Morgunblaðið - 24.12.1999, Side 20

Morgunblaðið - 24.12.1999, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU „ Stærsta j ólagj öfín til Grundfirðinga“ Guðmundur Runólfsson kaupir tvö skip með aflaheimildum GUÐMUNDUR Runólfsson hf. í Grundarfirði hefur fest kaup á tveimur skipum með um 1.455 tonna þorskígildiskvóta. Annað skipið er þegar komið til Grundarfjarðar. Það heitir Heiðrún, 294 brúttólesta skip smíðað á ísafirði 1978. Hitt skipið heitir Þór Pétursson og er 143 brúttólestir. Það er 10 ára gamalt og er einnig smíðað á Isafirði. Skipin verða gerð út frá Grundar- firði á ísfiskveiðar og núverandi áhafnir skipanna munu starfa þar áfram. Runólfur Guðmundsson skip- stjóri og stjómarfomaður Guðmund- ar Runólfssonar hf. sagði í samtali við Morgunblaðið að ástæða kaup- anna sé fyrst og fremst sú að nýta betur fjáríestingar fyrirtækisins í landi. Kvótinn hefur ekki dugað til og hráefni hefiir verið keypt á markaði til að halda uppi samfelldri starfsemi. „Þetta er óheyrilega dýrt og því betri kostur að kaupa kvóta og skip," segir Runólfur. Með kaupunum eykst kvóti fyrirtækisins úr 2.300 tonnum í 3.650 tonn og er þá miðað við þorskígildi. Grundfirðingar em að vonum ánægðir við þessar fréttir því það er gríðarleg lyftistöng fyrir þorpið að fá 1.450 tonna kvóta inn í byggðarlagið. Til samanburðar má geta þess að heildarbyggðakvótinn á þessu ári sem byggðastofnun heiur úthlutað var 1.500 tonn. Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri sagði að þetta væri stærsta jólagjöfin til Gmndfirðinga þetta árið. Morgunblaðið/Hallgrímur Runólfur Guðmundsson, skipstjóri og stjómarformaður Guðmundar Runólfssonar, og Óli Fjalar Ólason, skipstjóri, í brúnni á Heiðrúnu. Morgunblaðið/HMÁ Lifandi sædýrasafn SÆDYRASAFNIÐ í Norðursjáv- arsetrinu í Hirtshals í Danmörku er hið stærsta sinnar tegundar í Evrópu. Þar er að finna sýnishorn af nánast öllu sem á einhvern hátt snertir lífið í eða við Norðursjóinn, allt frá smæstu lífverum upp í öfl- ugustu veiðarfæri. Hjarta Norðursjávarsafnsins er án efa hið gríðarstóra „fiskabúr” þar sem sjá má heilu síldar- og makríltorfurnar synda innan um stóra háffiska, skötur, steinbíta og ótal margar aðrar fisktegundir. Búrið er 8 metra djúpt og inniheld- Norðursjávar- safnið í Hirtshals ur 4,5 milljónir líta af sjó. Dýrðina má virða fyrir sér í gegnum 6 metra háa og 12 metra breiða gler- rúðu en hún er 41 sentimetra þykk og heil 36 tonn að þyngd. Endrum og eins bregða starfsmenn safnsins sér niður í undirdjúpin til að fæða fiskana og svara um leið spurning- um forvitinna áhorfenda. Einnig má skoða aðrar lífverur Norðursjávarins á safninu, ýmsar fisktegundir, marglyttur og mar- flær, risahumara og rækjur í minni búrum, og í selalauginni má horf- ast í augu við forvitna selina í gegnum rúður undir yfirborði laug- arinnar. Gestir fræðast einnig um lífkeðju hafsins og lifnaðarhætti dýranna sem þar búa. A safninu er einnig rakin saga fiskveiða í Norð- ursjónum og áhrif þeirra á um- hverfi bæði manna og dýra. Þannig er gerð grein fyrir daglegu lífi sjó- mannsins, aðstæðum hans fyrr og nú, bæði á sjó og í landi. léunu i±Aá/i alþféðLeqt, og skeMMtiLaqt nám í tískufaó+éun J~>k+áninq stendut iffiit. ~öótönn hafcst ii. /^anúat. n.k. ótt þú kCát fiiftlt næstu b'ld? J^ími 588 7575 netfiang: fcatbl@faatbi.coM towto. fcatbi. com -----+++------ Margiraf launaskrá DRÆM loðnuveiði á sumar- og haustvertíðinni hefur haft mikil áhrif á alla starfsemi í verksmiðjunum og hefur fjöldi starfsfólks verið settur af launaskrá auk þess sem vinna hef- ur dregist saman hjá öðrum. Fyrir tæplega þremur vikum voru 16 manns settir af launaskrá hjá SR- mjöli hf. á Siglufirði vegna hráefnis- skorts og ástandið er ekki betra hjá öðrum. „Loðnuverksmiðjurnar hafa fengið lítið hráefni seinni hluta árs- ins og því er vandamálið víðtækt,“ segir Þórður Jónsson, rekstrarstjóri SR-mjöls. „Við erum með 100 þús- und tonnum minna af loðnu en við reiknuðum með og gerum ráð fyrir óbreyttu ástandi í atvinnumálunum þar til úr rætist með hráefni. Sam- dráttur hefur átt sér stað í öllum verksmiðjum okkar en erfitt er að meta hve margir eru atvinnulausir af þessum sökum. Hins vegar hefur samdrátturinn áhrif á tekjur flestra starfsmanna verksmiðjanna.“ Von um meiri afla SR hefur fengið um 40 þúsund tonn af loðnu á sumar- og haustver- tíðinni en undanfarin þrjú ár hefur samsvarandi tala verið 150 til 200 þúsund tonn. „Við verðum bara að vona að loðnan komi af krafti eftir áramótin,“ segir Þórður. „Þessi óvissa fylgir alltaf sjávarútveginum, einkum í uppsjávarfiski, en það þýðir ekki annað en vera bjartsýn á það að loðnan gefi sig til. Þetta hefur ekki heldur verið glæsilegt hjá þeim sem eru á loðnuskipunum sem hafa legið meira en minna allan seinni hluta ársins en ekki gengur að leggjast í sút og svartsýni. Fólk gerir sér grein fyrir stöðunni.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.