Morgunblaðið - 21.11.1999, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1999 61
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. fslenskt tal
Taizan, konungur frumskógarins, er mættur til íeiks Nyjpi
ævintýri. Nýjasta stórmyndin frá Disney er frábærlégawffi
gerð, fjörug og spennandi og full af skemmtilegri tónlist J||
Sýnd kl. 1, 5, 7, 9 og 11 með ensku tali
og 1, 3, 5 og 7 með ísl tali.
Sýnd kl. 3, 5 og 7 með íslensku tali. ■soKm
ÓboTganleg
mynd eftir
leikstjóra gr(
Woman. &a
IRICHARI
'WrCW 1/2 „Snilld“ HK Fókus
THE BLAIR WITCH PROJECT
www.samfilm.is
www.samfllm.is
sttMwifi'k. n '•* ; mmmm sMmurn Sf.| oh Hg ^lPKifli»
mrp,-.- xv . EINA BÍÓIÐ MEÐ
KRINGLUBR J ÖLLUM SÖLUM
FTO/R
990 PUNKTA „ . . „„„ _____
FERBU i BÍÓ Kringlunm 4-6, simi 588 0800
CÍCECEeiy
r
-f
Morgunblaðið/Ásdís
Jochen Ulrich, Katrín Hali og Guðjón Pedersen.
Sveinn Einarsson, Anna Björnsdóttir, Róbert Amfinnsson og
Herdís Þorvaldsdóttir.
Frumsýning í Þjóðleikhúsinu
Hringurinn
lokast
Gestir á frumsýningu Kákas-
íska krítarhringsins mættu í
sínu fínasta pússi í Þjóðleikhús-
ið á fímmtudagskvöld til að
fylgjast með þessari „bráð-
skemmtilegu útgáfu af þessu
þunglamalega verki“ úr smiðju
Bertolts Brechts, eins og segir í
gagnrýni Morgunblaðsins á
föstudag.
Birgir Henningsson gefur út Hulin andlit
Gamall draumur
varð að veruleika
BIRGIR Henningsson er
sjómaður og tveggja barna
faðir sem gaf út sinn fyrsta
geisladisk á dögunum.
Diskurinn ber nafnið Hulin
andlit og inniheldur tólf
frumsamin lög. „Þetta eru
lög sem ég samdi á svona
tíu ára timabili," segir
Birgir. „Þau eru flest sam-
in á sjónum. Ætli það sé
ekki einveran sem fær
mann til að semja?“
Eru þetta þá aðallega ró-
leg lög?
„Nei, nei, þetta er allt frá
rólegum lögum upp í arg-
asta rokk,“ svarar Birgir
og hlær. Hann hefur verið
að semja og syngja tónlist
um árabil og hefur spilað í
veislum og á öðrum mann-
fögnuðum. Hann segist þó
ekki líta á sig sem tónlist-
armann. „Þetta er aðallega
áhugamái hjá mér; ég hef
mjög gaman af þessu.“
Litróf
mannlífsins
Textarnir á plötunni
eru mjög persónulegir og
segir Birgir þá fjalla um
margt sem hann hefur orðið vitni
að á lífsleiðinni. „Textarnir fjalla
um litróf mannlífsins, allt frá
þingmönnum til vændiskvenna,"
segir Birgir. „Þannig að breiddin
er mikil.“
Birgir spilar á gítar en á plöt-
unni heldur hann sig við sönginn
og lætur Jón Elvar Hafsteinsson
um gítarleikinn. Einnig fékk
hann til liðs við sig þá Friðrik
Sturluson bassaleikara og Óiaf
Hólm trommuleikara. Jón Ólafs-
son sá um upptökur og segist
Birgir vera honum og öðrum
sem lögðu honum Iið við gerð
piötunnar mjög þakklátur.
Þar sem ég er ofl á
sjónum hef ég stund-
um tekið lagið þar
sem ég kem í land,
t.d. á Seyðisfirði og
Sigiufirði
Látinnar
vinkonu minnst
„Þetta er gamall draumur hjá
mér að gefa út plötu,“ útskýrir
Birgir. „Á plötunni er lag sem
heitir í húsasundi sem ég samdi
uin vinkonu mína sem var svo
ólánsöm að ieiðast út í vændi og
eiturlyf. Hún er nú dáin. Mig
dreymdi hana fyrir um tveimur
árum og ákvað ég að gefa iagið
út og fann nokkur önnur til að
setja með á plötuna. Það var í
raun kveikjan að þessu ævintýri;
þar ineð rættist draumurinn,"
segir Birgir.
Hann hefur þegar haldið eina
tónleika á Ara í Ögri sem tókust
vel. „Þar sem ég er oft á sjónum
hef ég stundum tekið lagið þar
sem ég kem í iand, t.d. á Seyðis-
firði og Siglufírði. Ég mun halda
því áfram og fylgja plötunni
þannig eftir.“ Diskur Birgis, Hul-
in andlit, fæst í versluninni
Tónafióði. „