Morgunblaðið - 24.12.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999 37
JÓLAMYNDIR KVIKMYNDAHÚSANNA
Laugarásbíó
Hættulegir
hákarlar
JÓLAMYNDIR Laugarásbíós í ár eru
hákarlamyndin „Deep Blue Sea“, eftir
Renny Harlin sem einnig er í Kringlu-
bíói, Nýja bíói í Keflavík og Borgarbíói
Akureyri, og „Mickey Blue Eyes“, sem einnig
er í Háskólabíói en nýjasta Bond-myndin, „The
World is Not Enough“ verður líka sýnd í bíóinu
yfirjólin.
Hákarlamynd Harlins fjallar um rannsóknir
á hákörlum sem fara á versta veg. Saffron Bur-
rows leikur vísindamanninn Susan McAlester
sem stjórnar tilraunum á hákörlum er skapað
gætu ný og byltingarkennd lyf en hún hefur
fiktað við erfðaþætti hákarlanna og breytt
þeim þannig að þeir verða hættulegri
drápsmaskínur en nokkru sinni fyrr.
Myndin gerist öll í rannsóknarstöðinni Aqu-
atica sem er á hafi úti en á meðal samstarfs-
manna McAlester má nefna hákarlasérfræð-
inginn Carter Blake, sem Thomas Jane leikur,
Sherman Dudley (LL Cool J) og þann sem
fjármagnar verkefnið, Russell Franklin
(Samuel L. Jackson). Þá má nefna að hinn
sænski Stellan Skarsgard, sem haslað hefur
sér völl í Hollywood, fer með áberandi hlutverk
í myndinni.
„Við vildum leikara sem voru traustir en
ekki endilega kvikmyndastjörnur líkt og í
fyrstu „AJien" myndinni þar sem enginn bjóst
við því að Sigourney Weaver ætti eftir að lifa
af,“ er haft eftir finnska hasarleikstjóranum
Harlin, sem er einn eftirsóttasti leikstjóri í sínu
fagi í draumaverksmiðjunni. „Við vildum hafa
margar slaufur á sögunni þangað til áhorfend-
ur vissu ekki lengur hver var hver eða hvað
ætti eftir að koma fyrir þetta fólk. Við vildum
að áhorfendur kynntust þessu fólki sem lifandi
verum af holdi og blóði fremur en kvikmynda-
stjörnum."
Og áfram heldur Harlin: „Það sem við höfum
hér er svolítið meira en við höfum séð áður. Við
höfum séð hákarla á ströndinni og hákarla á
hafi úti. En í þessari mynd sjáum við hákarla í
setustofunni og í svefnherberginu, sem eru
hlutar af rannsóknarstöð sem smám saman
flæðir yfir. Ég held að okkar mottó hafi verið:
Þú getur synt en þú getur ekki falið þig.“
Jackson vann með Harlin við gerð hasar-
myndarinnar „The Long Kiss Goodnight“ og
leikstjórinn lagði mikla áherslu á að fá hann í
hákarlamyndina sína. Jackson sló til. „Ég
hlakkaði til að gera þessa mynd vegna þess að
hún er ólík öllu öðru sem ég hef gert,“ segir
leikarinn. „Ég ólst upp við skrímslamyndir og
jafnvel þótt þessi mynd segi frá ólíkum
skrímslum hefur hún marga þætti klassískra
skrímslamynda eins og Frankensteins og Ulfa-
mannsins og auðvitað Ókindarinnar. En „The
Deep Blue Sea“ vinnur með klisjurnar á nýjan
hátt.“
Jackson heldur áfram: „Mannskepnan er
greindasta dýr jarðar en þegar við förum í sjó-
inn erum við ekki lengur jafnörugg um okkur
og við missum yfirburði okkar. Önnur dýr eru
þar greindari og sterkari og hraðskeiðari. í
myndinni fáum við það verkefni að reyna að
komast undan hákörlum og nota við það greind
okkar og það er eitt af því sem höfðaði til mín.“
Sambíóin
Járnrisi, hákarlar
og Endadægur
SAMBÍÓIN frumsýnatvær jólamyndir
á annan í jólum, „Deep Blue Sea“ eft-
ir Renny Harlin, sem einnig er sýnd í
Laugarásbíói, Nýja bíói Keflavík og
Borgarbíói Akureyri (sjá Laugarásbíó), og
Warner-teiknimyndina Járnrisann, sem sýnd
er með íslensku tali. Aðrar myndir Sambíó-
anna sem sýndar verða yfir jólin eru m.a.
Endadægur, nýjasta mynd Arnold
Schwarzeneggers, „Mistery Men“, nýja
Bond-myndin og Disney-teiknimyndin
Tarzan, sem sýnd er með íslensku tali.
Járnrisinn er byggð á barnabók eftir skáld-
ið Ted Hughes sem kom út árið 1968 en sagt
er að sagan um risavaxna vélmennið og unga
drenginn sem verður vinur þess hafi orðið til
eftir lát eiginkonu hans, Sylviu Plath, og sam-
in fyrir börnin þeirra tvö.
I teiknimyndaútgáfunni frá Warner Bros.
gerist sagan árið 1957 í Bandaríkjunum í
kalda stríðinu miðju og þegar geimferða-
kapphlaupið á milli Bandaríkjamanna og
Rússa stóð sem hæst. Aðalpersónurnar eru
Annie og níu ára gamall sonur hennar, Hog-
arth, sem trúir því að geimverur séu til. Þau
búa í smábænum Rockwell í Maine og dag
einn segir sjómaður frá því að risastór járn-
maður hafi fallið til jarðar í nágrenninu. Hog-
arth er sá eini sem tekur hann alvarlega og
heldur af stað að leita að járnmanninum og
finnur hann.
Með helstu hlutverk í íslensku talsetning-
unni fara Grímur Gíslason, sem leikur Hog-
arth, Selma Björnsdóttir, sem leikur Annie,
Atli Rafn Sigurðarson, Hilmir Snær Guðna-
son, Arnar Jónsson, sem talar fyrir járnris-
ann í myndinni, Hjálmar Hjálmarsson og
Karl Ágúst Úlfsson en með minni hlutverk
fara m.a. Stefán Jónsson, Magnús Jónsson og
Björn Ingi Hilmarsson.
Höfundur myndarinnar heitir Brad Bird.
Hann hefur gert nokkrar breytingar á sögu
Hughes en segist halda inntaki hennar ó-
breyttu. Járnrisinn, hvaðan svo sem hann
kemur, var smíðaður sem stríðsvél, einskon-
ar byssa með sál. „I okkar útgáfu sögunnar,"
er haft eftir Bird, „er drengurinn í hlutverki
foreldris en risinn er barnið. Ég held að hvert
okkar um sig hafi möguleika til þess að gera
bæði góða hluti en einnig að standa fyrir
hræðilegri eyðileggingu. Á hveijum degi
stöndum við frammi fyrir vali á milli þess að
Tveir vinir; úr Warner - teiknimyndinni Járnrisanum.
gera gott og illt. Hogarth hjálpar þessari
maskínu, sem byggð er í ákveðnum tilgangi,
til þess að finna á sér nýjar hliðar og verða
jafnvel mennskari fyrir bragðið.“
Bird ákvað að breyta um sögutíma og valdi
sjötta áratuginn. „Það er dásamlegur tími
fyrir svona mynd. Bandaríkjamenn stóðu á
krossgötum. Við lærðum að lifa með kjam-
orkuvopnum, geimferðakapphlaupið hafði
farið af stað, ofsóknarkenndin í samfélaginu
var mikil og allt kom þetta fram í kvikmynd-
um tímabilsins; risastórir maurar og stökk-
breyttir marsbúar. Það eru spaugileg við-
brögð við öllu því sem var að gerast á þessum
áram. Þannig að ef þú ætlar að segja sögu af
ungum dreng sem vingast við járnrisa er
mjög viðeigandi að notast við þetta tímabil."
Endadægur með Arnold Schwarzenegger
gerist hins vegar við lok ársins 1999. Amold
leikur Jericho Cane er starfar sem öryggis-
ráðgjafi en er fyrrverandi lögreglumaður.
Hann hefur misst eiginkonu sína og bara en
það á fyrir honum að liggja að berjast gegn
Satani sjálfum við árþúsundamótin.
Mótleikarar Arnolds eru Kevin Pollack,
Gabriel Byrne og Robin Tunney en aðrir leik-
arar í myndinni eru m.a. Cch Pounder, Rod
Steiger og Derrick O’Connor. Handritið ger-
ir Andrew W. Marlowe en leikstjóri er Peter
Hyams.
Handritshöfundurinn Marlowe skrifaði
handrit myndarinnar með hasarhetjuna
Schwarzenegger sérstaklega í huga. Hann
segist alltaf hafa haft áhuga á að starfa með
súperstjörnunni og fann út að hasarleikarinn
hafði ekki áður tekist á við Satan. „Allir vita
um árþúsundaskiptin en þetta er eina bíó-
myndin sem framsýnd er í lok ársins 1999
sem fjallar um margar þær spurningar sem
fólk veltir fyrir sér,“ segir Araold.
Nýjar bækur
• DÓRI - Sagan
afmér, honum
Dóra, Halldðri
Jóhannssyni er
barna- og ungl-
ingasaga eftir
Einar Loga Ein-
arsson.
Fjallað er um
tíu ára íhugulan
dreng sem varð
fyrir þeirri raun
að foreldrar hans fórust í bílslysi.
Eftir það fluttist Dóri til frændfólks
síns upp í sveit og kynntist þar ýmsu
nýstárlegu, sem orkaði sterkt á for-
vitinn og mannblendinn pilt.
Útgefandi er Bókamiðstöðin. Bók-
in er 128 bls.
• 4x4 Á Hálendi íslands kemur út á
þremur tungumálum, auk íslensk-
unnar, ensku, þýsku og frönsku.
Textann skrifar Sigurður Stein-
þórsson jarðfræðingur og myndir
eru eftir Kjartan P. Sigurðsson.
Bókin skiptist í fimm kafla; ágrip
af sögu fjallaferða og ferðamennsku
íyrr á tímum; vetrarferðir, þar er
farið á hálendið, upp á jökla og
helstu fjöll landsins á torfærutröll-
unum. Þriðji kaflinn greinir frá sum-
arferðum þar sem farið er um þekkt-
ar jeppaleiðir. Þá kemur kafli um
hagnýtar upplýsingar, s.s. hvernig
jeppinn er útbúinn til fjallaferða og
óvæntar uppákomur. I síðasta kafl-
anum eru ljósmyndir af ferðalögun-
um.
Útgefandi er Tæknimyndir. Bókin
er 108 bls., prentuð í Gutenberg.
Verð: 2.580 kr.
Nýjar plötur
• SÖNGURINN göfgar ogglæðir
heitir fjórða geislaplata Karlakórs-
ins Hreims úr Þingeyjarsýslu og
hefur að geyma 21 lag. Söngstjóri er
Róbert Faulkner. Undirleikarar era
Juliet Faulkner: píanó og lágfiðla,
Aðalsteinn ísfjörð: harmónikka, Ja-
an Alavere: fiðla, Valmar Valjaots:
fiðla, Þórarinn R. Illugason: bassi,
Erlingur Bergvinsson: gítar, Sigurð-
ur R. Jónsson: mandólín.
Karlakórinn Hreimur var stofnað-
ur í janúar árið 1975 og er því nýlega
orðinn 24 ára. Stofnfélagar vora 42
og hefur sá fjöldi haldist svipaður
allt fram á þennan dag. í dag era
einungis fimm af stofnfélögunum
starfandi með kórnum. Söngmenn
koma frá flestum sveitum Suður-
Þingeyjarsýslu auk Húsavíkur.
Kórinn gefur sjálfur úten Japis
sér um dreifíngu. Verð 1999 kr.
• LEIFUR Þór-
arinsson - Sum-
armálhefur að
geyma verk sem
Leifur samdi fyr-
ir Helgu Ingólfs-
dóttur og Manu-
elu Wiesler.
Verkin eru: Son-
ata per Manuela
fyrir flautu, Són-
ata með „Da“
fantasíur fyrir sembal, „Da“ fantasía
fyrir sembal og Sumarmál fyrir
flautu og sembal.
Flytjendur eru Kolbeinn Bjai-na-
son, flauta, og Guðrún Óskarsdóttir,
sembal. Leifur Þórarinsson fæddist
1934 og lést 1998.
Útgefandi er Smekkleysa með
styrk frá Félagi íslenskra tónlistar-
manna. Japis sér um dreifíngu. Upp-
tökur fóru fram í Skálholtskirkju
1998. Upptökustjóri: SigurðurRún-
arJónsson. Hljóðvinnsla: Sigurður
Rúnar Jónsson. Útlit: Goddur. Arsis
classics gefur út erlendis. Verð:
2.199 kr.
• VORVINDAR er með 23 lögum
Karlakórsins Söngbræðra úr Borg-
arfirði.
Karlakórinn hefur starfað í Borg-
arfjarðarhéraði síðan 1978 og var
mbl.is
stjórnandi hans frá upphafi til 1994
Sigurður Guðmundsson, bóndi og
organisti á Kirkjubóli í Hvítársíðu.
Síðan 1994 hefur Jacek Tosik-
Warszawiak stjórnað kómum. Und-
irleikari er Zsusanna Budai.
Kórinn gefur sjálfur út en Japis
sér um dreifíngu. Upptökurfóru
fram í Reykholtskirkju dagana 1. og
2. maí 1999. Hljóðupptaka: Studio
Stemma Upptökumaður var Sigurð-
ur Rúnar Jónsson. Verð 1.999 kr.