Morgunblaðið - 24.12.1999, Blaðsíða 83
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999 83
HUGVEKJA
FRÉTTIR
„Svo á jörðu
sem á himni“
Frá vetrarsólstöðum liggja allar leiðir til
birtu og yls. Stefán Friðbjarnarson
fjallar í þessari jólahugvekju um hann
sem er ljós lífsins. Megi lífssól hans rísa
í huga okkar, lífí og breytni og hrekja
burt kuldann og myrkrið.
/
LIR, öðru nafni frera-
mánuður, er liðinn.
Mörsugur, þriðji mánuð-
ur vetrar að fornu tímatali,
hófst miðvikudag í 9. viku vetr-
ar, þ.e. næstliðinn miðvikudag.
Þá vóru og vetrarsólstöður. Þá
er stytztur dagur hér
á landi og myrkrið
mest. En þegar
myrkrið er mest skín
ljósið skærast. Jóla-
ljósin minna á hann
sem er ljós lífsins.
Frá því við tendrum
þau liggja allar leiðir
til vaxandi birtu,
bæði í umhverfi okk-
ar og hugarheimi.
Þjóðir norðursins
hafa frá alda öðli
haldið jól við vetrar-
sólhvörf. Orðið jól er
er reyndar norrænt
orð. Það finnst
einnig í fornensku.
Merkir trúlega hátíð
eða veizlu. Tilefni
miðsvetrarhátíða hjá
norrænum þjóðum
var og ærið: hækk-
andi sól - vaxandi
birta. Með vetrarsól-
hvörfum hófst sigur-
ganga birtu og yls
gegn myrkri og
kulda í umhverfi
okkar. Fólkið á
ströndum hins yzta
hafs fagnaði vissunni
um komandi vor.
Fagnaði vissunni um
það að gróðurríkið
vaknar í fyllingu tím-
ans til nýs lífs, lita
og angans af vetrar-
svefni. Fagnaði kom-
andi bjargræðistíð,
bæði til sjávar og
sveita, sem líf þess
og afkoma byggðist
á. Vonin um vorið,
gróanda og gæftir,
hélt lífinu í þessu
fólki langa, stranga
og á stundum matar-
litla vetur.
Þetta árvissa
kraftaverk í hringrás
ársins, sigur ljóss og hlýju yfir
dimmu og kulda, er hluti af
sköpunarverkinu. Það leysir
gróðurríkið í umhverfi okkar úr
klakaböndum dauðans og það
talar til okkar á áhrifamiklu
táknmáli, ef grannt er gáð.
Þetta táknmál speglar boðskap
kristinna jóla: Sigur ljóssins og
lífsins yfir dauðanum. Jesú-
barnið, ljós lífsins, sem fæddist
á hinum fyrstu jólum, lýsir upp
huga og sálu sérhvers manns -
hrekur myrkrið og kuldann úr
hugarheimi okkar. Það vekur
okkar innri mann til nýs lífs,
vonar og kærleika.
Guðspjallamaðurinn Lúkas
segir frá hirðunum á hinum
fyrstu jólum: „Og engill Drott-
ins stóð hjá þeim og dýrð Drott-
ins ljómaði í kring um þá. Þeir
urðu mjög hræddir, en engillinn
sagði við þá: Verið óhræddir,
því sjá, ég boða yður mikinn
fögnuð, sem veitast mun öllum
lýðum. Yður er í dag frelsari
fæddur, sem er Kristur Drott-
inn í borg Davíðs. Hafið þetta
til marks. Þér munuð finna ung-
barn reifað og lagt í jötu ...“
Alheimurinn, sköpunarverk-
ið, er hrífandi kraftaverk. Líf-
ríkið umhverfis okkur er
barmafullt af kraftaverkum, allt
frá örvenim til stærstu dýra
jarðar. í hvert sinn sem lítið
ósjálfbjarga barn fæðist á
plánetunni jörð hefur gerzt nýtt
kraftaverk. En fegursta og
mikilvægasta kraftaverkið er
koma lausnarans, sem fæddist í
mannheim á hinum fyrstu jólum
og færði okkur heim sanninn
um að lífið það er sterkara en
dauðinn. Kennimaðurinn góði,
Sigurbjörn biskup Einarsson,
lýsir þessu kraftaverki svo:
„Hvert Ijós, sem þú kveikir,
hver ómur jólasöngs í sál, er
þrá þín og leit að þessum mætti
hans. Því það var Guð þinn,
Guð og faðir allrar tilveru, sem
lét huga sinn koma og búa í
þessu barni, þessum manni, og
tók þennan sára, sjúka mann-
heim í faðminn sinn, í sitt móð-
urskaut. Hann vildi deila kjör-
um með þeim týndu, blindu,
þjáðu, snauðu, hann tekur sér
stöðu með þeim, sem dýpst var
sökkt í myrkrið af því að hann
ætlar að láta Ijósið sitt sigra frá
neðstu djúpum alla leið upp ...“
Og síðar í sömu predikun:
„Eg fæ að horfast í augu við
hann, fæ að sjá hann, ekki að-
eins í gegnum jólaljósin glöðu,
ekki aðeins í blessuðum augum
þeirra barna, sem syngja hér
og brosa, ekki aðeins í endur-
skini þeirra engla, sem vitna
um dýrð Guðs í upphæðum, ég
fæ að sjá hann líka í þraut og
smán mannsins, í náttskuggum
þeirrar jarðar, sem storkar
friðarboðskap hans, í helstríði
hjartfólginna vina, í harmi og
raunum, í öllu sem særir og
grætir. Það Ijóma jól og páskar
um það allt.
Ég fæ að sjá hann í þeirri
jötu, sem geymir lífið, fyrirheit-
in, framtíð Guðs, á þeim krossi,
sem sigra mun hatrið, hörkuna,
dauðann, þrátt fyrir allt.
Hann er kominn, hann er
fæddur, hann lifir, Jesús,
mannsins sonur, sonur Guðs.
Og hver sem sér soninn og
trúir á hann hefur eilíft líf,
hann hefur fæðst til lifandi von-
ar, til frelsis, til friðar, til þjón-
ustu við ríkið, sem jólin minna
á, svo á jörðu sem á himni.“
Gleðilega jólahátíð!
Höfundur er fyrrverandi
blaðamaður við Morgunblaðið.
Altaristafla í Dómkirkjunni í Reykjavík.
Bíósýningar í tengslum
við Hjálparstarf
kirkjunnar
NYJA stjörnustríðsmyndin, Star
Wars Episode I: The Phantom
Menace verður sýnd aftur í stórum
sal, nú í Háskólabíói 26. des. (annan í
jólum). Verður myndin sýnd í viku til
að byrja með (eða til og með 2. jan.)
og eru þetta einungis sex sýningar
og ávallt kl. 15:00.
Allir þeir sem koma með fullan
jólabauk frá Hjálparstarfi kh-kjunn-
ar sem dreift var í hús fyrir jólin og
afhenda starfsmanni Hjálparstarfi
kirkjunnar baukinn eiga möguleika á
glæsilegum vinningum þessa einu
sýningai-viku. Yfir 400 vinningar eru
í boði m.a. Star Wars Lego-öskjur,
gjafabréf í Pizza Hut og Kentucky
Fried Chicken, Kjörís Star Wars-
frostpinnar, 21 pepsíkippur, Star
Wars-tölvuleikir og Star
Wars-geisladiskar frá Skífunni, kon-
fektkassar frá Nóa Síríusi og aðal-
vinningurinn, sem er ferð fyrir fjóra
í Legoland. Innifalið í því er flug og
bfll, gisting á Hótel Legolandi í tvær
nætur og aðgangur að garðinum.
Komið verður fyrir stórum bauki í
Háskólabíói merktum Hjálparstarfi
kirkjunnar og mun starfsmaður
Hjálparstarfs kirkjunnar hella úr
öllum litlu jólabaukunum í stóra
baukinn og mun allur ágóðinn renna
til innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs
kirkjunnar fyrir íslenskar barnafjöl-
skyldur og fátækar fjölskyldur nú
um hátíðarnar.
.♦ ♦-----
Flugelda-
sala KFUM
EINS og undanfarin ár standa
æskulýðsfélögin KFUM og KFUK
fyrir flugeldasölu til fjáröflunar
starfi sínu.
Að þessu sinni fer salan fram í að-
alstöðvum félagsins við Holtaveg eft-
irtalda daga: Þriðjudaginn 28. des-
ember kl. 17-22, miðvikudaginn 29.
desember kl. 17-22, fimmtudaginn
30. desember kl. 12-22 og föstudag-
inn 31. desember kl. 10-16.
Aðalstöðvar KFUM og KFUK við
Holtaveg eru rétt við fjölskyldu-
garðinn í jaðrinum á Laugardalnum,
á móti Langholtsskólanum.
Vinningaskrá
31. útdráttur 23. desember 1999
íbúðarvinningur
Kr. 2.000.000______Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
31322
F crðavinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
50309
54029
59375
59455
Ferðavinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
13785 31974 43738 44695 61514 68556
24877 34527 43930 53454 64590 74310
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
287 7264 14080 23405 36235 49977 57268 69910
606 8234 15125 24844 36764 50941 58331 70535
1163 8301 15393 24988 38889 51326 58445 71071
1318 8305 18025 27144 40999 52066 58748 71505
2651 8707 18875 29296 41555 53412 59194 74487
2835 8968 18992 29307 42432 54541 60180 75722
3709 9368 21268 30414 42544 55099 61331 76397
3805 9716 214721 30461 43727 55743 62178 76659
4432 10202 21527 30531 44039 55781 64001 77525
4736 12173 22162 32101 45214 56170 64089
5204 12677 22189 32280 45898 56522 65577
6834 13406 22872 33303 47507 56769 66758
7034 14079 23127 35047 49751 56773 68401
Húsbúnaðarvinningur
Kr. S.000 Kr. 10.000 (tvöfaldur)
524 11521 23022 35804 44831 55678 62976 7 1231
600 1 1626 24240 35867 44940 55680 63299 71327
8 10 11681 24381 36664 45195 55834 63769 7 1457
93 1 11708 24816 36998 45260 55862 63930 7 1605
1209 1 1765 24874 37048 45466 55914 63977 7 1 950
1758 12603 24980 37135 45475 55990 6461 1 72297
2253 14 194 25175 37312 45499 56537 64882 72356
2319 1450 1 25294 37539 46273 56904 65247 72525
2382 14562 25756 37652 46469 56947 65277 72732
2743 14690 26006 38071 46572 57024 65339 73920
3124 14773 26024 38151 47931 57123 65349 74391
3311 14985 26175 38424 48108 57402 65430 74731
3316 15024 26327 38527 49017 57510 65466 75831
3484 15566 26484 38683 49045 57767 65492 76295
4369 15727 27331 387 1 7 49609 57776 66005 76513
5047 16038 27432 38944 49827 58205 66042 76619
5195 16664 28735 38980 499 1 7 58560 66309 76895
56 15 16686 28754 39029 50255 58596 66480 77229
6179 1 8056 29167 39336 50340 587 13 66482 77428
6513 18476 29484 39501 50786 59013 6664 1 77942
6809 18650 30477 39502 50875 59237 67078 78481
7772 18895 30638 40207 51114 59243 67595 787 1 4
8074 18969 31162 40634 51231 59322 67699 78807
8239 19111 3 1365 41123 51730 59710 68013 78926
8715 20007 3 1368 41124 52226 59755 68308 78974
8839 20675 32466 4 1 839 52687 60542 69916 79747
94 17 20823 33849 42629 54078 60642 69976
9440 21148 34542 42951 54118 61902 7051 1
9803 2 1628 35 135 4356 1 54712 61942 70559
9885 2 1784 35503 43585 55144 62386 70673
10605 22212 35609 44340 55373 62430 70868
1 1479 22631 35669 44543 55582 62805 71177
Næsti útdráttur fer fram 30. dcsembcr 1999.
Heimasfða á Intcmeti: www.das.is