Morgunblaðið - 24.12.1999, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.12.1999, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999 15 Oddviti Framsóknarflokks gagnrýnir fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar Skuldasöfnun framundan Kirkjustarf AKUREYRARKIRKJA: Aft- ansöngur í Akureyrarkirkju kl. 18.00 aðfangadag jóla. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel kirkjunnar frá kl. 17.30 og Björg Þórhallsdóttir syngur einsöng. Sr. Jóna Lísa Þor- steinsdóttir. Athugið að aftan- söngnum verður útvarpað á Nett-FM-90,9. Miðnæturmessa á aðfangadag kl. 23.30, Óskar Pétursson syngur einsöng. Sr. Svavar A. Jónsson. Jóladagur: Guðsþjónusta á Fjórðungs- sjúkrahúsinu kl. 10.30, sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Hátíðar- messa í Akureyrarkirkju kl. 11.00, útvarpsmessa. Kór Akur- eyrarkirkju syngur og Sigrún Arna Arngrímsdóttir syngur einsöng. Sr. Svavar A. Jónsson. Annar dagur jóla: Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11.00, barna- og unglingakór Akur- eyrarkirkju syngur, sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Guðsþjón- usta í Kjarnalundi kl. 11.00, sr. Svavar A Jónsson. Guðsþjón- usta á Seli kl. 14.00, sr. Guð- mundur Guðmundsson. Hátíð- arguðsþjónusta í Miðgarðs- kirkju í Grímsey kl. 15.00, sr. Svavar A. Jónsson. Hátíðar- guðsþjónusta í Minjasafns- kirkjunni kl. 17.00, sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Þriðju- dagur 28. desember, morgun- söngur í Akureyrarkirkju kl. 9.00. GLE RÁRKIRKJA: Að- fangadagur jóla: Aftansöngur kl. 18.00, Lúðrasveit Akureyi-ar leikur í anddyri kirkjunnar frá kl. 17.30. Hátíðarmessa á jóla- nótt kl. 23.30, sr. Birgir Snæ- björnsson predikar. Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00, sr. Guðmundur Guðmundsson héraðsprestur predikar, Bar- bara Vigfússon syngur einsöng. Annar dagur jóla: Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 14.00, barnakór Glerárkirkju syngur. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Hjartar Steinbergssonar organista. HVÍTASUNNUKIRK JAN: Aðfangadagur: Jólasamkoma kl. 16.30-17.30, G. Theodór Birgisson safnaðarhirðir flytur hugvekju og kór kirkjunnar leiðir söng. Annar í jólum: Há- tíðarsamkoma, Jóhann Pálsson, fyrrverandi forstöðumaður, predikar. Mikill og fjölbreyttur söngur, kaffihlaðborð eftir sam- komu. Allir hjartanlega vel- komnir. HJÁLPRÆÐISHERINN: Hátíðarsamkoma kl. 17.00 á jóladag. Jólatrésskemmtun fyr- ir börn 27. desember kl. 14. Jólahátíð í Hlíð kl. 14.00 28. desember og í Kjarnalundi kl. 15.45. KFUM og K: Hátíðarsam- koma í Sunnuhlíð á jóladag kl. 20.30. Ræðumaður Lilja Sig- m-ðardóttir, allir velkomnir. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Að- fangadagur jóla: Jólamessa kl. 24.00. Jóladagsmessa jóladag kl. 11.00. Annar í jólum: Messa kl. 11.00. Eyrarlandsvegur 26. HRÍSEYJARPRESTAKAL L: Aftansöngur í Hríseyjar- kirkju kl. 18.00 á aðfangadag og í Stærra-Árskógskirkju kl. 23.00. LAUFÁSPRESTAKALL: Aftansöngur í Svalbarðskirkju kl. 16.00 á aðfangadag. Guðs- þjónusta á jólanótt: 24. desem- ber kl. 22.00 í Grenivíkurkirkju. MÖÐRUVALLAPRESTAK ALL: Hátíðarguðsþjónusta í Glæsibæjai-kirkju kl. 11.00 á jóladag, 25. desember, og í Möðruvallakirkju kl. 14.00. Há- tíðarguðsþjónusta í Bakka- kirkju annan dag jóla, 26. des- ember, kl. 14.00 og í Bægisár- kirkju kl. 15.30. LAUGARLANDSPRESTA KALL: Aðfangadagskvöld, aft- ansöngur í Möðruvallakirkju kl. 22.00. Jóladagur, messa á Grund kl. 11.00, í Kaupangi kl. 13.30 og kl. 15.00 á Krist- nesspítala. JAKOB Björnsson oddviti Fram- sóknarflokks í bæjarstjórn Akureyr- ar gagnrýnir þá skuldasöfnun sem fram kemur í nýsamþykktri fjár- hagsáætlun bæjarins. „Skuldasöfnun er komin á fulla ferð og það er Ijóst að skuldir munu aukast um hundruð milljóna króna á hverju ári. Það er bæði verið að safna skuldum og ganga á eignir og ég vara við þessari þróun,“ sagði Jakob. Á sama tíma séu lífeyrisskuldbindingar að aukast um hundruð milljóna á ári og engin tilraun gerð til þess að stoppa það. Samkvæmt fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að nettó skuldir bæjar- sjóðs aukist og verði orðnar tæpar 900 milljónir króna, eða tæplega 60 þúsund krónur á íbúa, í árslok 2000. Árið 1998 voru skuldir bæjarsjóðs um 280 milljónir króna, eða um tæp- lega 20 þúsund krónur á hvem íbúa. Jakob sagði að framkvæmdasjóð- ur hafi verið orðinn mjög skuldugur og að þeir fjármunir sem fengust fyrir sölu eigna á síðasta kjörtímabili hafi farið í að greiða niður skuldir og þá sérstaklega skuldir framkvæmda- sjóðs. „Þar var staðan orðin sú að SAMNINGUR um flutning á starf- semi Olíudreifmgar ehf. af Oddeyr- artanga á Akureyri út í Krossanes og um flutning á starfsemi Olíufé- lagsins hf. af Oddeyrartanga, var undirritaður í vikunni. í því felst að Akureyrarbær og Hafnasamlag Norðurlands innleysa fasteignir, hús og lóðir Olíufélagsins og Olíudreif- ingar á Oddeyrartanga og önnur þau mannvirki sem ekki verða flutt af staðnum. Þá tekur Akureyrarbær einnig þátt í kostnaði við flutning á þeim mannvirkjum Olíudreifmgar sem nauðsynlegt og hagkvæmt er að flytja. Kostnaður bæjarins og Hafnasamlagsins vegna þessa er um 120 milljónir króna. Samkvæmt samningnum fær Olíudreifing lóð á nýrri uppfyllingu í Krossanesi auk þess sem Ákureyrarbær mun útvega Olíufélaginu lóð undir starfsemi sína samkvæmt nánara samkomulagi. í Hafa haldið skötuveislu í 28 ár ÞEIR voru matarlegir félagarnir sem sátu saman til borðs hjá lyónunum Sigurði Oddssyni og Hrefnu Hagalín á heimili þeirra við Bakkasíðu á Akureyri í gær. Á borðum var vel kæst skata með tilheyrandi drykkjum, en þau hjón hafa boðið til skötuveislu á Þorláksmessu sl. 28 ár. Árlega hafa 12-16 karlar mætt í veisluna hjá Sigurði og Hrefnu og í gær voru tveir nýir félagar teknir í hópinn, barnabörn þeirra hjóna, Sigurður Oddsson yngri, 14 ára og Viktor Máni Einarsson, sem jafnfraint er yngsti meðlimur hópsins, aðeins 5 ára. Sigurður sagði að hópurinn hafi haidið vei saman á þessum tíma en þó hafi nokkrir félagar verið forfaliaðir í gær, auk þess sem einn er fallinn frá. Finnur Birgisson arkitekt hefur verið rit- ari hópsins frá upphafi og skráir hann t.d. allar vísur sem verða til í skötuveislunni, en í hópnum eru margir snjallir hagyrðingar. Sigurður, sem fær skötuna að vestan, hvað annað, er með sér- staka formiílu við að mæla styrk- leika skötunnar, sem er radíus sinnum köttur sinnum pí. „Eftir tekjur sjóðsins dugðu ekki einu sinni fyrir rekstrarkostnaði.“ Akureyrarbæjar fékk rúman millj- arð króna fyrir sölu á hlut bæjarins í Utgerðarfélagi Akureyringa á árinu. Jakob sagði að leitað hafi verið svara við því hvað ætti að gera við þá pen- inga. Hann sagði að ekki hefðu komið fram beinar tillögur um að ráðstafa þeim til atvinnumála, fyrir utan fyrir- hugaða framkvæmd á Gleráreyrum og til eignakaupa vegna þeirra. Fjármunum dreift of mikið „Tillögur til atvinnuuppbyggingar hafa ekki litið dagsins ljós og því er verið að ganga á þann sjóð, bæði með beinum millifærslum í bæjar- Krossanesi mun Olíudreifing byggja upp innflutningshöfn sem mun af- kasta að lágmarki 100.000 tonnum af fljótandi eldsneyti á ári. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri sagði að samkvæmt deiliskipulagi ættu þessi mannvirki að víkja og að með þessum samningi væri áralangri sögu að Ijúka. „Ávinn- ingurinn af þessu fyrir alla aðila, er að koma deiliskipulaginu til fram- kvæmda. Jafnframt að rýmka til á svæðinu, flytja olíustarfsemina út af matvælaframleiðslusvæðinu á Odd- eyri og koma henni fyrir á hentugri stað. I framhaldinu fylgir þessum breytingum einhver uppbygging, annars vegar í Krossanesi og hins vegar á Oddeyrinni. Hvernig upp- byggingin verður á Oddeyri liggur ekki fyrir og þá á eftir ganga endan- lega frá deiliskipulagi í Krossanesi, en sú vinna er í gangi,“ sagði Krist- ján Þór. að ég fæ skötupakkann í hendur, set ég hann við hornið á bíl- skúrnum. Þótt kettir sæki í fisk- meti hafa þeir ekki áhuga á sköt- unni og ég sé á sporum kattanna í snjónum hversu sterk skatan er. Því stærri sem radíusinn er því sterkari og betri er skatan,“ sagði Sigurður. Hann sagði jafn- framt að skatan væri ekki nógu góð nema að menn táruðust af því að anda að sér lyktinni af diskinum, „helst þurfa menn að gráta“. Sem fyrr sagði eru marg- ir hagyrðingar í skötuliðinu og látum við hér fylgja með eina nýja vísu eftir Björn Þórleifsson. sjóð og skuldasöfnun í bæjarsjóði. í þeirri pressu um aukna þjónustu er erfitt að sjá að það verði borð fyrir báru til þess að greiða niður þessar skuldir. Og það er það sem ég sé sem hættuna í þessu.“ Jakob sagði það vissulega rétt að framkvæmdasjóður væri vel stæður, með ríflega 1.300 milljónir í sjóði um næstu áramót. „Ef hins vegar fer sem horfir verða skuldir bæjarsjóðs sama upphæð eða hærri í lok þessa kjörtímabils." Jakob sagðist hafa viljað fresta framkvæmdum við Amtsbókasafnið um eitt ár og koma framkvæmdum við Sundlaug Akureyrar í það horf að þar væri þá hægt að stöðva fram- kvæmdir í einhver ár. „Fjármunum Knútur G. Hauksson fram- kvæmdastjóri Olíudreifingar sagði að í kjölfar uppbyggingar í Krossa- nesi yrði hafinn beinn innflutningur til Akureyrar. Fram til þessa hefur innflutningur og dreifing á eldsneyti í strandflutningum farið fram í gegn- um Reykjavík en í framtíðinni verð- ur slík starfsemi einnig á Akureyri. Fjórum tönkum hefur verið komið Drottins skal greiða götu gerist hér fátt um skjól. Bíðumviðbarnsíjötu, bráttmunukomajól. Bræðaskalflotúrfótu, fyllum svo staup og glös, kúfurafkæstriskötu kæta mun góm og nös. Indælust allra mata, alsælan bíður mín, jafnt fyrir komma og krata krás sú er eðalfín. Munafvörminnihrata magnaðogvíðtækthól. Öll þá er etin skata uppmegarennajól. er dreift of mikið og það er verið að byrja á nýjum framkvæmdum sem ekki sér fyrir endann á.“ Oddur Helgi Halldórsson bæjar- fulltrúi L-lista sagðist nokkuð sáttur við rekstraráætlun næsta árs en hann hefði þó viljað kosta meiru til, t.d. með því að sleppa því að hækka leikskólagjöld og í Hlíðarfjall. „Ég hefði viljað ganga hreint fil verks og hækka útsvarsprósentuna og leggja þá meiri peninga í bæði leikskóla og grunnskóla bæjarins. Ég velti því jafnframt fyrir mér hvað eigi að gera við milljarðinn sem við fengum fyrir sölu á ÚA-bréfunum og hefði viljað nota þá peninga til að byggja upp öflugan sjóð fyrir atvinnulífið." Oddur sagði að þennan bæ vantaði það mikið að hann hefði frekar geng- ið enn lengra í lántökum. „Hér vant- ar fjölnota íþróttahús og íþróttahús í Gilja- eða Síðuhverfi og þá er kom- inn tími á Amtsbókasafnið. Á meðan þessi staða er uppi skil ég ekki hvað menn eru að velta fyrir sér menning- arhúsi, þar sem ljóst er að bærinn þarf að borga hundruð milljóna á móti ríkinu.“ fyrir í Krossanesi en framkvæmdum verður haldið áfram á næsta ári og framkvæmt fyrir 150-200 milljónir króna á svæðinu, að sögn Knúts. Stefht er að því að ljúka fram- kvæmdum ekki seinna en árið 2001. „Umsvifin á Akureyri eiga því eftir að aukast og starfsfólki að fjölga og við áætlum að við stöðina og útkeyrslu starfi 7-8 manns,“ sagði Knútur. Útvarpsstöðin Nett fm 90,9 Hátíðardag- skrá um jólin ÚTVARPSSTÖÐIN Nett fm 90,9 ætlar að þjóna Eyfirðingum með hátíðardagskrá um jólin. Dagskráin hefst á aðfangadag kl. 15.00 með þættinum „Helg eru jól“. Meðal efnis eru viðtöl við Norðlend- inga, þjóðsögur, jólasögur, gamlir þjóðhættir rifjaðir upp og fleira. Umsjónarmaður er Pétur Guðjóns- son. Kl. 18 verður útvarpað frá aft- ansöng í Akureyrarkirkju. Á jóladag verður falleg hátíðar- tónlist send út en eftir hádegi verð- ur þátturinn ,JJelg eru jól“ endur- tekinn. -------------- Fyrsta æfingin í Skautahöllinni SKAUTAMENN á Akureyri fá for- skot á jólin í dag, aðfangadag, þegai' haldin verður fyrsta æfingin i Skautahöllinni. Þótt Skautahöllin sé ekki fullbúin er verið að setja ís og er reiknað með að hann verði tilbúinn kl. 11 í dag. Reglulegar æfingar munu síð- an hefjast hjá Skautafélagi Akur- eyrar strax mánudaginn 27. desem- ber. Ekki liggur enn fyrir hvenær hægt verður að opna svellið fyrii' al- menningi. Samningur Akureyrarbæjar, Olíudreifíngar og Olíufélagsins undirritaður Félögin flutt af Oddeyrartanga Hugmyndir Olíudreifíngar eru um mikla uppbyggingu í Krossanesi. Gestkvæmt hjá Sigurði Oddssyni og Hrefnu Hagalín Morgunblaðið/Kristján Hópurinn í skötuveislunni í Bakkasíðu 5 á Akureyri. F.v. Einar Garðar Hjaltason, Oddur Sigurðsson, Baldur Dýrfjörð, Björn Þórleifsson, Sig- urður Oddsson húsráðandi situr með Viktor Mána, Sigurður Oddsson yngri, Páll Tómas Finnsson, Finnur Birgisson og Jón Hrói Finnsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.