Morgunblaðið - 24.12.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
294. TBL. 87. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/RAX
Mikill flóttamanna-
straumur frá Grosní
Lokasókn-
in hafin?
Moskvu, Suður-Tsjetsjníu. AP, AFP.
MEIRA en 3.500 óbreyttir borgarar eru
sagðir hafa flúið frá Grosní, héraðshöfuð-
borg Tsjetsjníu, á miðvikudag og fímmtu-
dag á sama tíma og svo virðist sem Rússar
séu að hefja lokasókn sína að borginni.
Flóttamenn sem komu til Ingúsetíu í gær
segja að undanfarna sólarhringa hafí stór-
skotaliðsárásir á Grosní færst mjög í auk-
ana og Rússar láti nú sprengjum rigna yfir
borgina án afláts.
Einnig hefur frést af átökum í ýmsum
hverfum borgarinnar milli rússneskra her-
manna og tsjetsjneskra uppreisnarmanna.
Hermt er að liðsflutningar rússneska hers-
ins til Tsjetsjníu fari vaxandi og er það talið
vera til marks um að aukinn þungi sé að
færast í sóknina.
Aslan Maskhadov, forseti Tsjetsjníu, gaf
á miðvikudag út skipun um að hermenn
undir hans stjórn skyldu flýja til fjalla í suð-
urhluta landsins. Skipun forsetans er þó
ekki sögð hafa átt við uppreisnarmenn sem
verjast árásum Rússa í Grosní en þeir eru
taldir vera um 2.000 og reiðubúnir að berj-
ast til síðasta blóðdropa.
Farþegafeija sekkur við Filippseyjar
Um 600 manns
bjargað en
marera saknað
Maniia. Reuters.
HÉR UM bil 600 manns var bjargað úr sjónum
undan strönd Filippseyja eftir að farþegaferja
sökk þar fyrir dögun í gærmorgun.
Embættismenn í Manila sögðu að 591 hefði ver-
ið bjargað og níu hefðu farist í sjóslysinu en 58
væri enn saknað.
„Þótt margir hafi farist er það kærkomin jóla-
gjöf að ofan að manntjónið reyndist minna en ótt-
ast var í fyrstu," sagði Orlando Mercado, varnar-
málaráðherra landsins.
Sjóslys eru mjög algeng á Filippseyjum og um
4.300 manns fórust viku fyrir jól árið 1987 þegar
ferja sigldi á olíuskip nálægt Manila. Var það
mannskæðasta sjóslys sem orðið hefur á friðar-
tímum.
Mercado sagði að sjóslys væru of algeng í des-
ember og rakti það til þess að menn væru tilbúnir
að taka áhættu til að komast heim fyrir jólin og
eigendur ferjanna kynnu að vera of kærulausir.
„Þeir taka ef til vill of mikla áhættu fyrir jólin,“
sagði hann.
658 manns voru í ferjunni. Hún fór frá borginni
Cebu í fyrrakvöld og var á leið til Iloilo þegar hún
sökk um tíu sjómílum frá eyjunni Bantayan.
Herskip, flutningaskip, þyrlur og fiskibátar tóku
þátt í björgunarstarfinu.
Farþegunum fækkað
fyrir brottför
Siglingafyrirtækið Trans-Asia, sem rak ferjuna,
sagði að hún hefði fengið haffærnisvottorð í sept-
ember eftir mjög rækilega skoðun. Brottför henn-
ar frá Cebu hefði tafist vegna þess að farþegarnir
voru of margir, en þeir máttu vera 614. Rúmlega
80 farþegum var því vísað úr ferjunni og hún hélt
úr höfn með 606 farþega, auk 52 manna áhafnar.
MORGUNBLAÐIÐ 24. DESEMBER 1999