig í öllu lá, vitað að Guðjón
átti hugmyndina og færi utan um
leið og íslensku fjárfestarnir festu
kaup á félaginu. Sannleikurinn er
því sá, eins og Eggert Magnússon,
formaður KSI, hélt fram, að ekki
var til neins að gera Guðjóni nýtt
tilboð.